Morgunblaðið - 22.10.1989, Blaðsíða 35
22.30 Samantekt um kommúnismann i
Austur-Evrópu. Umsjón: Páll HeiðarJóns-
son. Síðari hluti. (Einnig útvarpað á mið-
vikudag kl. 15.03.)
23.10 Kvöldstund í dúr og moll með Knúti
R. Magnússyni.
24.00 Fréttir.
00.10 Samhljómur. Umsjón: Bergljót Har-
aldsdóttir. (Endurtekinn frá morgn'i.)
1.00 Veöurfregnir.
1.10 Næturútvarp á báðum rásum til
morguns.
RÁS2
FM 90,1
7.03 Morgunútvarpið - Vaknið til lífsins!
Leifur Hauksson og Jón Ársæll Þórðarson
hefja daginn með hlustendum.
8.00 Morgunfréttir- Bibba ímálhreinsun.
9.03 Morgunsyrpa. Eva Ásrún Alberts-
dóttir og Áslaug Dóra Eyjólfsdóttir. Stóra
spurningin kl. 9.30, hvunndagsbetjan kl.
9.50, neytendahorn kl. 10.03 og af-
mæliskveðjur kl.
10.30 Bibba í málhreinsun kl. 10.55. (End-
urtekinn úr morgunútvarpi.) Þarfaþing
með Jóhönnu Harðardóttur kl. 11.03.
12.00 Fréttayfirlit. Auglýsingar.
12.20 Hádegisfréttir.
12.45 Umhverfis landið á áttatíu með Gesti
Einari Jónassyni. (Frá Akureyri.)
14.03 Hvað er að gerast? Lísa Pálsdóttir
kynnir allt það helsta sem er að gerast
í menningu, félagslífi og fjölmiðlum.
14.06 Milli mála. Árni Magnússon leikur
nýju lögin. Stóra spurningin. Spurninga-
keppni vinnustaða, stjórnandi og dómari
Flosi Eiriksson kl. 15.03. _
16.03 Dagskrá. Dægurrnálaútvarp. Stefán
Jón Hafstein, Guðrún Gunnarsdóttir, Sig-
urður Þór Salvarsson, Þorsteinn J. Vil-
hjálmsson og Sigurður G. Tómasson.
Kaffispjall og innlit upp úr kl. 16.00. Stór-
mál dagsins á sjötta tímanum. .
18.03 Þjóðarsálin og málið. Ólína Þorvarð-
ardóttir fær þjóðarsálina til liðsinnis í
málrækt.
19.00 Kvöldfréttir.
19.32 Blítt og létt. Gyða Dröfn Tryggvadótt-
ir rabbar við sjómenn og leikur óskalög.
(Einnig útvarpað kl. 3.00 næstu nótt á
nýrri vakt.)
20.30 Útvarp unga fólksins. Við hljóðnem-
ann eru: Sigrún Sigurðardóttir og Oddný
Eir Ævarsdóttir.
21.30 Fræðsluvarp: Lyt og lær. Annar þátt-
ur dönskukennslu á vegum Bréfaskólans
(Einnig útvarpað nk. fimmtudagskvöld á
sama tíma.)
22.07 Bláar nótur. Pétur Grétarsson kynnir
djass og blús. (Úrvali útvarpað aðfgra-
nótt laugardags að loknum fréttum kl.
5.00.)
00.10 i háttinn.
1.00 Næturútvarp á báðum rásum til
morguns.
Fréttir kl. 7.00, 7.30, 8.00, 8.30, 9.00,
10.00, 11.00, 12.00, 12.20, 14.00,
15.00, 16.00, 17.00, 18.00,19.00,22.00
og 24.00.
NÆTURÚTVARPIÐ
1.00 Áfram ísland. Dægurlög flutt af
íslenskum tónlistarmönnum.
2.00 Fréttir.
2.05 Eftirlætislögin. Svanhildur Jakobs-
dóttir spjallar við Jóhann Pétur Sveinsson
sem velur eftirlætislögin sín. (Endurtekinn
þáttur frá þriðjudegi á Rás 1.)
3.00 Blítt og létt. Endurtekinn sjómanna-
þáttur Gyðu Drafnar Tryggvadóttur frá
liðnu kvöldi.
4.00 Fréttir.
4.05 Glefsur. Úr dægurmálaútvarpi mánu-
dagsins.
4.30 Veðurfregnir.
4.40 Á vettvangi. Umsjón: Páll Heiðar
Jónsson og Bjarni Sigtryggsson. (Endur-
tekinn þáttur frá deginum áður á Rás 1.)
