Morgunblaðið - 06.10.1989, Qupperneq 38
38
MORGUNBLAÐIÐ IÞROTTIR FÖSTUDAGUR
l giOMMVTTOflO'/
6. OKTÓBER 1989
íuémR
-FOLK
■ AJAX frá Amsterdam var í
gær dæmt í tveggja ára keppnis-
bann í Evrópukeppni, af UEFA,
Knattspymusambandi Evrópu. Fé-
lagið varð að að gjalda þess að
stuðningsmenn þess voru með ólæti
í leik gegn Austría Vín í UEFA
-bikarkeppninni á dögunum. Dóm-
ari leiksins flautaði hann af áður
en leiktími var útrunninn. Forráða-
menn Ajax tilkynntu strax í gær
að þeir myndu áfrýja þessum úr-
skurði til aganefndar UEFA.
■ HOLLENSKI landsliðsmaður-
inn Gerald Vanenburg, sem leikur
með Eindhoven, meiddist á hné á
æfingu í vikunni. Reiknað er með
að hann verði sex vikur frá keppni.
Þetta er blóðtaka fyrir hollenska
landsliðið, sem leikur gegn Wales
í næstu viku í HM. Fyrir eru meidd-
ir leikmenn eins og Ruud Gullit
og Erwin Koeman.
■ ÞA er óvíst hvort landi þeirra,
Marco Van Basten, verði með í
landsleiknum. Hann lék að vísu í
gær með AC Mílanó, æfingaleik
gegn þriðjudeildarliðinu Pro Patr-
ia, aðeins mánuði eftir að hann fór
í uppskurð vegna meiðsla á hné.
Stórliðið sigraði 6:0 og gerði þessi
ótrúlega markheppni Hollending-
ur sér lítið fyrir og skoraði „hat
trick“ — þijú mörk, öll í fyrri hálf-
leik. Hann lék allar 90 mínúturnar
og verður því örugglega með í deild-
arleiknum um næstu helgi.
i
I
{
ITOLSK
V I K A
í KRINGLUNNI
28. sept. - 7. okt.
ítalskar vörurlfTískusýningar
Tónlist O Kaffihús O ítalskur
matur O Ferðakynningar O
ÖGetraun, vinningur: ferð fyrir
tvo til Ítalíu O
KNATTSPYRNA / V-ÞYSKALAND
Stuttgart er heppið
að hafa Ásgeir
- segir í grein um Stuttgart í hinu víðlesna blaði Kicker
„ASGEIR er sannur drengur.
Hann hefur ávallt lagt sig fram
fyrir liðið,“ segir v-þýski lands-
liðsmaðurinn Guido Buchwald,
fyrirliði Stuttgart, í viðtali við
blaðið Kickerí gær. í blaðinu
var grein um Stuttgart og er
greinin næreingöngu um
„Töframanninn" Ásgeir Sigur-
vinsson, fyrrum leikstjórnanda
Stuttgart, sem þarf nú að
sætta sig við það að verma
varamannabekkinn.
ÆT
Asgeir, sem var maðurinn á bak
við að Stuttgart varð
Frálóni
Halldóri
Garðarssyni
ÍV-Þýskalandi
V-Þýskalandsmeistari 1984, hefui;
komið inn á sem varamaður að
undanförnu pg farið
á kostum. í grein-
inni segir Arie
Haan, þjálfari
Stuttgart, að hann
hafi sagt við Asgeir fyrir keppn-
istímabilið, að hann ætlaði að yngja
upp lið sitt og hefði hug á að nota
Gaudino og Argentínumanninn
Basualdo á miðjunni. „Það mættu
margir taka Ásgeir til fyrirmynda.
Hann hefur ekki verið með nein
læti þó að hann hafi verið settur
út,“ sagði Haan.
Blaðið segir að Ásgeir hafi staðið
sig það vel að undanförnu og hann
ætti með sanni rétýá fastri stöðu
í Stuttgart-liðinu. „Ég hef ákveðið
að vera ekki með neinar yfirlýsing-
ar sem geta skapað óróa hjá liðinu.
Okkur hefur gengið vel að undan-
förnu. Þannig að ég sé ekki ástæðu
til að vera að breyta liðinu breyting-
anna vegna,“ sagði Ásgeir, sem
verður á bekknum gegn St. Pauli
um helgina.
