Morgunblaðið - 22.10.1989, Page 4
4 FRÉTTIR/YFIRUT
T C
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 22. OKTOBER
ERLEIMT
INNLENT
6% gengis-
sig til 1.
desember
STEFNT er að því að gengi
íslenzku krónunnar sígi um 6% á
næstu fimm vikum eðatil 1. desem-
ber. Eftir viðræður stjórnvalda og
fulltrúa útflutningsgreinanna varð
samkomulag um að nauðsyn væri
á því að ná niður raungengi um
að minnsta kosti 6%.
Borgarleikhús vígl
Nýtt Borgarleikhús var vígt með
viðhöfn á föstudagskvöld. Fyrstu
sýningamar í húsinu eru Ljós
heimsins á litla sviðinu og Höll
sumarlandsins. Bæði verkin eru
unnin upp úr Heimsljósi Halldórs
Laxness af Kjartani Ragnarssyni.
Byggingarkostnaður hússins er
orðinn um 1,5 milljarðar króna.
Forsetinn ræðir við
Svisslendinga
Forseti íslands, Vigdís Finn-
bogadóttir, ræddi við Jean-Pascal
Delamuraz, forseta Sviss, um þró-
un EFTA og EB. Einnig ræddu Jón
Baldvin Hannibalsson utanríkisráð-
herra og René Felber utanríkisráð-
herra Sviss saman í Bern. Jón
Baldvin átti í vikunni einnig fundi
með utanríkisráðherrum Noregs og
Irlands og forystumönnum jafnað-
armannaflokka á Norðurlöndum.
Reglur um ferðakostnað
verði endurskoðaðar
Yfirskoðunarmenn ríkisreikn-
ings vilja að reglur um ferðakostn-
að opinberra starfsmanna verði
endurskoðaðar, þar sem dagpen-
ingar þeirra séu hreinar auka-
greiðslur. Einnig segja þeir að
óeðliiegt sé að almenningur greiði
ferðalög ráðherra á vegum flokka
eða samtaka.
Heimildarlausir
aðstoðarmenn víki
Pálmi Jónsson, þingmaður Sjálf-
stæðisflokks, hefur lagt til að þeim
aðstoðarmönnum ráðherra, sem
ráðnir hefðu verið í heimildarleysi,
yrði sagt upp. Nær það til aðstoðar-
manns Stefáns Valgeirssonar, sem
segist hafa í nógu að snúast og
veiti sér ekki af aðstoðarmanni.
Islendingum vísað frá
námi í EB
. Islenzkum námsmönnum, sem
sótt hafa um skólavist í dönskum
háskólum, hefur verið synjað um
skólavist vegna þess að ísland sé
ekki í EB. Einnig hefur íslending-
um verið synjað um skólavist í
Svíþjóð, jafnvel á þeim forsendum
að Island tilheyri ekki Norðurlönd-
unum.
Kirkjuþing ræðir
dauðaskilgreiningu
Kirkjuþing var sett í vikunni.
Þar er meðal annars tíl umræðu
skilgreining á dauða, með tilliti til
möguleika á líffæraflutningum.
ERLENT
Mannskæð-
urjarð-
skjálfti
í San
Francisco
Jarðskjálfti, sem mældist 6,9 stig
á Richter-kvarða, reið yfir San
Francisco og norðurhluta Kal-
iforníu síðdegis á þriðjudag að
staðartíma. Ottast var í fyrstu að
um 270 manns hefðu farist í
skjálftanum en á föstudag var
talið að tala látinna yrði mun
lægri, eða innan við 120. Þetta
var næst mesti jarðskjálfti í sögu
Bandaríkjanna. Skjálftamiðjan
var um 80 km suður af San Fran-
eisco. Hálfur annar kílómetri af
efri hæð átta akreina hraðbrautar
frá Flóabrúnni á leið til borgarinn-
ar Oakland hrundi og 253 menn
sem leið áttu um hraðbrautina
fórust. Rafmagnslaust varð í
hluta San Francisco og bílar lágu
eins og hráviði um borgina og
byggingar hrundu. Rafmagns-
laust varð einnig í Santa Cruz og
eldar brutust út víða um borgina.
Eftirskjálftar hafa mælst allt að
4 stig á Richter-kvarða en þeir
hafa ekki valdið frekara tjóni. Að
mati tryggingfélaga gæti tjónið
af völdum skjálftans numið fjór-
um miljörðum dala, 240 miljörð-
um ísl. kr. Fjölmargir Islendingar
búa á svæðinu en þeir munu allir
vera heilir á húfi. Þó ók einn
þeirra, Ægir Jens Guðmundsson,
um hraðbrautina sem hrundi
mínútu áður en skjálftinn varð.
