Morgunblaðið - 10.10.1989, Page 4
4 B
MORGUNBLAÐE)
ÍÞRÓTTIR
ÞRIÐJUDAGUR 10. OKTOBER 1989
HANDKNATTLEIKUR / ISLANDSMOTIÐ
Grótta slapp
fyrir hom
IR-ingartaugaóstyrkir, en ótrúlega óheppnir
GRÓTTA slappfyr-
ir horn á laugar-
dag, er liðið vann
nýliða ÍRá Seltjarn-
arnesi meðeinu
marki, 21:20, í
fyrsta leik liðanna
í 1. deild karla á
þessutímabili.
Grótta hafði reynd-
ar ávallt undirtök-
in,en það varfrek-
ar vegna ótrúlegrar
óheppni taugaó-
styrkra ÍR-inga en
yfirburða heima-
manna.
Stefán Arnarson.
Þorlákur Arnason.
Steinþór
Guðbjartsson
skrifar
Grótta byrjaði vel og nýttu leik-
menn sér taugaóstyrk nýlið-
anna út í ystu æsar. Leikur heima-
manna var engu að síður sveiflu-
kenndur, en lánið
lék ekki við gestina
og ekki bætti úr
skák að þeir fóru á
stundum illa með
dauðafæri. Tvisvar var munurinn
fimm mörk, en staðan í hálfleik var
12:8.
Leikur ÍR-inga var allt annar og
betri eftir hlé, en þeim tókst samt
ekki að jafna, 17:17, fyrr en rúmar
11 mínútur voru til leiksloka. Þeir
höfðu eflst jafnt og þétt og virtust
vera að taka leikinn í sínar hendur,
en þarna urðu kaflaskipti. Þorlákur
Árnason fór í mark Gróttu og varði
þrjú skot, þegar félagar hans voru
að gefa eftir. Þessi markvarsla
skipti sköpum og Grótta náði
tveggja marka forystu á ný. ÍR-
ingar voru með boltann síðustu
mínútu leiksins, en var fyrirmunað
að skora og urðu að sætta sig við
tap.
Stefán Arnarson var besti maður
Gróttu og leiksins og áður er minnst
á þátt Þorláks Árnasonar, en aðrir
heimamenn léku undir getu, sér-
stajdega í sókninni.
ÍR-ingar eru með jafnt lið, en
Sigfús Orri Bollason var atkvæða-
mestur að þessu sinni.
Leikurinn í
tölum/B6
„Vona að fall
sé fararheill“
- sagði Eyjólfur Braga-
son, þjálfari ÍR
„ÉG vissi ekki að svona óheppni væri
til. Við gerðum okkur seka um ótrúleg
sóknarmistök, þegar við þurftum að
halda haus, en engu að síður vorum við
nálægt því að sigra. Strákarnir yfir-
spenntu sig, en undir eðlilegum kring-
umstæðum hefðum við sigrað," sagði
Eyjólfur Bragason, þjálfari ÍR, eftirtapið
gegn Gróttu.
Eyjólfur sagði að húsið á Nesinu væri
dæmigerð „ljónagryfja“. „Það er erfitt
að spila þarna. Áhorfendur eru vel með á
nótunum og það er erfitt að fóta sig, því
línurnar sjást illa, en ég held einmitt að heima-
vellirnir eigi eftir að gera deildina skemmti-
lega í vetur. Ekkert lið getur bókað sigur,
allir geta unnið alla, og því eiga stigin eftir
að dreifast.
Það er að vissu leyti gott að vera dæmdur
niður, því þá er pressan á mótheijunum
hvetju sinni. Við biðum lengi eftir fyrsta leikn-
um og ræddum um að betra hefði verið að
ná sviðsskrekknum úr hópnum gegn sterkara
liði, en ég vona að fall sé fararheill.
Hins vegar er erfitt að leika gegn Gróttu.
Liðið ætlar sér ekki um of, liðsheildin er sterk
með leikmenn, sem geta klárað dæmið upp á
eigin spýtur, og því á ég ekki von á að Grótta
falli,“ sagði Eyjólfur.
Morgunblaðið/Bjarni
Guðmundur Þórð-
arson, aldursforset-
inn í liði ÍR, stöðvar
Halldór Ingólfsson,
Gróttu, sem svo oft í
leik liðanna á laugar-
dag.
„Mótið vinnst á
innan við 25 stigum“
„MÍNIR menn voru ekki góðir
í þessum leik og í raun er það
ÍR að þakka að við fengum
bæði stigin," sagði Árni Ind-
riðason, þjálfari Gróttu, við
Morgunblaðið eftir leikinn.
