Morgunblaðið - 10.10.1989, Blaðsíða 8

Morgunblaðið - 10.10.1989, Blaðsíða 8
8£ (?8er aaaórao .or fl:iOAqut.gfif<i gkiAJHMTioflfof. ÍÞROWR KNATTSPYRNA / TYRKLAND Hef aldrei kynnst öðm eins sælkeralífi - sagði Atli Eðvaldsson um æfingabúðir Genc- lerbirlig. Hann skoraði um helgina í sínum fyrsta leik „EG gerði annað markið með þéttingsföstu innanfótar skoti af tíu metra færi og íeinu orði sagt varð allt brjálað. Stemmn- ingin var gífurleg og áhorfendurtóku mér á sama hátt og þeir bauluðu á mig í landsleiknum gegn Tyrkjum fyrir ári. í sannleika sagt var ekki leiðinlegt að skora og ég hefði ekki viljað missa af þessu marki," sagði Atli Eðvaldsson, landsliðs- fyrirliði, við Morgunblaðið skömmu eftir fyrsta leik sinn með tyrkneska liðinu Genclerbirlig á sunnudag. Atli Eðvaldsson. Atli lék síðast með Val gegn KA 11. júlí. Hann hafði fundið til í baki fyrri hluta sum- ars, en varð ekki góður af meiðsl- unum fyrr en eftir sjúkrameðferð i Þýskaiandi. „Þeir voru ekkert að æsa sig hérna og sögðu að ég réði hvenær ég byrjaði að spila. Ég var til í slaginn lýrir helgi og fékk níuna á heimavelli gegn Bnrsaspor. Við unnum 3:1 að viðstöddum 20 þús- und áhorfendum og erum enn í fjórða sæti,“ sagði Atji. Sælkeralíf fyrir leiki Genclerbirlig fer í tveggja daga æfingabúðir fyrir hvern ieik og sagðist Atii aldrei hafa kynnst öðru eins sælkeralífi. „Það má ekkert taka á í þessum æfingabúðum. Fyrst og fremst er hugsað um að slappa af og matur er mannsins • megin — þetta er sannkallað sæikeralíf. Á föstudag var byijað á fjölbreyttum morgun- verði. I hádeginu var fjórréttuð máitíð; um þijú-leytið fengurn við vínarbrauð og tertur; urn sex- leytið vfnber, melónur og aðra ávexti; háif átta var girnilegur kvöidverður og um tíu-leytið heit vínarbrauð, te og fleira. Daginn eftir var sofið út, en síðan skokk- að í tíu mínútur og fyfst í leiknum á sunnudag mátti taka á,“ sagði Atíi. Eðlilegt að önnur lið bjóði greiðslur fyrir sigur Leikmenn í Tyrklandi fá góðar aukagreiðsiur frá félagi sínu fyrir sigur, en eins er eðiilegur hlutur að önnur félÖg bjóði mönnum greiðslur fyrir að sigra lið, sem þau eru í baráttu við. Fyrir leik Islands og Tyrklands í síðasta mánuði spurðu tyrkneskir blaða- menn hvað Austurríkismenn æt- luðu að borga íslendingum fyrir sigur. Sú spurning vakti gremju íslendinga, en Atli sagði að hún hefði verið eðlileg miðað við þankaganginn í Tyrklandi. „Heimavöllurinn hjá liðunum skiptir miklu máii. Þriðji leikur okkar héðan í frá er heima gegn Ileld og Galatasaray og þá er ny'ög líklegt að Fenerbache, sem er í baráttu á toppnum, bjóði okk- ur „premíu“ fyrir sigur. Þetta er svona og eðlilegur hlutur, þegar þriðja lið á í hlut, en ekki leyfilegt í innbyrðis leikjum," sagði Atli. Samningur Atla við félagið er til maí 1991. „Bytjunin lofar góðu og það skemmtilega við þetta er að þessi deild er ein sú sterkasta í heimi. Móttökurnar hafa verið frábærar — eru í raun ólýsaniegar og segja má að ekkert vanti nema Aliah, aliadínlampa og töfra- teppi," sagði landsliðsmaðurinn, sem er fyrstur íslendinga til að leika með tyrknesku liði. ■ 100.000 áhorfendur voru á Nou Camp í Barcelona, þagar leikmenn Real Madrid komu þangað í heim- sókn. Áhorfendur bauluðu á þá ■■■ Bernd Schuster og FráAtla Hugo Sanchez frá Hilmarssyni byijun, en þéir voru á Spáni rneð yfirlýsingar fyrir leikinn. Sögðu að Barcelona væri miðlungslið, sem ætti góðan markvörð. Það væri allt og sumt. ■ LEIKMENN Barcelona mættu ákveðnir tih leiks og unnu, 3:1. Hugo Sanchez skoraði fyrst fyrir Real úr vítaspyrnu, en besti maður vallarins, Julío Salinas, jafnaði og síðan skoraði Ronald Koeman tvö mörk úr vítaspyrnum á síðustu tíu mín. leiksins. ■ BERND Schuster fékk að sjá rauða spjaldið rétt fyrir leikslok, éftir mótmæli. Sjö leikmenn fengu að sjá gula spjaldið. ■ JOHAN Cruyff, þjálfari Barc- elona, tók mikla áhættu fyrir leik- inn með því að láta þá Bakero og Urbano leika, eftir margra mánuða hlé vegna meiðsla. Þeir stóðust báðir prófið. ■ ATLETICO.Madrid er í efsta sæti á Spáni. Félagið vann, Zara- gossa, 2:1. ■ SANCHEZ er markahæstur á Spáni