Morgunblaðið - 27.10.1989, Page 1

Morgunblaðið - 27.10.1989, Page 1
56 SIÐUR B/C 245. tbl. 77.árg. FOSTUDAGUR 27. OKTOBER 1989 Prentsmiðja Morgunblaðsins Gorbatsjov í Finnlandi: Eldflaugakafbátar Sovétmanna verða fluttir úr Eystrasalti Helsinki. Frá Lars Lundsten, fréttaritara Morgunblaðsins. Reuter. MÍKHAÍL Gorbatsjov Sovétforseti sagði í gær að allir sovéskir eldflaugakafbátar, sem búnir eru langdrægum kjarnorkueldflaug- um, yrðu fluttir úr Eystrasalti fyrir árið 1991. Sovétleiðtoginn minntist hins vegar ekkert á 32 árásarkafbáta í Eystrasalti, sem að áliti vestrænna sérfræðinga eru búnir stýriflaugum með kjarna- odda. Gorbatsjov sagði einnig að Sovétmenn hefðu flutt allar skammdrægar ‘ kjarnorkueldflaugar sínar frá norð-vesturhluta Sovétríkjanna, þannig að ekki yrði hægt að skjóta þeim á skot- mörk í Norður-Evrópu. „Við Sovétmenn hyggjumst halda áfram að útrýma ákveðnum tegundum kjarnorkuvopna í Eystra- salti,“ sagði Sovétforsetinn, sem kom í heimsókn til Finnlands í fyrradag. „Eins og þegar hefur verið skýrt frá höfum við eyðilagt tvo kafbáta af Golf-gerð og hið sama verður gert við þá fjóra kaf- báta, sem eftir eru, fyrir lok næsta árs,“ bætti hann við. Gorbatsjov sagði að kjarnorkuvopn kafbátanna yrðu einnig eyðilögð án þess að ný kæmu í staðinn. Golf-kafbátarnir eru um 30 ára gamlir og eru að renna sitt skeið. Þeir voru fyrst sendir í Eystrasaltið árið 1976. Richard Sharpe, ritstjóri Jane’s Fighting Ships, sagði að sov- .ésk stjórnvöld hefðu skýrt frá því í júlí að Golf-kafbátarnir yrðu eyði- Kommúnist- ar auka fylgi sitt á Spáni Madríd. Reuter. Kommúnistar á Spáni hafa aukið fylgi sitt að undanfornu samkvæmt nýjustu skoðana- könnunum og þykir nú harla óvíst hvort sósíalistaflokkurinn haldi þingmeirihluta sínum. Kosið verður til spænska þingsins á sunnudag og hefur Felipe Gonzales forsætisráð- herra reynt að blása nýju lífi í kosningabaráttuna til að stöðva fylgisaukningu kommúnista. „Eg spyr kommúnista hvort þeir vilji að vinstrisinnar skipti at- kvæðum sínum á milli flokkanna til að hægrimenn geti komist til valda á ný eða tryggi sterkan meirihluta og stuðli að frekari framförum," sagði Gonzales á kosningafundi í fyrrakvöld. Sósíalistaflokkurinn. hefur misst stuðning verkalýðssam- taka vegna deilna innan flokks- ins um verkalýðsmál. Sam- kvæmt skoðanakönnunum vant- ar þó lítið á að flokkurinn fái þau 176 þingsæti sem hann þarf til að halda hreinum meiri- hluta. Fylgi helstu hægri- og mið- flokka virðist hafa haldist óbreytt eða minnkað, ef marka má kannanirnar. Líkur eru á að kommúnistar fái 18 þingsæti en þeir fengu sjö sæti f síðustu kosningum. Sjá: „Sósíalistar stefna . . .“ á bls. 19. lagðir. „Gorbatsjov er aðeins að slá sig til riddara fyrir nokkuð sem varð að gerast hvort sem Vhr. Sovét- menn eiga fjöldann allan af úreltum skipum," sagði ritstjórinn. Gorbatsjov hvatti einnig til auk- innar efnahagssamvinnu austurs og vesturs. Hann sagði að það væri til að mynda hægt með því að stofna þríhliða nefnd sérfræðinga frá Evr- ópubandalaginu (EB), Fríverslunar- bandalagi Evrópu (EFTA) ög Efna- hagsbandalagi Austur-Evrópu (Comecon). Sovétforsetinn fjallaði einnig um málefni Norður-Evrópu almennt. „Við erum reiðubúnir að taka upp bein sambönd við Norðurlandaráð. Við leggjum til að efnt verði til fundar sendinefndar ráðsins og full- trúa Æðsta ráðs Sovétríkjanna. Ennfremur verði haldinn fundur Norðurlandaráðs og fulltrúa frá þjóðþingum sovétlýðvelda og sjálf- stjórnarsvæða í norðurhluta Sov- étríkjanna," sagði Gorbatsjov. Reuter Á fíl um götur Brussel Þessi belgísku hjón fóru um götur Brussel í Belgíu á fíl eftir að hafa verið gefin saman í gær. Þau starfa bæði í fjölleikahúsi. Bresk könnun: Eyðing ózon- lagsins mesta áhyggjuefhið Lundúnum. Daily Telegraph. .FÓLK hefur mestar áhyggjur af eyðingu ózon-lagsins, mun meiri en af kjarnorkustyijöld og fátækt í heiminum, samkvæmt nýrri könnun, sem birt hefur verið á Bretlandi. Næstmesta áhyggjuefni fólks er fátækt og þar á eftir kemur grimmd- arleg meðferð á dýrum. Mengun í ám og höfum veldur fólki einnig áhyggjum en í fimmta sæti er kjarn- orkustyrjöld ef marka má