Morgunblaðið - 17.10.1989, Side 16
Ruslapokagrind
Vinda úr ryðfríu stáli
Vörumarkaðurinn hf.
Kringlunni Sími 685440
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 17. OKTOBER 1989
Skrýtinn endir á skrýtnu veiðisumri:
A
Ovenjulegar stórlaxa-
göngur í lok veiðitíma
TALSVERT var um líflegar laxagöngur í lok veiðitímans og vakti
sérstaka athygli i sumum ám hversu stór göngulaxinn var. Var al-
gengt að hér væri um 12 til 17 punda laxa að ræða og er það mjög
óvenjulegt að svo stór lax sé á ferð svo seint. Sem dæmi má nefna,
að Viðar Daníelsson byggingarverktaki fékk á einum september-
morgni í Laxá í Kjós 8 laxa sem voru að meðalvigt 14 pund. Laxarn-
ir voru nær allir nýrunnir og dregnir á neðsta svæðinu þar sem
undir öllum venjulegum kringumstæðum er lítið að hafa þegar kom-
ið er fram í september. Fleiri fengu 12 til 14 punda laxa og þetta
gerðist víðar en í Laxá í Kjós; í Elliðaánum, Brynjudalsá, Selá og
Laxá í Aðaldal bar nokkuð á þessu, svo einhverjar ár séu nefndar.
„Ég hef verið veiðivörður við
Laxá í Kjós í 8 ár og man ekki
eftir öðru eins og ekki heyrt um
slíkt áður. En þetta var nokkuð slá-
andi í sumar og veiði Viðars var
með ólíkindum. Tveir laxa hans
voru 17 punda og enginn minni en
13 pund. Sjálfsagt stendur þetta í
sambandi við árferðið sem var í
byijun veiðitímans," sagði Ólafur
H. Ólafsson veiðivörður í Laxá í
samtali við 'Morgunblaðið. Alkunna
er meðal veiðimanna, að stórlaxinn
gengur fyrstur laxa í árnar á vorin,
í maí og júní, síðan komi smálax
og allra stærstu laxarnir gjarnan
saman við þá.
GAGGENAU
MIKIL VERÐLÆKKUN
Góð greiðslukjör
ó GAGGEMAU heimilistækjum.
Um tónlistarhús
og íþróttahús
eftir Pétur
Jónasson
NOKKRAR NYJAR TILLÖGUR!
öskubakkl
Skðftfesting á vagn
Fata fyrir afþurrkun ofl.
Sorppokagrind (má brjóta saman i geymslu)
Bakki fyrir hreinsiefni ofl.
2 - 4 fötur fyrir afþurrkun ofl.
vr
v
Lett og sterkt alskaft
Handfang
Oft verður mér hugsað til tón-
leika sem ég sótti á Listahátíð fyrir
allmörgum árum. Þar lék Sinfóníu-
hljómsveit íslands undir stjórn
Vladimirs Ashkenazys og einleikari
á selló var Mstislav Rostropovich.
Það þarf ekki að taka það fram að
þar var flutt tónlist af hæsta gæða-
flokki. Hugtök eins og tungumál,
þjóðerni og landamæri missa þýð-
ingu sína frámmi fyrir andlegum
jöfrum eins og þeim sem sóttu ís-
lendinga heim þetta kvöld. í mínum
huga eru þeir meira en þjóðhöfð-
ingjar, þeir eru „alheimshöfðingj-
ar“.
Tíðum heyrist sagt að þeir sem
aðhyllist „klassíska" tónlist — ég
kýs að kalla hana fagurtónlist sé
fámenn klíka sérvitringa og menn-
ingarsnobbara. Sú tónlist sé ekki
„það sem fólkið vill“. Kannski er
ein ástæðan fyrir þessari skoðun
sú, að til þess að ná árangri á sviði
fagurtónlistar er nauðsynlegt að
einstaklingurinn beiti sig óvenju-
lega miklum sjálfsaga og sjálfs-
gagnrýni og tileinki sér þar með
hógværð. Þannig vinnur það á móti
eðli hans að skapa í kringum sig
hávaða til þess að vekja athygli á
sjálfum sér og málstað sínum. Það
fer sem sagt frekar lítið fyrir slíku
fólki. En fámennur er þessþ hópur
ekki. Að Tónlistarbandalagi íslands
standa öll stærstu tónlistarfélög og
samtök á landinu, jafnt áhuga-
manna sem atvinnumanna. Lang-
flest þeirra beita sér fyrir iðkun
fagurtónlistar, en aðildarfélagar
eru yfir 10.000. Á íslandi eru starf-
ræktir tæplega 70 tónlistarskólar
og skipta nemendur mörgum þús-
undum. Hundruð tónleika eru hald-
in á hverju ári. Allt þetta starf er
farið að skila glæsilegum árangri
og nægir þar að nefna Sigrúnu
Eðvaldsdóttur sem unnið hefur til
verðlauna í þremur sterkum al-
þjóðlegum fiðlukeppnum á skömm-
um tíma.
