Morgunblaðið - 22.10.1989, Síða 31
:4i' ’■1 ; ú •. i tr
MORCUNBLAÐIÐ hULK
jÚR 22.-ÓKTÓBER
$
BRÚÐHJÓN VIKUNNAR
Vörpuðu áletruðum
g’ullpeningum
í Peningagjá
Brúðhjón vikunnar að þessu
sinni eru Kristín Ingibjörg
Stefánsdóttir og Halldór Kristj-
ánsson . Hún er 25 ára gamall
snyrti- og förðunarsérfræðingur,
en hann er þrítugur markaðs-
fræðingur. Þau leituðu ekki langt
yfír skammt þegar til kastana
kom, því hann var til heimilis að
Einimel 7, en hún að Einimel 1.
Heimili þejrra er nú Ásvallagata
77 sem þau hafa gert upp síðustu
mánuði.
En þrátt fyrir að þau væru nán-
ast næstu nágrannar, þá þekktust
þau ekkert fyrr en í janúar 1986.
Hún vissi svo sem hver hann var
og hann vissi af henni. Hann
þekkti meira að segja bræður
hennar tvo vel, en leiðir þeirra
lágu ekkert saman, þau voru
bæði í sínu námi, hann m. a.
marga vetur í Bandaríkjunum.
En hvernig brotnaði ísinn? Halldór
svarar símleiðis frá Amsterdam:
“Við kynntumst í gegn um fræncla
minn. Hann bauð mér og þeim
systkynum öllum í vetrarferð til
Þingvalla. Þegar við komum að
sækja þau og hún kom labbandi
að bílnum sá ég strax að þetta
væri mín stelpa." En var hún jafn
viss um þig? “Ég er nú ekki alveg
viss um það, en við héldum sam-
bandi um veturinn og um sumarið
small þetta saman, það má segja
það,“ segir Halldór
Það var síðan 25. desember síðast
liðin að þau opinberuðu trúlofun
sína og 25.mai bað Halldór
Kristínar. “Ég ók með Kristínu
austur á Þingvöll og gekk með
henni út á brúna á Peningagjá.
Kraup þar á kné og bað hennar.
Þegar hún jánkaði, mér til mikill-
ar gleði, dró ég úr fórum mínum
tvo gullpeninga með stöfum okkar
á. Við köstuðum þeim síðan. í
gjána og hugsuðum og óskuðum
okkur um leið hvernig við vildum
að okkar samband og hjónaband
yrði,“ segir Halldór.
Um haustið fór Kristín í vikuferð
með foreldrum sínum til Lundúna,
keypti þar kjólinn og fleira til
brúðkaupsins. Að morgni stóra
dagsins mætti flokkur séfræðinga
heim til Kristínar þar sem hún
var greidd, snyrt og strokin, en
Halldór stússaði í hinu og þessu,
lét snyrta hár sitt, sótti blóm-
vöndinn og fleira. Svo sat hann í
foreldrahúsum og ræddi um
heima og geima við föður sinn
uns stundin rann upp. Var þá
haldið í Neskrikju þar sem sr.Guð-
mundur Óskar Ólafsson tók á
móti þeim. Halldór telur sig hafa
staðið sig vel fram að þessu, en
þegar hann sá Kristínu ganga inn
kirkjugólfið, var honum öllum lok-
ið, taugarnar brustu og það tók
hann fimmtán fyrstu mínútur at-
hafnarinnar að róa sig niður,
“enda var hún falleg“ segir Hall-
dór.
0g athöfnin var falleg segja þau
bæði. Leikinn var Ástardraumur
eftir Lizt, Brúðarljóð og loks söng
Bjarni Arason gamla Presleylagið
Falling in love again með slíkum
tilþrifum að flesta langaði til að
klappa, en það er ekki lenska í
brúðkaupum og sat því fólk á
sér. Að athöfninni lokinni var
haldið í Hallargarðinn í Húsi
Verslunarinnar þar sem haldin var
“stórkostleg“ veisla brúðhjónun-
um til heiðurs. Alls vöru gestir
um 190 talsins og voru allir leyst-
ir út með gjöf frá brúðhjónunum.
