Morgunblaðið - 22.10.1989, Side 3
EFNI
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 22. OKTÓBER
3
Málleysingjum mis-
boðið
►Um illa meðferð íslendinga á
dýrum/10
Þumalputtareglan
► Björn Bjarnason skrifar um þau
forréttindi að kaupa áfengi á
kostnaðarverði/14
Undir eldfjöllunum
►íslenski prófessorinn Haraldur
Sigurðsson er einn af helstu sér-
fræðingum heims í sprengigosar-
annsóknum/20
B
HEIMILI/
FASTEIGNIR
► 1-20
Byggingastarfsemi
áhættusöm og
sveiplukennd atvinnu-
grein
► Rætt við Óskar Valdimars-
son, framkvæmdastjóra Byggða-
verks/10-11
Spámaður Egypta-
lands
►Blaðamaður Morgunblaðsins
ræðir við egypska nóbelsskáldið
Naguib Mahfouz/1
Vegirtil valda
► Rætt við Helga Þorláksson
sagnfræðing/6
Kvikmyndir
►Um hátæknihasar á hvíta tjald-
inu/12
Erlend hringsjá
►Böðullinn frá Lyon/14
Hetjulegt klúður
►Um listina að gera eftirminnileg
mistök/16
í nuddi
►Ýmsar hliðar á lækningarmætti
nuddsins/20
D
ATVINNA/
RAÐ/SMÁ
1-8
►Vinnumarkaður/Kaup/Sala/Fé-
lagsmál/Fréttir af landsbyggð-
inni/1-8
FASTIR ÞÆTTIR
Frettir 2/4/bak Minningar 29
Dagbók 8 Fólk í fréttum 30
Afmæli 17 Útvarp/sjónvarp 32
Leiðari 18 Gárur 35
Helgispjall 18 Mannlífsstr. 8c
Reykjavíkurbréf 19 Fjölmiðlar 18c
Veröld 22 Menningarstr. 24c
Minningar 24 Bíó/dans 26c
Myndasögur 28 Velvakandi 28c
Brids 28 Samsafnið 30c
Stjörnuspeki 28 Bakþankar 32c
Skák 28
INNLENDAR FRETTIR:
2-6-BAK
ERLENDAR FRÉTTIR:
1-4
Borgarleikhúsið vígt:
Sjóður stoftiaður til efl-
ingar íslenskri leikritun
Minningarsj óður Stefaníu Guðmundsdóttur styrkir flóra unga leikara
LEIKFÉLAGI Reykjavíkur bár-
ust margar gjafir og heillaóskir
við vígslu Borgarleikhússins.
Svavar Gestsson menntamála-
ráðherra tilkynnti um 500 þús-
und króna stoftiframlag í sjóð til
eflingar ísienskri leikritun og að
auki loforð um 500 þúsund króna
framlag í sjóðinn á næsta ári.
Þorsteinn Ö. Stephensen leikari
afhenti fjórum ungum leikurum,
Eddu Heiðrúnu Backman, Helga
Björnssyni, Valdimar Erni Flyg-
enring og Þór H. Tulinius, 250
þúsund króna ferðastyrk úr
minningarsjóði frú Stefaníu Guð-
mundsdóttur. Þá færði Geir
Borg, sonur frú Stefaníu, Leik-
félaginu að gjöf málverk af móð-
ur sinni í einu af uppáhaldshlut-
verkum hennar, Mögdu í leikrit-
inu Heimilið, en það hlutverk lék
hún í fiinm uppfærslum á árunum
1902 til 1920. Myndina málaði
Ragnar Páll. Guðlaugur Hjör-
leifsson afhenti Leikfélaginu
minningarsjóð Soffiu Guðlaugs-
dóttur ásamt styttu af Skálholts-
sveininum, sem virðingarvott um
afreksverk á leiksviði.