5.00 Fréttir af veðri, færð og flugsam-
göngum.
5,01 Lisa var það, heillin. Lísa Pálsdóttir
fjallar um konur i tónlist. (Endurtekið úr-
val frá miðvikudagskvöldi á Rás 2.)
6.00 Fréttir af veðri, færð og flugsam-
göngum.
6.01 Á gallabuxum og gúmmfskóm. Leikin
lög frá sjötta og sjöunda áratugnum.
LANDSHLUT AÚTVARP
ÁRÁS2
8.10-8.30 og 18.03-19.00 Útvarp Noröur-
land.
BYLGJAN
FM 98,9
7.00 Páll Þorsteinsson með morgunþátt.
Fréttir og ýmsar upplýsingar fyrir hlust-
endur, í bland við tónlist. Fréttir kl. 8.00,
9.00 og 10.00.
10.00 Valdís Gunnarsdóttir. Bibba i heims-
reisu kl. 10.30. Fréttir kl. 10.00, 12.00
og 13.00 og 14.00.
14.00 Bjarni Olafur Guðmundsson. Gömlu
lögin, nýju lögin og allt þar. á milli. Óska-
lög og afmæliskveðjur. Fréttir 16.00 og
18.00. Bibba í beimsreisu kl. 17.30.
18.00 Reykjavík síðdegis. Hallgrimur Thor-
steinsson.
20.00 Þorsteinn Ásgeirsson. íþróttadeildin
kemur við sögu, talsmálsliðir og tónlist.
24.00 Næturvakt Bylgjunnar.
RÓT
FM 106,8
9.00 Rótartónar.
10.00 Plötusafnið mitt. Tónlistarþáttur. E.
13.00 Sagan.
13.30 Af vettvangi baráttunnar. E.
15.30 Um rómönsku Ameriku.
16.30 Umrót. Tónlist, fréttir og upplýsingar
um félagslíf.
17.00 Búseti.
18.00 Á mannlegu nótunum. Flokkur
mannsins.
Möá'G’LÍliI ÉÍLÍÐIÐ-
Rás 1:
Haust í
Skírisskógi
þorsteinn f rá Hamri
Hoost l SKJrf$sKé$l
CK<t-Q-»>CK«0^HXK«-0^>CK-
■■I^H í kvöld byijar Þor-
91 30 steinn frá Hamri að
lesa sögu sína Haust
í Skírisskógi á Rás 1. Eins og
nafnið bendir til er hér höfðað
til Hróa hattar og kappa Hans,
Litla Jóns og Vilhjálms skarlats.
En sagan er ekki öll þar sem
hún er séð því að Þorsteinn
notar forn sagnaminni í frásögn
af íslensku nútímalí/i. Hann
nýtir þannig íslenskar þjóðsögur
og erlent efni eftir vild. í fyrsta
lestri kemur við sögu Alo Eddin
sem er ættaður úr ferðasögu
Marco Polos.
Haust í Skírisskógi kom út árið 1980 og verður hún lesin í átta
lestrum á tímum Útvarpssögunnar sunnudags-, mánudags- og þriðju-
dagskvöld kl. 21.30.
Rás 2;
Fræðsluvarp
■■■■ „Lyt og lær“, útvarpskennsla í dönsku fyrir fólk á öllum
90 30 aldri sem vill rifja upp dönskukunnáttu sína og bæta við
■“ sig. Þættirnir verða alls átta, og verða þeir frumfluttir á
mánudagskvöldum kl. 20.30 og endurfluttir á fimmtudögum á sama
tíma. Kennslan tengist nýju béfanámskeiði Bréfaskólans í dönsku
og er hugsuð sem viðbót við það. Hlustendur fá æfingu í framburði
og skilningi á mæltu máli. Auk þess verður ívaf af hljómlist og fróð-
leik um menningu Dana og annarra norðurlandaþjóða. Umsjón með
þáttunum hefur Sigurlína Sveinbjarnardóttir. Námsgögn fást keypt
í Bréfaskólanum, Nóatúni 17, og eru send þaðan í póstkröfu um
allt land.
