Morgunblaðið - 22.10.1989, Síða 17
17
MORGUNBLAÐIÐ AFMÆLI SUNNUDAGUR 22. OKTÓBER
--------1 VT'i—r - 11 —;—rT~~T'—! < / ■ 'TT'—; /; . r-
Sveinbjörg Ormsdóttir
hundrað ára á morgim
Föðursystir mín, Sveinbjörg
Ormsdóttir, verður hundrað ára á
morgun, 23. október. Af því tilefni
finnst mér hlýða að setja fáein orð
á blað um þessa mætu konu, enda
þótt ég viti vel, að henni ‘sé lítt um
slíkt gefið. Hún hefur runnið sitt
æviskeið á hógværan hátt, eins og.
flest það fólk, sem kennt er við
aldamótakynslóðina svokölluðu.
Ekki er einmitt síður fyrir það
ástæða til að minnast hennar á
þessum merku tímamótum á langri
ævi.
Sveinbjörg er komin af mjög
sterkum skaftfellskum stofni og það
svo, að flestir forfeður hennar hafa
náð mjög háum aldri. Þó hefur hún
ein náð hundrað árum, að því er
ég bezt veit. Vilborg Stígsdóttir,
föðuramma hennar, komst næst
því. Hún varð nærri 99 ára, þegar
hún lézt 23. febrúar 1912, og mun
þá hafa verið elzt íslendinga. Þar
á eftir kom svo Eiríkur, bróðir
Sveinbjargar, en hann var 96 ára,
þegar hann féll frá 1983.
Sveinbjörg fæddist í Efri-Ey í
Meðallandi 23. október 1889 og
varð áttunda barn hjónanna Guð-
rúnar Ólafsdóttur frá Eystri-Lyng-
um í Meðallandi og Orms Sverris-
sonar frá Grímsstöðum í sömu
sveit. Alls urðu börnin tíu, en átta
þeirra komust til fullorðinsára og
nær öll á mjög háan aldur sem og
foreldrar þeirra. Voru það fimm
BISN:
Tvö ný að-
ildarfélög
BANDALAG islenskra sérskóla-
nema, BÍSN, hélt aðalfund sinn
14. október sl. í menningarmið-
stöðinni Gerðubergi. Bandalag-
ið á 10 ára afinæli þann 10.
nóvember nk. A aðalfundinum
voru tekin inn tvö ný aðildarfé-
lög, annars vegnar Nemendafé-
lag Tölvuháskóla Verslunar-
skóla Islands og hins vegar
Nemendafélag Samvinnuskól-
ans á Bifröst, sem koma inn sem
áheyrnarfulltrúar fyrsta árið.
Félagið samanstendur því af
sextán aðildarfélögum hinna
ýmsu sérskóla.
drengir og þrjár stúlkur. Öll urðu
þau nýtir þegnar í því íslenzka þjóð-
félagi, sem myndaðist um og upp
úr síðustu aldamótum úr því bænda-
samfélagi, sem staðið hafði lítt
breytt frá landnámsöld. Ástæðu-
laust er að rekja það nánar hér í
stuttri afmæliskveðju til Svein-
bjargar frænku minnar.
Já, frænka mín má svo sannar-
lega muna tímana tvenna eins og
flestir þeir af hennar kynslóð, sem
enn eru ofar moldu. Margt í lífi
hennar hefur verið svo ótrúlegt, að
tæplega getur ungt fólk í alls-
nægtaþjóðfélagi nútímans gert sér
það í hugarlund, hvað þá í raun
lagt trúnað á. En er það ekki ein-
mitt þetta, sem hefur hert þessa
kynslóð svo í afli þess lífs, sem hún
hefur lifað, að hún hefur bæði sýnt
nægjusemi í öllum hlutum og um
leið lifað langa ævi?
Sveinbjörg giftist rúmlega tvítug
sveitunga sínum, Eiríki Jónssyni frá
Auðnum og ól honum tólf mann-
vænleg börn. Tvö þeirra dóu í frum-
bernsku, en upp komust tíu. Eiríkur
var mikill dugnaðar- og myndar-
maður, sem margir muna enn,
bæði austur í átthögum þeirra og
ekki síður um Suðurnes, en þangað
fluttust þau hjón árið 1915. Fyrst
man ég eftir þeim í Sandgerði með
fallega barnahópinn sinn, en síðast
áttu þau heima í Norðurkoti á Mið-
nesi, þar sem Eiríkur lézt árið 1940,
aðeins 56 ára að aldri, og öllum
harmdauði, sem honum kynntust.
