Morgunblaðið - 22.10.1989, Page 13
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 22. OKTOBER
13
nr
Malgorzata Niezabitowska
rósum og vafalaust verður það
stundum erfitt fyrir hana að ákveða
hvar hollusta hennar á heima, hjá
Samstöðu eða samsteypustjóminni,
almenningi eða ríkinu.
Niezabitowska segist hafa verið
á báðum áttum þegar henni bauðst
starfið og tók ser nokkum tíma til
umhugsunar. „Ég vil starfa í þágu
þjóðarinnar, ekki vera aðeins
málpípa stjómarinnar," segir hún
en í nýja starfinu verður hún að
setja sig í stellingar, sem hún er
heldur óvön. Henni finnst skemmti-
legra að spyrja aðra en vera spurð
sjálf.
„Fyrst og fremst er ég fjöiskyldu-
manneskja,“ segir Niezabitowska,
„og ég kvíði því að geta ekki sinnt
nægilega dóttur minni og eigin-
manni og föður mínum.“ Hún seg-
ist hafa þegið starfíð að nokkm
vegna hollustu við Mazowiecki og
ekki síður vegna þess, að „hefði ég
■jreitað,' hefði* ég" verifr að" bregðast ■
öllu, sem ég hef verið að beijast
fyrir“.
Niezabitowska og raunar öll
hennar kynslóð hefur augljóslega
sótt kraftinn í starfið fyrir Sam-
stöðu og þar með pólsku þjóðina.
Hún vitnar í ráðgjafa Jóhannesar
Páls páfa II, Samstöðuprestinn Jos-
zef Tischner: „Ég trúi og treysti á
visku þjóðarmnar,“ en um sjálfa sig
segir hún: „Ég veit einfaldlega ekki
neitt.“
Niezabitowsku finnst augljóslega
mikið um að vera allt í einu stödd
í miðju valdakerfinu, sem kommún-
istar áttu með húð og hári fyrir
aðeins nokkmm vikum. Nú er svo
komið, að á Vesturlöndum láta
menn sér annara um pólsku komm-
únistana en Pólveijar sjálfír. Lög-
reglumennirnir, sem gættu „Hvíta
hússins“, aðseturs miðstjómar
kommúnistaflokksins, em horfnir
og flokkurinn svo illa staddur, að
hann hefur leigt út skrifstofurnar.
Samstöðuráðherramir berast held-
ur ekki á. Mazöwiecki býr í lítilli
þriggja herbergja íbúð ásamt syni
sínum og Lech Walesa státar ekki
af neinu stórhýsi.
Almenningur er að sjálfsögðu
ánægður með þetta en Pólveijar
eiga margt eftir ólært í lýðræðis-
legri uppfræðslu. Malgorzata Ni-
ezabitowska er líklega ekki dæmi-
gerð fyrir venjulegan Pólveija en
hún hefur fengið tækifæri til að
vinna þjóð sinni mikið gagn. Hún
virðist líka viss um að ráða við það.
„Okkur bíða erfiðir tímar,“ segir
hún, „og vandasamar ákvarðanir,
sem nauðsynlegt er að skýra vel
frá. Ég held, að ég sé starfinu vax-
in.“
-DANIEL JOHNSON
I 7 ' i
man stýrði hvítu mönnunum og
hafði frumkvæðið framan af. Þá
varð honum á slæm yfirsjón, ekki
í fyrsta sinn í einvíginu og engum
vörnum var við komið. Eftir rúm-
lega fimmtíu leiki gaf Speelman
taflið.
Þrátt fyrir að einvígin hafi verið
stórskemmtileg og baráttan í skák-
unum til eftirbreytni er ekki hægt
að loka augum fyrir því að tafl-
mennskan var æði misjöfn. Slæmir
afleikir voru tíðir og ef dæma má
af taflmennskunni nú hafa kepp-
endurnir ekkert erindi í einvígistafl-
mennsku gegn heimsmeistaranum
Garrí Kasparov.
Hvítt: Arthur Jusupov.
- Svart: Anatoly Karpov.
Drottningarpeðsbyijun.
1. d4 - RfB, 2. Rf3 - e6, 3.