könnunina. Flugsiys á Tævan: Ottast um líf54manna BOEING 737-200 þota flugfélags- ins China Airlines fórst á Tævan í gærmorgun. Að sögn Johns Wheelers, blaðafúlltrúa Boeing- verksmiðjanna, er óttast að allir um borð hafi farist, 47 farþegar og 7 manna áhöfh. Flugvélin var í innanlandsflugi á leið frá Hualien á Austur-Tævan til höfuðborgarinnar Taipei þegar hún rakst á fjallshlíð. Að sögn Reuters- fréttastofunnar hindraði mikil rign- ing björgunarstörf svo ekki var vitað fyrir víst um afdrif þeirra sem um borð voru. Að sögn sjónarvotta kviknaði í flugvélinni um leið og hún rakst á fjallið. Alvarlegur vandi fyrir Thatcher: Lawson hættir vegna ágrein- ings við efnhagsráðgjafann NIGEL Lawson sagði af sér embætti fjármálaráðherra Bretlands í gær. Segir breska útvarpið BBC, að afsögn ráðherrans hafi skapað alvarlegasta stjórnmálavandann fyrir Margaret Thatcher forsætis- ráðherra í tíu ára stjórnaríð hennar. Pundið féll í kauphöllinni í New York og einnig hlutabréf í breskum fyrirtækjum. Er búist við óvissu á fjármálamörkuðum í dag, þótt John Major fráfarandi ut- anríkisráðherra sem nú hefúr tekið við embætti fjármálaráðherra fylgi sömu stefiiu og Lawson. Fjármálaráðherrann sagði af sér vegna ágreinings við sir Alan Walters, efiiahagsráðgjafa Thatcher, um gengisstefhu og tengsl pundsins við evrópska myntkerfið. Sir Alan sem er á fyrirlestraferð í Bandaríkjunum, ræddi við Thatcher í síma og sagði starfi sínu lausu um klukkstund eftir afsögn Lawsons. Sfjórn- arandstaðan telur að Thatcher hafi misst tökin á eigin ráðuneyti og sfjórn efnhagsmála. Hún hefði því fremur átt að hætta en Lawson. Kenneth Baker, formaður breska íhaldsflokksins, sagði í samtali við fréttamann sjónvarpsstöðvarinnar Sky News, að Thatcher hefði sýnt það með skjótum viðbrögðum sínum og ráðstöfun embætta í ráðuneyti sínu, að hún hefði örugga hönd á stjórnvelinum. Hún skipaði John Major fjármálaráðherra en hann var aðstoðarráðherra hjá Lawson áður en hann tók við utanríkisráðuneytinu fyrir þremur mánuðum. Douglas Hurd innanríkisráðherra var skipað- ur utanríkisráðherra í stað Majors en Hurd starfaði í utanríkisráðuneyt- inu áður en hann hóf beina þátttöku í stjórnmálum. David Waddington, sem hefur verið forystumaður þing- flokks íhaldsmanna í neðri deild breska þingsins, var skipaður inn- anríkisráðherra. Sídegis í gær svaraði Thatcher fyrirspurnum í breska þinginu og gagnrýndi Neil Kinnock, leiðtogi Verkamannaflokksins, hana harð- lega fyrir lélega efnahagsstjórn sem ekki yrði betri fyrir þá sök, að fjár- málaráðherrarnir væru tveir, Lawson Nigel Lawson Reuter og sir Alan. Haft er eftir stjórn- málamönnum að Lawson hafi ekki sætt sig við svar forsætisráðherrans, þótt hún hafi lýst yfir því að Lawson ætti stuðning sinn allan. „Ráðgjafar veita ráð en ráðherrar ákveða," sagði hún með áherslu í svari sínu. Þessum umræðum var lokið, þegar Lawson sendi Thatcher bréf, þar sem hann sagðist ekki geta haldið áfram í embætti fjármálaráðherra á meðan Sir Alan væri efnahagsráðgjafi for- sætisráðherrans. „Það er best fyrir ríkisstjórnina að ég segi umsvifalaust af mér,“ segir í bréfinu. „Það er aðeins hægt að ná árangri í efna- hagsmálum þegar fullkominn ein- hugur ríkir á milli forsætisráðherra og fjármálaráðherra og almenningur velkist ekki í vafa um að svo sé,“ skrifaði Lawson ennfremur. í svarbréfi til Lawsons segist Thatcher hafa orðið fyrir vonbrigðum með að hann skuli hafa ákveðið að ganga úr stjórninni „áður en starfi þínu er lokið,“ eins og segir í bréf- inu. Eru þessi orð túlkuð á þann veg að með þeim gefi Thatcher til kynna að Lawson hafi hlaupið undan merkj- úm, en hún segir einnig: „Okkur greinir ekki á í efnahagsmálum í aðalatriðum og efnahagur landsins hefur styrkst stórlega vegna þeirrar stefnu sem við bæði höfum mótað og fylgt.“ Lawson hafði gegnt embætti fy'ár- málaráðherra í sex ár og hefur hann sætt mikilli gagnrýni fyrir að hækka vexti til að stemma stigu við verð- bólgunni. Hann hafði einnig átt í deilum í rúmt ár við Sir Alan um þátttöku Breta í evrópska myntkerf- inu, sem ráðgjafinn lagðist gegn.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.