Morgunblaðið - 22.10.1989, Qupperneq 8
e______
8
7X0 HUDAdUMlíUS
mic»v
QIQAJaM'J DHOM
’.fl 111? || llf 1EM
MORÍiUNBliAÐIÐ’ ÐAGBOK' ’írUimUITAGim “22,-OKTÓnUR ' *
T TT A /"'i er sunnudagur 22. október. 295. dagur ársins
1 UAu 1989. Árdegisflóð í Reykjavík kl. 00.10 og
síðdegisflóð kl. 12.45. Sólarupprás er í Reykjavík kl. 8.39
ogsólarlag kl. 17.44. Sólin erí hádegisstað í Reykjavík kl.
13.12 ogtunglið í suðri kl. 8.09. (Almanak Háskóla íslands.)
Treystu Drottni al'öllu hjarta, en reiddu þig ekki á eig-
ið hyggjuvit. (Orðskv. 3, 5.)
ARNAÐ HEILLA
-J ára aíinæli. Á
A i/U morgun, mánudag-
inn 23. október, verður 100
ára Sveinbjörg Ormsdóttir,
Garðavegi 6, Keflavík. Hún
býður upp á kaffi á afmælis-
daginn í félagsheimilinu
Stapa, Ytri-Njarðvík, kl.
15-16.
ára afmæli. Á morgun,
23. október, er sextug-
ur Orn Þór Karlsson, skrift-
vélameistari, Sigtúni 37.
Hann og kona hans, Soffía
Zophoníasdóttir, taka á móti
gestum á afmælisdaginn í
Múrarasalnum, Síðumúla 25,
kl. 18-20.
P A ára afmæli. í dag, 22.
OV/ október, er sextug Elín
Óladóttir, Hnífsdalsvegi 10,
ísafirði. Eiginmaður hennar
er Jens Markússon. Þau verða
að heiman á afmælisdaginn.
/? rv ára afinæli. í dag, 22.
Öl/ október, er sextug
Anna Steinsson, kennari,
Meltröð 6, Kópavogi. Maður
hennar er Aage Steinsson,
deildarstjóri í Tækniskóla ís-
lands, en þar starfar hún
einnig.
FRÉTTIR/MANNAMÓT
FÉLAGSSTARF eldri
borgara, Vesturgötu 7.
Næsti spiladagur verður nk.
þriðjudag kl. 13.30. Vinnu-
stofan er opin alla daga kl.
14-16. Kaffi alla daga frá
kl.15.
KVENFÉLAG Kópavogs
verður með félagsvist í fé-
lagsheimilinu nk. þriðjudag,
24. október, kl. 20.30.
heldur fund á Hallveigarstöð-
um í dag kl. 15.
FÉLAG eldri borgara í
Reykjavík verður með opið
hús í Goðheimum, Sigtúni 3,
í dag, sunnnudag, kl. 14.
Frjálst spil og tafl. Dansað
kl. 20. Skáldakynningu um
Guðmund G. Hagalín skáld
nk. þriðjudag, 24. okt, kl. 15
á Rauðarárstíg 18.
FÉLAG þingeyskra kvenna
KVENNADEILD Styrktar-
fél. lamaðra og fatlaðra
KROSSGATAN
LÁRÉTT: — 1 brúka, 5
ökumann, 6 lesa, 7 reið, 8
rotið, 11 sukk, 12 háttur, 14
einkenni, 16 kroppaði.
LÓÐRÉTT: - eðlið, 2
vensluð, 3 keyra, 4 vörn, 7
þjóta, 9 fiskur, 10 vonda, 13
athugi, 15 frumefni.
LAUSN SÍÐUSTU KROSSGÁTU:
LÁRÉTT: — 1 hestum, 5 ta, 6 ljóður, 9 dár, 10 XI, 11
U.T., 12 gin, 13 gata, 15 ófu, 17 rúllum.
LÓÐRÉTT: — 1 holdugur, 2 stór, 3 tað, 4 múrinn, 7 játa,
8 uxi, 12 gafl, 14 tól, 16 uu.