Að veislunni lokinni var haldið í
myndatöku sem tók á aðra
klukkustund vegna þess hve
Halldóri gekk illa að slaka á og
brosa framan í linsuna.
Að myndatöku lokinni var haldið
upp á 14. hæð í Húsi Verslunar-
innar þar sem haldin var mikil
matarveisla fyrir brúnhjónin og
23 nána vini og fjölskyldu. 6 rétta
rnáltíð með meiru. Síðan var að
bera brúðina yfir þröskluldinn á
Ásvallagötunni. Kom þá í ljós að
búið var að bera allar gjafimar
inn í stofu og skreyta hurðir og
stigan upp að svefnherberginu
með blómum og borðum. Einnig
hjónarúmið og bakkar með kældu
kampavíni, bjór og öðru meðlæti
voru á báða bóga. “Það væsti
ekki um okkur,“ segja þau hjón.
Næstu daga var m. a. haldið
“hænuboð" fyrir vinkonur Kristín-
ar og brúðkaupsferðin skipulögð.
Er það þriggja vikna ferð sem
hófst í Amsterdam en einnig verð-
ur dvalist í Sviss, frönsku Rivier-
unni, Mónakó, Þýskalandi og
Belgíu.
borgina Bordeaux í suðvesturhluta
Frakklands. Vínrækt og víngerð
hefur verið stunduð á þessum slóð-
um í áraraðir og er vínviðurinn á
Chateau de Rions-býlinu til dæmis
aldagamall.
Á býlinu eru klassískar berjateg-
undir ræktaðar í samræmi við hefð-
ir. Til rauðvínsgerðar eru ræktaðar
Merlot, Cabernet Sauvignon, Ca-
bernet Franc og Malbec, en Semilli-
o.n og Sauvignon Blanc þrúgurnar
eru hins vegar notaðar í
hvítvínsgerðina. Land Chateau de
Rions er um tíu hektarar að stærð,
þar af eru um það bil sex hektarar
nú undir vínviði. í víngörðunum eru
alls um 35.000 plöntur, sem þurfa
stöðuga umönnun. Meðalaldur
vínviðarins er hár og rætur hans
ná djúpt í jörðu. Reynt er því eftir
fremsta megni að ná fram sem
mestum gæðum beijanna svo vínin
megi verða sem best. Ætlunin er
að gróðursetja frekar í náinni
framtíð.
Framleiðsla víngerðarhússins er
um það bil 40 þúsund flöskur á
ári. Á miðanum á flöskunni stendur
„Mise eri' Bouteille au Chateau“,
sem merkir að vínið sé átappað á
staðnum og er trygging fyrir upp-
runa þess.
„Jón hefur lengi haft áhuga á
vínum og hefur verið með annan
fótinn úti í Bordeaux í fleiri ár.
Þegar svo þetta tækifæri bauðst,
fannst honum tilvalið að taka því,
ekki sístvegna þess hve þetta svæði
er vel fallið til vínræktar. Ég var
lengi úti í sumar við beijatýnsluna,
en hef ákveðið að vera á íslandi
að minnsta kosti í vetur þar sem
börnin eru á skólaaldri,“ sagði Guð-
laug.
J1
Börn þeirra Jóns og Guðlaugar,
Ármann 6 ára og Dagbjört 7
ára, kunnu vel við sig í Frakkl-
andi í sumar. Hér eru þau innan
um vínviðinn og hjálpuðu vissu-
lega lil við berjatínsluna.
ÆVISÖGUR
Fjallað um meint
framhjáhald Martins
Luthers Kings
Blökkumannaleiðtoginn Martin
Luther King var í félagsskap
tveggja kvenna og lenti í átökum við
þriðju konuna, nóttina áður en hann
var myrtur, að því er segir í væntan-
legri ævisögu um blökkumannaleið-
togann, Og múrarnir hrundu, And
the Walls came tumbling down. Höf-
undurinn, séra Ralph Abernathy,
sem var einn nánasti samstarfsmað-
ur Kings, lýsir í bókinni atburðum
sem áttu sér stað kvöldið áður en
King var myrtur í Memphis-borg 4.
apríl 1968.
