Morgunblaðið - 27.10.1989, Blaðsíða 23
MORGUNBLAÐIÐ FOSTUDAGUR 27. OKTOBER 1989
23
Myndlistar-
sýning í
Nýhöfn
VALGERÐUR Bergsdóttir opn-
ar sýningu á verkum síniiin í
Nýhöfn, Hafnarstræti 18, laugar-
daginn 28. október kl. 14.
Valgerður stundaði nám við
Myndlista- og handíðaskóla íslands
1966-69 og 1971-73 og við Statens
kunstindustri- og haandværker-
skole í Ósló 1969-71.
Á sýningunni í Nýhöfn eru stór-
ar blýantsteikningar á pappír, flest-
ar frá þessu ári.
Valgerður hefur haldið nokkrar
einkasýningar, síðast í Galleri
Svart á hvítu, Reykjavík, 1988 og
þar áður í Stúdíói Listasafnsins í
AAbo, Finnlandi, 1983, þar sem
hún var valin teiknari mánaðarins.
Valgerður var fulltrúi íslands á
Norræna teiknitriennalnum í
Svíþjóð í ágúst síðastliðnum. Hún
hefur auk þess tekið þátt í fjölda
samsýninga bæði hér heima og
erlendis.
Valgerður fékk sex mánaða
starfslaun frá íslenska ríkinu á
þessu ári.
Sýningin, sem er sölusýning, er
opin frá kl. 14-18 um helgar og
frá kl. 10-18 virka daga. Henni
lýkur 15. nóvember.
Námskeið í Yoga
og hugleiðslu
ÞESSA helgi mun Sri Chinmoy-
setrið gangast fyrir námskeiði í
yoga og hugleiðslu í Árnagarði.
Námskeiðið er ókeypis og öllum
opið. Það er í sex hlutum og byrjar
fyrsti hlutinn í kvöld, föstudags-
kvöld, kl. 20.
Siðamálafundur
Umræðufúndur um Uknar-
dauða og skilmerki dauða verð-
ur haldinn í Norræna húsinu í
dag, föstudag, kl. 15.00.
Frummælendur verða Örn
Bjarnason og Sigurður Guðmunds-
son. Fundurinn er opinn öllum
læknum og öðrum starfsmönnum
í heilbrigðisþjónustu.
Bókauppboð
Klausturhóla
Klausturhólar Laugavegi 8
efha til bókauppboðs laugardag-
inn 28. október kl. 14. Bækurnar
verða til sýnis á Laugavegi 8,
3. hæð í dag föstudag kl. 13-18.
Á uppboðsskrá kennir margra
grasa, ljóðmæli, fornritaútgáfur,
rit eftir íslenzka höfunda, blöð og
tímarit, sðgubækur, náttúrufræði-
rit og fleira.
ITC fundir
ANNAÐ ráð ITC á íslandi heldur
21. ráðsfund sinn á morgun,
laugardaginn 28. október, í Bol-
ungarvík og þriðja ráðið heldur
sinn fund sama dag á Selfossi.
Á fundinum í Bolungarvík mun
m.a. Soffía Vagnsdóttir, tónlistar-
kennari, flytja fræðslu um tónlist
og Kristjana Milla Thórsteinsson,
þingskapaleiðari II. ráðs, mun vera
með fræðslu um störf dómara í
ræðukeppni. Forseti n. ráðs er
Alexía Gísladóttir.
í öðru ráði ITC eru deildir frá
Reykjavík, Akureyri, Mývatni og
Bolungarvík, Hafnarfirði og
Garðabæ.
Á dagskrá þriðja ráðsfundarins
á Selfossi verða venjuleg félags-
mál, en einnig mun María Grönd-
al, ITC Fífu í Kópavogi, segja frá
landsþingi ITC í Bretlandi si. vor,
Jóna Ingibjörg Jónsdóttir, kyn-
fræðingur, vera með fræðslu og
Emil Thoroddsen frá Iðntækni-
stofnun segja frá námskeiðum sem
haldin hafa verið fyrir konur um
stofnun og rekstur fyrirtækja.