Verðbréfahrun í
Bandaríkjunum
Mikið verðhrun varð í Wall Street
á föstudag í síðustu viku og er
helsta ástæða verðfallsins talin
vera aukin útgáfa á áhættubréf-
um sem hafa mikið verið notuð
þegar risafyrirtæki hafa verið
keypt. Dow Jones-verðbréfavísit-
alan féll um 190 stig sem er þriðja
mesta verðhrun sögunnar. Verð-
bréf hækkuðu í verði strax eftir
helgina.
Nýr leiðtogi í
Austur-Þýskalandi
Egon Krenz i
hefur tekið við |
af Erich Honec-
ker sem leiðtogi |
austur-þýska
kommúnista-
flokksins.
Honecker lýsti I
því yfir á mið-
stjórnarfundi á'
miðvikudag að hann ætlaði að
draga sig í hlé sem leiðtogi flokks-
ins. Krenz, sem var yfirmaður
öryggismála í Austur-Þýskalandi
í sex ár, hét því að beita sér fyrir
breytingum á samfélaginu í sjón-
varpsávarpi á miðvikudag, en
sagði jafnframt að skilyrði fyrir
viðræðum við ýmsa þjóðfélags-
hópa væri að sósíalisminn yrði
ekki dreginn í efa. Austur-þýskir
andófsmenn segjast hafa litla trú
á Krenz sem boðbera breyttra
tíma.
Nóbel til Camilo Jose Cela
Spænski rithöf-
undurinn Cam-
ilo Jose Cela
hlaut Nóbels-
verðlaunin í bók-
menntum árið
1989. Hann er
fimmti Spánveij-
inn sem hlýtur
verðlaunin. Cela fékk verðlaunin
„fyrir magnþrungna frásagnarlist
og þá nýju mynd sem hann gefur
af manninum í öllu sínu umkomu-
leysi.“ Ein bóka hans, „Pakval
Dvarte og hyski hans“ hefur kom-
ið út í íslenskri þýðingu.
Jarðskjálftarnir í San Francisco:
Manntjónið minna en talið var
San Francisco. Reuter.
Björgunarmenn í San Franciseo
hafa fundið lík 32 manna í rústum
tveggja hæða hraðbrautarinnar,
sem hrundi í landskjálftanum
síðastliðinn þriðjudag. Upphaf-
lega var talið, að um 250 manns
hefðu farist alls en líklega eru
þeir miklu færri. George Bush
Bandaríkjaforseti kom til San
Francisco á fostudag og hét borg-
arbúum stuðningi alríkisstjórnar-
innar við uppbygginguna.
*
Aföstudag fundust lík 13 manna
í rústum hraðbrautarinnar og
er þá vitað um alls 32, sem létust
þegar hún hrundi saman. Leitinni
hefur hins vegar verið frestað að
sinni af ótta við, að það, sem enn
stendur uppi, geti fallið saman. í
fyrstu var áætlað, að 250-300 manns
samtals hefðu farist i jarðskjálftan-
um en á föstudagskvöld höfðu aðeins
fundist lík 55 manna. Sennilegt er,
að sú tala eigi þó eftir að hækka
eitthvað.
Bush Bandaríkjaforseti var í San
.Francisco á föstudag og virti fyrir
sér verksummerkin, meðal annars
rústir hraðbrautarinnar. Lýsti hann
samúð sinni með borgarbúum og um
leið aðdáun á fumlausum viðbrögðum
þeirra. Hét hann þeim stuðningi
alríkisstjórnarinnar við endurreisnar-
starfið.
Hópur japanskra vísindamanna
telur sig hafa fundið nákvæm upptök
jarðskjálftans á þriðjudag og segir,
að þau séu á San Andreas-mis-
Reuter
Öldungurinn Albert Prevost bíður níeð Biblíuna í hendi eftir að fá
leyfi til að huga að eigum sínum inni í stórskemmdu húsinu.
genginu um 120 km fyrir sunnan I menn telja þó of snemmt að slá
San Francisco. Bandarískir vísinda- | nokkru föstu um þetta.
Slj ómarandstaða að fæð-
ast í Austur-Þýskalandi
VÍSIR að stjómarandstöðu hefúr á undanfömum mánuðum verið
að fæðast í Austur-Þýskalandi. Vissulega hafa alltaf verið til ein-
staklingar og hópar sem andmælt hafa stefnu stjóravalda en þær
raddir hafa oftast verið þaggaðar niður af lögregluríkinu. Ein
besta leiðin til að sýna óánægju sína í verki hefúr verið að flýja
yfir til Vestur-Þýskalauds. Hafa fjölmargir Austur-Þjóðveijar lagt
líf sitt að veði í slíkum flóttatilraunum í gegnum árin. Þegar
stjórnvöld annars staðar í Austur-Evrópu slökuðu aðeins á klónni
sættu tugþúsundir Austur-Þjóðveija lagi og kusu frelsið með fót-
unum. Þær raddir gerast nú hins vegar æ háværari að í stað
þess að flýja land eigi fólk að reyna að breyta kerfinu innan frá.
