Morgunblaðið - 22.10.1989, Síða 25
MGR&U'NBbAÐIÐ MINNINQAR swéMSraw® OKTOggR
Í25
Helgi Krístján Pálmars-
son flugumferðarsljórí
Fæddur 9. janúar 1924
Dáinn 11. október 1989
Einn af okkar fyrstu flugum-
ferðarstjórum á íslandi, hann Helgi
okkar Pálmarsson, var að kveðja.
Einlægur, ágætur og eftirminnileg-
ur starfsbróðir um aldarfjórðungs
skeið. Mann setur hljóðan við jafn-
óvænta dánarfregn, hress og glaður
í gær, horfinn í dag og enginn veit
hver verður næstur. Við vonum
aðeins og trúum, að þessi tilvera
okkar sé áfangi á skipulagðri
þroskabraut og tökum því, sem a,ð
höndum ber.
Hann Helgi fæddist 9. janúar
1924 og varð því 65 ára gamall.
Foreldrar hans voru hjónin Anna
Helgadóttir og Pálmar Sigurðsson,
verkstjóri hjá Rafmagnsveitu
Reykjavíkur um árabil. Helgi ólst
upp á Grímsstaðaholtinu í stórum
systkinahópi, bræðurnir voru 3 og
systurnar þijár, og bjó fjölskyldan
lengi á Fálkagötunni. Þaðan var
gott að fylgjast með ferðum flug-
véla umhverfis bæinn og flugið
varð líka snemma aðaláhugamál
hans. Hann stundaði nám í Mið-
bæjarskólanum í Reykjavík í æsku,
en þurfti snemma að fara að vinna
hörðum höndum, svo fremur lítið
varð úr framhaldsnámi. Þó varð
hann góður enskumaður, enda
starfaði hann ungur með Englend-
ingum við að byggja Reykjavíkur-
flugvöll, raunar frá upphafi
hernáms árið 1940, þá aðeins 16
ára gamall. Hann drakk f sig allan
fáanlegan fróðleik um flugið og las
margar bækur og tímarit um flug.
Jafnframt hóf hann flugnám strax
og slíkt var mögulegt hér heima
og lauk bæði námi einkaflugmanna
og til réttinda atvinnuflugmanna.
Með þessa þekkingu að baki sótti
hann námskeið Flugmálastjórnar í
flugumferðarstjórn síðari hluta
vetrar 1947-48 og var einn hinna
fáu, sem voru vaidir til verklegs
framhaldsnáms í flugturni og flug-
stjórnarmiðstöð á Reykjavíkurflug-
velli í júlímánuði 1948. Undirritaður
hafði þá starfað um tveggja ára
skeið við þessa starfsgrein, en
snemma kom í ljós, að hann Helgi
vissi svo miklu meira um flugvélar
' en flestir okkar hinna og námið við
flugumferðarstjórnina reyndist
honum auðvelt og átti vel við hann.
Jafnframt náminu og starfinu
kenndi Helgi mörgum okkar fyrstu
handtök flugnámsins og enda þótt
mínir eigin flugtímar yrðu ekki
margir minnist ég þeirra með þakk-
læti og veit, að hann var góður og
þolinmóður flugkennari.
Vorið 1954 fór Helgi til fram-
haldsnáms í flugumferðarstjórn,
ásamt 7 félögum sínum, í skóla
bandarísku flugmálastjórnarinnar í
Oklahoma, í öðrum hópnum, sem
íslenska flugmálastjórnin sendi í
þennan ágæta alþjóðlega skóla.
Kennarar voru fráþærir og bæði
um bóklegt og verklegt nám að
ræða. Er náminu í Oklahoma lauk
fór Helgi, ásamt Herði heitnum
Magnússyni, flugumferðarstjóra,
sem lengi starfaði í flugturni
Keflavíkurflugvallar, til framhalds-
náms til staðarréttinda í Allentown.
Heim kom hann frá náminu síðari
hluta febrúar 1955 og tók upp fyrri
störf við flugumferðarstjórnina í
Reykjavík. Þar var honum fljótlega
falin verkstjórn og hann gegndi
henni bæði í gamla flugturninum
og hinum nýja, er starfsemin flutti
þangað í árslok 1961, um árabil.
