Morgunblaðið - 22.10.1989, Síða 29
gaaðTHa ,ss auoLfrjKtos mpoeAaviYM aioAjasíuaaoM
MORGUNBLAÐIÐ MtlMNINGAR SUNNUDAGUR 22. OKTOBER
Hjónaminning:
Hvallátrahjónin
Jón og Jóhanna
JÓll
Fæddur 25. mars 1904
Dáinn 20. ágúst 1988
Jóhanna Sesselja •
Fædd 19. október 1899
Dáin 30. júní 1989
í dag er sunnudagurinn fyrsti í
vetri.
Þau Jón Daníelsson og Jóhanna
Sesselja Friðriksdóttir á Hvallátrum
giftu sig 23. október 1932, eða
„sunnudaginn fyrstan í vetri“ eins
og þau nefndu það sjálf.
Fyrst voru þau í Látrum, síðan 2
ár í húsmennsku i Skáleyjum 1935-
1937.
Vorið 1937 hófst svo búskapur
þeirra í Látrum. Þar áttu þau sín
manndómsár og þar uxu ávextir,
þeirra starfs.
Að veganesti höfðu þau reynslu
og þekkingu genginna kynslóða.
Hvallátur er kostarík jörð á mæli-
kvarða þess tíma er margar hendur
voru til staðar að vinna allt það ijöl-
þætta gagn sem eyjajarðir hafa
uppá að bjóða. Undir stjórn Jóns
og Jóhönnu var vel í horfinu haldið.
ÆðaiTarpinu var sinnt af alúð,
dúninn hreinsaður heima og gerður
að söluvöru. Skarfur var tekinn og
kofa. Lúða og hrognkelsi sótt á
heimamið og var til búdrýginda þó
þau hlunnindi gengju saman í þeirra
tíð með ásókn stórvirkari veiðitækja
á aila fiskistofna.
Selveiðin var stóran hluta þeirra
búskaparára drýgst hlunninda. Var
oft lengstur og strangastur vinnu-
dagur á vorin meðan kópaveiðin
stóð, við skinnaverkun og hirðingu
matvælanna, sem öll voru nýtt. Við-
hald og endurnýjun netanna var
hinsvegar vetrarvinna.
Grasnytin í Látrum er mikil, en
jafnframt erfið. Heimaeyjan er lítil
og meirihluti heyfengs var sóttur í
úteyjar, fluttur í reipum um sjóveg
og borinn á bökum.
Óvíða er fénu flæðihættara en í
Látralöndum. Girðingar þurfti mikl-
ar og gæslu fjár. Féð var flutt til
lands í sumarhaga og hross tekin
úr landi til vetrargöngu. Mikinn
mannskap þurfti við alla þá flutn-
inga og góðan bátakost.
Kýrnar voru arðsamar, oft 5 eða
6, jafnvel fleiri. Smjörið og skyrið
var heimagert og oft nokkuð af
smjöri til sölu. Kartöflur og aðrar
matjurtir nægar og vel það.
Þó oftast væru á þeirra mann-
dómsárum jafnan 15-20 manns eða
fleiri í heimili auk alls þess gesta-
gangs er þar var (og enginn fór
svangur úr Látrum), voru öll þessi
framannefndu heimaföng svo rífleg
að mörgum sem minna máttu sín
miðluðu þau rausnarlega, oft fyrir
lítið eða ekkert gjald. Einnig voru
þessar afurðir gjaldmiðill manna
meðal undir merkjunum „greiði
gegn greiða“. Samhjálpin gilti í
samfélaginu því.
Jón var lágur vexti og grannur,
tilfinningaríkur fjörmaður. Undir
loðnum brúnum blikuðu djúp og
skær augu. Fljótur að grípa spaugi-
leg atvik, hversdagslega alúðlegur,
en lét engum undir^inni stjórn hald-
ast uppi iðjuleysi og lét ergja sig
ef ekki gengu verkin. Hafði tak-
markalausa skömm á hangsi og
slæpingshætti.
í hans búskap risu myndarlegar
byggingar, öðrum gömlum og
dreifðum var jafnað við jörðu. I
nýju útihúsi var innréttaður rúm-
góður frystiklefi skömmu eftir að
heimilið væddist rafmagni frá dísil-
stöð. Umtöluð nýlunda áður en al-
mennt komu frystikistur á heimili.
Heimaeyjan varð öll að sléttu
túni strax við upphaf vélaaldar.
Hlaðnar bryggjur voru stækkaðar
og bættar. Hleðslugijótinu úr veggj-
um gömlu húsanna sem rifin voru
og gengnar kynslóðir höfðu dregið
að safnaði hann saman og hlóð nátt-
haga. Hann stendur.
Það er spá mín að verði honum
ekki spiiit muni veður, vindar og
önnur náttúruöfl það seint á honum
vinna að í þeirri hleðslu geti kom-
andi kynslóðir séð brot af iðni, lag-
virkni og snyrtimennsku þessa
grannvaxna manns.
í bátasmíðunum sem stundaðar
voru í Látrum átti hann jafnan
nokkurn þátt, a.m.k. í aðdráttunum
til þeirrar iðju.