með sex mörk. Koeman hef- ur skorað fimm og Futre, Atletico Madrid, fjögur. KNATTSPYRNA / BELGIA Enn skorar Arnór Frá Bjarna Markússyni iBelgíu Arnór Guðjohnsen átti um helg- ina enn einn stórleikinn með Anderlecht, er liðið vann Beerschot 2:0 og skaust í efsta sætið. Að þessu sinni lék hafín í stöðu varnartengi- liðs og tók Hollend- inginn Simon Ta- hamata úr-umferð, en honum var skipt út af um miðj- an seinni hálfleik. Skömmu síðar innsiglaði Arnór sigurinn. Eftir aukaspyrnu Nilis, sem gerði fyrra markið fyrir hlé, skallaði Keshi að marki, markvörðurinn varði en hélt ekki boltanum og Arnór „var með nefið á réttum stað,“ eins og hann sagði sjálfur. Þetta var þriðja mark Arnórs í deildinni, en auk þess hefur liann gert tvö i Evrópukeppninni og eitt í bikarnum. Arnór var lengi frá vegna meiðsla og hefur stífnað upp eftir hvern leik. Hann var sérstaklega slæmur um helgina, en fór í læknisskoðun í gær og átti von á að verða góður fyrir viðureignina gegn Standard Liege um næstu helgi, en síðan er það fyrri leikurinn gegn Barcelona í Evrópukeppninni. „Okkur er spáð velgengni gegn Barcelona, en það má aldrei van- meta lið eins og það spænska. Það byijaði illa, en þegar það fer í gang, er það óstöðvandi," sagði Arnór. Ánderlecht er efst í Belgíu með 14 stig. Mechelen gerði 1:1 jafn- tefli í Ántwerpen oger með 13 stig. HANDKNATTLEIKUR / SPANN Geir stóð sig vel í Madrid - þar sem Grannollers gerði jafn- tefli, 22:22, við Caja Madríd Geir Sveinsson stóð sig vel í sínum fyrsta deildarleik á Spáni.' KNATTSPYRNA „Leik kveðjuleik minn á íslandi“ - segirÁsgeir Sigurvinsson íviðtali við Kickerl gær Kveðjuleikur hefur komið til tals í Stuttgart, en ég mun ekki leika kveðjuieik hér. Ég mun leika minn kveðjuleik heima á _ís- landi,“ sagði Ás- geir Sigurvinsson í viðtali við v- þýska blaðið Kick- er í gær. Frálóni Halldóri Garöarssyni íV-Þýskalandi Ásgeir var í sparifötunum á varamannabekk Stuttgart um helgina. Hann er meiddur á baki. Stuttgart vann öruggan sigur, 4:0, á St. Pauli. Fritz Walter, sem lék vel, skoraði tvö mörk, Karl Allgöwer og Hotic skoruðu hin mörkin. Þjálfari Leningrad, sem leikur gegn Stuttgart í UEFA-keppn- inni, var á meðal áhorfenda og sagði eftir leikinn: „Stuttgart lék frábæra knattspyrnu. Liðið er mun sterkara en ég reiknaði með. ALFREÐ Gíslason og félagar hans hjá Bidasoa unnu mjög góðan sigur, 21:19, yfir Valen- cía í fyrstu umferð spænsku úrvalsdeildarinnar. Leikurinn var góður og léku þeir Vasilie Stinga og Bogdan Wenta aðal- hlutverkin. Stinga skoraði 11/4 mörk fyrir Valencía, en Wenta 9/1. Alfreð skoraði tvö mörk fyrir Bidasoa. Markaveisla var í Santander - þar sem Kristján Arason og félagartóku á móti Valladolid. Teka vann auðveldan sigur, 32:27. Kristj- HHi án skoraði 5/1 FráAtla mörk, Villaldea 9/4, Hilmarssyni Melo 6 og Cabanas áSpáni 5/1> Jafnt í Madríd Óvæntustu úrslit umferðarinnar voru án efa í Madrid, þar sem Caja Madrid náði aðeins jöfnu gegn Granollers, 22:22. Geir Sveinsson lék sinn fyrsta leik í spænsku úr- valsdeildinni og stóð sig mjög vel - sérstaklega í varnarleiknum, þar sem hann leikur lykilhlutverk. Mate Garralda skoraði flest mörk Gran- oilers, eða sjö. Atli HilmarsSon skor- aði fjögur og Geir eitt. Puzovic skor- aði flest mörk fyrir Caja, eða átta. Töf vegna Geirs Leiknum var sjónvarpað beint um Spán. Hann hófst tíu mín. seinna en fyrirhugað var, þar sem Geir Sveinsson var ekki með leikpassa frá spænska handknattleikssam- bandinu. Eftir fundarhöld gáfu dómarar leiksins Geir leyfi til að leika án þess að hann væri með passann. BM Madrid var breytt í BM Cuen- ca á föstudaginn. Ástæðan fyrir því er að félagið hefur samið við borg- ina.Guenca að leika heimaleiki sína þar. Borgin er um 200 km frá Madrid. Félagið var í fjárhagserfið- leikum, en fær nú dágóða peninga fyrir að leika í Cuenca, en ekkert handknattleikslið er í borginni. Næstu leikir Islendingaliðanna eru: BM Cuenva - Teka, Palautörd- era - Bidasoa, Granollers Ponteveda. GETRAUNIR: 112 111 111 2 2 2 d LOTTO: 8 24 26 29 32 + 23

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.