Gestgjafadeild fundarins er IT-
C-deildin Seljur, Selfossi, en III.
ráði ITC á íslandi tilheyra einnig
ITC Stjarna, Rangárþingi, ITC
Embla, Stykkishólmi, ITC Þöll,
Grundarfirði, ITC Ösp, Akranesi,
ITC Fífa, Kópavogi og ITC Mel-
korka, Reykjavík.
Jónína Magnúsdóttir við eitt
verka sinna.
Ninný í Gallerí
List
JONINA Magnúsdóttir, Ninný,
opnar sýningu á verkum sinum
í Gallerí List, Skipholti 50B,
laugardaginn 28. október kl. 15.
Jónína Magnúsdóttir fæddist
1955 í Reykjavík. Hún lauk prófi
frá Myndlista- og handíðaskóla ís-
lands 1978. Hún hefur einnig
stundað nám við Myndlistaskóla
Reykjavíkur og á árunum 1983-
1987 stundaði hún nám hjá dönsku
listakonunni Elly Hoffmann.
Þetta er önnur einkasýning
Jónínu, en hún hefur áður sýnt í
Danmörku. Þá tók hún þátt í IBM-
sýningunni „Myndlistamenn framt-
íðarinnar" á Kjarvalsstöðum 1987.
Á sýningunni eru myndir unnar
á flísar með postulínslitum, olíu á
striga og krít á pappír. Sýningin
verður opin daglega frá kl. 10.30-
18.00, laugardaga og sunnudaga
frá kl. 14-18, til 5. nóvember.
Sýningu Bjargar
að ljúka
Sýningu Bjargar Þorsteinsdóttur
á olíukrítar- og vatnslitamyndum,
sem staðið hefur yfir í sýningarsöl-
um Norræna hússins, lýkur sunnu-
dagskvöldið 29. október. Sýningin
er opin daglega frá klukkan 14-19.
Morgunblaðið/ Úlfar Ágústsson
Pétur Guðmundsson
Pétur í Slunka-
ríki á ísafirði
PÉTUR Guðmundsson, mynd-
listarmaður, opnaði nýlega 4.
einkasýningu sína á ísafírði.
Hann lauk námi frá Myndlistar-
skólarium í Reykjavík 1976.
Flest verkin á sýningunni eru
blýants- og kolateikningar en jafn-
framt spreytir hann sig á krít og
olíukrít. Hann sagði að það væri
nauðsynlegt fyrir myndlistarmann
að sýna og nú væri hann alveg
þokkalega ánægður með þróunina
og vildi leyfa fólki að sjá hvað
væri að gerast.
Sýningunni lýkur sunnudaginn
29. október. - Úlfar.
Síðasta sýning á
Oliver
SÍÐUSTU sýningar á söngleikn-
um Oliver eru nú um helgina.
Sýnt er ðU kvöld kl. 20.00 og
síðdegissýningar á laugardag og
sunnudag kl. 15.
36. og síðasta sýning er á sunnu-
dagskvöldið og er þegar uppselt á
þær sýningar sem eftir eru eins
og verið hefur hingað til. Sýninga-
hlé verður á stóra sviðinu þar til
gamanleikurinn Lítið fjölskyldufyr-
irtæki eftir Alan Ayckbourn verður
frumsýndur 10. nóvember.
Brynja Árnadóttir
Myndlistarsýn-
ing í Bjórhöllinni
BRYNJA Árnadóttir sýnir nú.
pennateikningar í Bjórhöllinni,
sem er nýr veitingastaður í
verslunarhúsinu Gerðubergi.
Brynja, sem er Siglfirðingur, er
með sína fyrstu einkasýningu og
sýnir 25 pennateikningar. Bjór-
höllin er opin frá kl. 18 síðdegis.
Sýningin stendur til 7. nóvember.
Aðalheiður Valgeirsdóttir opnar
sýningu í Ásmundarsal á morg-
un, laugardaginn 28. október.
