Morgunblaðið - 22.10.1989, Page 2
2
FRÉTTIR/INNLENT
• íiaaöTHO se RUOAciumua aiGAjaviuoaoM
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR U2U0KTÓBER
Verzlunarráð skrifar fiármálaráðherra:
Kvartanir vegna við-
skiptasiðferðis stoftiana
Verzlunarráð íslands hefur sent Ólafi Ragnari Grímssyni Qármála-
ráðherra bréf, þar sem farið er fram á að ráðherra gefi út skýr
fyrirmæli til opinberra stofnana og ráðuneyta um að samningar um
greiðslufrest á vörum og þjónustu séu virtir og fúllir lögmætir drátt-
arvextir greiddir fortakslaust ef ekki sé staðið við samninga. I bréf-
inu segir að VÍ hafi borizt kvartanir vegna slæms viðskiptasiðferðis
opinberra stofnana. Greiðslur dragist úr hömlu og í meira mæli en
áður sé neitað að greiða lögmæta dráttarvexti.
Viðskipti við opinbera aðila eru
í mörgum tilfellum afar þýð-
ingarmikil fyrir einstaka seljendur
vöru og þjónustu, enda er þeim
óspart hótað með sliti viðskipta ef
þeir voga sér að kvarta eða gera
athugasemdir um tafir á greiðsl-
um,“ segir í bréfinu. „Auknar tafir
á greiðslum og kröfur um sjálftek-
inn vaxtalausan greiðslufrest koma
hins vegar mjög illa við seljendur
SALTAÐ hafði verið í samtals
39.500 tunnur af síld í gærmorg-
un, að sögn Kristjáns Jóhannes-
sonar birgða- og söltunarstjóra
Síldarútvegsnefndar.
Sjö bátar veiddu síld við Hvalbak
á föstudagskvöld og aðfaranótt
vöru og þjónustu þar sem þeir verða
að standa skil á greiðslum' vegna
aðfanga, launa og síðast en ekki
sízt skatta."
I bréfinu segir að það skjóti
skökku við að á sama tíma og átak
hafi verið gert í innheimtu skatta
skuli ríkisvaldið temja sér verri við-
skiptahætti vegna þeirra greiðslna,
sem því beri að inna af hendi við
seljendur vöru og þjónustu. Þar
laugardags, að sögn Kristjáns.
A laugardagsmorgun var búið
að salta í 5.900 tunnur í Grindavík,
5.700 tunnur á Fáskrúðsfirði, 5.400
á Höfn í Hornafirði, 5.100 á Eski-
firði og 3.800 á Reyðarfirði.
segir jafnframt að eðlilegt sé að
sams konar útreikningar verði hafð-
ir á dráttarvöxtum og hjá inn-
heimtuaðilum ríkissjóðs, til dæmis
Gjaldheimtunni í Reykjavík. Eðli-
legt sé að dráttarvextir, sem ríkið
greiði, séu ekki reiknaðir með óhag-
stæðari hætti en seljendur vöru og
þjónustu sæta þegar þeir standa
ekki í skilum við ríkið með skatt-
greiðslur.
Verzlunarráðið vekur jafnframt
athygli á því að í mörgum tilvikum
sé ekki ósenriilegt. að auknar tafir
á greiðslum og meiri harká í að
komast hjá greiðslu dráttarvaxta
tengist eyðslu ríkisstofnana um-
fram fjárlagaheimildir. Það gangi
að sjálfsögðú þvert á tilgang að-
halds og ráðdeiidar í gerð fjárlaga
ef opinberir aðilar bregðist við
ákvörðunum um slíkt með því að
halda áfram að kaupa inn eins og
ekkert hafi í skorizt, en neita svo
að greiða reikninga.
Er haft var samband við Olaf
Ragnar Grímsson fjármálaráðherra
sagðist hann ekki hafa fengið bréf-
ið í hendur ennþá í ráðuneytinu,
og hann gæti því ekki tjáð sig um
efni þess.
Húnáflói:
Rækjan er
smærri í ár
RÆKJUKVÓTI í Húnaflóa verð-
ur 1.300 tonn í vetur, eða 500
tonnum minni en í fyrravetur,
þar sem rækjan í flóanum er
smærri en í fyrra og afli á
togtíma minni, að sögn Jónbjörns
Pálssonar leiðangursstjóra í
rækjuleiðangri sem farinn var í
Húnaflóa fyrir skömmu.
