Morgunblaðið - 26.09.1989, Qupperneq 1
48 SIÐUR B
218.tbl.77. árg.
ÞRIÐJUDAGUR 26. SEPTEMBER 1989
Prentsmiðja Morgunblaðsins
Gorbatsjov setur Armenum og Azerum
úrslitakosti til að binda endi á þjóðaátök
Moskvu. Reuter.
NÝTT Æðsta ráð Sovétríkjanna kom saman öðru sinni í gær og
stendur þingið að þessu sinni í tvo mánuði. Talið er að umræður
um róttækar efnahagsaðgerðir verði fyrirferðarmestar að þessu
sinni. í setningarávarpi hvatti Míkhaíl Gorbatsjov, forseti Sovétríkj-
anna, til að ráðin yrði bót á efhahagsvandanum og endi bundinn
á þjóðernisróstur í lýðveldunum.
Gorbatsjov sagði að fátt benti
til að lausn væri í sjónmáli í deilum-
Azera og Armena sem staðið hafa
í 20 mánuði. „Við skulum veita
ráðamönnum lýðveldanna tveggja
daga frest til að skoða málið, en
ef nauðsyn krefur verður að grípa
til markvissra aðgerða," sagði
Sovétleiðtoginn. Járnbrautastarfs-
menn í Azerbajdzhan stöðvuðu
vinnu fyrir einum mánuði við járn-
brautarlínur sem liggja til Arm-
eníu. Um 85% af aðfönguin Arm-
ena hafa borist þeim um
Azerbajdzhan.
tilslakana, sem þingum nokkurra
Sovétlýðvelda hafði verið Jofað,
hefur verið afturkallaðár. í orði
kveðnu hefur lýðveldunum verið
heitið auknum sjálfsákvörðunar-
rétti en í skjalinu er því lýst yfir
að lög sovéska rikjasambandsins
séu yfirsterkari lögum lýðveld-
anna. í skjalinu eru hugmyndir
um stofnun sjálfstæðra kommún-
istaflokka i Eistlandi, Litháen og
Lettlandi fordæmdar.
iteuier
Átök milli einstakra þjóða Sovétríkjanna valda Kremlverjum æ meiri áhyggjum og skýrt var frá mannfalli
í Kazakhstan í síðustu viku. Azerar hindra stöðugt aðflutninga til Armeníu og ný hreyfing þjóðernissinna
í Ukraínu, næsttjölmennasta lýðveldi Sovétríkjanna, krefst aukins sjálfstæðis. Á myndinni sjást; þátttak-
endur í tíu þúsund manna mótmælagöngu í Kíev fyrir skömmu og á borðanum stendur: „Lengi lifi sjálf-
stætt ríki í Úkraínu."
George Bush á Allsherjarþingi SÞ:
Sovétstjórnin:
Útgjöld til varn-
armála lækkuð
Við erum vitni að falli
alræðishugmyndanna
Lagði fram tíu ára áætlun um eyðingu allra eftiavopna í heiminum
Sameinuðu þjóðunum, Washington, Reuter.
Valentín Pavlov ijármálaráð-
herra sagði að stjórnvöld stefndu
að því að minnka ijárlagahallann
um helming fyrir lok þessa árs og
yrði þeim markmiðum náð með
þvi að skera niður útgjöld til varn-
armála, selja illa rekin ríkisfyrir-
tæki og með útgáfu ríkisskulda-
bréfa.
Þetta er í fyrsta sinn sem kjörn-
um þingfulltrúum er gerð grein
fyrir ijárlögum ríkisstjórnar lands-
ins. Róttækir þingfulltrúar fögn-
uðu upplýsingunum en hvöttu
jafnframt til enn betra upplýsinga-
streymis og að skýrt yrði í smá-
atriðum frá fyrirhuguðum útgjöld-
um til varnarmála.
í áætlun miðstjórnar sovéska
kommúnistaflokksins, sem birt var
á sunnudag, kemur fram að fjöldi
GEORGE Bush Bandaríkjaforseti
ávarpaði í gær Allsherjarþing
Sameinuðu þjóðanna í New York
í fyrsta sinn efftir að hann tók við
embætti. Hann sagðist fus til að
láta eyða strax 80% af efhavopnum
Bandaríkjanna ef Sovétmenn féll-
ust á að fækka sínum svo mjög
að jafiivægi yrði á þessu sviði
vopnabúnaðar milli risaveldanna.
Einnig þyrfti að ná samkomulagi
um gagnkvæmt efltirlit með eftra-
vopnabirgðuin. „Mannkynið hefur
nógu lengi þurft að lifa í skugga
efiiavopnanna. Tökum saman
hönduin þegar i dag og fjarlægjum
þessa ógn,“ sagði Bush. Talið er
að Bandaríkjamenn eigi um 30
þúsund tonn af efnavopnum og
Sovétmenn segjast eiga 50 þúsund
tonn þótt vestrænir sérfræðingar
telji raunverulega tölu margfalt
hærri. Mörg ríki í þriðja heiminum
eru nú að koma sér upp efhavopn-
um og sagði Bush að 20 lönd réðu
nú yfir slíkum vopnum.
