Morgunblaðið - 06.10.1989, Qupperneq 40
SJOVAQoALMENNAR
FÍIAG FÓLKSINS
EINKAREIKNINGUR ÞINN
í LANDSBANKANUM m
_________________Mk
FÖSTUDAGUR 6. OKTÓBER 1989
VERÐ í LAUSASÖLU 90 KR.
Seyðisijörður:
73 skráðir
án atvinnu
Á Seyðisfirði voru 73 skráðir
atvinnulausir í gær, fimmtudag,
en það er um 11% af vinnuafli á
staðnum.
Að sögn Jóhanns Sveinbjömssonar
á bæjarskrifstofu Seyðisijarðar voru
rúmlega 100 manns skráðir atvinnu-
lausir á Seyðisfirði í byijun septem-
ber, eftir að fiskvinnslan Norðursíld
var tekin til gjaldþrotaskipta. Út-
gerðarfélagið Gullberg hf. tók eignir
þrotabúsins á leigu um miðjan sept-
ember, og að sögn Jóhanns eru hjól
atvinnulífsins nú tekin að snúast á
ný-
Helmingur
les liggjandi
53,7% Islendinga lesa bækur
liggjandi, ef marka má könnun
sem gerð var fyrir Almenna
bókaféiagið samkvæmt úrtaki
úr félagaskrá Bókaklúbbs AB.
36,8% lásu sitjandi í hæginda-
stól en 10,5% sitjandi við skrif-
borð.
Um helmingur þátttakenda
sagðist lesa jafn mikið allan árs-
ins hring en lestur annarra skipt-
ist með eftirfarandi hætti eftir
árstíðum: 68% sögðust lesa bæk-
ur á vetuma, 17% á haustin, 11%
á sumrin og aðeins 4% að vorlagi.
Fram kom að þátttakendur
keyptu að meðaltali 8 bækur á
ári en 21% keypti 10 bækur eða
fleiri á ári. 7,4% þátttakenda, sem
voru eins og fyrr sagði félagar í
bókaklúbbi, höfðu enga bók
keypt. Góð kynning hafði mest
að segja um það hvort menn
keyptu bók, því næst frægð höf-
undar, verð, umfjöllun fjölmiðla
kom þar á eftir og þá heiti bók-
ar. Einnig þótti frásögn vina og
kunningja skipta máli og útlit
bókarinnar.
Sjá frétt af bókaþingi á bls.
16, „Eindregin andstaða
gegn virðisaukaskatti".
Um 1500 manns voru viðstaddir setningarathöfii landsfúndar Sjálfstæðisflokksins í Laugardalshöll í gær.
Morgunblaðið/RAX
Þorsteinn Pálsson í setningarræðu á landsfimdi Sjálfstæðisflokksins:
Afiiemum millifærslu- og
spillingarsjóði stjómarimiar
UM FIMMTÁN hundruð manns voru viðstaddir setningu 28. lands-
fúndar Sjálfstæðisflokksins í Laugardalshöllinni í gær. Formaður
flokksins, Þorsteinn Pálsson, fiutti setningarræðuna, en í henni kom
meðal annars fram vilji hans til breytingar á skipan Alþingis og
kjördæmum landsins. „Breytingar á þessu sviði mættu gjarnan leiða
til einhverrar fækkunar þingmanna og hugsanlega til þess að þing-
menn yrðu annars vegar kjörnir í kjördæmum og hins vegar af Iands-
lista,“ sagði Þorsteinn Pálsson. Hann sagðist einnig vera fylgjandi
því að Alþingi starfaði í framtíðinni í einni málstofu, en það gæti
auk annars hagræðis orðið til að lækka kostnað við rekstur þing-
haldsins.
Þorsteinn Pálsson, formaður
Sjálfstæðisflokksins, kom víða við
í setningarræðu sinni. Hann rakti
setu hans í tveimur síðustu ríkis-
stjórnum og gang mála hjá þeirri
ríkisstjórn, sem nú situr. Hann
deildi á miðstýringar- og skömmt-
unarstefnu ríkisstjórnarinnar og
sagði hana auk þess hafa beitt sér
fyrir glæfralegri skattahækkunum,
en dæmi væru um. „Mesta ósvinnan
er þó án nokkurs efa stórhækkun
eignarskattanna. Manna á meðal
hefur sú skattheimta fengið nafnið
„ekknaskatturinn". Það verður
fyrsta verk sjálfstæðismanna að
afnema það óréttlæti sem komið
hefur sem níðingshögg í garð fjölda
fólks, ekki síst aldraðra," sagði
Þorsteinn.
Stóðu verkfallsvörð við
hús útvarps og sjónvarps
SÁTTAFUNDUR verður haldinn
í dag hjá ríkissáttasemjara í kjara-
deilu rafiðnaðarmanna og stjórn-
valda. Lítil bjartsýni virðist þó
ríkja um niðurstöðuna. Verkfall
Rafiðnaðarsambandsins hefur
. staðið síðan á miðnætti á miðviku-
dag í síðustu viku og rafiðnaðar-
menn hjá sjónvarpi og útvarpi
stóðu verkfallsvörð þar í gær
vegna meintra verkfallsbrota
RUV, en margir rafiðnaðarmenn
hjáþessum stofnunum eru í Starfs-
mannafélögum útvarps og sjón-
varps og ekki í verkfalli. Verk-
fallsverðir utan við hljóðstofu Rás-
ar eitt við Efstaleiti hugðust koma
í veg fyrir að tæknimaður yrði
leystur af, en fundað var með út-
varpsstjóra í gærkvöld um undan-
þágu fyrir rafiðnaðarmenn hjá
útvarpinu.
