Morgunblaðið - 22.10.1989, Side 20
2P:
ÍSLENSKI
PRÓFESSORINN
HARALDUR
SIGURBSSON
ER EINN HELSTI
SÉRFRÆÐINGUR HEIMS
í SPRENGIGOSUM OG
RÝNIR í JARÐRÚNIR
FORTÍÐAR TIL AÐ META
ELDGOS FRAMTÍÐAR
eftír Árna Johnsen
HANN VINNUR við að rannsaka eld-
fjallaklukku jarðarinnar. Sérsvið hans
eru sprengigos í öllum útgáfum, stórum
og smáum. Hann hefur flett upp í jarð-
hræringum sögunnar með rannsóknum
sínum og um árabil hefur hann mætt til
leiks þegar náttúruhamfarir á hans sviði
hafa dunið yfír. Markmiðið er að kort-
leggja áhrif eldgosa í fortíð og framtíð
á veðurfar, mannlíf og fleiri þætti í dag-
legu lífi ájörðinni. Kenningar hans hafa
verið steftiumarkandi og þær hafa
hnekkt aldagömlum kenningum eins og
til dæmis varðandi eldgosið í Vesúvíusi
sem eyddi Pompei 79 f. Krist.
Mft.RGfthjgLAÐIft Sp.NNUDAGUR 22. OKTÓBEU
FJÖLLUNUM
Eitt af rannsóknarefnum prófess-
ors Haralds Sigurðssonar er eld-
Qallið Tambora í Indónesíu, en
þar varð eitt af mestu sprengi-
gosum í heimi árið 1815. Dýpt
gígsins er 1200 metrar og rann-
sóknarleiðangur í hann var mjög
erfíður.
Doktor Haraldur Sigurðs-
son prófessor við haf-
fræðideild Rhode Island-
háskólans í Bandaríkjun-
um er núna einn kunnasti
vísindamaður heims í þeim
þáttum eldfjallafræði er
lúta að Sprengigosum
bæði néðan sjávar og ofan,
en dr. Haraldur fæst eingöngu við
eldfjallafræði. í Rhode Island-háskó-
lanum, þar sem hann hefur starfað
H 15 ár, eru um 170 nemendur í
haffræðideildinni. Nemendurnir
stefna ýmist að doktorsgráðu eða
mastersgráðu. Dr. Haraldur notar
að jafnaði 3 mánuði á ári í rannsókn-
ir utan háskólans. Rannsóknir sem
hann hefur m.a. stundað í Banda-
ríkjunum, Afríku, á Ítalíu og í Indó-
nesíu. Auk þess hefur hann alloft
komið við sögu í heimsfréttum á
undanförnum árum þegar ákveðin
náttúruslys hafa komið upp eins og
til dæmis í Kamerún 1984 þegar
sprenging varð þar í Monaun-vatni
og 37 manns fórust.
Hvernig vötnin hvolfa sér
„Ég gerði rannsóknir á Monaun-
vatni og kom með skýringu á spreng-
ingunni sem er almennt viðurkennd.
Hún byggist á því að í vatninu hafi
safnast fyrir kolsýra eins og víða á
sér stað í djúpum vötnum þar sem
kolsýra úr iðrum jarðar á ekki greiða
leið upp í andrúmsloftið. í þannig
tilvikum safnast kolsýran fyrir vegna
þrýstings á miklu dýpi og vatnið
mettast af hans völdum eins og á
sér stað í gosflösku. Ef vatnið rís
upp á yfirborðið opnast kolsýrunni
Indónesia
1883
Nýja Sjáland
130 f.Kr.
J Italia
___TSJUKr^
Mwunt Safiil Htlinoí
Bandaríkin j
1980
Indonesia
1815
leið og ef um kyrrt vatn er að ræða
er hætta á miklu magni af kolsýru
ef eitthvað óvænt kemur hreyfingu
af stað í vatninu. I Monaun-vatn
féll skriða í fyrra þannig að djúp-
vatnið kom upp. Ekki er vitað hvað
ýtti við gassprengingunni í Monaun-
vatni, skriðuföll, stormur eða vind-
alda, en vindaldan getur hlaðið vatn-
inu upp í annan endann og gert það
óstöðugt þannig að á ákveðnu augna-
bliki hvolfist það, veltur hreinlega
um. Ég vann að þessu verkefni á
vegum bandaríska utanríkisráðu-
neytisins sem hefur margs konar
Fimm frægustu sprengigosfjöll
jarðar. Myndin sýnir hæð gos-
strókanna í mílum.