Morgunblaðið - 22.09.1989, Blaðsíða 31
- - - -MORGÚNBLAÐIÐ- FÖSTÚDÁGU-R -22.-SEjpíÍÉMJjER-1989
31
Elías J. Guðjónsson
Akranesi — Kveðjuorð
Kveðja frá Lions-
klúbbi Akraness
Hinn 14. september sl. andaðist á
heimili sínu, Staðarfelli á Akranesi,
Elías Jón Guðjónsson kaupmaður.
Elías fæddist í Bakkakoti á Akra-
nesi, 13. maí 1919, ogjvoru foreldrar
hans hjónin Ólafía Ólafsdóttir og
Guðjón Jónsson kaupmaður, er
bjuggu þá í Bakkakoti. Guðjón hóf
árið 1918 rekstur verzlunar í Odd-
geirsbúð eftir að Oddgeir Ottesen
hætti þar verzlun, en byggði síðan
árið 1922 stórt steinhús handan göt-
unnar, er hann nefndi Staðarfell, og
var verzlunin flutt þangað. Guðjón
lést 2. júní 1929 er Elías var á 10.
ári og Unnur systir hans á 7. ári.
Ólafía móðir Elíasar rak verzlunina
áfram til ársins 1933, er hún hóf
rekstur á matsölu.
Elías kynntist því ungur verzlun-
arrekstri enda átti hann eftir að gera
þá atvinnu að ævistarfi sínu og starf-
aði fyrst við verzlun Sigurðar Hall-
bjarnarsonar. Árið 1942 tók Elías
við starfi verzlunarstjóra. hjá útibúi
Sláturfélags Suðurlands á Ákranesi.
Eigin verzlunarrekstur hóf Elías svo
26. janúar 1946 í Ásbyrgi, en hann
hafði þá keypt birgðir skóverzlunar
Guðmundar Egilssonar. í byrjun
verzlaði Elías eingöngu með skófatn-
að. Verzlunin var flutt heim að Stað-
arfelli, Kirkjubraut 1, hinn 23. maí
sama ár og hefur verið þar síðan og
við húsið kennd. Elías verzlaði einnig
með búsáhöld og síðar með raf-
magnsvörur.
Umsvifin jukust. Elías setti upp
skóverslun i Reykjavík og reyndar
tvær um tíma og rak einnig um ára-
bil aðra verzlun á Akranesi á Kirkju-
braut 2 og seldi þar búsáhöld og
rafmagnsvörur.
Það er samdóma álit þeirra, er
kynni höfðu af Elíasi og verzlunar-
rekstri hans, að hann væri lipur og
áreiðanlegur í viðskiptum og drengur
góður.
Elías Guðjónsson var í hópi þeirra
15 ungu manna er stofnuðu Lions-
klúbb Akraness hinn 22. apríl 1956.
Hann var gjaldkeri í fyrstu stjórn
klúbbsins, 1956—1957, ritari
1960—1961 og formaður Lions-
klúbbs Akraness 1961—1962. Hann
starfaði í öllum helstu nefndum
klúbbsins og var m.a. formaður í
stjórn Áhaldakaupasjóðs Sjúkrahúss
Akraness í heilan áratug eftir 1971.
Um langt árabil mætti enginn félagi
betur á fundum Lionsklúbbs Akra-
ness en Elías Guðjónsson. Af framan-
greindu má glögglega sjá hver af-
burðaliðsmaður Elías Guðjónsson var
í röðum Lionsmanna á Akranesi,
enda var hann á síðasta starfsári
gerður að ævifélaga í Lionsklúbbi
Akraness ásamt tveimur öðrum
stofnfélögum.
Hinn 30. nóvember 1940 gekk
Elías að eiga Sigríði Ármannsdóttur
frá Hofteigi á Akranesi. Börn þeirra
eru Guðjón, sem kvæntur er Vigdísi
Eyjólfsdóttur og Gunnhildur, sem
átti Kjartan Júlíusson rafmagns-
tæknifræðing á ísafirði en hann lést
langt um aldur fram fyrir nokkrum
árum.
Fyrir hjónaband átti Elías son með
Elísabetu Steinþórsdóttui' er Steinar
Richard hét. Hann andaðist í bílslysi
1962.
Lionsmenn á Akranesi senda ást-
vinum Elíasar Guðjónssonar sínar
innilegustu-samúðarkveðjur og biðja
algóðan Guð að líkna þeim í sorg.
Lionsfélagar á Akranesi
Tónleikarnir hefjast
kl. 21.30.
Dansleikur til kl. 03.00
Verð með mat kr. 3.800,-
Á dansleik kr. 1.200,-
Borðapantanir í síma 34-700
Gisting í tveggja manna herbergi
kr. 2.475,- pr. mann
Aldurstakmark 20 ár
TtumÁyeýiajyteáó meO
/úfaOum :k/eyy/um
oy TomaÁióáiíí
teynir Jðnasson
leikur fyrir mafargesti.
ÚTKASTARINN
PATRIOK S
Dcmsinum er lokió.
Nú hefjnst illindin.
ÍD1.SIH
SBn<llllrSlillH!BlEn.Illll",,!lSna!!liill
■5% , ____ _ __________________li ASSOOAHON WTH SIAfi RftRINERS k UD I |k'“
DtSMHtD6VIKIH)WfMKM.flCTURES [SOUSÆIIRACKAiBUMAVAHABLE 0.WSUCHfttMCASSEIKS COMPMSTDISCSANDRECQRDSl c mmk&totc,
0)0)
I' I
Sýnd kl. 5 - 7.05 - 9.05 -11.10
3