Morgunblaðið - 14.10.1989, Síða 28

Morgunblaðið - 14.10.1989, Síða 28
28 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 14. OKTOBER 1989 Jóh. 4.: Konungsmaðurinn REYKJAVÍKURPRÓFASTS- DÆMI: Héraðsfundur verður haldinn í Árbæjarkirkju sunnudag- inn 15. október kl. 16. ÁRBÆJARPRESTAKALL: Barna- samkoma kl. 11. Guðsþjónusta kl. 14. Sr. Kristinn Ágúst Frið- finnsson messar. Organisti Jón Mýrdal. Þriðjudag: Leikfimi eldri borgara í safnaðarheimilinu kl. 14. Miðvikudag: Opið hús í safnaðar- heimilinu frá kl. 13.30 fyrir eldra fólk safnaðarins. Sr. Guðmundur Þorsteinsson. ÁSKIRKJA: Barnaguðsþjónusta kl. 11. Guðsþjónusta kl. 14. Kaffi eftir messu. Munið kirkjubílinn. Fimmtudag 19. okt.: Fundur í safnaðarfélagi Ásprestakalls kl. 20.30. Sýndar myndir úr sumar- ferð o.fl. Sr. Árni Bergur Sigur- björnsson. BREIÐHOLTSKIRKJA: Barna- guðsþjónusta kl. 11. Guðsþjón- usta kl. 14. Organisti Daníel Jón- asson. Að guðsþjónustu lokinni verður kaffisala til fjáröflunar fyrir starf kirkjukórsins. Þriðjudag: Bænaguðsþjónusta kl. 18.30. Fyr- irbænaefnum má koma á fram- færi við sóknarprest. Sr. Gísli Jón- asson. BÚSTAÐAKIRKJA: Barnamessa kl. 11. Guðrún Ebba Ólafsdóttir, sr. Pálmi Matthíasson. Guðs- þjónusta kl. 14. Organisti Guðni Þ. Guðmundsson. Basar Kvenfé- lags Bústaðakirkju eftir guðs- þjónustuna. Æskulýðsfundur mið- vikudagskvöld kl. 20. Sr. Pálmi Matthíasson. DIGRANESPRESTAKALL: Barna- samkoma í safnaðarheimilinu við Bjarnhólastíg kl. 11. Guðsþjón- usta í Kópavogskirkju kl. 2. Sr. Þorbergur Kristjánsson. DÓMKIRKJAN: Laugardag 14. okt. Barnasamkoma kl. 10.30. Egill og Ólafía. Sunnudag 15. okt. Messa kl. 11. Sr. Jakob Ágúst Hjálmarsson. Fjölskylduguðs- þjónusta kl. 14. Sr. Hjalti Guð- mundsson. Dómkórinn syngur við báðar messurnar. Organisti Mar- teinn Hunger Friðriksson. ELLIHEIMILIÐ Grund: Messa kl. 14. Organisti Kjartan Ólafsson. Sr. Magnús Guðjónsson prédikar og þjónar fyrir altari. Félag fyrr- verandi sóknarpresta. FELLA- OG HÓLAKIRKJA: Sunnudag: Barnaguðsþjónusta kl. 11. Umsjón Ragnheiður Sverris- dóttir. Guðsþjónusta kl. 14. Prest- ur sr. Hreinn Hjartarson. Organ- isti Guðný M. Magnúsdóttir. Mánudag: Fundur í Æskulýðs- félaginu kl. 20.30. Miðvikudag: Guðsþjónusta kl. 20. Þorvaldur Halldórsson og félagar annast tónlist. Sóknarprestar. FRÍKIRKJAN í Reykjavík: Helgi- stund kl. 17. Leikið á orgel kirkj- unnar frá kl. 16.40. Orgelleikari Pavel Smid. Séra Cecil Haralds- son. GRENSÁSKIRKJA: Barnasam- koma kl. 11. Eldri börnin í kirkj- unni, 5 ára börn og yngri í salnum niðri. Guðsþjónusta með altaris- göngu kl. 14. Miðvikudagur: Há- degisverðarfundur aldraðra kl. 11. Helgistund, fræðsluerindi. Boðið til hádegisverðar, ættjarðarlög og indælis kaffi. Laugardag kl. 10. Biblíulestur og bænastund á veg- um ungs fólks með hlutverk. Prestarnir. HALLGRÍMSKIRKJA: Laugardag 14. okt. Samvera fermingarbarna kl. 10. Sunnudag 15. okt. Messa kl. 11. Sr. Karl Sigurbjörnsson. Barnasamkoma á sama tíma í kapellunni. Þeir sem vilja bílfar hringi í Hallgrímskirkju á sunnu- dag frá