Hann gagnrýndi stjórnarfar og
þjóðfélagsumrót hart. Var þó ekki
hneigður til opinberra afskipta, en
komst ekki undan ýmsum trúnaðar-
störfum í þágu samfélagsins. Hann
.vildi við ekkert skilja ólokið og oft
var til hans leitað ef vanda bar að.
Vandvirkni og sanngirni voru hans
aðalsmerki.
Þegar aldur færðist yfir, búskap
var lokið og þróttur þvarr var yndi
hans á heimslóðum þegar því varð
við komið, þó hann ætti gott heim-
ili syðra. Hugurinn hélst óskertur.
Að kvöldi 18. ágúst 1988 mætt-
ust tveir hraðbátar á Hafnarsundinu
við Flatey. Ég leit um öxl og í skot-
hending mætti ég hýrunni í stál-
gráum augum bakvið kafloðið
skegg. Hann stóð aftan við stýrfs-
húsið á hinum bátnum. Hendi var
lyft til kveðju. Tveim dögum síðar
var Jón Daníelsson allur.
Foreldrar Jóns voru María Guð-
mundsdóttir frá Skáleyjum og Dan-
íel Jónsson frá Hlíð í Þorskafirði.
Hann var í æsku þegar hann missti
báða foreldrana og bróður með
stuttu millibili. Áður systur sína. 5
systkini lifðu eftir, Jón elstur. Fóst-
urforeldrar hans og þriggja systkina
hans voru hjónin Olafur Bergsveins-
son og Ólína Jónsdóttir föðursystir
hans í Látrum.
Jóhanna var kona mikilleit, hakan
framstæð, nefnið frítt, dimmblá
augu lágu djúpt. Hér er mest í minni
hlýja, glettna viðmótið og hálfkær-
ingslegt spaugið sem alltaf var til
reiðu.
Hún var búforkur mesti, gekk í
útiverkin sjálf og hafði jafnan stúlku
til eldhúss- eða inniverka. Kýrnar
voru hennar yndi og hún spjallaði
um þær við hvern sem var. Ég held
henni hafi þótt beljunum hætt, væri
hún ekki að mjöltunum sjálf. Ég sem
kynntist mannmörgum búum með
ákveðna verkaskiptingu vissi hana
eina kvenna í eyjum standa við
slátt. Þó fór henni vel úr hendi
handavinna og hvaðeina. Ljósmóðir
og dýralæknir af guðs háð, hjálpaði
bæði tví- og ferfætlum í heiminn.
Ráðholl, ráðsnjöll og áræðin. Margir
leituðu til hennar þegar annað um
þraut, jafnvel um nætur. Þótt um
sjóveg væri að fara var hún reiðubú-
in. Hún flíkaði ekki tilfinningum
sínum og sagði stundum: „Það er
margt sem best er að muna ekki.“
Með sérstökum hnykk um höfuð
og herðar hristi hún af sér angrið.
Skaut upp hökunni, kannski dálítið
þóttalega og spaugsyrðin fæddust
aftur ótrúlega fljótt. Kannski voru
þau hennar langlífustu einkenni óg
dóu jafnvel ekki þó raunveruleikinn
hyrfi henni út í bláinn samhliða
sjúkrahúsvist síðustu æviáranna.
Foreldrar Jóhönnu voru Elín Jón-
asdóttir frá Vífilsdal í Hörðudal og
Friðrik Ágúst Kristmannsson frá
Litla-Vatnshorni í Haukadal. Þau
fluttu til Ameríku, en Jóhanna varð
eftir, þá barn að aldri. Fósturfor-
eldrar hennar voru Jóhanna Ólafs-
dóttir og Gísli Kristjánsson í Skóg-
arnesi.
Tvítug giftist Jóhanna frá Skóg
arnesi Aðalsteini Ólafssyni í Látrum
og þar settust þau að. Fljótlega áttu
þau í ráðum að taka til ábúðar stór-
býlið Reykhóla. En örlögin gripu í
tauma. Aðalsteinn drukknaði vorið
1923.
Þegar svo var komið, bauðst Jó-
hönnu sá kostur að flytja til foreldr-
anna í Ameríku með börnin tvö. Það
varð ekki heldur, forlög bjuggu
henni stað í Látrum.
Jón og Jóhanna þekktu hvað
harmur var. Setti það ekki mark
sitt á þeirra gerð? Hversu margir
áttu ekki hjá þeim skjól? Hversu
margir geta ekki litið á þau, sem
aðra foreldra? Og þui-ftu ekki raun-
ir til, a.m.k. ekki ég.
Merki þeirra eiga að finnast í
þjóðarsálinni vítt um land og utan
þess. Þau voru trúuð og trú þeirra
sterk, án allrar helgislepju. Bæði
bjuggu yfir broti af ófreskisgáfu og
kom ekki allt á óvart. Berdreymin.
Efni þeirra og arður starfs lá í
lausu og föstu í Látrum. Greinin er
um þau og ég nefni engan þeirra
mörgu sem með þeim störfuðu,
studdu þau og þáðu þeirra stuðning.