Bg5 - c5, 4. e3 - b6? Óná-
kvæmni sem fyrrum heimsmeistari,
Tigran Petrosjan, sýndi fram á árið
1960! Betra er að leika 4.... Be7
fyrst eða 4. . . .Db6. Það er hreint
ótrúlegt að Karpov skuli verða á
slík alkunn ónákvæmni og hlut-
skipti hans í áframhaldinu er að
veijast.
5. d5! — exd5, 6. Rc3 — Be7.
í skákinni Petrosjan-Kozma á
Ólympíuskákmótinu í Leipzig 1960
varðist syartur af minni hugvits-
semi. Áframhaldið þar varð
6. ...Bb7?, 7. Rxd5 - Bxd5, 8.
Bxf6 - Dxf6, 9. Dxd5 - Dxb2?,
10. Hdl! og hvítur hefur vinnings-
stöðu.
7. Rxd5 — Bb7, 8. Bxf6 — BxfB,
9. c3 - 0-0, 10. Bc4 - a6, 11. 0-0
- b5, 12. Bb3 - d6, 13. Dd2 -
Rd7, 14. Hfdl — Bxd5, 15. Bxd5
- Hb8, 16. Dc2 - Rb6, 17. Hd2
- g6, 18. Hadl - Dc7, 19. De4?!
Hér var sterkara að leika 19. h4!.
Bakstæða peðið á d6 gerir svörtum
erfitt um vik í vörninni og mislitu
biskuparnir virkja sóknarmöguleika
hvíts gegn vanmáttugri kóngsstöð-
unni. Ekki væri ráðlegt að ráðast
í uppskipti á hvíta biskupnum fyrir
riddarann því lélega biskupnum
væri þá haldið á borðinu í von-
. lausri baráttu gegn riddaranum. í
áframhaldinu tekst Karpov að létta
á stöðu sinni þrátt fyrir að mögu-
leikar Jusupovs séu ætíð aðeins
betri.
19... .Kg7, 20. h4 - De7, 21.
Df4 — Be5, 22. Rxe5 — dxe5, 23.
Dg3 - Hbd8, 24. h5 - Hd7, 25.
b3 - Hfd8, 26. e4 - g5, 27. De3
- h6, 28. c4 - Hc7, 29. Hd3 -
Rd7?! Báðir keppendur voru komn-
ir í tímahrak er hér var komið sögu.
Karpov hefur í huga að staðsetja
riddarann á f6 þaðan sem kant-
peðið hvíta er í uppnámi auk þess
sem riddarinn hefur gætur á bisk-
upnum á d5. Óvæntur leikur setur
strik í þessa ráðagerð.
30. Bxf7!! Eins og þruma úr
heiðskíru lofti. Jusupov er jafnan
kenndur við þunglamalega tafl-
mennsku frekar en djarfar fórnir.
Biskupsfórnin er byggð á slæmri
staðsetningu svörtu liðsmannanna
og vegna leppunar riddarans ,á
Karpov óhægt um vik í áframhald-
inu. Nú væri 30.... Dxf7? mjög
slæmt vegna 31. Dh3.
30.... Kxf7, 31. Dd2 - Ke8,
32. Da5!- — bxc4?! Taflmennska
Karpovs í tímahrakinu er ótrúlega
slök. Nauðsynlegt var að vernda
6-reitaröðina og 32.... Hc6, 33.
cxb5 — axb5, 34. Dxb5 — De6 var
nákvæmast í því skyni. Staðan þá
er heldur óvenjuleg. Svartur hefur
riddara meira en á óhægt um vik.
Nú var 33. Hd6! möguleiki strax
með vinningsstöðu á hvítt.
33. bxc4? — Hcc8?, 34. Da4 —
Hc7, 35. Dxa6 - Hb8, 36. Dg6+
— Kf8?? Jafnvel byijanda á skák-
sviðinu mætti vera ljóst að þessi
leikur tapar samstundis. 36... .
Kd8 hefur framlengt baráttuna
þótt úrslitin hefðu vafalaust orðið
hin sömu eftir 37. Hd6! með hótun-
inni 38. He6.
37. Hf3+ og Karpov gafst upp.
fældi frúna frá krásunum
KONA nokkur, sem var haldin svo
óstjórnlegri matarást, að hún
gekk í sveíini og át allt úr ísskápn-
um, jafnt hrátt kjöt sem smjör og
grænmeti, hefur nú loksins fengið
bót „meina“ sinna. Það var eitt
af leikfóngum sonar hennar, sem
læknaði hana — slanga eða snákur
úr gúmmíi.