Jónbjöm Pálsson sagði í samtali
við Morgunblaðið að reiknað
væri með að farið yrði í annan
rækjuleiðangur í Húnaflóa eftir ára-
mótin og þá yrði kvótinn í vetur
endurskoðaður.
Eins og fram kom í Morgun-
blaðinu í gær, var mokafli strax á
fyrsta veiðidegi sl. föstudag hjá
rækjubátum í ísafjarðardjúpi.
Heimilaðar hafa verið veiðar á 1500
tonnum af rækju þar í vetur, sem
er um þriðjungi meira en veiddist
á síðustu vertíð.
Frá síldarsöltun á Seyðisfirði. Morgunblaðiö/Garðar Rúnar
Saltað í 39.500 tunnur
Morgunbladið/Bjami
Grímur Björn Grímsson er eins og hálfs árs, en hann er fyrsta
islenska glasabamið. Hann býr með foreldrum sínum í Kaup-
mannahöfii. Grímur er nú í heimsókn á íslandi ásamt foreldmm
sínum, Halldóm Björnsdóttur og Grími Friðgeirssyni, sem hér
sést með syni sínum.
106 pör utan til
glasaftj ó vgunar
Glasafrj ó vganir heljast hér á vormánuðum
ÞAÐ SEM af er þessu ári hafa 106 íslensk pör farið utan til
glasafrjóvgunar, en siglinganefind Tryggingastoftiunar ríkisins
hefur samþykkt 123 umsóknir á árinu. Ekki liggja fyrir tölur
um hversu mörg glasabörn hafa fæðst á þessu ári hérlendis,
en í fyrra fæddust hér tólf glasabörn. Árið 1988 voru 92
umsóknir samþykktar af siglinganefhd. Af þeim fjölda fór 81
par utan til glasaftjóvgunar og tókst frjóvgun í 21 tilviki.
Islensk heilbrigðisyfii'völd
gerðu þriggja ára samning við
Born Hall Clinic í Englandi,
skammt við Cambridge, og tók
sá samningur gildi þann 1. jan-
úar 1987. Bom Hall Clinic stend-
ur hvað fremst sjúkrastöðva á
sviði glasafijóvgana, að sögn
Kristjáns Guðjónssonar, ritara í
siglinganefnd, en af þeim kon-
um, sem gangast undir glasa-
frjóvgun þar, eignast 15% lifandi
böm.
Tryggingastofnun greiðir
sjúkrakostnaðinn vegna glasa-
fijóvgana érlendis, en hann er
talinn nema hátt. í tvö þúsund
pundum í hveiju tilviki, eða tæp-
um 200 þúsund krónum, að sögn
Guðjóns. Annar kostnaður er al-
farið á ábyrgð viðkomandi ein-
staklinga. Fósturlát eru mun
tíðari við glasafrjóvganir en við
náttúrulegar fijóvganir. Trygg-
ingastofnun hefur hingað til ekki
samþykkt fleiri en þijár utan-
ferðir sömu einstaklinga.
Það sem af er þessu ári nemur
kostnaður vegna glasafijóvgana
erlendis rúmum þrettán milljón-
um króna. Á næsta ári er gert
ráð fyrir fjárveitingu til að hefja
megi glasafijóvganir hérlendis
og í því sambandi hefur verð
stefnt á vormánuði. Talið er að
það megi spara umtalsverðar
upphæðir miðað við að fólk fari
utan. Árlegur rekstrarkostnður
er talinn nema um 11,5 milljón-
um króna. Ef miðað er við 100
aðgerðir á ári er kostnaðurinn
því um 115 þúsund á meðferð.
í fjárlagafrumvarpinu er gert
ráð fyrir fjárveitingu til 3,75
stöðugilda vegna glasafijóvg
ana.
„Jörðin skalf ok pipraði af ótta“
Búist við Suðurlandsskjálfta fyrir aldamót
Jarðskjálfitinn í San Francisco hefur enn einu sinni fengið íslend-
inga til að velta fyrir sér hugsanlegum Suðurlandsskjálfta. Sam-
kvæmt hefðinni ætti hann að koma á næstu árum en undirlendi
Suðurlands hefur nötrað reglulega, eða á um hundrað ára fresti.
Nú, þegar liðin eru 93 ár firá þeim síðasta, hafa menn velt fyrir
sér hvort búast megi við stórum skjálfta og hvernig færi ef hann
kæmi á næstu árum.