kl. 9.30 í síma 10745. Þriðjudag 17. okt. Fyrirbæna- guðsþjónusta kl. 10.30. Beðið fyr- ir sjúkum. LANDSPÍTALINN: Messa kl. 10. Sr. Ragnar Fjalar Lárusson. HÁTEIGSKIRKJA: Morgunmessa kl. 10. Sr. Tómas Sveinsson. Barnaguðsþjónusta kl. 11. Há- messa kl. 14. Sr. Arngrímur Jóns- son. Kvöldbænir og fyrirbænir eru í kirkjunni á miðvikudögum kl. 18. Prestarnir. HJALLAPRESTAKALL: Barna- messa kl. 11 í Digranesskóla. At- hygli er vakin á því að kl. 10.30 hefst föndurstund og eru foreldr- ar hvattir til að koma með börnum sínum. Sr. Kristján Einar Þorvarð- arson. KÁRSNESPRESTAKALL: Fjöl- skylduguðsþjónusta í Kópavogs- kirkju kl. 11. Yngsti kór Kársnes- skólans syngur, stjórnandi Þor- unn Björnsdóttir. Foreldrar eru hvattir til að koma með börnin til guðsþjónustunnar. Sr. Árni Páls- son. LANGHOLTSKIRKJA: Kirkja Guð- brands biskups. Óskastund barn- anna kl. 11. Söngur, sögur, mynd- ir. Jón og Þórhallur sjá um stund- ina. Guðsþjónusta kl. 14. Organ- isti Jón Stefánsson. Eflum sam- félagið með molakaffi í safnaðar- heimilinu eftir stundina. Miðviku- dag 18. okt. kl. 17. Æskulýðss- starf 10-12 ára barna. Sr. Þór- hallur Heimisson. LAUGARNESKIRKJA: Laugardag 14. okt. Guðsþjónusta í Hátúni 10B, 9. hæð, kl. 11. Sunnudag 15. okt. Kirkjudagur Laugarnes- kirkju. Barnaguðsþjónusta kl. 11. Hátíðamessa kl. 14. Sr. Jón Bjar- man sjúkrahúsprestur prédikar, sóknarprestur þjónar fyrir altari. Inga Þóra og Laufey Geirlaugs- dætur syngja tvisöng. Kór kirkj- unnar syngur undir stjórn organ- istans, Ann Toril Lindstad. Eftir messu verður kaffisala Kvenfé- lags Laugarnessóknar. Mánudag- ur 16. okt. Fundur hjá Kristilegu félagi heilbrigðisstétta kl. 20.30. Þriðjudag 17. okt. Opið hús hjá Samtökum um sorg og sorgarvið- brögð kl. 20—22. Helgistund í kirkjunni kl. 22. Fimmtudag 19. okt. Kyrrðarstund í hádeginu. Or- gelleikur, altarisganga og fyrir- bænir. Léttur hádegisverður i safnaðarheimilinu á eftir. Barna- starf fyrir 10—12 ára börn kl. 17.30 í safnaðarheimilinu. Æsku- lýðsstarf kl. 20. Sóknarprestur. NESKIRKJA: Laugardag 14. okt. Félagsstarf aldraðra, samveru- stund kl. 15 í safnaðarheimili kirkj- unnar. Rifjaðar verða upp minn- ingar úr ferðum á árinu og sýndar myndir. Inga Bachmann syngur einsöng. Sunnudaginn 15. okt. Barnasamkoma kl. 11 í umsjón Sigríðar Óladóttur. Messa kl. 14, ferming. Fermd verða: Hrund Skarphéðinsdóttir, Grandavegi 45, Ingimundur Óðinn Sverrisson, Hringbraut 105, og Tjörvi Skarp- héðinsson, Grandavegi 45. Orgel- og kórstjórn Reynir Jónasson. Sr. Guðmundur Óskar Ólafsson. Mánudag: Barnastarf 12 ára kl. 17.30. Æskulýðsstarf 13 ára og eldri kl. 19.30. Þriðjudag. Barna- starf 10—11 ára kl. 17. Miðviku- dag. Fyrirbænamessa kl. 18.20, sr. Guðmundur Óskar Ólafsson. Öldrunarþjónusta. Hárgreiðsla og fótsnyrting í safnaðarheimili kirkj- unnar frá kl. 13—17, sími 16783. Fimmtudag. Opið hús fyrir aldr- aða í safnaðarheimilinu frá kl. 13—17. Leikið verður á orgel i kirkjunni frá kl. 17.30 á fimmtu- dögum. SELJAKIRKJA: Barnaguðsþjón- usta kl. 11. Guðsþjónusta kl. 