Skoðanakönnun DV:
Davíð og Halldór
langvinsælastir
i
heldur fund annað kvöld,
mánudag, á Háaleitisbraut 11
kl. 20.30. Gestur fundarins
verður Guðlaug Sveinbjarnar-
dóttir, sjúkraþjálfi, sem segir
frá námskeiði í Búdapest um
tetu-aðferðina.
ITC-deiIdin Kvistur heldur
fund annað kvöld, mánudag,
í Hóliday Inn-hótelinu kl. 20.
Nánari uppl. hjá Þóru í s.
627718.
STYRKUR, samtök krabba-
meinssjúklinga og aðstand-
enda þeirra, halda spilakvöld,
nk. þriðjudag í Skógarhlíð 8
kl. 20. Afmæliskaffi í tilefni
tveggja ára afmælis samtak-
anna.
KVENFÉLAGIÐ Heimaey
heldur árshátíð sína nk. Iaug-
ardag, 28. október, í Akoges-
húsinu, Sigtúni 3. Hefst hún
með borðhaldi kl. 19. Miða-
ERLENDIS:
1492: Hinrik VII af Englandi
sest um Boulogne í Frakkl-
andi.
1721: Pétur mikli tekur sér
nafnbótina zar alls Rússlands.
1859: Spánveijar segja Má-
rum í Marokkó stríð á hendur.
1859: Ludwig Spohr, tón-
skáld, látinn.
1862: Setuliðið í Aþenu gerir
uppreisn og neyðir Otto I til
að leggja niður völd.
1873: Þríkeisarabandalag
Þýskalands, Rússlands og
Austurríkis-Ungveijalands
stofnað.
1883: Metropolitan-óperan í
New York opnuð.
1935: Sir Edward Carson,
stjórnmálaleiðtogi, fæddur.
1952: íran slítur stjórnmála-
sambandi við Breta vegna
olíudeilu.
1953: Frakkar veita Laos
sjálfstæði.
1956: Lýðræðislegs stjórnar-
fars krafist í mótmælaað-
gerðum í Ungverjalandi.
sala á sama stað fimmtudag-
inn 27. október frá 17-19 á
sama stað.
SKIPIN
REYKJAVÍKURHÖFN:
Frystitogarinn Freri kom
með afla í fyrrakvöld og Ottó
N. Þorláksson hélt þá til
veiða. Togarinn Vigri kom
úr söluferð í gær og Jökul-
fellið kom að utan. Þá fór,
Snorri Sturluson til veiða í
gær. Flutningaskipið Saga-
land var væntanlegt af
ströndinni í morgun. Breska
freigátan Phoebe er enn í
höfn vegna viðgerða.
H AFN ARF J ARÐ ARHÖFN:
Togarinn Haraldur Krist-
jánsson hélt til veiða í fyrra-
kvöld. Flutningaskipið Svan-
ur var væntanlegt af strönd-
inni í gær og á sama tíma
átti Haukur að fara á strönd-
ina. í morgun var grænlenski
rækjutogarinn Abel Egede
væntanlegur til löndunar.
1962: Kennedy forseti fyrir-
skipar hafnbann .á Kúbu
vegna
sovézkra eldflaugastöðva á
eynni.
1967: Tundurspillinum „El-
ath“ sökkt með egypzkum
flug-
skeytum og 48 ísraelskir sjó-
liðar farast.
1970: Tveir bandarískir hers-
höfðingjar, sem villtust á flugi
yfir Tyrklandi, lenda í
sovézku Armeníu og eru sak-
aðir um
njósnir.
1975: Peking-ferð Henry
Kissingers Iýkur. —Juan Car-
los
verður konungur Spánar.
HÉRLENDIS:
1253: Flugumýrarbrenna.
1769: Jón Espólín fæddur.
1974: Nýr samningur um
vamarliðið.
1975: Sjómannaverkfall.
1979: Barnadagur í útvarp-
inu.