Abernathy segir meðal annars að
hann, King og félagi þeirra beggja
hafí að kvöldlagi farið í heimsókn til
vinkonu þeirra. King og konan hafi
ekki komið út úr svefnherbergi kon-
unnar fyrr en klukkan var að ganga
tvö að nóttu. Skömmu síðar hafi
blökkumannaleiðtoginn hitt vinkonu
sína, þingkonu frá Kentucky-ríki, á
Lorraine-gistihúsinu, þar sem King
var seinna myrtur. Abernathy segir
í bók sinni að King hafi ekki komið
út úr herbergjum þeim sem þeir
deildu með sér á gistihúsinu fyrr en
eftir klukkan sjö um morguninn.
Nokkru síðar var Abernathy beð-
inn um að miðla málum í deilu sem
reis á milli Kings og ungrar konu
er hann þekkti náið. King hrópaði
að konunni og „barði hana svo hún
kastaðist eftir rúminu“, segir Abem-
athy. í bók sinni. % .
Abernathy segir að markmið sitt
með bókinni sé að lýsa „veikleika
vinar míns fyrir konum“ í þeim til-
gangi að „veita hinum látna uppreisn
æru án þess að valda eftirlifendum
of miklum þjáningum". Hann sagði
að King hefði verið fylgjandi „banni
biblíunnar við kynlífi utan hjóna-
bands. En hann átti í erfiðleikum
með að standast freistingarnar."
„... Hann gekk í augun á konum,
jafnvel þótt það væri honum þvert
um geð. Hann var hetja — mesta
hetja vorra tíma — og konur hafa
alltaf laðast að hetjum.“
Benjamin Hooks, leiðtogi Fram-
farasamtaka blökkumanna, NAACP,
hefur fordæmt rit Abemathys. Haf^
segir að bókin sé „glæpsamlega
óábyrgt rit“ og að innihald þess hafi
komið ekkju Kings, Corettu, í mikið
uppnám. „Ég held að hún eigi erfið-
ara með að sætta sig við þessa bók
[en aðrar bækur um meint fram-
hjáhald Kings], vegna þess að höf-
undur hennar er Ralph Abernathy,
sem hefur verið kær vinur fjölskyld-
unnar og trúnaðarmaður hennar allt
sitt líf,“ sagði Hooks.
Til greinahöfunda
Aldrei hefúr meira aðsent efhi
borizt Morgunblaðinu-en nú og
því eru það eindregin tilmæli
ritstjóra blaðsins til þeirra, sem
óska birtingar á greinum, að
þeir stytti mál sitt mjög. Æski-
legt er, að greinar verði að jafn-
aði ekki lengri en 2-3 blöð að
stærð A4 í aðra hverja línu.
Þeir, sem óska birtingar á
lengri greinum, verða beðnir um
að styttaþær. Ef greinaliöfundar-
telja það ekki hægt, geta þeir
búizt við verulegum töfum á birt-
ingu.
Minningar- og
afmælisgreinar
Af sömu ástæðum eru það ein-
dregin tilmæli ritstjóra Morgun-
blaðsins til þeirra, sem rita minn-
ingar- og afmælisgreinar í blaðið,
að reynt verði að forðast endur-
tekningar eins og kostur er, þegar
tvær eða fleiri greinar eru skrifað-
ar um sama einstakling. Þá verða
aðeins leyfðar stuttar tilvitnanir í
áður birt ljóð inni í textanum.
Almennt verður ekki birtur lengri
texti en sem svarar einni blaðsíðu
eða fimm dálkum í blaðinu ásamt
mynd um hvern einstakling. Ef
meira máí berst verður það látið
bíða næsta eða næstu daga.
Ræður
Töluvert er um það, að Morgun-
blaðið sé beðið um að birta ræð-
ur, sem haldnar eru á fundum,
ráðstefnum eða öðrum manna-
mótum. Morgunblaðið mun ekki
geta orðið við slíkum óskum nema
í undantekningartilvikum.
Ritstj.