Morgunblaðið - 27.09.1989, Blaðsíða 25

Morgunblaðið - 27.09.1989, Blaðsíða 25
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 27. SEPTEMBER 1989 25 Leiðrétting í Lesbók Morgunblaðsins s.l. laug- ardag var birt sagan „Hallgerður snýr aftur“ úr ritgerðarsamkeppni Verslunarbankans. Þau mistök urðu að nafn höfundarins, sem er nemi á Akranesi, misritaðist. Höf- undurinn heitir Sigurbjörg Þrastar- dóttir. Beðist er velvirðingar á þess- um mistökum. Enginn skóli í sjúkranuddi VEGNA greinar í Morgunblaðinu þann 21. september sl. með fyrir- sögninni „Nuddskóli byrjar starf- semi“, vill Sjúkranuddarafélag ís- lands koma eftirfarandi á fi'am- færi: Vegna greinar í Morgunblaðinu um sjúkranuddnám, þann 21. sept- ember sl., vill Sjúkranuddarafélag íslands benda á að enginn skóli hér á landi hefur leyfi né getur veitt menntun í s júkranuddi. Kristjana Pálsdóttir í hlutverki sínu. „Tvær grímur “ frum- sýnir „I dauðadansi“ 50 ára afmæli í dag, miðvikudaginn 27. septem- ber, er fimmtugur Æ var Auðbjörns- son frá Eskifirði. Hann og kona hans, Kristjana Magnúsdóttir, taka á móti gestum á heimili sínu að Kjarrmóum 36 Garðabæ frá klukk- an 17 næstkomandi laugardag, 30. september. NÝR atvinnuleikhópur sem ber nafhið „Tvær grímur" frumsýnir íslenskt leikrit „í dauðadansi" eftir Guðjón Sigvaldason, í kjall- ara Hlaðvarpans, Vesturgötu 3, á fímmtudagskvöld. Leikritið fjallar á lettan máta um skoðanir dauðans á lífinu og dauð- anum. Leikarar í sýningunni eru fjórir, þau Erla Ruth Harðardóttir, Guðfinna Rúnarsdóttir, Kristjana Pálsdóttir og Þröstur Guðbjartsson. Leikmynd og búningahönnun er í höndum Lindu Guðlaugsdóttur og ljós annast Hákon Örn Hákonarson. Leikstjóri er Guðjón Sigvaldason. Fiskverð á uppboðsmörkuðum 26. september. FISKMARKAÐUR hf. í Hafnarfirði Hæsta Lægsta Meðal- Magn Heildar- verð verð verð (lestir) verð (kr.) Þorskur 69,00 58,00 68,56 1,782 122.180 Þorskur(smár) 34,00 34,00 34,00 0,076 2.567 Ýsa 113,00 73,Ö0 94,94 2,935 278.599 Karfi 56,00 33,00 43,50 1,120 48.723 Ufsi 36,00 30,00 33,55 0,615 20.625 Samtals 77,82 10,690 831.840 FAXAMARKAÐUR hf. í Reykjavík Þorskur 65,00 57,00 62,75 11,936 748.808 Þorskur(smár) 36,00 36,00 36,00 0,161 5.796 Ýsa 120,00 79,00 95,86 7,013 672.234 Ufsi 41,50 38,00 40,09 40,306 1.615.807 Ufsi(umál) 20,00 15,00 18,08 0,078 1.410 Samtals 51,42 61,507 3.162.925 Selt var meðal annars úr Ásgeiri. í dag verða meðal annars seld 3 tonn af ýsu og 14 tonn af ufsa úr Breka VE og fleirum. FISKMARKAÐUR SUÐURNESJA hf. Þorskur 70,00 37,00 60,90 0,602 36.660 Ýsa 112,00 76,00 104,29 14,830 1.546.600 Karfi 42,00 36,50 37,12 0,968 35.932 Ufsi 25,00 25,00 25,00 0,597 14.925 Samtals 92,33 18,719 1.720.233 Selt var meðal annars úr Eldeyjar-Boða GK. í dag verður selt óákveðið magn magn af blönduðum afla úr bátum. SKIPASÖLUR í Bretlandi 18. til 22. september. Þorskur 133,81 69,485 9.297.947 Ýsa 119,72 31,420 3.761.550 Ufsi 60,29 11,990 722.855 Karfi 54,13 6,517 352.739 Koli 78,06 2,015 157.285 Samtals 118,15 127,132 15.020.197 Selt var úr Páli ÁR í Hull 21. í Grimsby 22. september. september og Otto Wathne NS GÁMASÖLUR