Vorið 1950, 27. maí á hvíta-
sunnudag, gekk Helgi í hjónaband
með ágætri og samhentri ungri
konu, Soffíu Pétursdóttur, og þau
eignuðust ijögur mannvænleg börn,
Halldór, Vigdísi, Ómar og Asgeir.
Þeir Helgi og bræður hans báðir,
Óskar og Gunnar og fjölskyldur
þeirra, byggðu saman hús við
Fálkagötuna, á lóð foreldranna, svo
að börn þeirra ólust einnig upp á
slóðum feðranna og afa og ömmu,
þar sem flugvélarnar blöstu við lið-
langan daginn og orkuhljómar
þeirra blöndúðust söng fuglanna og
öldugjálfrinu við strönd Skeija-
fjarðarins.
Árin liðu, flugvélunum fjölgaði,
álag þessa vandasama starfs óx,
en tækniþróun var hægfara og
vinnuaðstaðan breyttist lítið. Helgi
átti við veikindi að stríða all lengi
og hætti störfum við fluguinferðar-
stjórnina árið 1972 og starfaði eftir
það til æviloka hjá Rafmagnsveitu
Reykjavíkur, eins og faðir hans
hafði gert og bræður hans gerðu
báðir að lífsstarfí. Síðari árin kenndi
Helgi flug áfram, í viðlögum, og
mörgum tómstundum varði hann
niður á flugvelli, innan um flugvél-
arnar, sem hann dáði svo mjög, eða
hóf sig til flugs í einhverri þeirra.
Á vængjum vindanna, milli himins
og jarðar, var vítt til veggja, og ef
til vill var þar auðveldast að skynja
tilgang tilverunnar og láta draum-
ana rætast.
Við gömlu starfsbræðurnir frá
flugumferðarstjórninni söknum
góðs vinar, vottum Soffíu og börn-
um þeirra og öðrum vandamönnum
Sérfræðingar
í blómaskreytingum
við öll tækifæri
Bblómaverkstæði
INNA^
Skólavörðustíg 12
á horni Bergstaðastrætis
sími 19090
Lokað
Vegna útfarar HELGA PÁLMARSSONAR verður
rakarastofan Hótel Sögu lokuð mánudaginn 23.
október.
einlæga samúð okkar og óskum
þeim allra heilla um ókomin ár.
„Fljúgðu á vængjum niorgunroðans
meira að starfa guðs um geim.“
(Jónas Hallgiimsson)
Valdimar Ólafsson
Mig langar til að minnast með
örfáum orðum fyrrverandi tengda-
föður míns, Helga Pálmarssonar,
sem svo snögglega hvarf frá lifanda
lífi. Helgi var víðlesinn og fróður
maður og hafði yndi af að segja frá
stöðum og háttum alls sem bar á
góma. Og ef minnst var á flug þá
var Helgi svo sannarlega á heima-
slóðum.
Helgi var ætíð tilbúinn að rétta
hjálparhönd, sama hvað var. Ég
minnist þess tíma er ég gekk með
dóttur mína, og við hjónaleysin vor-
um bíllaus, hve aufúslega hann
keyrði mig allra erinda sem ég
þurfti að sinna. Og alltaf var liann
boðinn og búinn til þess að keyra
livern sem var úr fjölskyldunni, sem
á þurfti að halda í það og það skipt-
ið. Barnabörnin, sem voru honum
svo kær, voru engin undantekning
í þeim málum. T.d. ef anima Soffía
ætlaði að líta eftir einhveiju þeirra,
þá var Helgi mættur að sækja barn-
ið og keyra til ömmu og skila því
svo aftur heim ef þess þurfti með.
Hans verður örugglega sárt
saknað af yngstu kynslóðinni eins
og þeirri eldri. Dóttir mín 5 ára
gömul ræðir við mig um Helga afa
á sinn hátt og með sínum skilningi
á því, að afi er farinn frá okkur,
en ég skynja söknuðinn hjá henni,
þegar hún talar um að hann komi
aldrei aftur í heimsókn.
Eftir að við Ásgeir slitum sam-
+
Þökkum innilega öllum þeim er sýndu okkur samúð og vinarhug
við andlát og útför eiginmanns míns, föður okkar, tengdaföður,
afa og langafa,
ÁRNA KR. ÁRNASONAR
frá Skál,
Klausturhólum 2,
Kirkjubæjarklaustri.