Fyrstu rituðu heimildir um
jarðskjálfta segja frá miklum
skjálfta í Grímsnesi árið 1164 sem
varð 19 mönn:
um að bana. í
Páls sögu bisk-
ups segir um
árið 1211 „...
margr kvíð-
bjóðr hefir farit
fyrir fráfalli þessa hins dýrliga
höfðingja Páls biskups: jörðin
skalf ok pipraði af ótta ...“ Að
þessu sinni munu 18 menn hafa
látist en á næstu öldum var minna
um mannskaða, enda Islendingar
líklega Iært að búa við skjálfta.
I grein sem Páll Einarsson og
Sveinbjörn Björnsson skrifuðu
árið 1981, og
birtist í bókinni
Náttúra ís-
lands, 5'alla
þeir um jarð-
skjálfta og
gera grein fyrir
helstu skjálftabeltum íslands.
Jarðskjálftar hafa yfirleitt orðið
á tveimur afmörkuðum svæðum.
Annarsvegar á austanverðum
Reykjanesskaga og Suðurland-
sundiriendi og hinsvegar með
ströndinni og á landgrunninu við
Norðurland. Á þessum svæðum
getur stærð skjálfta orðið meiri
en 6 stig á Riehters-kvarða.
Landskjálftarnir 1784 eru
líklega þeir mestu sem komið
hafa síðan land byggðist. Sá fyrsti
kom 14. ágúst og var áætlaður
um 7,5 stig á Richter. Þess má
geta að orkan í slíkum skjálfta
samsvarar ársframleiðslu Búr-
fellsvirkjunar. Mörg_ hús féllu í
Rangárvalla- og Árnessýslu í
þessum skjálfta en þótt ótrúlegt
megi virðast létust aðeins þrír.
Svipaður skjálfti kom rúmri öld
síðar, árið 1896, og hefur verið
áætlaður um 7-7,5 stig. í kjölfar-
ið fylgdi mikil skjálftahrina og
hristist allt Suðurland. Fjöldi bæja
féll til grunna, stórar sprungur
opnuðust og fólk steyptist niður
og veltist um jörðina, segir í lýs-
ingu Þorvaldar Thoroddsen árið
1899. Einnig segir að Skarðsfjall
í Landi hafi klofnað allt og hrist
sig eins og hundur nýkominn af
sundi.
Páll Einarsson, jarðeðlisfræð-
ingur, segir að líklega megi búast
við skjálfta á næstu árum. „Það
hafa komið stórir skjálftar á að
meðaltali 80 ára fresti. Suður-
landsundirlendið er úr sterku
bergi og þar getur þrýstingur
magnast í áratugi. Þegar loks
brestur verða miklir skjálftar,
mun meiri en til dæmis á gos-
svæðunum þar sem bergið er veik-
ara og skjálftar mun algengari.
Skjálfti á Suðurlandsundirlendi
gæti því orðið mjög sterkur,"
sagði Páll. „Hætta er minni á
Norðurlandi því þar eru upptökin
yfirleitt út í sjó en þrátt fyrir það
má búast við stórum skjálfta eins
og á Dalvík og Húsavík," sagði
Páll.
í jarðskjálftum fyrr á öldinni
varð mikið eignatjón, enda hús
ekki jafn sterk og nú. Eftir
skjálftann 1896 var farið að huga
að skjálftavörnum og sagt er að
Miðbæjarskólinn sé byggður úr
timbri því ekki hafi verið hætt á
að byggja steinhús. Nú er hins-
vegar farið eftir stöðluðum regl-
um um skjálftaþol.
Dr. Óttar Halldórsson, verk-
fræðingur, segir að íslensk hús
ættu að standast 7 stiga skjálfta.
„Vissulega myndu einhver hús
hrynja en þau yrðu líklega mjög
fá. Virkjanirnar eru flestar á
skjálftasvæðum en ættu þó að
geta staðið af sér mjög stóra
skjálfta,“ sagði Óttar.
„Við höfum séð myndir frá
Kákasus og Kína, en þar hafa
heilu þorpin hrunið til grunna. A
íslandi eru hús hinsvegar byggð
með öðrum hætti og eiga að þola
skjálfta. En við vitum í raun af-
skaplega lítið og sjáum ekki
hvernig fer fyrr en eftir skjálft-
ann,“ sagði Ottar.
BAKSVIÐ
eftirLoga Bergmann Eidsson