14. Sóknarprestur. SELTJARNARNESKIRKJA: Fjöl- skyldumessa kl. 11. Barnastarf á sama tíma. Prestur sr. Solveig Lára Guðmundsdóttir. Organisti Sighvatur Jónasson. Umsjón með barnastarfi hefur Adda Steina Björnsdóttir. Mánudag. Fyrir- bænastund í kirkjunni kl. 17. Æskulýðsfundur mánudagskvöld kl. 20.30. Opið hús fyrir 10—12 ára börn þriðjudag kl. 17.30. Fundur með foreldrum fermingar- barna miðvikudagskvöld kl. 20.30. Opið hús fyrir foreldra ungra barna fimmtudag kl. 2—5. Takið börnin með. Samkoma á vegum Seltjarnarneskirkju og Ungs fólks með hlutverk fimmtudagskvöld kl. 20.30. Léttur söngur og fyrirbæn- ir. Þorvaldur Halldórsson leiðir sönginn. Sóknarprestur. KIRKJA Óháða safnaðarins: Kirkjudagurinn. Hátíðarguðsþjón- usta kl. 14. Svala Nilsen syngur. Feðgarnir Jónas Dagbjartsson og Jónas Þórir sjá um tónlistina. Kaffisaia kvenfél. eftir messu. Safnaðarprestur. EYRARBAKKAKIRKJA: Barna- guðsþjónusta kl. 10.30. Messa kl. 14. Sóknarprestur. NJARÐVÍKURPRESTAKALL: Fjöl- skylduguðsþjónusta í safnaðar- heimili Innri-Njarðvíkurkirkju kl. 11. Sunnudagaskóli í Ytri- Njarðvikurkirkju kl. 11. Sr. Guð- mundur Örn Ragnarsson. HVÍTASUNNUKIRKJAN Fílad- elfía: Almenn bænasamkoma í kvöld kl. 20.30. Almenn guðs- þjónusta sunnudag kl. 20. Ræðu- maður Sam Daniel Glad. HVÍTASUNNUKIRKJAN Völvu- felli: Sunnudagaskóli kl. 16. Ath. breyttan tíma. Almenn guðsþjón- usta kl. 16.30. Fjölbreytt dagskrá. KRISTSKIRKJA Landakoti: Lág- messa kl. 8.30. Þessi messa er stundum lesin á ensku. Hámessa kl. 10.30. Lágmessa kl. 14. Rúm- helga daga lágmessa kl. 18 nema á laugardögum þá kl. 14. Á laugar- dögum ensk messa kl. 20. MARÍUKIRKJA Breiðholti: Há- messa kl. 11. Rúmhelga daga, lágmessa kl. 18. KFUM & KFUK: Kristniboðssam- koma Amtmannsstíg 2B kl. 20.30. Fréttir fluttar af heimastarfinu: Friðrik Hilmarsson. Ræðumaður Benedikt Arnkelsson. HJÁLPRÆÐISHERINN: Sunnu- dagaskóli kl. 14. Hátíð fyrir Heim- ilasambandssystur í Garðastræti 40 kl. 18. Hjálpræðissamkoma kl. 20.30. Kapteinarnir Anne Gurine og Daniel Óskarsson stjórna og tala. Heimilasambandssystur taka þátt í samkomunni. MOSFELLSPRESTAKALL: Barnasamkoma í safnaðarheimil- inu kl. 11. Messa í Lágafellskirkju kl. 14. Sr. Birgir Ásgeirsson. GARÐAKIRKJA: Guðsþjónusta kl. 11. Organisti Þröstur Eiriksson. Sr. Bragi Friðriksson. KAPELLA St. Jósefssystra, Garðabæ: Hámessa kl. 10. VÍÐISTAÐAKIRKJA: Barnaguðs- þjónusta kl. 11. Guðsþjónusta kl. 14. Barnakór Víðistaðasóknar syngur. Organisti Kristín Jóhann- esdóttir. Sr. Sigurður Helgi Guð- mundsson. HAFNARFJARÐARKIRKJA: Sunnudagaskóli kl. 11. Munið skólabílinn. Messa kl. 14. Altaris- ganga. Oliver Kentes leikur á selló. Nokkur fimmtíu ára ferm- ingarbörn heimsækja kirkjuna. Séra Gunnþór Ingason. FRÍKIRKJAN Hafnarfirði: Barna- samkoma kl. 11. Guðsþjónusta kl. 14. Sr. Bragi Skúlason sjúkra- húsprestur prédikar. Kaffisala kvenfélagsins hefst að lokinni guðsþjónustu og verður í sal Iþróttahússins við Strandgötu. Samverustund í safnaðarheimil- inu mánudagskvöld kl. 20. Biblíu- lestur. Sr. Einar Eyjólfsson. KAPELLAN