Morgunblaðið - 27.10.1989, Qupperneq 4
4
MORGUNBLAÐIÖ FÖSTUDAGUR 27. OKTÓBER 1989
Sjötíu ára rithöfundarafinæli Halldórs Laxness:
Akveðið að helga skáldinu
stað í Þjóðarbókhlöðunni
SJÖTÍU ár voru í gær liðin frá
því Barn náttúrunnar, fyrsta
skáldsaga Halldórs Laxness, kom
út. Af því tilefni hefur ríkisstjóra-
in ákveðið að sérstakur staður í
nýju Þjóðarbókhlöðunni verði
helgaður skáldinu og verkum
hans og að fé verði varið til að
safna saman og skrá gögn sem
tengjast rithöfundarferli hans.
Dótturdóttir skáldsins, Auður
Jónsdóttir, afhjúpaði brjóstmynd
af skáldinu á Landsbókasafiii eft-
ir norska listamanninn Nils Aas.
Bókaútgáfan Vaka-Helgafell hef-
ur ákveðið að efna til sérstakrar
kynningar á ævistarfi skáldsins
og í samvinnu við menntamála-
ráðuneytið hefúr verið ákveðið
að efiia til smásagnasamkeppni
í framhaldsskólum landsins.
í ávarpi sem Ólafur Ragnarsson,
bókaútgefandi flutti skáldinu á
Skáldið umkringt frétta- og fjölmiðlamönnum.
Morgunbiaðið/Árni Sæberg
1 f jjl
j r '
Éö •' y. Wi
■]
s.r
- j
Ólafúr Ragnarsson bókaútgefandi færir skáldinu blómvönd í tilefni
af 70 ára rithöfúndarafmælinu.
VEÐUR
í DAG kl. 12.00:* *
Heimild: Veðurstofa Islands
(Byggt á veðurspá kl. 16.15 i gær)
VEÐURHORFUR í DAG, 27. OKTÓBER:
YFIRLIT í GÆR: Við Lófót er 982ja mb lægð á leið norð-austur,
en hægfara 1.000 mb lægð um 300 km vest-suð-vestur af Reykja-
nesi. Kalt verður áfram, einkum norðanlands.
SPÁ: Breytileg átt, gola eða kaldi. Skýjað með köflum og sums
staðar dálítil él við sjávarsíðuna. Kalt verður áfram, einkum norðan-
lands.
VEÐURHORFUR NÆSTU DAGA:
HORFUR Á LAUGARDAG: Hæg breytileg átt og fremur kalt í
veðri. Skúrir eða él á víð og dreif um landið, þó einkum á Norður-
og Austurlandi.
HORFUR Á SUNNUDAG: Vaxandi suðaustanátt og hlýnandi veð-
ur. Slydda og síðan rigning um sunnan- og vestanvert landið en
þurrt norð-austanlands.
TÁKN:
Heiðskírt
a
Léttskýjað
Háffskýjað
Skýjað
Alskýjað
y, Norðan, 4 vindstig:
' Vindörin sýnir vind-
stefnu og fjaðrirnar
vindstyrk, heil fjöður
er 2 vindstig.
/ f f
r r r r Rigning
r r r
* r. *
r * r * Slydda
r * r
* * *
# * * * Snjókoma
* * *
1Q° Hitastig:
10 gráður á Celsius
Skúrir
= Þoka
= Þokumóða
’, ’ Súld
C>0 Mistur
—|- Skafrenningur
Þrumuveður
VEÐUR VÍÐA UM HEIM
kl. 12:00 i gær að ísl. tíma
hiti veður
Akureyri 2 alskýjaö
Reykjavik 3 skýjað
Bergen 8 haglél
Helsinki 8 skur
Kaupmannah. 14 skýjað
Narssarssuaq +7 léttskýjað
Nuuk +2 snjókoma
Osló 12 léttskýjað
Stokkhólmur 11 skýjað
Þórshöfn 7 skúr
Algarve 22 skýjað
Amsterdam 15 rigning
Barcelona 21 léttskýjað
Berlln 16 skýjað
Chlcago 11 þokumóða
Feneyjar 10 þoka
Frankfurt 17 mistur
Glasgow 11 léttskýjað
Hamborg 14 þokumóða
Las Palmas 26 léttskýjað
London 14 rigning
Los Angeles 13 heiðskirt
Lúxemborg 17 skýjað
Madríd 17 skýjað
Malaga 22 alskýjað
Mallorca 24 skýjað
Montreal 11 þoka
New York 13 mistur
Orlando 17 skýjað
Parls 20 léttskýjað
Róm 20 þokumóða
Vín 20 heiðskfrt
Washington 9 þokumóða
Wlnnipeg 6 alskýjað
Forsíða kynningarrits um Sölku Völku, sem
er í undirbúningi.
heimili hans að Gljúfra-
steini í gærmorgun,
sagði hann að það væri
ekki á hverjum degi
sem rithöfundur hefði
tækifæri til þess að
halda upp á sjötugsaf-
mæli fyrstu bókar
sinnar og að þess væru
fá dæmi að frumútgáf-
ur verka hans væru
orðnar nær jafn marg-
ar og höfundarárin.
