Morgunblaðið - 22.09.1989, Blaðsíða 39

Morgunblaðið - 22.09.1989, Blaðsíða 39
MORGUNBLAÐIÐ IÞROTTIR FÖSTUDAGUR 22. SEPTEMBER 1989 39 ( ÍÞRfmtR FOLK ■ BÚIÐ er að draga í riðla í C- | keppni heimsmeistarakeppninnar í handknattleik, sem fer fram í Finn- landi 31. mars til 8. apríl 1990. A-RILILL: V-Þýskaland, ísrael, Noregur, Belgía, Tyrkland og Grikkland. B-RIÐILL: Búlgaría, Holland, Ítalía, Portúgal, Luxem- borg og Finnland. B MIKE Ferguson, fyrrum þjálf- ari Skagamanna, var í gær ráðinn framkvæmdastjóri utandeildarliðs- ins Enfield. Hann er eini launaði framkvæmdastjór- FráBob inn hjá utandeildar- Hennessy ]iði. íEnglandi m ABERDEEN vann góðan sigur, 1:0, yfir Celtic í undanúrslitum skosku deildarbikarkeppninnar. Ian Camerun skoraði sigurmarkið. ( Ray Aitkens, fyrirliði Celtic, var rekinn af leikvelli rétt fyrir leikslok fyrir gróft brot á Jim Bett. | Aberdeen leikur gegn Glasgow Rangers í úrslitum. B SIGURÐUR Jónsson lék ekki með Arsenal gegn Plymouth, eins og reiknað var með um tíma H BRESKA blaðið Match birtir annað slagið skemmtilegar sögur um liðin í ensku deildinni. Ein slík var í blaðinu fyrir skömmu: Tveir sjómenn voru skipreka á eyðieyju og höfðu verið ve~rið þar í nokkrar vikur. Einn daginn segir annar þeirra: „Jæja nú var Newcastle að tapa.“ Félagi hans var mjög undr- andi á þessu og spurði: „Hvernig í ósköpunum veistu það?“.„Er ekki laugardagur?!" H TONI Kurbos, framheiji Nice, | hefur ákveðið að fara í mál við markvörð liðsins, Fabien Piveteau. Þeim lenti saman á æfingu um ( helgina og lauk þeim viðskiptum með -því að Piveteau sparkaði í höfuð Kurbos. Félagið hefur ákveð- ið að setja markvöiðinn í launa- laust frí en þess má geta að hann er enn að taka út sjö leikja bann sem hann hlaut í fyrstu umferð er hann réðist á dómara. Kurbos var sektaður um 7.500 kr. fyrir vafa- söm ummæli um gáfnafar mar- kvarðarins á þessari sögulegu æf- ingu. HANDKNATTLEIKUR / EVROPUKEPPNIN KR-ingar leika báða leik- ina gegn Uredd í Noregi „ÞAÐ verður mjög erfitt fyrir okkur að leika báða leikina í Noregi. Uredd er mjög sterkt lið og erfitt heim að sækja," sagði Páll Ólafsson, lands- liðsmaður í handknattleik, hjá KR. If IV R leikur gegn Uredd í IHF- keppninni í Noregi 6. og 7. október. „Þetta verða fyrstu leikir okkar á keppnistímabilinu, þannig að við erum ekki sem best undir- búnir. Fjórir leikmenn KR-liðsins eru í unglingaiandsliðinu á Spáni. Þeir hafa ekkert geta æft með okkur að undanförnu. Koma heim nokkrum dögum áður en við höld- um til Noregs," sagði Páll. KR-ingarnir Ijórir sem leika með 21 árs liðinu á Spáni, eru: Konráð Olavson, Páll Ólafsson, yngri, Þorsteinn Guðjónsson og Sigurður Sveinsson. Þess má geta að KR tók ekki þátt í Reykjavíkur- mótinu vegna fjarveru þeirra. „Það sýnir til dæmis hvað sterkt Uredd er, að liðið vann rúmenska liðið Steaua Búkarest með fjögurra marka mun í Evrópukeppninni í Noregi síðast- liðið keppnistímabil," sagði Páll. Jóhann Ingi Gunnarsson, þjálf- ari KR, hefur fengið myndbands- spólu frá Noregi með ieikjum Uredd