Heimir Pálsson forseti bæjar-
stjórnar Kópavogs ávarpaði
gesti fyrir hönd sveitarfélaga frá
Kjalarnesi að Hafnarfírði og færði
Leikfélaginu píanó að gjöf. Fulltrúi
norrænu dans- og leiklistarnefndar-
innar var Halldis Hoas og færði hún
leikhúsinu keramiklistaverk að gjöf.
Gísli Alfreðsson þjóðleikhússtjóri
samfagnaði leikfélagsmönnum og
minntist þess að það voru félagar
í Leikfélagi Reykjavíkur sem börð-
ust fyrir byggingu Þjóðleikhússins
og nú aftur fyrir byggingu Borgar-
leikhússins. Færði hann félaginu
að gjöf myndir af leikurum, sem
húsin hafa átt saman eftir Halldór
Pétursson. Sigurður Hróarsson leik-
hússtjóri Leikfélags Akureyrar árn-
aði félaginu allra heilla og Jón Við-
ar Jónsson leiklistarstjóri ríkisút-
varpsins færði félaginu að gjöf upp-
tökur ríkisútvarpsins á þremur leik-
ritum, Galdra-Lofti með Lárusi
Pálssyni, Skálholti með Þorsteini
Ö. Stephensen og Manni og konu
með Brynjólfi Jóhannessyni.
Guðrún Alfreðsdóttir formaður
Félags íslenskra leikara afhenti fé-
laginu veggklukku að gjöf og María
Kristjánsdóttir formaður Félags
leikstjóra afhenti félaginu nokkrar
orðabækur. Ólafur H. Símonarson
formaður Leikskáldafélags íslands
ávarpaði gesti fyrir hönd félagsins
Meðal gesta voru þau Kristjana Brynjólfsdóttir, Valdimar Lárusson leikari, Guðný Helgadóttir ekkja
Brynjólfs Jóhannessonar leikara, Laufey Árnadóttir og Valur Gíslason leikari.
Frú Vigdís Finnbogadóttir forseti íslands og fyrrverandi leikhús-
stjóri Leikfélags Reykjavíkur skálar við Davíð Oddsson borgarstjóra
og fyrrverandi leikhúsritara félagsins við vígslu Borgarleikhússins.
og sagði _ meðal annars að leik-
húsáhugi íslendinga væri einstakur.
Varla væri sá maður til sem ekki
hefði annaðhvort leikið eða naum-
lega sloppið undan að leika. Islend-
ingum fyndist skemmtilegt og
hressandi að sækja leikhús og horfa
á ógæfu fólksins á sviðinu og jafn-
vel gleði og hamingju. Leikhúsi
mætti því líkja við heilsuhæli og
sþurning hvort sjúkrasamlagið ætti
ekki að greiða með húsunum.
Guðbjörg Árnadóttir formaður
Bandalags íslenskra leikara árnaði
Leikfélaginu allra heilla og Helga
Hjörvar skólastjóri Leiklistarskóla
íslands afhenti möppu með ljós-
myndum af öllum árgöngum braut-
skráðum úr skólanum frá 1976.
Sveinn Einarsson dagskrárstjóri
innlendrar dagskrárgerðar Sjón-
varps og fyrsti leikhússtjóri Leik-
félags Reykjavíkur færði félaginu
að gjöf myndbandsupptökur Leik-
félagsins fyrir Sjónvarpið og að
auki gamlar leikhússkrár sem hann
hefur safnað saman.
Sigurður Karlsson formaður
Leikfélags Reykjavíkur þakkaði
góðar gjafir og kveðjur, sem bárust
félaginu á þessum tímamótum.
Morgunbl.aöid/Bjarni
Valgerður Dan leikkona, Þorsteinn Gunnarsson leikari og einn af
arkitektum Borgarleikhússins ræða við Helgu Hjörvar skólasljóra
Leiklistarskóla Islands.
Morgunblaðið/Bjami
Guðrún Vilmundardóttir, Gylfi Þ. Gíslason fyrrverandi ráðherra,
Ingibjörg Rafnar lögfræðingur og Þorsteinn Pálsson formaður Sjálf-
stæðisflokksins.