Aðalheiður sýnir
í Ásmundarsal
AÐALHEIÐUK Valgeirsdóttir
opnar sýningu á grafik og þurr-
krítarmyndum í Ásmundarsal
við Freyjugötu á morgun, iaug-
ardaginn 28. október.
Á sýningunni verða 36 verk, 15
þurrkrítarmyndir og 21 dúkrista.
Verkin eru öll unnin á þessu ári.
Aðalheiður lauk prófí frá Mynd-
lista- og handíðaskóla íslands,
grafíkdeild, 1982. Þetta er fyrsta
einkasýning hennar, en hún hefur
tekið þátt í nokkrum samsýningum.
Sýningin stendur til 12. nóvem-
ber og verður opin frá Wukkan
14-20 alla sýningardagana.
Fiskverð á uppboðsmörkuöum 26. október.
FISKMARKAÐUR hf. í Hafnarfirði
Hæsta Lægsta Meðal- Magn , Heildar-
verð verð verð (lestir) ' verð(kr.)
Þorskur 72,00 49,00 66,62 7,573 504.488
Þorskur(smár) 50,00 50,00 50,00 0,520 25.998
Ýsa 101,00 56,00 82,48 2,538 209.338
Ýsa(smá) 20,00 20,00 20,00 0,025 500
Karfi 29,00 29,00 29,00 0,003 73
Ufsi 30,00 21,00 24,63 0,200 4.914
Steinbitur 75,00 49,00 63,64 1,424 90.592
Langa 38,00 38,00 38,00 0,224 8.493
Lúöa 230,00 110,00 123,07 0,283 34.766
Keila 20,00 19,00 19,66 0,370 7.275
Tindaskata 5,00 5,00 5,00 0,024 120
Lýsa 20,00 20,00 20,00 0,083 1.660
Samtals 66,94 13,272 888.441
f dag verða meðal annars seld 4 tonn af þorski, 10 tonn af ýsu,
70 tonn af karfa, 20-30 tonn af ufsa og óákveðið magn af
steinbít, löngu, lúðu og fleiri tegundum úr Víði HF og bátum.
FAXAMARKAÐUR hf. í Reykjavík
Þorskur
Ýsa
Karfi
Ufsi
Steinbítur
Langa+blál.
Lúða
Sólkoli
Skarkoli
Keila
Skötuselur
Lax
Gellur
Samtals
77,00
93,00
44,00
42,00
50,00
40,00
360,00
65,00
66,00
22,00
165,00
210,00
330,00
45,00
61,00
30,00
36,00
48,00
37,00
50,00
65,00
66,00
22,00
155,00
210,00
330,00
61,87
79,89
37,06
38,05
48,37
39,78
178,66
65,00
66,00
22,00
156,91
210,00
330,00
47,61
17,328
12,911
67,235
17,558
0,867
3,677
1,201
0,1-32
0,067
0,122
0,790
0,103
0,044
123,247
1.072.151
1.031.518
2.491.622
668.094
41.940
146.267
214.575
8.580
4.422
2.684
123.960
21.630
14.520
5.868.115
I dag verða m.a. seld 25 tonn af karfa, 20 tonn af ufsa og
óákv. magn af þorski og ýsu úr Otto N. Þorlákssyni og fleirum.
FISKMARKAÐUR SUÐURNESJA hf.
Þorskur(ósL)
Ýsa(ósL)
Karfi
Ufsi
Steinbítur
Langa(ósL)
Lúöa
Keila
Skata
Skarkoli
Tindaskata
Sild
Lýsa
Samtals
82,50
90,00
38,00
30,00
48,00
55,00
300,00
18,00
88,00
45,00
10,00
10,30
20,00
45,00
40,00
27,50
15,00
15,00
25,00
85,00
10,00
80,00
45,00
10,00
9,36
15,00
64,25
81,44
37,60
19,16
37,18
39,52
230,50
17,10
85,71
45,00
10,00
9,59
18,33
39,57
15,103
17,015
0,578
4,445
0,488
2,056
0,562
1,729
0,170
0,064
0,739
34,790
0,150
77,961
970.410
1.385.771
21.732
85.167
18.144
81.248
129.423
29.566
14.570
2.880
7.390
333.803
2.750
3.085.074
Selt var meðal annars úr Ólafi GK, Þorsteini Glslasyni GK, Reyni
GK, Sigrúnu GK, Mána HF og Jaspisi KE. f dag verður selt
óákveöið magn úr línu- og netabátum.
