Morgunblaðið - 22.10.1989, Blaðsíða 10
10 ----- ................MÖEGÍJÍJBLAÐIÐ SÍINkÚDÁGUJÍ 22,.OKTQBER
MALLEYSIHGJUM
MISBOBIDM
Af illri meóferb
landsmanna á dyrum
Morgunblaðið/Arni Sæberg
Jórunn Sörensen, formaður Sambands dýraverndunarfélaga íslands.
eftir Bergljótu Fríðriksdóttur / mynd Þorkell Þorkelsson
Það er sorglegt en satt að margir íslendingar níðast á
dýrum sínum. Þótt stór hluti dýraeigenda sé til fyrirmynd-
ar, er að finna ótrúlega marga sem virðast líta á dýr sem
tilfinningalausar verur og veigra sér ekki við að með-
höndla þau á ómannúðlegan hátt.
Ofit vill gleymast að dýr finna til, rétt eins og við menn-
irnir. Ef við erum beitt ranglæti á einhvern hátt, hreyfúm
við ofitast mótmælum. Dýrin eru afitur á móti öllu óheppn-
ari, þau geta ekki varið sig og ekki segja þau firá. Og þetta
virðast sumir notfæra sér.
Síðastliðið vor var frá því
sagt í fiölmiðlum að tík
hefði fundist innilokuð
með hvolpum sínum í
hesthúsi í Víðidal. Hafði
hún verið þar um langt
skeið og virtist aðeins
notuð til undaneldis.
Fyrir stuttu skýrðu fjöl-
miðlar frá því að hundur hefði fund-
isý einn og yfirgefinn í bifreið hér
í borginni og hafði hann þá verið
innilokaður og matarlaus í tvo daga.
Það er ekki oft sem fjölmiðlar
fá vitneskju um slíka vanrækslu á
dýrum og þarafleiðandi fréttir al-
menningur ekki af því heldur. Því
rak marga í rogastans þegar skýrt
var frá ofangreindu. Menn hafa
kannski hugsað sem svo að eitthvað
hlyti að vera bogið við eigendurna,
fyrst þeir gátu farið svona með
blessuð dýrin. En um leið ef til vill
huggað sig við að sem betur fer
væri lítið um slíkt fólk hér. En stað-
reyndin er önnur.
Jórunn Sörensen hefur verið for-
maður Sambands dýraverndunarfé-
laga íslands í 16 ár. Hún hefur
orðið vitni að ýmsu og þekkir mörg
ófögur dæmi um illa meðferð lands-
manna, á gæludýrum sínum og
búfénaði. Það væri efni í margar
greinar að taka á þessu öllu en hér
verður nær eingöngu íjallað um illa
meðferð á gæludýrum. Er yfirleitt
um að ræða vanrækslu og svelti,
en einnig eru dæmi þess að dýrum
sé bókstaflega misþyrmt.
Fjórir hundar sveltir í hel
Jórunn Sörensen kveðst hafa orð-
ið vitni að átakanlegum atburði
fyrir nokkrum árum. „Það var um
hávetur að ég frétti af því að ekki
væri allt með felldu í sumarbústað
í nágrenni Reykjavíkur," segir hún.
„Fórum við tvær konur að kanna
málið og blasti þá við okkur ömur-
leg sjón. Fjórir hundar voru lokaðir
inni í bústaðnum og höfðu greini-