St. Jósefsspitala: Hámessa "kl. 10.30. Rúmhelga daga lágmessa kl. 18. KARMELKLAUSTUR: Hámessa kl. 8.30. Rúmhelga daga messa kl. 8. KEFLAVÍKURKIRKJA: Sunnu- dagaskóli kl. 11. Munið skóla- bílinn. Guðsþjónusta kl. 14. Kven- félagskonur aðstoða við guðs- þjónustuna. María Guðmunds- dóttir sýngur einsöng. Organisti Örn Falkner. Sóknarprestur. HVÍTASUNNUKIRKJAN Keflavík: Almenn guðsþjónusta kl. 16. Ræðumaður Sam Daniel Glad. KAÞÓLSKA kapellan Keflavík, Hafnargötu 71: Messa kl. 16 á sunnudögum. GRINDAVÍKURKIRKJA: Barna- guðsþjónusta kl. 11. Framhalds- sagan, söngur, verkefni o.fl. Bænasamkoma alla þriðjudaga kl. 20.30. Sr. Örn Bárður Jónsson. KIRKJUVOGSKIRKJA: Messa kl. 14. Fermingarbörn lesa ritningar- greinar. Sérstakur þáttur fyrir börnin. Sr. Örn Bárður Jónsson. ÚTSKÁLAKIRKJ A: Sunnudaga- skólastarfið hefst í kirkjunni kl. 11. Nýtt fraeðsluefni verður kynnt. Sr. Hjörtur Magni Jóhannsson. HVALSNESKIRKJA: Sunnudaga- skólastarf vetrarins hefst í grunn- skólanum í Sandgerði kl. 14. Nýtt fræðsluefni kynnt. Sr. Hjörtur Magni Jóhannsson. NJARÐVÍKURPRESTAKALL: Fjöl- skylduguðsþjónusta í safnaðar- heimili Innri-Njarðvíkurkirkju kl. 11. Sunnudagaskóli i Ytri- Njarðvíkurkirkju kl. 11. Sr. Guð- mundur Örn Ragnarsson. EYRARBAKKAKIRKJA: Barna- guðsþjónusta kl. 10.30. Messa kl. 14. Sóknarprestur. HVÍTASUNNUKIRKJAN Selfossi, Austurvegi 40b: Almenn guðs- þjónusta kl. 16.30. Ræðumaður Garðar Ragnarsson. ÞINGVALLAKIRKJA: Guðsþjón- usta kl. 14. Orgelleikari Einar Sig- urðsson. Sóknarprestur. AKRANESKIRKJA: Kirkjuskóli yngstu barnanna í Vinaminni kl. 13 í dag, laugardag. Barnaguðs- þjónusta sunnudag í kirkjunni. Barnakórinn syngur. Organisti Einar Örn Einarsson. Messa fellur niður vegna héraðsfundar próf- astsdæmisins. Fyrirbænaguðs- þjónusta mánudag kl. 18.30. Beð- ið fyrir siúkum. BORGARPRESTAKALL: Barna- guðsþjónusta í Borgarneskirkju kl. 10. Messa í Borgarneskirkju kl. 11 við upphaf héraðsfundar Borgarfjarðarprófastsdæmis. Sr. Geir Waage í Reykholti prédikar. SIGLUFJARÐARKIRKJA: Guðs- þjónusta kl. 14. Sr. Vigfús Þór Árnason sóknarprestur kveður söfnuð sinn. Organisti Anthony Raley. Fluttirverða Hátíðarsöngv- ar sr. Bjarna Þorsteinssonar. Að messu lokinni verður kaffisam- sæti í safnaðarheimilinu á vegum Systrafélagsins og sóknarnefnd- arinnar. Sóknarnefnd. Ragna Jónsdóttir, ' fsafírði - Minning Já, elsku vinir, það er okkar reynd, að öruggt er kærleiksbandið og dauðinn er ekkert annað en hlið inn á eilífðar framfara-landið. (E.H. Kvai'an) Ekki er hægt að sýna látnum vini meiri kærleika en að skrifa nokkur orð við Iandamæraskiptin. Vissulega er örðugt að sjá á bak vinunum. Á útfarardaginn eru þeir ekki fjarlægari en svo, að þeir finna ástúðina og lesa þær kærleiks- hugsanir, sem minningarnar um samvistirnar við þá vekja innra með okkur. Þá víkur hjá framliðnum saknaðarkenndin, þeir fá frá okkur stórkostlega orku sem er ólýsanleg, þegr fólk les greinar um þá. Bænir fyrir látnum föður eða móður, syst- ir eða bróðir, maka eða vini, syni eða dóttur veita framliðnum