í Bretlandi 18. til 22. september. Þorskur 116,22 382,540 44.460.023 Ýsa 120,27 132,570 15.943.601 Ufsi 59,52 11,060 658.239 Karfi 53,09 21,065 1.118.367 Koli 95,58 46,020 4.398.455 Samtals 111,22 659.903 73.394.112 SKIPASÖLUR ÍVestur-Þýskalandi 18. til 22. september. Þorskur 110,13 7,697 847.677 Ufsi 62,89 43,343 2.725.898 Karfi 70,46 515,045 36.292.190 Samtals 67,06 606,246 1.279.202 Selt var úr Vigra RE 19. september, Björgúlfi EA 20. septem- ber og Ólafi Bekk ÓF 22. september. Selt var úr öllum skipunum í Bremerhaven. Bréf yfírskoðunarmanna ríkisreiknings til ríkisendurskoðanda: Heimild ráðuneyta til áfengis- kaupa virðist alvarlega misnotuð HÉR fer á eftir bréf yfirskoðun- armanna ríkisreiknings til ríkis- endurskoðanda Halldórs V. Sigurðssonar: Virðulegi ríkisendurskoðandi. Við höfum vegna starfa okkar sem yfirskoðunarmenn ríkisreikn- ings fyrir árið 1988 fengið í hendur ljósrit af reikningum frá Áfengis- og tóbaksverslun ríkisins, sem benda til þess að heimild ráðuneyta til kaupa á áfengi á kostnaðarverði hafi verið alvarlega misnotuð. Upplýsingar okkar gefa til kynna að þáverandi fjármálaráðherra hafi í byijun maí 1988 pantað 106 flösk- ur af áfengi hjá ÁTVR og látið senda á einkaheimili við Ránargötu í Reykjavík. Ekki verður af þessum gögnum ráðið að þar hafi farið fram opinber móttaka á vegum ráðherra eða annarra starfsmanna ráðuneyt- isins. Þvert á móti bendir margt til þess að áfengi þetta hafi farið til einkanota á vegum aðila, sem eru Stjórnarráði íslands óviðkomandi. Með vísan til 43. greinar stjórnar- skrárinnar förum við þess á leit, að þér aflið skýringa á umræddri. áfengisúttekt og gerið viðeigandi ráðstafanir sé grunur um misnotk- un á rökum reistur. Við væntum þess einnig að þér sjáið til þess að áfengi þetta verði endurgreitt á fullu útsöluverði. Jafnframt förum við þess á leit að þér látið gagn- skoða hvort um fleiri sambærileg tilvik geti verið að ræða á síðasta ári hjá þessu ráðuneyti eða öðrum. Með bréfi þessu fylgja ljósrit af umræddum reikningum. Virðingarfyllst, Geir H. Haarde, Lárus Finnbogason, Sv.G. Hálfdánarson. Bréf utanríkisráðherra til ríkisendurskoðanda: Ekki brotlegur ef risna tekur til samstarfsmanna HÉR fer á eftir svarbréf utanrík- isráðherra, Jóns Baldvins Hannibalssonar, til ríkisendur- skoðanda Vísað er til bréfs yðar, sem dag- sett er í dag og móttekið kl. 16.00. Bréfi yðar fylgir afrit af bréfi yfir- skoðunarm’anna ríkisreiknings 1988, þeirra Geirs H. Haarde, Lár- usar Finnbogasonar og Sv. Hálf- dánarsonar. Áður en mér barst bréf yðar í hendur hafði ég þó verið krafinn sagna um efni þess af full- trúum fjölmiðla, sem augljóslega höfðu bréf yðar undir höndum. Það út af fyrir sig finnst mér að þarfn- istskýringa. I bréfi yðar er þess óskað að ég geri grein fyrir sölunótum frá ÁTVR tii fjármálaráðuneytis, er. þær eru dags. 6. maí 1988 en á þeim tíma var undirritaður fjár- málaráðherra. Skýringar mínar eru eftirfarandi: 1) Laugardaginn 7. maí 1988 efni ég sem þáverandi fjármálaráð- herra til „kokkteilboðs" til heiðurs Ingólfi Margeirssyni, ritstjóra, vegna fertugsafmælis