Sveinbjörg bjó svo áfram um
hríð í Norðurkoti með börnum
sínum. Árið 1950 fluttist hún til
Keflavíkur að Garðavegi 6, þar sem
hún hefur síðan átt heimili og notið
góðrar elli í skjóli barna sinna,
Nokkur síðustu árin hafa orðið
frænku minni þung í skauti og hún
orðið að dveljast á Sjúkrahúsi
Keflavíkur, þar sem allir hafa ásamt
börnum hennar létt henni byrði ell-
innar af einstakri prýði.
Þegar ég flyt Sveinbjörgu og
skylduliði hennar öllu beztu kveðjur
og árnaðaróskir á hundrað ára af-
mæli hennar, finnst mér sérstök
ástæða til að geta þess hér, að for-
eldrar hennar dvöldust hjá henni í
Norðurkoti síðustu ár þeirra og luku
þar ævi sinni á tíræðisaldri. Annað-
ist hún þau af einstakri alúð ásamt
börnum sínum. Verður þeim í Norð-
urkoti aldrei fullþakkað það af öðru
frændfólki.
Enn eru níu börn þeirra Svein-
bjargar og Eiríks á lífi og öll bú-
andi hér í Reykjavík og um Suður-
nes. Á morgun, sjálfan afmælis-
daginn, fagna þau þessum merka
degi með móður sinni og öðrum
vinum og vandamönnum í félags-
heimilinu Stapa í Njarðvíkum milli
kl. 3 og 6. Þar verður svo sem jafn-
an áður heitt á könnunni hjá þess-
ari öldnu frænku minni. Er ekki að
efa, að margur vill nú taka í hönd-
ina á Sveinbjörgu Ormsdóttur og
þakka henni langa og trygga sam-
fylgd um heila öld.
Jón Aðalsteinn Jónsson
Fundurinn lýsti áhyggjum
sínum vegna sýnilegrar vönt-
unar á fé til Lánasjóðsins, en sam-
kvæmt ij'árlagafrumvarpinu fyrir
1990 er ekki gert ráð fyrir 6,7%
hækkun námslána þann 1. janúar
en full leiðrétting námslána var
ein aðalforsenda breytts tekjutil-
lits á sínum tíma.
Fyrir fundinum lágu lög ný-
stofnaðs Byggingafélags náms-
manna. Lögin hafa hlotið' sam-
þykki félagsmálaráðuneytisins.
Fundurinn samþykkti ályktun
varðandi Byggingafélag náms-
manna þess efnis, að stjórn BISN
beiti sér af alefli fyrir framgangi
þess félags í samráði við stjórn
byggingafélagsins. Meginmark-
mið BÍSN í vetur er að sjá til þess
að byggingafélaginu verði úthlut-
að lóð svo bygging leiguhúsnæðis
fyrir sérskólafólk geti hafist hið
fyrsta. Ný stjórn var kjörin og tók
Olafur Loftsson úr Kennarahá-
skóla íslands við formennsku.
(Úr frcttatilkynningu.)
XJöfðar til
11 fólks í öllum
starfsgreinum!
tilefni 35 ára afmælis okkar 6. nóvember næstkomandi
bjóðum við okkar ágætu viðskiptavinum úrvals rétti, eins og okkur er
ávallt lagið, bæði í hádeginu og á kvöldin.
11954- Í989I
IÞRJATIU OG FIMM ÁRA|
Og verðið geta fáir staðist:
Frá kr. 520, - í hádeginu fyrir súpu og
fisk og á kvöldinfrá kr. 1.490,-
fyrir Qórréttaðan mat
Fró 8.-12. október
P'ónnusteiktur
smokkfiskur
í hvitlaukssósu
Sítrónusorbet
Lambalundir
á sveþpamauki
Jaróarberjais meó heitri
i súkkulaóisósu
Kr. 1490,-
t ------------------
Frá 16.-19. október
Léttreyktur Eyjalundi
á piparrót
Melónusorbet
Grisahnetusteik meó
camembert- og
portvinssósu
Súkkulaóifrauó
Kr. 1490,-
Frá 22.-26. október
Rjómabœtt humarsúpa
Vinberjasorbet
Léttsteikt gæsabringa
með rjómasósu
ogeplasalati
Vanilluis
meóferskum ávöxtum
Kr. 1490,-
Frá 29. oktáber-
2. nóvember
Pónnusteikt gœsalifur i
hunangssósu
Rabarbarasorbet
Tumbauti með madeir-
asósu ogfurusveppum
Afmœliskaka
„Naustsins“
Kr. 1490,-
Borðapantanir ísíma 17759 daglega
Hægt er aðfá einkasai f
allt að 30-40 manns í mat
Fagnið með ökkur og njótið
lífsins íNausti