„Við verðum hér áfram,“ hrópuðu þannig þær tugþúsundir sem
gengu um götur austur-þýskra borga fyrr í þessum mánuði. Neu-
es Forum eða Nýr vettvangur heitir hreyfingin sem er í forystu
austur-þýsku sfjómarandstöðunnar og stofnuð var í september
af þrjátíu einstaklingum. Tveim vikum eftir stofnun hreyfingarinn-
ar voru félagar orðnir um 4.500.
ó að Nýr vettvangur sé vissu-
lega vel til hægri við komm-
únistaflokkinn yrði hreyfingin
eflaust sögð til „vinstri" á Vesturl-
öndum. Hefur henni verið lýst sem
blöndu af Vorinu í Prag árið 1968,
Míkhaíl Gorbatsjov, „byltingunni
að ofan“ í Ung-
verjalandi og
hugsunarhætti
græningja
vestanmegin.
En þrátt fyrir
að hér sé sem
sagt engin kapítalísk hreyfing á
ferðinni voru viðbrögð austur-
þýska innanríkisráðuneytisins þau
að lýsa því yfir að Nýr vettvangur
væri „óvinveittur ríkinu“. I flokks-
blöðunum var talað um „fimmtu
herdeildina" og sagt að engin
þjóðfélagsleg nauðsyn vaeri fyrir
hreyfingu af þessu tagi. í grein í
vestur-þýsku tímariti lýsir Rein-
hardt Schult, einn af stofnendum
Nýs vettvangs, viðbrögðum
margra borgara við stofnun
hreyfingarinnar: „Margir komu
að máli við okkur og lýstu tilraun-
um sínum innan stofnana og
flokks til að koma á breytingum.
Sumir komu jafnvel með handrit
sem höfðu árum saman verið falin
ofan í skúffum. Nokkrir gengu
úr kommúnistaflokknum og til liðs
við Nýjan vettvang."
Hugmyndir um sameiningu
þýsku ríkjanna tveggja virðast
hvorki eiga upp á pallborðið hjá
Nýjum vettvangi né öðrum hópum
í Austur-Þýskalandi sem gagn-
rýna stjórn-
völd. Aðalá-
herslan er á orð
eins og „rétt-
Iæti“, „lýð-
ræði“, „frið“
og „náttúru-
vemd“. Umhverfisvemdarsjónar-
mið eiga að hafa forgang þegar
efnahagskerfi landsins verður
breytt. Fjöldaflótti yfir til Vestur-
Þýskalands er ekki á stefnu-
skránni og hafa sum ummæli for-
svarsmanna austur-þýsku andófs-
hópanna, þar sem fram kom
gagnrýni á flóttamennina sem
höfðust við í sendiráðum Vestur-
Þýskalands í Varsjá og Prag, vak-
ið furðu á Vesturlöndum. Var
Barbel Bohley, konan sem komið
hefur fram sem forystumaður Nýs
vettvangs, spurð um þessi um-
mæli af fréttamanni vestur-þýsku
rík i ssjón varpsstöðvari n narA RI).
Bohley sagði þá að hreyfingin vildi
ekki fordæma þá sem flýðu yfir
til vesturs heldur einungis benda
Barbel Bohley, forystumaður
Nýs vettvangs.
á að það væri ekki pólitísk lausn
á vandamálum þjóðarinnar" held-
ur neyðarúrræði vegna þeirra að-
stæðna sem uppi væru. Aðspurð
hvort hún væri samþykk fjölda-
flóttanum vestur yfir sagði Bo-
hley: „Já, vissulega."
Stóra spurningin er hins vegar
hversu mikinn áhuga hin almenni
borgari hefur á þessari hreyfingu
eða öðrum svipuðum. Fjöldinn er
upp til hópa búinn að fá nóg af
pólitísku tali og umræðum um
mismunandi þjóðfélagslíkön.
Þrátt fyrir að nú virðist loksins
vera komin á laggirnar stjórnar-
andstaða sem talar hálfopinber-
Iega um breytingar á kerfinu að
innan og breytingar séu að verða
á æðstu stöðu flokksins virðist sú
hugsun vera efst í huga almenn-
ings að koma sér á brott frá
landinu.
Austur-þýsk stjórnvöld hafa
líklega beðið einum of lengi með
að taka skref 'í umbótaátt. Á
hveiju er líka von þegar svar
stjórnvalda við hrópum almenn-
ings, „Við verðum hér áfram,“
hefur veríð að siga á hann sér-
sveitum lögreglunnar?
BAKSVID
eftir Steingrim
Sigurgeirsson