hans. Boðið var haldið í félagsheimili Sjálfstæð- isflokksins á Seltjarnarnesi. Meðal boðsgesta voru ýmsir samstarfs- menn mínir og heiðursgestsins, þ. á m. starfsmenn fjölmiðla og þingmenn Alþýðuflokksins en skv. flokkslögum er ritstjóri Alþýðu- blaðsins meðlimur þingflokksins með fullum og óskoruðum réttind- um. Undirritaður var veislustjóri í þessu boði. 2) Vegna þessa boðs fjármála- ráðherra voru pantaðar 100 flöskur af freyðivíni og 6 flöskur af sterku víni. Kostnaðarverð skv. gjldandi gjaldskrá var kr. 18.820,-. Útsölu- verð hefði verið skv. upplýsingum ÁTVR kr. 38.580,-. 3) Skýringin á því að pöntun ráðuneytisins vegna boðsins var ekki afhent í félagsheimili Sjálf- stæðisflokksins, þar sem það fór fram, er sú, að ÁTVR mun ekki afgreiða pantanir yfir helgi. Pönt- unin var því geymd yfir nótt á Ránargötu 22 (á heimili heiðurs- gestsins), sem að öðru leyti sá um undirbúning boðsins og bar annan kostnað af því (leiga á sal, veiting- ar o.fl.). Þar sem þessi ráðstöfun, sem á sér praktískar skýringar, getur vakið ókunnugum grunsemd- ir um mistnotkun, skal það tekið fram að heiðursgesturinn er bind- indismaður á vín ’og tóbak. 4) I bréfi sínu fara yfirskoðunar- rnenn þess á leit við yður að þér gerið viðeigandi ráðstafanir, sé grunur um misnotkun á rökum reistur. Spurningin um misnotkun hlýtur að byggja á mati á því, hvort ráðherra hafi verið óheimilt að halda umrædda veislu. Svarið við þeirri spurningu ræðst væntanlega af viðurkenndum reglum og hefð- um. Þannig hafa t.d. ráðherrar haldið samstarfsfólki sínu, t.d. starfsfólki ráðuneyta og samstarfs- mönnum í þingflokki, hóf af ýmsum tilefnum. T.d. kveðjuhóf, jólaboð o.fl. Þannig er t.d. ástæða til að spyija hvort ráðherrar megi því aðeins halda samstarfsmönnum sínum boð, að þeir starfi í ráðuneyt- um, — séu embættismenn en ekki t.d. pólitískir samstarfsmenn. 5) Þessari greinargerð læt ég fylgja eftirfarandi fylgiskjöl: 1) Fundargerð ríkisstjórnarfund- ar (dags. 24.1. 89) þar sem forsæt- isráðherra lagði fram tillögu ríkis- endurskoðanda að breyttum reglum um áfengiskaup á sérstöku verði. Þar segir: „Heimild þessi er háð því, að vörur þær sem keyptar eru eigi að nota til risnu á vegum þess- ara aðila og að kaupin séu færð í bókhald hjá og greitt af þeim.“ 2) Bréf forsætisráðuneytisins (dags. 26.01.89) þar sem hinar nýju reglur eru kynntar. 3) Bréf ríkisendurskoðanda, Halldórs V. Sigurðssonar, til for- sætisráðherra (dags. 23.12.88) þar sem ríkisendurskoðandi rökstyður tillögur sínar um hvaða reglur skuli gilda í þessum efnum. I bréfi sínu segir ríkisendurskoðandi m.a.: „Það er mitt mat að halda beri núver- andi fyrirkomulagi við verðski’án- ingu á áfengi til risnu hjá þeim aðilum, sem hér er um að ræða. Verðið er sem næst raunverulegu kostnaðarverði og hefur það verið notað til gjaldfærslu gegnum árin. Samanburður milli ára er því raun- hæfur.