og þá hefur Steinar Birg- irsson gefið honum ýmsar upplýs- ingar um liðið. HANDKNATTLEIKUR / V-ÞYSKALAND Sigurður Sveinsson - „dátinn" skotfasti. KORFUKNATTLEIKUR Kristinn dæmir í Luxemburg Kristinn Albertsson, körfuknattleiksdómari, mun dæma í 1. umferð Evrópukeppni meistaraliða í körfuknattleik. Kristinn, sem er á lista yfir alþjóðlega dómara FIBA, fer til Luxemburgar í vikunni og dæmir leik BBC US Hiefenisch frá Luxemburg og Ble Nun Kosternburg frá Austurríki. KNATTSPYRNA Markaskorarar og skór UNDANFARIN ár hafa leik- menn í 1. deild fengið afhenta gull-, silfur- og bronsskó fyrir að skora flest mörk í deildar- keppninni. Oft hefur úthlutun valdið óánægju þegar gert hefur verið upp á milli leik- manna sem hafa skorað jafn mörg mörk. Fram til þessa hefur enginn af markahæstu mönnum verið skilinn útund- an en nú er útlit fyrir að það verði gert í fyrsta sinn. Ljóst er að þrír leikmenn eru jaf nir í öðru sæti yfir markahæstu leikmenn. Fyrst. þegar skórnir þrír voru afhentir - varð að gera upp á milli tveggja leikmanna. Guð- mundar Þorbjörnssonar, Val og AF INNLENDUM VETTVANGI SigmundurO. Steinarsson skrílar Ragnars Mar- geirssonar, Keflavík, sem báð- ir skoruðu tólf mörk. Þá fékk Ragnar silfurskó- inn af því að hann lék sextán leiki, en Guðmundur sautján. Þá var Guðmundi refsað fyrir að hafa leikið einum leik meira en Ragnar. Þessi regla hef- ur vakið deilur í þeim löndum sem hún er notuð. Mönnum finnst það hart að refsa mönnum fyrir að leika. Nú, þegar þrír leikmenn eru jafnir með niu mörk í öðru sæti, stefnir í að einum leikmanni verði refsað fyrir að hafa leikið meira en aðrir. Pétur Pétursson, KR, Guðmundur Steinsson, Fram og Kjartan Einarsson, Keflvík, hafa allir skorað níu mörk. Pétur hefur skorað níu mörk í þrettán leikjum, en hann lék ekki fimm leiki vegna meiðsla. Guð- mundur og Kjarlan skoruðu níu mörk í átján leikjum. Guðmundur var tekinn af leikvelli fjórum sinn- um, en Kjartan einu sinni, þannig að Guðmundur lék í færri mínútur en Kjartan. Það gefur auga leið að nú er verið að refsa Kjartani fyrir að hafa leikið alla leiki Keflavíkur- liðsins að fimmtán mínútum und- anskildum. Það er óneitanlega einkennilegt að farið sé að refsa leikmönnum fyrir að leika knatt- spymu. Kjartan hefði staðið betur af vígi ef þjálfari hans hefði tekið hann af leikvelli í tíma og ótíma. En það gerði þjálfarinn ekki, því að Kjartan lék vel og þýðingar- mikið hlutverk fyrir Keflvíkinga. Fyrir það fær hann að gjalda nú. Hann fer í jólaköttinn í ár. Fær ekki skó - vegna einkennilegra reglna hér á landi um afhendingu á skóm. í framhaldi af þessi geta leik- menn sem eru að beijast um markakóngstitil, farið að láta taka sig af leikvelli þegar við á, til að græða fáeinar mínus mínútur í hverjum leik. jslenskir markaskorarar eiga að standa jafnt að vígi og marka- skorarar í þeim löndum sem keppt er um hina ýmsu skó. Þar fá leik- menn skó við sitt hæfi, eða eftir því hve mörg mörk þeir hafa skor- að. Þeir fá viðurkenningu fyrir skoruð mörk, en ekki hvað lengi