í Morgunblaðinu 8. september
sl. birtist grein eftir Rut Magnússon
sem ber yfirskriftina „Hvers átt þú
að gjalda, tónlist?". Þar veltir hún
fyrir sér hvernig megi á því standa
að á meðan alls staðar er verið að
skera niður Ijárveitingar og dapur-
legar spár um afkomu ríkissjóðs eru
að verða að veruleika, stendur nú
til að byggja handboltahöll sem
kosta á tæpan milljarð króna. Rut
segir síðan: „Með þessum skrifum
er ég ekki að mótmæla því að
ákveðið hefur verið að byggja enn
eina glæsibygginguna undir íþrótt-
ir . . . það sem ég vil mótmæla er,
að bygging þessarar íþróttahallar
Pétur Jónasson
„Til þess að ná árangri
á sviði fagurtónlistar er
nauðsynlegt að ein-
staklingnrinn beiti sig
óvenjulega miklum
sjálfsaga og sjálfsgagn-
rýni og tileinki sér þar
með hógværð.“
skuli að hluta til vera réttlætt með
því að hún gæti einnig hýst tónlist-
arviðburði. Með því er viðurkennd
þörf fyrir húsnæði til tónleikahalds
en um leið kemur fram sú þráláta
bábilja að húsnæði af ýmsu tagi
dugi fullvel fyrir tónlistarflutning."
Rut talar hér ekki aðeins fyrir I
sjálfa sig, heldur fyrir þúsundir ís-
lenskra tónlistarmanna og unnenda
að auki sem eru orðnir langþreytt- 1
ir á því að iðka og njóta tónlistar
sinnar við óviðunandi aðstæður.
En aftur yfir til Vladimirs,
Mstislavs og Sinfóníuhljómsveitar-
innar. Grein Rutar minnti mig enn-
þá einu sinni á þá kvöldstund. Hún
fór nefnilega fram í Laugardals- •
höllinni. Guð minn góður. Hriktandi
stál- og trépallar, flúor-lýsing,
bráðabirgðastólar. Og hljómburður-
inn? Það segir sig sjálfþ Allt í einu
hvarflar að mér að eina leiðin til
þess að Tónlistarhúsið rísi sé sú að
selja auglýsingar á kjólfötin og fara
að henda boltum í hléi tónleika.
Hvað segið þið, eigum við að skrapa
saman í lið og sjá hvað gerist?
Höfundur er liljóðfæraleikari og
fráfarandi formaður
Tónlistarbandalags íslands.
Nú er ekkert vit í því
að kaupa ekki það besta.
GAGGENAU
Vestur-þýsk hönnun og tækni í
heimsklassa.
Festiplata sem ,
fer vel inn í horn
Skaftfesting á vagn
Grunnvagn
Uðamót sem gera hreyfinguna
létta og auðveldar ai koma moppunni undir húsgögn
Rykmoppa
Moppa úr gerviefni (þolir suðuþvott)
N ú fást vagnar med nýrri vindu þar sem moppan
er undin með einu handtaki án þess að taka þurfi
hana af skaftinu. Moppan fer alveg inn í horn og
auðveldlega undir húsgögn. Einnig er hún tilvalin í
veggjahreingerningar. Þetta þýðir auðveldari og
betriþrif.
Auðveldara, fljótlegra og hagkvæmara!
M oppuvagnarnir eru allir einn og sami
grunnvagninn en með aukahlutum eru óteljandi
möguleikar á samsetningum. Þannig geta fyrirtæki
ogstofnanir sett saman vagn sem fullnægir
nákvæmlega þeirra þörfum.