Það væri með ólíkind-
um hvernig skáldið
hefði á þessu árabili
lagt undir sig heiminn,
en ýerk hans hefðu
verið þýdd á 42 tungu-
mál og komið út í um
400 útgáfum.
Ólafur rifjaði upp að
Halldór hefði verið lið-
lega 17 ára þegar hann gaf út
Bam náttúrunnar á eigin kostnað
með stuðningi móður sinnar. í
blaðadómi hefði Jakob Jóhann
Smári meðal annars sagt um þenn-
an unga höfund að hann grunaði
að hann ætti eftir að auðga íslensk-
ar bókmenntir með góðum skáld-
skap ef honum entist aldur og heilsa
og það hefði sannarlega gengið eft-
ir.
Ólafur vitnaði til orða Halldórs í
þakkarræðu vegna móttöku Nób-
elsverðlaunanna í Stokkhólmi árið
1955: „Ef íslenskt skáld gleymir
upphafi sínu í þjóðdjúpinu þar sem
sagan býr, ef hann missir samband
sitt og skyldu við það líf sem er
aðþrengt, það líf sem hún amma
mín gamla kenndi mér að búa önd-
vegi í huga mér .— þá er frægð
næsta lítils virði; og svo það ham-
ingjulán sem hlýst af fé.“
Skáldið svaraði þeirri spurningu
fréttamanna neitandi hvort ekki
hefði verið erfitt að gefa út bók
fyrir 70 árum. Það hefði fremur
verið komið fyrir honum eins og
'bami, sem þyki gaman að handleika
gullin sín.
Við afhjúpun bijóstmyndar af
skáldinu í anddyri Landsbókasafns,
en þar verður höggmyndin fyrst um
sinn þar til hún flyst í Þjóðarbók-
hlöðuna, sagði Svavar Gestsson,
menntamáíaráðherra, að ríkis-
stjórnin hefði ákveðið að viss staður
í Þjóðarbókhlöðunni yrði helgaður
Halldóri Laxness og þar yrði komið
fyrir ýmsum gögnum sem tengdust
rithöfundarferli hans. Þá hefði einn-
ig veiið ákveðið að fé verði varið
til þess að ýmsum gögnum, svo sem
greinum, bréfum og myndum, auk
handrita, verði safnað saman og
þau skráð. Með þessu vildi ríkis-
stjórnin sýna þakklæti sitt og þjóð-
arinnar. „Halldórs Laxness verður
minnst á íslandi og verka hans
þegar flest annað það sem við erum
að bardúsa í þessu landi verður
löngu gleymt,“ sagði Svavar Gests-
son ennfremur. Finnbogi Guð-
mundsson, landsbókavörður, flutti
einnig ávarp við þetta tækifæri.
Höggmyndin er eftir Norðmann-
inn Nils Aas, sem er einn virtasti
myndhöggvari Norðurlanda og hef-
ur hlotið fjölda viðurkenninga fyrir
list sína. Hann gerði myndina að
eigin frumkvæði og gefur íslend-
ingum höfundarlaun sín.
Vaka-Helgafell hefur ákveðið að
stofna sérstakan bókaklúbb um rit-
verk skáldsins, sem hefur það að
meginmarkmiði að fá nýja lesendur
til þess að njóta skáldverkanria, en
þetta er í fyrsta skipti sem stofnað-
ur er bókaklúbbur um verk eins
höfundar hér á landi. Gefið verður
út kynningarrit mánaðarlega fyrir
félaga, þar sem fjallað verður um
einstök verk skáldsins, feril hans
og vinnubrögð. „Þannig mun Lax-
nessritið verða eins konar leiðarvís-
ir um bókmenntaakur skáldsins og
á grundvelli efnis þess eiga menn
að geta notið verka Nóbelsskáldsins
betur en ella,“ segir meðal annars
í fréttatilkynningu frá bókaútgáf-
unni. Á næstu dögum verður sent
ítarlegt kynningarefni um verk
skáldsins inn á um 60 þúsund heim-
ili í landinu.
Skilafrestur smásagnasam-
keppninnar, sem Vaka-Helgafell og
menntamálaráðuneytið hafa ákveð-
ið að efna til í framhaldsskólunum,
er til 1. febrúar 1990 og er þess
vænst að í tengslum við hana verði
efnt til sérstakrar umfjöllunar um
verk skáldsins í einstökum fram-
haldsskólunum. Jafnframt eru
kennarar hvattir til þess gefa nem-
endum færi á að vinna eins og rit-
höfundar, svo sem kostur er.
Þriggja manna dómnefnd metur
allt aðsent efni og er einn frá Sam-
tökum móðurmálskennara, annar
frá Rithöfundasambandinu og sá
þriðji frá Vöku-Helgafelli. Tíu verð-
laun eru í boði, þau hæstu 25 þús-
und krónur og helstu verk skálds-
ins, auk þess sem skóli vinnings-
hafans fær bókagjöf frá Vöku-
Helgafelli.