Forsetinn lagði fram áætlun um
algjöra útrýmingu efnavopna sem
taka myndi tíu ár. Hann sagði Ijóst
að það yrði erfitt verkefni að finna
leið til að fylgjast með því að samn-
ingsaðilar hlíttu ákvæðum samnings
um efnavopn en taldi reynsluna af
samningum um takmörkun annars
vopnabúnaðar geta komið í góðar
þarfir.
Klappað var í þingsalnum er Bush
minntist á fyrirhugaðan fund hans
og Míkhaíls Gorbatsjovs Sovétforseta
á næsta ári sem ákveðinn var á laug-
ardag. „Við vitum að enn erum við
ósammála um mikilvæg mál en allir
hljóta að fagna þeim tíðindum að nú
ríki gagnkvæmur vilji til að ræða
ágreininginn með markvissum og
einlægum hætti,“ sagði forsetinn.
Hann ræddi um lýðræðislegar um-
bætur í Póllandi, Ungveijalandi og
Sovétríkjunum og sagði frelsið vera
í sókn um gjörvallan heim. „Við erum
nú vitni að falli hugmyndar — hug-
myndarinnar um alisráðandi, alviturt
ríkisvald ... Sé það rétt að þeir sem
rita sögu 20. aldarinnar telji hana
öld ríkisvaldsins ætti 21. öldin að
verða öld frelsisins, öld einstaklings-
ins._“
Á laugardag náðu utanríkisráð-
herrar risaveldanna samkomulagi
um ýmis mikilvæg atriði í afvopnun-
armálum og öðrum samskiptum
ríkjanna með gagnkvæmum tilslök-
unum. Edúard Shevardnadze, ut-
anríkisráðherra Sovétríkjanna, sagði
stjórn sína telja efnavopnatillögur
Bush jákvæðar og sagði ræðu forset-
ans spor í rétta átt.
Sjá einnig fréttir á bls. 18.
Reuter
Eldsvoði íferju
Tveir menn létust og tíu slösuðust þegar eldur kom upp í dönsku
Norðursjávarferjunni Tor Scandinavia í fyrrinótt. Var skipið þá statt
vestur af Jótlandi á leið til Bretlands með 540 farþega og 120 manna
áhöfn. Nálæg skip komu til hjáfpar og einnig björgunarþyrlur úr
landi en ekki reyndist nauðsynlegt að flytja aðra farþega frá borði
en þá, sem slösuðust eða fengu reykeitrun. Þegar eldurinn hafði
verið slökktur var skipinu snúið til Esbjerg.
Sjá ennfreinur „Tveir fórust...“ á bls. 19.
Sjöríkjahópurinn í Washington:
Sammála um að stöðva
gengishækkun dollarans
Washington. Frá ívari Guðmundssyni, fréttaritara Morgunblaðsins.
FULLTRÚAR sjö helstu iðnríkja iieims samþykktu á fimdi, sem
haldinn var í Washington «m helgina, „að það væri slæmt fyrir
heimsviðskiptin, að gengi Bandaríkjadollars hækkaði frá því, sem
það er nú“. Seðlabankar rikjanna fylgdu síðan samþykktinni eftir
í verki og komu því til leiðar, að gengi dollarans lækkaði um 2,5%.
í sameiginlegri yfirlýsingu full- jeni og 10% gagnvart markmu,
trúanna sagði meðal annars, að
gengishækkun dollarans undan-
farna mánuði væri ekki í samræmi
við æskilega þróun heimsviðskipt-
anna og seðlabankar ríkjanna
brugðust strax við með því að
auka dollaraframboðið verulega.
Við það lækkaði dollaragengið og
fengust fyrir hann í gær 1,89
vestur-þýsk mörk og 142,50 jap-
önsk jen.
Gengi dollarans hefur verið á
uppleið allt þetta ár vegna mikill-
ar eftirspurnar frá fjárfestendum,
hefur hækkað um 17% gagnvart
og bjuggust fæstir við raunveru-
legum aðgerðum af hálfu iðnríkj-
anna. Því kom yfirlýsing þeirra á
óvart og einnig, að henni skyldi
vera fylgt eftír í verki.
I Sjöríkjahópnum svokallaða
eru Bandaríkin, Japan, Vestur-
Þýskaland, Frakkland, Bretland,
Ítalía og Kanada. í febrúar 1987
gerðu þau með sér sanming,
Louvre-samkomulagið, og er talið,
að samkvæmt honum eigi dollar-
inn ekki að fara upp fyrir 1,90
vestur-þýsk mörk og 145 japönsk
jen.