Stöð 2:
Djassgeggjarar
■■■■ Fjalakötturinn sýnir sovétska gamansöngleikinn Djass-
99 50 gegjarana í kvöld. Söngleikurinn fjallar um hjarðsvein sem
— fær óvænt tækifæri og kemst inn í leiklistarhringiðu
Moskvuborgar. Myndin Jassgeggjarar, sem var gerð 1934, þótti góð
tilbreyting frá hinum hefðbundnu stjórnmálatengdu myndum sem
Sovétmönnum var tamt að gera. Leikstjóri myndarinnar, Grogori
Alexandrov, var' samstarfsmaður Sergei Eisenstein um langt skeið
og aðstoðaði hann við helstu myndir hans t.d. Strike og Battleship.
í aðalhlutverki myndarinnar er Lyubov Orlova sem var fyrsta kvik-
myndastjarna Rússa.
19.00 Unglingaþáttur.
20.00 FÉS — unglingaþáttur. Umsjón Bragi
og Þorgeir.
22.00 5 mín. Nútimatónlist i umsjá Gunn-
ars Grimssonar.
23.30 Rótardraugar. Lesnar draugasögur
fyrir háttinn.
24.00 Næturvakt.
EFFEMM
FM 95,7
7.00 Hörður Arnarson.
9.00 Sigurður Gröndal og Richard Scobie.
11.00 Steingrímur Ólafsson.
13.00 Hörður Arnarson.
15.00 Sigurður Gröndal og Richard Scobie.
17.00 Steingrímur Ólafsson.
19.00 Anna Þorláks.
22.00 Þorsteinn Högni Gunnarsson.
Útrás
16.00 MS
18.00 FB
20.00 MH
22.00 MR
STJARNAN
FM 102,2
7.00 Bjarni Haukur Þórsson. Ungir íslend-
ingar i morgunspjalli.
11.00 Snorri Sturluson. Vinsældarpoppið
og lögin á B-hliðinni. Fréttayfirlit kl. 11.00,
fréttir kl. 12.00 og 14.00.
15.00 Sigurður Helgí Hlöðversson. Nýjasta
tónlistin.
19.00 Stanslaus tónlist. Ekkert kjaftæði.
20.00 Kristófer Helgason.
1.00 Björn Þórir Sigurðsson. Siminn á
Stjörnunni er 622939.
Útvarp Hafnarfjörður
18.00-19.00 Menning á mánudegi. Rætt
við listafólk o.fl.
SVÆÐISUTVARP A RAS 2
8.10— 8.30 Svæðisútvarp Norðurlands.
18.03—19.00 Svæðisútvarp Norðurlands.
Æ, éggleymdi
þindinni minni
Æ, ég gleymdi
þindinni
minni“, segir unga
stúlkan á hvíta tjald-
inu, þegar hún er
komin út að bílnurn,
á leið út að skemmta
sér með elskunni
sinni. Og svo sér
áhorfandinn hana
snúa við til að sækja
þindina sína. Heila-
sellumar taka á
sprett. Spuming
truflar sinnið? Af
hvetju ætli þýðand-
inn hafi, þegar hann
fletti upp í orðabók-
inni sinni enska orð-
inu ' „diaphragm“,
einmitt valið íslenska
orðið þind en ekki
t.d. getnaðarvarnar-
hett.a, sem er sama
orðið á ensku. Raun-
ar úr fleiri merking-
um að velja. Eitthvað
hlýtur að liggja að
baki, þegar stúlku-
kindin verður að hafa
þindina með sér út
að skemmta sér. Til
skilning verður að
reyna að setja sig í
spor þýðandans á
úrslitastundu.
Með því að gleyma hettunni fyrr en þau eru komin heim og
gæti að vísu farið illa. Stúlkan set- pilturinn getur haft að yfirskyni
GÁRUR
eftir E/ínu Pálmadóttur
ið uppi með óvelkomna þungun
með afdrifaríkum afleiðingum. Eða
jafnvel náð sér í alnæmi, eins og
margir af framámönnum íslensku
þjóðarinnar hafa með ábúðarmiklu
augnaráði varað við í myndaaug-
lýsingu, og dáið af því einu að
hafa gleymt hettunni sinni. Að
gleyma þindinni hlýtur þó eftir
þessu að vera ennþá afdrifaríkai'a.
Hveijar ætli að gætu orðið afleið-
ingar þindarleysis á stefnumóti úti
í bæ?