Johanna Pálsdóttir.
Anna H. Árnadóttir,
Guðrún Árnadóttir,
Sigurbjörn Árnason,
Guðríður Árnadóttir,
Páll S. Árnason,
Steingrímur Lárusson,
Hjördís Sigurðardóttir,
Sigurður Bergsson,
Rósa Reynisdóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.
t
Þökkum innilega öllum þeim er sýndu okkur vinarhug og samúð
við andlát og útför unnusta míns, sonar og bróður,
EINARS STEFÁNS EINARSSONAR,
Hamraborg 16,
Kópavogi.
Hilda Julnes,
Lóa Henní Olsen,
Einar Friðfinnsson, Helga Svavarsdóttir,
Friðfinnur Einarsson, Lilja Pétursdóttir,
Þórunn Ingibj. Einarsdóttir, Þorsteinn Þorsteinsson,
Sigurður Gunnar Sigfússon,
og aðrir aðstandendur.
+
Þökkum af alhug öllum þeim sem sýndu
samúð og vináttu við andlát og útför,
hjartkærs unnusta, föður, sonar, bróður
og barnabarns,
GUNNARS EGGERTS JÚLÍUSSONAR,
nuddara,
Súlunesi 10,
Arnarnesi.
Jórunn Skúladóttir,
Gunnar Eggert Gunnarsson,
Birta Ósk Gunnarsdóttir, Aðalsteinn K. Gunnarsson,
Þrúður Pálsdóttir,
Þorgeir Yngvason,
Guðrún S. Þorgeirsdóttir,
Fjölnir Þorgeirsson,
Áslaug Pálsdóttir,
Páll Sigurðsson,
Júlíus Einarsson,
Brynja Lárusdóttir,
Einar A. Júlíusson,
Júlíus Á. Júlíusson,
Kristín A. Júlíusdóttir,
Sigriður E. Júlfusdóttir.
vistum, minnkuðu töluvert sáin-
skipti mín við fjölskyldu hans, en
samt var maður alltaf jafn velkom-
inn og ávallt var jafn indælt að
hitta þau, því ekki hafði kærleikur-
inn minnkað. T.d. fyrir jólin í fyrra
kom Helgi upp í búð til mín, þar
sem ég var að vinna og eftir smá-
spjall rétti hann að mér peninga'
og bað mig að kaupa eitthvað fal-
legt handa mér, hann hefði hrein-
lega ekkert vit á því að velja handa
mér jólagjöf. Ekkert þýddi að mót-
mæla, — þetta áttu skilið sagði
hann. Svo'var mér tilkynnt lát hans,
svo löngu fyrir áætlaðan tíma að
mínu mati. Hann var að vísu orðinn
slappur upp á síðkastið og svolítið
farinn að láta á sjá. En ekki að
hann væri á förum. Og eins og
ætíð eftirá, finnst manni svo margt
ósagt.
Eg kveð Helga með þakklæti í
huga og vissu um, að hann verður
í huga okkar urn ókomna tíð.
Aðstandendum votta ég samúð
mína.
Sólveig
Blömostofa
Friðfinns
Suðuriandsbraut 10
108 Reykjavík. Sími 31099
Opið öli kvöld
til kl. 22,- einnig um helgar.
Skreytingar við öll tilefni.
Gjafavörur.
Rowenla
Rowenta
brauðrist TO-51
Hægt er að rista brauðið
með ýmsu móti og hægt er
að útbúa gómsætar
samlokur í brauðristinni.
Stórt ristunarop er á vélinni,
áhald fyrir ristun á smá-
brauði og samlokutöng.
800 Wött.
Besta
lausnin
fyrir
heimilið
Rowenla
Vörumarkaðurinn
KRINGLUNNIS. 685440
3
FLUGLEIÐIR
London
BORGARPAKKI
verð frá kr. 31.260,-
FERÐASKRl FSTOFA
STÚDENTA
61*56*56
3
FLUGLEIDIR
Glasgow
BORGARPAKKI
verð frá kr. 24.450,-
FERÐASKRl FSTOFA
STÚDENTA
61*56*56