„Ég hef æft mjög vel og er í
mjög góðri æfingu. Ef eitthvað
kemur upp á þá er ég alltaf tilbú-
inn. Ég ætla ekki að troða mér
HANDKNATTLEIKUR
Sjónvarpsíþrótt?
1. DEILDARKEPPIMIN íhand-
knattleik karla hefst á laugar-
daginn. Sú nýbreytni hefur
verið tekin upp að leikin verð-
ur heil umferð á laugardögum
í vetur - kl. 16.30. Deilt hefur
verið á þennan leiktíma.
Menn hafa bent á að leikirnir
fari fram á svipuðum tima og
sjónvarpið sýnir beint knatt-
spyrnuleiki frá Englandi og
V-Þýskalandi, en beinar
knattspyrnuútsendingar frá
þessum löndum eru mjög vin-
sælar.
Þessi leiktími er eflaust ekki
sá besti. Hætta er á að marg-
ir íþróttaunnendur fari ekki að
rífa sig upp frá spennandi leik í
AF sjónvarpi. Þar fyr-
INNLENDUM ir utan verður sýnt
VETTVANGI beint frá tveimur
ieikjum í 1. deild-
arkeppninni
handknattleik
strax á eftir knatt-
spyrnuútsending-
unum. Sýnt verður
beint frá seinni
hálfleik í Sjón-
varpinu og Stöð 2. Þær útsending-
ar koma eflaust einnig til með að
draga úr aðsókn.
„Við gerum okkur grein fyrir
þessum vanda. Við rennum blint
í sjóinn með þessu nýja fyrirkomu-
lagi. Það getur vel verið að við
séum að grafa okkar eigin gröf,“
SigmundurÓ.
Steinarsson
skrifar
sagði Þórður Sigurðsson, formað-
ur handknattleiksdeildar Vals og
formaður félags fyrstu deildarlið-
anna. „Við sjáum það fijótlega
hvort að þetta fyrirkomulag gangi
upp. Ef ekki, breytum við leiktím-
um eftir áramót. Færurn ieiki til,“
sagði Þórður.
Of langt á milli leikja?
Margir, þ.á m. Bogdan, lands-
iiðsþjálfari, hafa bent á að það
komi til með að skaða handknatt-
leikinn á íslandi að leika aðeins
einu sinni í viku. Telja þeir að það
sé of langt á milli leikja. Það sé
ekki nægilegt fyrir leikmenn að
leika aðeins einn leik í viku. Bogd-
an benti á að þetta fyrirkomulag
væri í V-Þýskalandi og Danmörku
og hafi komið niður á landsliðum
þessara landa. Það er mikið rétt
hjá Bogdan, að óneitanlega er
iangt á milli leikja hjá liðum. Tvö
leikkvöld, eins og hafa verið hér
á landi fram til þessa, halda leik-
mönnum og áhorfendum við efnið
- og skapa meiri umræðu um
handknattleik. Hvort að eitt leik-
kvöld skaði handknattieikinn,
ætla ég ekki að fara að ræða um
hér. Því má þó ekki gleyma að
V-Þjóðverjar urðu heimsmeistarar
í Danmörku 1974 léku v-þýsk
félagslið einn ieik í viku, eins og
þau gera í dag.
Aðalatriðið er, að ekki má gera
íþróttaunnehdur fullsadda af
íþrótt um á einum og sama degin-
um. V-Þjóðveijar, Danir og fleiri
þjóðir miða ieiktíma sína við að
ekki sé Ieikið á sama tíma og
knaltspymuieikir fara fram. A
það bæði við leiktíma á knatt-
spymuvöllunum og sýningar í
sjónvarpi. Það eigum við einnig
að gera. T.d. leikur Essen heima-
leiki sína alltaf kl. 17 ásunnudög-
um, vegna nálægðar við mörg
knattspyrnufélög sem leika á
laugardögum, og Gummersbach
leikur á laugardagskvöldum.
Knattspyrna er ekki leikin á ís-
landi yfir vetramánuðina, en aftur
á móti er sýnt beint frá leikjum
í Englandi og V-Þýskalandi á rétt
á undan sem leikið er eða sýnt
bein frá leikjum í 1. deildarkeppn-
inni.
Reiknudu ekki með tíma-
breytingu
Forráðamenn innan handknatt-
leikshreyfingarinnar hafa viður-
kennt að þeir hafi gert ein mistök
þegar leiktíminn (16.30) var
ákveðinn á ársþingi HSÍ í Vest-
mannaeyjum. Þá gleymdist að
taka það með í dæmið að Englend-
ingar breyttu tíma sínum á vet-
urnar. Leiktíminn er of nálægt
þeim tíma sem beinar knatt-
spyrnuútsendigar eru.