Þau lifðu þjóðfélagsbreytinguna frá
fjölmennum umsvifamiklum eyja-
heimilunum til nánast eyðibyggðar.
Litu með söknuði um öxl. „Það var
mikil afturför þegar heimilin lögðust
niður,“ voru orð Jóhönnu.
Þau létu ekki óþarfann glepja sig
gegnum tíðina, enda mun þeim hafa
orðið ósvikin ánægja á efri árum
ferðin til Kanada og nokkurra vikna
dvöl þar með venslafólki. Frásagn-
arefnið varð ótæmandi. Ekki síst
mun hin næma athyglisgáfa Jóns
hafa notið sín þar í framandi um-
hverfi. „Það er gæfa að fylgja hon-
um Jóni Daníelssyni," heyrði ég
Jóhönnu segja á sinn kankvísa hátt
af litlu tilefni. Þau höfðu hvort ann-
ars gæfu í huga. Guð blessi minn-
ingu þeirra.
Jóhanna og Aðalsteinn áttu 3
börn og lifðu tvö: Björg Ólafía, fædd
27. júní 1922, húsmóðir í Kanada.
Aðalsteinn Eyjólfur, fæddur 5.
ágúst 1923, lengi bátasmiður í Látr-
um. Nú bryggjusmiður hjá Hafnar-
málastofnun.
Börn Jóns og Jóhönnu: Ólína Jó-
hanna, fædd 5. apríl 1933, húsmóð-
ir Flatey. Daníel, fæddur 2. desem-
ber 1934, bóndi á Dröngum. María
Theódóra, fædd 28. apríl 1938, hús-
móðir í Garðabæ. Elín Ágústa, fædd
7. júlí 1941, dáin 3. febrúar 1943.
Valdimar, fæddur 24. nóvember
1943, lögreglumaður í Kópavogi.
Fóstursonur þeirra er Aðalsteinn
Valdimarsson, fæddur 29. mars
1938, smiður í Búðardal.
Fjölskyldunni óska ég allra heilla.
Jóhannes Geir Gíslason
Legsteinar
MARGAR GERÐIR
Marmorex/Granít
Steinefnaverksmiðjan
Helluhrauni 14, sími 54034
222 Hafnarfjörður
+
Sýstir okkar,
ÞÓRUNN JÓNSDÓTTIR,
Hverfisgötu 67,
lést í Borgarspítalanum 19. október.
Jónina Jónsdóttir,
Sigríður Stefanía Jónsdóttir.
Eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir og afi,
GUÐJÓNJÓSEFSSON
bóndi,
Ásbjarnarstöðum,
andaðist í sjúkrahúsinu á Hvammstanga föstudaginn 20. október.
Jarðarförin auglýst síðar.
Sigrún Sigurðardóttir,
Þórdfs Guðjónsdóttir,
Sigríður Guðjónsdóttir,
Steinunn Guðjónsdóttir,
Loftur Sveinn Guðjónsson,
Kristín Guðjónsdóttir,
Guðrún Guðjónsdóttir,
tengdabörn og barnabörn.
+
Ástkær eiginmaður minn og faðir okkar,
GUÐMUNDURJÓNATANSSON
málarameistari,
Ránargötu 20,
Akureyri,
lést í Fjórðungssjúkrahúsinu á Akureyri þriðjudaginn 17. október.
Jarðarförin fer fram frá Akureyrarkirkju miðvikudaginn 25. októ-
ber kl. 13.30.
Marfa Júlíusdóttir
og börn.
+
ALDÍS BJÖRGVINSDÓTTIR,
Björgum f Ljósavatnshreppi,
verður jarðsungin frá Víðistaðakirkju þriðjudaginn 24. október kl.
15.00.
Sigurður Sigurbjörnsson,
Hjördís Gunnarsdóttir,
Björgvin Gunnarsson,
Sigurður Freyr Sigurðsson,
Rakel Guðmundsdóttir,
Björgvin Jónsson.
+
Faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi,
INGIMAR HALLGRÍMSSON
trésmiður,
Hraunbæ35,
verður jarðsunginn þriðjudaginn 24. október kl. 10.30 f.h. í Foss-
vogskirkju.
Stella Ingimarsdóttir, Jón Pétursson,
Kristján Ingimarsson, Kristjana Haraldsdóttir,
Theódór Ingimarsson, Sjöfn Sverrisdóttir,
börn, tengdabörn og barnabörn.
+
Útför föður míns, tengdaföður og afa,
MAGNÚSAR MAGNÚSSONAR
sérkennslufuiltrúa,
Vesturbergi 74,
verður gerð frá Fossvogskirkju mánudaginn 23. október kl. 15.00.
Blóm og kransar afþakkaðir. Þeir sem vildu minnast hans, vinsam-
legast láti Styrktarfélag þroskaheftra njóta þess.
Orri Magnússon, Karen Magnússon
og dætur.
+
ÞÓRARINN ANDRÉSSON
kaupmaður
verður jarðsunginn frá Hallgrímskirkju þriðjudaginn 24. október
kl. 15.00.
Kristfn Hinriksdóttir,
Ásgeir Höskuldsson,
Jóhann Þórarinsson,
Andrés Þórarinsson.