“ Þá vekur ríkisendurskoð- andi upp ýmsar spurningar um hvar séu hin eðlilegu mörk varðandi opin- bera risnu, hvort eigi „að hætta t.d. að bjóða til síðdegisdrykkju ýmsum félagasamtökum í tilefni af aðalfundi þeirra eða þingum. Má þar til nefna ASÍ, BSRB, búnaðar- þing, fiskiþing, BHM, kennarafé- lög, ýmis félög heilbrigðisstétta, ýmis félög sem starfa að líknarmál- um og svo má lengi telja“. í framhaldi af þessu segir ríkis- endurskoðandi í bréfi sínu: „Sumir telja þetta óþarfa risnu, en að mínu mati tel ég nauðsyn fyrir viðkom- andi ráðherra að geta rætt óform- lega við og kynnst mönnum. Það sé liður í því að viðhalda góðu sam- bandi milli aðila. Þá er einnig til að taka fundi og þing norrænna og alþjóðlegra samtaka, sem stundum eru haldin hér á landi og eru oft mjög fjölmenn." Nýlegt dæmi um þetta, sem varð- ar samskipti ráðuneyta og fjöl- miðla, mætti nefna. Þann 29.08.89 varð utanríkisráðherra við beiðni ristjóra Dagblaðsins þess efnis að halda boð fyrir u.þ.b. 40 erlenda ritstjóra og ávarpa samkvæmið. Þegar sest var að borðum reyndust ritstjórarnir vera 70 og kostnaður við boðið skv. reikningi kr. 249.063.00. Niðurstaða mín er því þessi: Ef það telst innan eðlilegra marka, skv. mati ríkisendurskoðanda, að risna ráðherra geti tekið til sam- starfsmanna, embættismanna jafnt sem stjórnmálamanna og félaga- samtaka, innlendra og erlendra, svo sem ráða má af bréfi ríkisendur- skoðanda, þá tel ég mig ekki hafa gerst brotlegan við reglur í um- ræddu tilviki. Virðingarfyllst, Jón Baldvin Hannibalsson, utanríkisráðherra. Bar sjálfiir allan kostnað af veislunni - segir Ingólfur Margeirsson, ritstjóri INGÓLFUR Margeirsson, ritstjóri Alþýðublaðsins, segist sjálfur hafa borið allan kostnað af veislu í tilefni af fertugsaftnæli sínu á síðasta ári. Jón Baldvin Hannibalsson, þáverandi fjármálaráð- herra, hafi óskað eflir að halda boð honum til heiðurs af þessu tilefni og það sé alfarið mál ráðuneytisins og ráðherra hvernig veislufóng hafi verið fengin til veisluhaldanna. Ingólfur sagði að hann hefði og það hafi orðið úr að það hafi verið haldið samhliða. Þar hafi verið veitt freyðivín, en hann sjálf- ur hafi borið allan annan kostnað af veislunni. Ingólfur segir að ástæðan fyrir því að komið var með freyðivinið til heimilis hans á föstudeginum fyrir veisluna hafi verið sú að hann hafi ekki fengið aðgang að salnum fyrr en á laugardags- haldið upp á afmælið laugardag- inn 7. maí í sal sjálfstæðismanna á Seltjarnarnesi, sem hann hafi tekið á leigu. Tæplega 200 manns hafi verið boðið til veislunnar. Hann sé bindindismaður og hefði ekki hugsað sér að veita áfengi í veislunni, en Jón Baldvin hafi komið að máli við hann og viljað sem ráðherra halda honum hóf morgni og Áfengisverslunin af- greiði ekki áfengi um helgar. Áfengið hafi einungis verið geymt á heimili hans yfir blánóttina. „Þess vegna blandast heimili mitt inn í þetta, sem er mjög leiðinlegt og hefur ekkert með þetta mál að gera. Það var ekkert gert við áfengið hér, bara geymt hér og siðan sent áfram um morguninn þegar ég var kominn með lykla að salnum. Ég hvorki keypti né greiddi fyrir þetta vín og vissi ekkert um kostnað vegna þess. Þetta var alfarið mál ráðherra og ráðuneytisins, sem vildi halda mér þetta hóf,“ sagði Ingólfur Mar- geirsson ennfremur.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.