þeir voru inn á í hverjum leik. Þar er engin sem vinnur til verð- launa skilinn útundann. Þar er ekki verið að hringsóla með skó leikmanna. Þannig á það einnig að vera hér á landi. Sigurður bú- inn að stilla fallbyssuna Fórá kostum með Dortmund gegn Atletico Madrid og skoraði sjömörk SIGURÐUR Sveinsson, lands- liðsmaður í handknattleik, hef- ur stillt fallbyssu sína hjá Dort- mund og er hann byrjaður að hrella markverði. Sigurður fékk lofsamlega dóma þegar hann skoraði sjö mörk fyrir Dort- mund í jafnteflisleik gegn Atletico Madrid, 18:18. Sigurður hefur hleyft nýju blóði í lið okkar,“ segir Gunther Klein, þjálfari Dortmund, sem leik- ur í 2. deild. Þess má geta að Klein sagði sl. sumar við forráðamenn Dort- mund, að hann myndi ekki vera áfram hjá félaginu FráJóni Haildóri Garðarssyni i V-Þýskatandi nema það fengi Sigurð til iiðs við sig. Klein var þjálfari Lemgo þegai’ Sigurður lék með liðinu. Siguðrur var yfirburðarmaður á vellinum í leiknum gegn spánska liðinu og skoraði mörk með þrumu- skotum og þá átti hann glæsilegar línusendingar sem gáfu mörk. Bjarni Guðmundsson hefur einn- ig fengið góða dóma í leikjum með Wanne-Eickel. „íslendingurinn er einn leikreyndasti leikmaður liðsins. Hann var útnefndur besti hægri hornamaðurinn í 2. deildinni sl. keppnistímabil og valinn í lið árs- ins,“ sagði eitt blaðanna. Wanne- Eickel leikur í 1. deildarkeppninni í vetur. KNATTSPYRNA / 1. DEILD KA-menn verða á ferð og flugi Mikið um að vera í herbúðum íslandsmeistaranna „ÞETT A eru búnir að vera stór- kostlegir dagar. Við KA-menn erum enn í sjöunda himni og það má segja að keppnistíma- bil okkar sé langt frá því að vera búið,“ sagði Stefán Gunn- laugsson, formaður knatt- spyrnudeildar íslandsmeistara KA. Sefán sagði að það væri í mörg horn að líta. „Við komum til Reykjavíkur á morgun (í dag) til að mæta í lokahátíð 1. deildarfélag- anna að Hótel íslandi. Áður en við förum þangað mun ESSO, stæsti styrktaraðili okkar, taka á móti okkur í Olíufélagshúsinu og fyrir hönd KA mun ESSO bjóða leik- mönnum allra 1. deildarliðanna og eiginkonum þeirra í stutt hóf áður en lokahátíðn hefst,“ sagði Stefán. „Við munum síðan halda þakkar- hátíð fyrir stuðningsmenn okkar í Sjallanum á Akureyri laugardaginn 29. september. Bjóðum tvö til þijú hundruð manns í mat og síðan verð- ur húsið opnað og aðgangur ókeyp- is fyrir aðra gesti. Daginn eftir verður opið hús fyrir þá yngstu og fimmtudaginn 5. október bjóðum við unglingum á hátíð í Sjallanum. Sýnt verður frá leikjum íslands- meistaranna á breiðtjaldi, ýmsar uppákomur verða og síðan diskó- tek,“ sagði Stefán. Leikmenn Galatasary á móti Held SÁ orðrómui- er nú í V-Þýskalandi að Siegfried Held, fyrrum lands- liðsþjálfari íslands, verði ekki mikið lengur hjá tyrkneska liðinu Galatasary. Leikmenn liðsins hafa mótmælt að hann verði áfram. Þá er einnig ljóst að Mustafa, fyrrum þjálfari liðsins, myndi ekki taka við ef Held fer. Hann hefur tekið við v-þýska 2. deildarliðinu Aachen.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.