MINNINGARKORT Barna-
spitala Hringsins fást á eft-
irtöldum stöðum:
Versl. Geysir hf., Aðal-
stræti 2. Versl. Ellingsen hf.,
Ánanaustum, Grandagarði.
Bókaverslun Snæbjarnar,
Hafnarstræti 4. Landspítal-
inn (hjá forstöðukonu). Geð-
deild Barnaspítala Hringsins,
Dalbraut 12. Austurbæj-
arapótek, Háteigsvegi 1.
Vesturbæjarapótek, Melhaga
20—22. Reykjavíkurapótek,
Austurstræti 16. Háaleit-
isapótek, Austurveri. Lyfja-
búðin Iðunn, Laugavegi 40a.
Garðsapótek, Sogavegi 108.
Holtsapótek, Langholtsvegi
84. Lyfjabúð Beiðholts, Arn-
arbakka 4—6. Kópavogsapó-
tek, Hamraborg 11. Bókabúð-
in Bók, Miklubraut 68. Bók-
hlaðan, Glæsibæ. Heildv. Jú-
líusar Sveinbjörnss. Garðastr.
6. Bókaútgáfan IÐUNN,
Bræðraborgarst. 16. Kirkju-
húsið, Klapparstíg 27. Bóka-
búð Olivers Steins, Strandg.
31, Hafnarfirði. Mosfells ajpó-
tek, Þverholti, Mosf. Olöf
Pétursdóttir, Smáratúni 4,
Keflavík. Apótek Seltjarnar-
ness, Eiðstorgi 17.
MORGUNBLAÐIÐ
FYRIR 50 ÁRUM
í Heísingfors var til-
kynnt eftir að fregnir
höfðu borist frá samn-
ingaumleitunum Finna í
Moskvu við þá Stalin og
Molotov, að ástandið
væri mjög alvarlegt.
Finnar halda áfram að
búa sig undir stríð við
Sovét-Rússland. Er allur
stríðsherstyrkur þeirra
nú undir vopnum, um
300.000 manns.
★
Breska orrustuskipinu
Royal Oak var sökkt í
kafbátaárás og höfðu
farist með því 830 manns
af um 1.200 manna
áhöfii. Meðal þeirra sem
björguðust var skip-
herra herskipsins. Her-
skipið hafði verið end-
urnýjað árið 1936. Það
tók þátt í sjóorrustum í
fyrri heimsstyrjöldinni,
svo nokkuð var það kom-
ið til ára sinna.
~k ________
ÞETTA GERÐIST
ORÐABOKIN
Að slíta samvistir
Fyrir kemur, að rugling-
ur verður . í notkun falla
með sagnorðum. Stundum
getur hann verið allgamall
í málinu og það svo, að
farið sé að fyrnast yfir hið
upprunalega. Sjálfsagt er
að halda í heiðri það, sem
upprunalegt er talið. Þess
vegna er einsætt að vara
við því í máli sem álíta
verður óæskilegt. Sem bet-
ur fer er ég ekki einn um
þá skoðun. — Hér má taka
sem dæmi orðasambandið
að slíta samvistir. í seinni
tíð ber mjög á því, að menn
segi og skrifa að slíta sam-
vistum. Þetta sést t.d. mjög
oft í minningargreinum,
þar sem greint er frá, að
hjón hafi skilið. Þá er sagt,
að þau hafi slitið samvist-
um. Nú er það svo, að so.
að slíta tekur bæði með sér
þf. og þgf. Ekki er óhugs-
andi, að það valdi hér ein-
hvetju um. Talað er um að
slíta þráð, en aftur slíta
tali eða fundi. í söfnum
OH eru nokkur dæmi um
að slíta samvistir, en ekk-
ert um að slíta samvistum.
Einungjs eitt dæmi er um
þgf., en alls ekki sambæri-
legt. Er það frá árinu 1885
og á þessa leið. „og þau
mega slíta samvistinni".
Vel má vera, að orðsam-
band eins og að slíta trúlof-
uninni hafi hér haft áhrif.
Að slíta samvistir ber því
að segja og skrifa.
- JAJ