Ární sagði að leikurinn hefði
þróast eins og við var að
búast. „Það er dæmigert fyrir
nýiiða að byija illa á útivelli —
það tekur tíma að venjast nýju
húsi. Þessi lið, Grótta og IR,
ásamt HK verða í fallbaráttu, en
ÍR-ingar höfðu það fram yfir okk-
ur að þeim hefur verið spáð falli
og að því leytinu til hafa þeir allt
að vinna og engu að tapa enda
seldu þeir sig 120%.
Munurinn i fyrri hálfleik var
ekki marktækur. Ég vissi að
seinni hálfleikur yrði erfiður og
við töluðum um það í hléínu. Þetta
var fjögurra stiga leikur í botn-
baráttu og mínir menn vissu að
þeir yrðu að halda settu striki,
en urðu taugaóstyrkari fyrir vikið.
Liðin í deildinni eru jafnari nú
en oft áður — stigin eiga eftir að
dreifast og mótið vinnst á innan
við 25 stigum,“ sagði Árni.
VESTUR ÞYSKALAND
Bernhard Thiele.
Bernard Thiele hættur
eftir 17 ára formennsku
ernhard Thiele, sem hefur ver-
ið formaður v-þýska hand-
knattleikssambandsins í sautján ár,
sagði starfi sínu lausu um helgina
á ársþingi v-þýska sambandsins.
Thiele táraðist þegar hann tilkynnti
þetta.
Slæmt gengi v-þýska landsliðsins
í B-keppninni í Fi-akklandi, þar sem
v-þýska liðið féll í C-keppnina, varð
til þess að Thiele og öll fyrrum
stjórn sambandsins hætti störfum.
Við formennsku tók Hans-Jörge
Hinrichs frá Stuttgart, sem sagði
að það væri aðeins ein stefna fram-
undan: „Að tryggja landsliði
V-Þýskalands aftur sæti í A-keppn-
1.DEILD KVENNA
Fyrsti sigur Grótt
NÝLIÐAR Gróttu unnu öruggan
sigur á KR á laugardag. Grótt-
ustúlkur höfðu fimm marka for-
skot í leikhléi 13:8 og sigruðu
25:21. Nágrannarnir í Hafnar-
firðinum, FH og Haukar áttust
við í baráttuleik sem lauk með
naumum sigri FH-inga 15:14.
Staðan í leikhléi var jörn 9:9.
Valsstúlkur unnu bikarmeist-
ara Stjörnunnar í spennandi
leik í Valsheimili. Stjarnan var
tveimur mörkum yfir i leikhléi
8:10, en Valsarar voru sterkari
ísíðari hálfleik og unnu 17:16.
Það var brotið blað í sögu Gróttu
þegar kvennalið þeirra í hand-
knattleik sigraði KR á laugardag,
en þetta var fyrsti 1. deildar sigur
liðsins. Leikurinn
Katrín fór rólega af stað
Friðriksen og var jafnt á öllum
skrifar tölum framan af.
Góður leikkafli
Gróttustúlkna undir lok fyrri hálf-
leiks gaf þeim fimm marka forskot
í leikhléi.
KR-stúlkur áttu undir högg að
sækja í síðari hálfleik og gekk erfið-
lega að vinna upp forskot Gróttu.
Sigurbjörg Sigþórsdóttir var að
venju atkvæðamikil í liði KR en
Þuríður Reynisdóttir og Laufey Sig-
valdadóttir skoruðu mest fyrir
Gróttu.
Nágrannaslagur
Sterkur varnarleikur var í fyrirr-
úmi hjá nágrannaliðunum í Hafnar-
firði er þau mættust á laugardag.
Bæði liðin hafa misst lykilmann-
eskjur og má búast við erfiðum
vetri framundan hjá þeim.
Leikurinn var jafn frá byrjun til
enda og hvorugt lið náði afgerandi
forskoti. Haukar voru öllu frískari
Laufey Sigvaldadóttir, hin unga
ðar móttökur hjá varnarmönnum Ki
staðið en lið hennar sigraði KR 25:2
í fyrri hálfleik og yfirleitt fyrrí til
að skora, en FH jafnaði fyrir leik-
hlé. Síðari hálfleikur var svipaður
þeim fyrri og það var ekki fyrr en
rétt undir lokin sem FH náði að
knýja fram sigur.
Tvö stig til Vals
Valui' og Stjarnan áttust við í
skemmtilegum leik á laugardag.
Mikil barátta og hratt spil ein-
kenndi leikinn og skiptust liðin á
að halda forystunni. í leikhléi hafði
Stjarnan náð tveggja marka for-
skoti, en um miðjan síðari hálfleik
jöfnuðu Valsstúlkur og náðu síðan