Arsþing Landsambands hestamannafélaga:
Samkomulag LH við
Eyfirðinga kynnt
Rætt um reiðhöll og hrossarækt
Hestar
Valdimar Kristinsson
SAMKOMULAG hefur náðst
í deilu Landsambands hesta-
mannafélaga og þriggja af
fjórum eyfirsku hestamanna-
félaganna sem gengu úr sam-
tökunum fyrir rúmum tveim-
ur árum. Ekki fengust upp-
lýsingar um efhi samkomu-
lagsins en formaður LH, Kári
Arnórsson, mun kynna það á
ársþingi LH sem hefst í dag
á Hótel Örk í Hveragerði.
£r samkomulagið gert með
fyrirvara um að það verði
samþykkt á ársþinginu. Ef
þingfulltrúar samþykkja
samkomulagið skuldbinda
s^jórnir þeirra þriggja félaga,
sem að samkomulaginu
stóðu, til að leggja fram til-
lögu um inngöngu í LH á
næsta aðalfundi hvers félags
fyrir sig.
Telja verður að þungu fargi
verði af hestamönnum létt ef end-
anlega tekst að leiða þessa deilu
til lykta sem hófst í júlí 1987
þegar þáverandi stjórn LH úthlut-
aði Skagfirðingum landsmótinu
sem haldið verður á næsta ári.
Hestamannafélögin sem standa
að þessu samkomulagi eru Léttir
á Akureyri, Hringur á Dalvík og
Funi í Eyjafirði en Þráinn á
Grenivík og Svalbarðsströnd tók
ekki þátt í þessari samningsgerð.
Fyrir ársþinginu nú liggja
fimmtán tillögur sem er töluvert
færra en verið hefur undanfarin
ár. Reikna má með að samkomu-
lagið við Eyfirðingana verði aðal-
viðburður þingsins en hinsvegar
er líklegt að aðalmálin verði um-
ræður um reiðhöllina og hrossa-
ræktina. Þeir Þorkell Bjarnason
og Kristinn Hugason hrossarækt-
arráðunautar og Ágúst Sigurðs-
son búfræðikandídat munu flytja
erindi undir liðnum „Staða hrossa-
ræktar. Hvert stefnir?" Að erind-
um loknum verður kaffihlé en um
klukkan 16 hefjast umræður um
málefnið. Þá verða einnig með
stutt erindi þeir ólafur Schram
sem mun kynna nýútkomið rit um
reiðleiðir sem hann hefur unnið
fyrir LH. Jónas Kristjánsson rit-
stjóri mun flytja erindi um tölvu-
hesta og alvöruhesta eins og hann
kýs að kalla það.
Iðunn Steinsdóttir
Drekasaga
eftir Iðunni
Steinsdóttur
komin út
ALMENNA bókafélagið hefur gef-
ið út nýja barnabók eftir Iðunni
Steinsdóttur, sem heitir „Dreka-
saga". Teikningar eru eftir Búa
Kristjánsson. Sagan er 64 blaðsíð-
ur og að öllu leyti unnin í prent-
smiðjunni Odda.
Útgáfan tengist meðal annars
yfirstandandi barnabókaviku Félags
íslenskra bókaútgefenda og Ríkisút-
varpsins og verður bókin til sölu í
bókaverslununi með 10% afslætti
meðan á barnabókavikunni stendur.
í fréttatilkynningu frá Almenna
bókafélaginu segir að „Drekasaga"
sé ævintýri um Ónnu litlu sem býr
í Blikabæ og góða drekann vin henn-
ar.
Drekasaga hefur einnig verið gef-
in út í enskri þýðingu Bernards
Scrudders og nefnist á ensku The
Good Dragon.