Morgunblaðið - 27.10.1989, Side 24

Morgunblaðið - 27.10.1989, Side 24
24 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 27. OKTÓBER 1989 Aðalfundur Utvegsmannafélags Norðurlands: Beygur í mönnum vegna hugsanlegs aflasamdráttar - segir Sverrir Leósson formaður KVOTAMÁL og drög að frumvarpi til laga um stjórn fiskveiða voru mikið til umræðu á aðalfundi Útvegsmannafélags Norður- lands sem var haldinn á Hótel KEA í gær. Á fundinum var kosin stjórn félagsins og var sú eldri endurkjörin og auk þess voru kosnir 40 fúlltrúar á aðalfúnd LÍÚ sem haldinn verður í Iteykjavík í næsta mánuði. Á fundinn kom Sveinn Hjörtur Hjartarson hagfræðingur LIÚ og skýrði fyrir fundarmönnum hver áhrif virðisaukaskatturinn muni hafa, en Sverrir Leósson formaður Útvegsmannafélagsins sagði að menn hefðu ekki tjáð sig stíft um það mál á fundinum. „Menn hafa iíIMéíí á þessu misjafnar skoðanir, en við viljum skoða þetta betur áður en við segjum álit okkar. Það er hins vegar ljóst að skatturinn mun hafa í för með sér talsverða viðbótar- vinnu,“ sagði Sverrir. Kristján Ragnarsson formaður LÍÚ ræddi drög að frumvarpi til laga um stjórn fiskveiða. Sverrir sagði norðlenska útvégsmenn ekki hafa verið ósátta við frumvarps- drögin. „Miðað við það ástand sem ríkir í þjóðfélaginu telja menn frumvarpið nokkuð viðunandi." Kvótamálin voru mikið rædd á fundinum og sagði Sverrir að beygur væri í mönnum ef enn frek- ari aflasamdráttur kæmi til. „Það er talað um skerðingu, en ekki er enn ljóst hversu mikill samdráttur- inn verður. Það var óneitanlega beygur í mönnum vegna þessa,“ sagði Sverrir. Stjórn Útvegsmannafélags Norðurlands var endurkjörin, for- maður er Sverrir Leósson á Akur- eyri, en aðrir í stjórn eru Kristján Ásgeirsson, Húsavík, Valdimar Kjartansson, Hauganesi, Svavar Magnússon, Ólafsfirði, og Sveinn Ingólfsson, Skagaströnd. , Morgunblaðið/Rúnar Þór Útvegsmannafélag Norðurlands hélt aðalfúnd sinn í gær og þar skýrði Sveinn Hjörtur Hjartarson hagfræðingur LÍÚ áhrif virðisauka- skattsins fyrir fúndarmönnum, en á myndinni má sjá þá blaða í gögn- um þar um. Laugardagskvöld: Austnrlenskt OIlu starfsfólki Vöruhúss kvöld Uppselt fyrir matargesti. KE A var sagt upp störfum Húsið opnað kl. 23.00. Rekstur verslananna verður endurskipulagður til að ná fram hagræðingu Hinfrábæra hljómsveit Ingimars Eydal leikur fyrir dansi. Hótel KEA Þú svalar lestrarþörf dagsins ájjídum Moggans! ' höndum daglega stjóm. Einnig er í tillögunum gert ráð fyrir breyttu vöraframboði og enduskipulagn- ingu á flestum þáttum í starfsemi Vöruhússins. Til að ná settum markmiðum reyndist óhjákvæmilegt að segja öllum starfsmönnum Vöruhúss KEA upp störfum og taka upp- sagnirnar gildi frá og með 1. nóv- ember. í fréttatilkynningu frá kaupfélagsstjóra kemur fram að starfsmannahald Kaupfélags Ey- firðinga muni leitast við að útvega þeim atvinnu, sem ekki hljóta end- urráðningu hjá Vörahúsinu. Stefnt er að því að fyrir lok nóvember- mánaðar verði núverandi starfs- mönnum gerð grein fyrir hveijir verði endurráðnir. Starfsmönnum verður fækkað, en það er ein af forsendunum fyrir hagræðingu í rekstrinum. Næstu vikur verður unnið að frekari útfærslu á tillögum starfs- hópsins. Það var mikið um dýrðir á leikskólanum Iðavelli á Akureyri þegar haldið var upp á 30 ára afmæli hans nýlega. Upphaflega Iét Barnavemdarfélag Akureyrar byggja húsið, en árið 1975 var Akureyrarbæ gefið húsið og hefur rekið þar barnaheimili síðan. Afmælisveislur voru haldnar bæði fyrir og eftir hádegi og skemmtu krakkarnir sér hið besta. Foreldrafélag leikskólans hélt aðalfund sinn að kvöldi afmælisdagsins og síðan var boðið uppá afmæliskaffi. ÖLLU starfsfólki Vöruhúss Kaupfélags Eyfirðinga var sagt upp störfúm í gær. Rúmlega 30 manns hafa starfað hjá Vöruhúsinu, sem er til húsa við Hafnarstræti 91-95. Þama er um að ræða starfsfólk í sex deildum, járn- og glervörudeild, skódeild, sport- vöru- og ritfangadeild, hljómdeild, herradeild og vefiiaðarvöru- deild. Starfshópur hefúr að undaníornu unnið að endurskipulagn- ingu á rekstri Vöruhúss KEA og helúr hann skilað tillögum sínum. Iðavöllur 30 ára Morgunblaðið/Rúnar Þór Magnús Gauti Gautason kaup- félagsstjóri hélt fund með starfs- fólkinu eftir lokun verslananna í gærkvöld þar sem hann greindi frá uppsögnunum og tillögum starfshópsins varðandi endur- skipulagningu Vörahússins. í þeim tillögum sem lagðar hafa verið fram er m.a. gert ráð fyrir breyttri stjórn á Vörahúsinu, en liður í því er ráðning nýs Vöruhús- stjóra, sem ætlað er að hafa með RJÚPNAVEIÐI ÁNORÐVRLANDI VERB KR. 10.050,- Innifalið m.a.flug, bíll, gisting með morgunmat og veiðileyfi íkjarrivöxnu rjúpnalandi. Allar upplýsingar: Bflaleiga Akureyri, Skeifunni 9, Reykjavík, sfmi 686915 * TÓNLISTARSKÓLINN Á AKUREYRI Hafnarstræti 81, simi 21460 - 21788. Söngkennari Hálft starf söngkennara er laust til umsókn- ar nú þegar. Nánari upplýsingar í síma 96-21788. Skólastjóri.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.