Hvað gerir þindin? Þessi vöðvi,
sem liggur milli brjósthols og kvið-
arhols inni í manni, þ.e. ef hún ligg-
ur ekki eftir heima? Ég fletti því
upp. Við útöndun slaknar á þind-
inni og millirifjavöðvunum, sem
veldur því að brjóstgrindin og lung-
un dragast saman og loftið þrýstist
út. Þegar kyngt er opnast vélindað
og efsti hluti barkans lokast, þann-
ig að fæðan fer ekki niður í öndun-
arveginn. Já, einmitt! Hugsið ykkur
parið sitjandi á fínum veitingastað
og herrann búinn að velja ein-
hverja gómsæta sérrétti handa
elskunni sinni, og svo villist matur-
inn bara ofan í lungun og stúlkan
stendur á öndinni. Ef á að bjarga
henni frá köfnun á staðnum verður
hann að ganga í skrokk á henni
og berja hana í bakið. Þetta hefur
þýðandinn eflaust séð fýrir sér.
Þótt ekki sé það jafn lífshættu-
legt, væri ekkert skemmtilegt að
fá óstöðvandi hiksta þegar verst
gegnir. Þar er þindin að verki.
Þegar pilturinn er búinn að segja
eitthvað afskaplega fallegt við
hana og hún hefur dregið andann
djúpt, þá getur fjárans þindin tekið
snöggan kipp og meira loft sogast
inn. Um leið lokar raddglufan í
barkakýlinu fyrir loftstrauminn og
heyrist þetta sérkennilega hiksta-
hljóð. Gerist einmitt þegar búið er
að erta magann með einhveiju.
Kannski búið að krydda fína mat-
inn meira en maginn á að venjast.
Eða þá að maturinn er of heitur
eða of kaldur. Kannski hafa þau
til hátíðabrigða verið búin að fá sér
ríflegan fordrykk og eftirdrykk.
Þá á þindin það til að taka til sinna
ráða. Hikk! Hikk! Varla hefur stúlk-
unni í bíóinu verið í mun að hafa
slíka þindarskömm með sér á
stefnumótið. Kannski hefur forsjáll
þýðandi hugsað málið lengra. Séð
fyrir sér að hikstinn kæmi ekki
að hræða stúlkuna skyndilega og
rækilega, svo að hún falli örmagna
í fangið á honum. Mjög rómantískt
og eitthvað á 'sig leggjandi fyrir
slík málalok. Nú eða nýta annað
gott og gamalt húsráð við hiksta.
Stúlkan stendur allt í einu á höfði
og drekkur vatn, sýnir með því hve
stælt hún er og að hún stundar vel
sjna heilsurækt. Meira kannski í
stíl við nútímatísku. Ekki gefast
alltaf tækifæri til þess að sýna
sínum heittelskaða afraksturinn af
öllu þessu puði í heilsuræktinni.
Sé þýðandinn ungur á besta aldri,
hefur hann kannski fremut' séð
þetta fyrir sér.
E.t.v. hafa þau hjúin alls ekki
verið að fara út að borða og drekka.
Þau hafa kannski bara ætiað að
skokka saman, sem mjög er í tisku.
Og þá getur þindarvöðvinn eftir
langt og rösklegt hlaup tekið upp
á því að herpast saman og kemur
stingur í síðuna, hlaupastingur. En
það gerist ekki ef maður er þindar-
laus, sem ætla mætti að væri æski
legra við slíkar aðstæður. Svo varla
hefur þýðandinn haft þessa skýr-
ingu í huga, eða hvað? Þó má við
hlaupasting nýta annað húsráð til
að sýna hvað maður er liðugur.
Ku hrekja verkinn á brott að beygja
sig áfram og snerta gólfið með
fingurgómunum.
Þindin er semsagt hið nierkileg-
asta líffæri. Engin furða þótt þýðj,
andanum þyki ófæit að fara þind-
arlaus út með elskunni sinni. Sagt
er afleitt að vera þindarlaus, með
slappa þind eða með gat á þessu
líffæri. Þá á fullur magi það til að
ýtast upp um opið og jafnvel
þrengja að hjartanu. Og manneskj-
an getur fengið bijóstsviða, einmitt
þegar hún legst út af. Þá er súr
magasafinn að renna upp í vélind-
að. Það er.slæmt, því þá geta þess-
ar sterku sýmr í meltingarvökv-
anuni hægt og sígandi verið að
vinna á tönnum og tannholdi og
endað með fólskum tönnum. Gat á
þind geta menn gengið með í ára-
tugi án þess að nokkur læknir viti
af og unnið sitt skemmdarverk.
Það er því ekki að furða þótt ofar-
nefndur þýðandi kvikmyndar hefði
fullan skilning á að unga stúlkan
prúðbúna með piltinum mætti ekki
án þindar sinnar vera. Það er sann-
arlega dýrmætt þegar þýðandi hef-
ur líflegt ímyndunarafl.