Klukkan 22 hófst fundur í sjón-
varpinu og var fundum ekki lokið
er Morgunblaðið hafði síðast spurnir
af. Hús Sjónvarpsins við Laugaveg
var læst í gær og rafiðnaðarmenn
stóðu fyrir utan og hleyptu engum
Magnús Geirsson, formaður RSÍ,
sagði að við verkfallsvörsluna væri
reynt að ná hlustum þeirra manna
sem þeir teldu að væru í verkfalls-
brotum og bægja þeim frá. Hins
vegar væru hús útvarps og sjónvarps
læst, eins og þar færi fram eitthvað
sem ekki þyldi dagsins ljós.
„Maður er alveg bit á allt þetta
lögfræðingalið hjá ríkinu að haga sér
svona og að það skuli vera ráðherrar
Alþýðubandalagsins sem standa
þarna fremstir í flokki. Þessi mál
falla öll undir ráðherra Alþýðubanda-
lagsins, menntamála-, ijármála- og
samgönguráðuneyti, en undir það
falla flugmál og sími. Þeir verða
bara að fá að sýna hug sinn gagn-
Morgunbladið/Ámi Sæberg
Verkfallsverðir komu í veg fyrir að fólk kæmist út úr húsum út-
varps og sjónvarps í gær.
vart launþegum þessir höfðingjar,"
sagði Magnús.
Hann sagði að það hafi önnur
stjórn verið við völd í verkfallinu
1987 og þá hafi hlutirnir gengið
eðlilega fyrir sig. „Þetta eru allt öðru
vísi vinnubrögð en við þekkjum. Við
þekkjum vinnubrögð Vinnuveitenda-
sambandsins og höfum gert í ára-
tugi. Þeir eru alltaf tiibúnir til þess
að ræða málin og vilja ekkert frekar
draga þau ef kostur er á einhveiju
öðru,“ sagði Magnús ennfremur.
Margeir Jónasson var í hópi þeirra
sem stóðu vörð utan við útvarps-
húsið í gær. Hann sagði að boð raf-
iðnaðarmanna frá því á þriðjudag,
um undanþágu fyrir rafiðnaðarmenn
hjá útvarpinu, hefði verið rætt á
fundi með útvarpsstjóra í gærkvöldi.
Tilboðinu, sem byggðist á“að send
væri út tónlist, fréttir, veðurfregnir
og dánartilkynningar, var hafnað
fyri' í vikunni, en það hafði nokkuð
verið rýmkað í gær. Þó var það áfram
með því fororði að falla mætti frá
undanþágunni með þriggja tíma fyr-
irvara.
Um Alþýðuflokkinn sagði hann,
að stefna hans virtist vera sú að
ganga í faðm Alþýðubandalagsins.
Því nær sem hann færðist því, þeim
mun minni keppinautur yrði hann
Sjálfstæðisflokknum um fylgi
fijálslynda fólksins í landinu.
Um framtíðarverkefni Sjálfstæð-
isflokksins sagði Þorsteinn enn-
fremur að ætlun hans væri að af-
nema millifærslu- og spillingarsjóði
ríkisstjórnarinnar svo og gengis-
fölsunarsjóð hennar. Sjálfstæðis-
menn vildu að útflutningsfram-
leiðslan fengi aukna ábyrgð og
sjálfstæði. „Þá höfum við einsett
okkur að halda áfram þar sem frá
var horfið að breyta ríkisbönkunum
í hlutafélög.“
í landbúnaðarmálum ságði Þor-
steinn menn sammála um að ríkis-
sjóður gæti ekki til langframa stað-
ið undir meginhluta framleiðslu-
kostnaðar þeirrar vöru sem vegna
offramleiðslu hefði verið seld á er-
lenda markaði.
Þorsteinn ræddi síðan um stöðu
sjávarútvegsins og sagði að óhjá-
kvæmilegt væri að marka sjávarút-
vegsstefnu til lengri framtíðar: „Við
sjálfstæðismenn hljótum að leggja
höfuðáherslu á það að varðveita''
fiskistofnana vegna framtíðarhags-
muna íslendinga. í annan stað að
tryggja sem mesta hagkvæmni í
veiðum. Og í þriðja lagi að tryggja
sem mest athafnafrelsi þeirra sem
sjávarútveg stunda í ljósi þeirra
takmarkana sem auðlindin óhjá-
kvæmilega setur.“ Hann sagði að
við mættum ekki hleypa erlendum
aðilum inn í íslenska útgerð, um
það hlytum við að standa vörð svo
og fiskveiðilögsöguna sjálfa. Um
Evrópusamstarfið sagði formaður-
inn, að það orkaði ekki tvímælis
að við yrðum að tengjast þeirri
hreyfingu sem nú ætti sér stað í
Evrópu. Við gætum þó aðeins tekið
þátt í þeirri þróun sem fullvalda og
sjálfstæð þjóð, að við tvíefldum
varðstöðu okkar um íslenska menn-
ingu og íslenska tungu.
Sjá fyrrihluta setningarræðu
Þorsteins Pálssonar í miðopnu.