ómælda blessun. Bandið milli þess heims og annars slitnar aldrei. Við vistaskiptin og undirbúning- inn, þá er það móðirin sem hinn deyjandi sér síðast við dánarbeðið í jarðneska heiminum og fyrst í hinum andlega heimi. Þannig er það mamma, bæði fyrst og síðast. Ötnmur eru einnig hjá karlmönnum og afar hjá konum, sem við sjáum þegar við vöknum á Paradísarsvið- inu; síðan fáum við að fara í göngu- ferð með þessum ástvinum sem voru með mömmu, og þá hittum við aftur þá félaga, kunningja og vini er við áður þekktum, en voru komnir á undan. Er ekki stórkost- legt að fá að þiggja aftur ástúð mömmu og umhyggju, á Paradísar- sviðinu. Nokkrum dögum eftir vistaskiptin, þá er séð um að fólk fái öryggistilfinningu í nýjum heim- kynnum. Það sneitir ljúfa strengi í hjarta framliðinna vina, að finna og sjá að eftirlifandi ástvinir muna eftir, að hafa bollann á borðinu eða matardiskinn fyrstu vikurnar eftir viðskilnaðinn, að ekki sé minnst á reykelsi er virkar eins og næring, og auðveldar látnum ástvinum að komast í samband við okkur. Öllu er ráðstafað í hærri heimum. Hver og ein einasta manneskja fær verndara, engilveru, sem hefur sér- lega ríkt móðureðli. Já, fóstur sem deyr í móðurkviði, fær einnig þrosk- aðan kærleiksengil, en sem hefur verið valinn til þess að annast barn- ið. Það eru margir sem reka erindi Guðs í annarri tilveru í þarfir þeirra sem illa eru komnir. Ragna Jónsdóttir, ekkja Sig- mundar Falssonar bátasmíðameist- ara síðast á ísafirði, er þessar hug- leiðingar eru tileinkaðar, var sann- færð um kærleiksríkar verur æðri heima og samband við annan heim. Ragna andaðist á Fjórðungssjúkra- húsinu á Isafirði 5. október sl. 80 ára að aldri, frá því 2. júlí sl. og þá sendi ég henni kveðju hér í Morgunblaðinu. Ung fluttist Ragna til ísafjarðar með fósturmóður sinni Önnu Björnsdóttur kennara. Frú Anna réðst verzlunarstjóri að verzlun frú Guðrúnar Jónasson bæjarfulltrúa í Reykjavík og fröken Gunnþórunnar Halldórsdóttur leikkonu, en þær vinkonur ráku verzlun á Isafirði um árabil. Ragna varð aðnjótandi hins mesta kærleika hjá fósturmóður sinni og héldu þær -alltaf saman, þar til Anna andaðist 6. september 1956. Ragna tók ástfóstri við Isafjörð sem var fjörlegur og skemmtilegur kaupstaður á uppvaxtarárum henn- ar, iðandi mannlíf og menningarlíf. Ragna var vinsæl í hópi íjölskyldu sinnar og vina, er héldu tryggð við hana og léttu henni stundirnar eftir lát Sigmundar móðurbróður míns. Sigmundur umvafði Rögnu ástúð, virðingu og umhyggju. Þau áttu saman fallegt og glæsilegt heimili, fyrst á Skólagötu 8, síðar á Litla- Býli við Seljalandsveg. Síðustu árin dvaldi Ragna á Hlíf, dvalarheimili aldraðra, þar sem hún naut umönn- unar. Endurminningar mínar um Önnu Björnsdóttur, Rögnu og Sig- mund eru mér hjartfólgnar. Vegna alvarlegra veikinda foreldra minna, kemst ég ekki, til þess að vera við- staddur útförina, og enga hjálp að fá, að gæta þeirra á meðan. Guð blessi minningu Rögnu Jóns- dóttur. Helgi Vigfússon

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.