Dr. Peter Roper, sem starfar við
sálfræðideild McGill-háskólans
í Montreal í Kanada, skýrði nýlega
frá þessu í breska læknisfræðiritinu
The Lancet og segir þar, að yfirleitt
hafí konunni tekist að hafa hemil á
sér á daginn.
„Á nóttunni gekk hún hins vegar
í svefni að ísskápnum og át þar allt,
sem tönn á festi. Ef hún vaknaði upp
fylltist hún viðbjóði á sjálfri sér og
flýtti sér aftur í rúmið en oftast vissi
hún ekki fyrr en að morgni hvað
gerst hafði um nóttina, aðkoman í
eldhúsinu var slík og þvílík,“ segir
Roper.
Konan tók fyrst upp á þessu fyrir
þremur árum og stóð í ísskápnum
fjórar eða fímm nætur í hverri viku
og stundum tvisvar á nóttú. Fjöl-
skyldan hennar hafði að vonum mikl-
ar áhyggjur af þessu en þótt hún
leitaði til sálfræðings og væri dáleidd
kom það að engu haldi. Sálfræðing-
urinn komst þó að því, að konan
hafði allt frá bamsaldri verið óskap-
lega hrædd við slöngur. Hann fékk
því manninn hennar til að setja gervi-
slöngu, sem sonur þeirra átti, á eld-
húsborðið á hveiju kvöldi og taka
hana svo aftur á morgnana.
„Þetta gerði hann í hálft þriðja
ár að undanskildum sex dögum, sem
eiginmaðurinn gleymdi,“ segir dr.
Roper og bætir því við, að konan
hafi látið ísskápinn alveg í friði nema
þessa sex nætur. Segir dr. Roper,
að þessi gleymska eiginmannsins
hafi staðfest með óvæntum hætti,
að jafnvel í svefni taki hugurinn við
og vinni úr upplýsingum.
Þetta mál getur hugsanlega verið
gott innlegg í rannsóknir á svefn-
genglum en þeir taka sér margt skrý-
tið fyrir hendur. Sumir hafa ekið
bílnum sínum sofandi, skotið af
byssu, klifrað upp eða niður bratta
stiga ... og jafnvel framið morð.
-PETER PALLOT
/'
JÖNLISTARHÁTIÐ '29
2 2.QKTOBE R
á HOTELISLANDI
í kvöld 22. október
Hátíðin hefst kl. 19 fyrir matargesti.
Lúðrasveitin Svanur leikur við móttöku.
Hinn kunni píanisti og myndlistarmaður,
Árni Elvar, leikur Ijúfa tónlist.
Tónleikarnir hefjast kl. 21
Þessir listamenn koma fram:
Þorsteinn Gauti Sigurðsson,
píanóleikari,
1 Ólöf Kolbrún Harðardóttir,
óperusöngkona og
i Jón Stefánsson, organisti.
• Jazzsveit F.Í.H.V
undir stjórn Jukka Linkola.
• Sálin hans Jóns míns
Bachmann, Möller, Bernburg.
• Félagarúr
Félagi harmonikuunnenda,
• Bubbi Morthens.
• Hljómsveitin Strax.
• Bjartmar Guðlaugsson.
• Tregasveitin.
Veislustjórar: Ríó tríó
Dregið verður úr hlutafjárloforðum sem
safnast meðan á tónleikunum stendur.
1. vinningur: Vikuferð til Mallorka
með Ferðaskrifst. Atlantik.
2.-6. vinningur: Málsverður fyrir tvo
á Mongolian Barbecue.
Sala miða í happdrætti F.T. ferfram
á hátíðinni. Dregið 23. október.
1. vinningur:
Skoda Favorit frá Jöfur.
m
m
Fónéttur:
Grágæsasúpa.
Aðalréttur:
Ainerísk nautasteik
með bakaðri kartöflu.
Eftirréttur:
Kaffí og konfekt.
Verð aðgöngumiða á tónleikana með kvöldverði aðeins kr. 2.450,-
Verð aðgöngumiða á tónleikana frá kl. 21 kr. 1.000,-
Miðasala og borðapantanir daglega á Hótel íslandi ísíma 687111.
Forsala aðgöngumiða á tónleikana sjálfa verður í hljómplötuverslunum.
F.T.
Félagsheim ili
tónlistarmanna
HorT
LiLI
'&m