Tímamismunur í Evrópu getur
því orðið 1. deildarkeppninni dýr.
Verður íslenskur handknattleikur
sjónvarpsíþrótt með þessum nýja
leiktíma á laugardögum?
Asgeir Sigruvinsson.
fram,“ sagði Ásgeir.
I greininni er sagt að Stuttgart
sé heppið að hafa Ásgeir. Hann sé
leikmaður sem öil félög óski sér að
hafa í herbúðum sínum. Maður liðs-
andans.
toöm
FOLK
■ JOHN Barnes, leikmaðurinn
snjalli hjá Liverpool á við meiðsli
í hásin að stríða og er enn óvíst
hvort að hann geti leikið með Eng-
landi gegn Póllandi í næstu viku.
Fimm aðrir leikmenn Englands eru
á sjúkralista þessa dagana. Tony
Adams, Arsenal og Steve McMa-
hon, Liverpool, eru meiddir á
ökkla, Paul Gascoigne, Totten-
ham, er meiddur á kálfa. Félagi
hans Gary Lineker á hné og Gary
Stevens, Glasgow Rangers, á
hálsi. England þarf jafntefli til að
tryggja sér farseðilinn til Italíu.
■ OLAF Thon, landsliðsmaður
V-Þýskalands og leikmaður Bay-
ern Miinchen, verður frá keppni í
nokkrar vikur. Tvö liðbönd í fæti
hans slitnuðu á
landsliðsæfingu í
vikunni. Áður hafði
félagi hans Jiirgen
Kohler meitt sig á
landsliðsæfingu og er hann frá
keppni.
■ HIÐ unga lið Gummersbach
kom skemmtilega á óvart og gerði
jafntefli, 19:19, við Essen á mið-
vikudagskvöldið í 1. deildarkeppn-
inni í handknattleik. Fraatz skoraði
jöfnunarmark Essen sjö sek. fyrir
leikslok. Andreas Dörhöfer lék vel
með Gummersbach og skoraði níu
mörk. Norðmaðurinn Rune Erland
skoraði fjögur.
I STUTTGART mun leika fyrri
leik sinn í UEFA-keppninni gegn
Leningrad í Sovétríkjunum.
FráJóni
Halldóri
Garöarssyni
ÍV-Þýskalandi
KH KRAFTUR 06 TÆKNI
PETTER Tll SJÓS 06 LANDS
LISTER PETTER díselvélarnar eru hannaöar og framleiddar til aö mæta
mismunandi kröfum um kraft og tæknilega uppbyggingu. Þú getur treyst á að
LISTER PETTER skilar hlutverki sínu hvort sem er til sjós eöa lands.
Taktu ekki áhættu
- veldu LISTER PETTER.
LASALAN H.F.
ÁNANAUST 1, REYKJAVÍK. SÍMI 91-26122
KNATTSPYRNA / ENGLAND
Þriðja umferð deildarbikarsins:
Arsenal fær Liver-
pool í heimsókn
ENGLANDSMEISTARAR Ars-
enal leika gegn bikarmeistur-
um Liverpool íþriðju umferð
ensku deildarbikarkeppninnar.
Leikurinn fer fram á Highbury
í London 25. október.
Dregið var í keppninni í London
í gær. Deildarbikarmeistarar
Nottingham Forest leika á útivelli
gegn Crystai Palace.
Þá verður stórleikur á Old Traf-
ford í Manchester, þar sem
Manchester United og Tottenham
eigast við. Forráðamenn Scarboro-
ugh, sem sló Chelsea út, fengu þá
ósk sína, að fá leik gegn 1. deildar-
liði á heimavelli, ekki uppfyllta.
Félagið leikur gegn Oldham á úti-
velli. Annars var drátturinn þannig:
Tranmere - Millwall, Everton -
Luton, Aston Villa - West Ham,
Middiesbrough - Wimbledon, Sund-
erland - Bournemouth, Crystal
Palace - Nottingham Forest, Manc-
hester United - Tottenham, New-
castle - West Bromwich, Southamp-
ton - Charlton, Manchester City -
Norwich, Derby - Sheffield Wednes-
day, Exeter - Blackpool, Arsenal -
Liverpool, Swindon - Bolton, QPR
- Coventry, Oldham - Scarborough.