Morgunblaðið - 27.10.1989, Qupperneq 24
24
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 27. OKTÓBER 1989
Aðalfundur Utvegsmannafélags Norðurlands:
Beygur í mönnum vegna
hugsanlegs aflasamdráttar
- segir Sverrir Leósson formaður
KVOTAMÁL og drög að frumvarpi til laga um stjórn fiskveiða
voru mikið til umræðu á aðalfundi Útvegsmannafélags Norður-
lands sem var haldinn á Hótel KEA í gær. Á fundinum var kosin
stjórn félagsins og var sú eldri endurkjörin og auk þess voru
kosnir 40 fúlltrúar á aðalfúnd LÍÚ sem haldinn verður í Iteykjavík
í næsta mánuði.
Á fundinn kom Sveinn Hjörtur
Hjartarson hagfræðingur LIÚ og
skýrði fyrir fundarmönnum hver
áhrif virðisaukaskatturinn muni
hafa, en Sverrir Leósson formaður
Útvegsmannafélagsins sagði að
menn hefðu ekki tjáð sig stíft um
það mál á fundinum. „Menn hafa
iíIMéíí
á þessu misjafnar skoðanir, en við
viljum skoða þetta betur áður en
við segjum álit okkar. Það er hins
vegar ljóst að skatturinn mun hafa
í för með sér talsverða viðbótar-
vinnu,“ sagði Sverrir.
Kristján Ragnarsson formaður
LÍÚ ræddi drög að frumvarpi til
laga um stjórn fiskveiða. Sverrir
sagði norðlenska útvégsmenn ekki
hafa verið ósátta við frumvarps-
drögin. „Miðað við það ástand sem
ríkir í þjóðfélaginu telja menn
frumvarpið nokkuð viðunandi."
Kvótamálin voru mikið rædd á
fundinum og sagði Sverrir að
beygur væri í mönnum ef enn frek-
ari aflasamdráttur kæmi til. „Það
er talað um skerðingu, en ekki er
enn ljóst hversu mikill samdráttur-
inn verður. Það var óneitanlega
beygur í mönnum vegna þessa,“
sagði Sverrir.
Stjórn Útvegsmannafélags
Norðurlands var endurkjörin, for-
maður er Sverrir Leósson á Akur-
eyri, en aðrir í stjórn eru Kristján
Ásgeirsson, Húsavík, Valdimar
Kjartansson, Hauganesi, Svavar
Magnússon, Ólafsfirði, og Sveinn
Ingólfsson, Skagaströnd.
, Morgunblaðið/Rúnar Þór
Útvegsmannafélag Norðurlands hélt aðalfúnd sinn í gær og þar
skýrði Sveinn Hjörtur Hjartarson hagfræðingur LÍÚ áhrif virðisauka-
skattsins fyrir fúndarmönnum, en á myndinni má sjá þá blaða í gögn-
um þar um.
Laugardagskvöld:
Austnrlenskt
OIlu starfsfólki Vöruhúss
kvöld
Uppselt fyrir matargesti.
KE A var sagt upp störfum
Húsið opnað kl. 23.00.
Rekstur verslananna verður endurskipulagður til að ná fram hagræðingu
Hinfrábæra
hljómsveit
Ingimars Eydal
leikur fyrir dansi.
Hótel KEA
Þú svalar lestrarþörf dagsins
ájjídum Moggans! '
höndum daglega stjóm. Einnig er
í tillögunum gert ráð fyrir breyttu
vöraframboði og enduskipulagn-
ingu á flestum þáttum í starfsemi
Vöruhússins.
Til að ná settum markmiðum
reyndist óhjákvæmilegt að segja
öllum starfsmönnum Vöruhúss
KEA upp störfum og taka upp-
sagnirnar gildi frá og með 1. nóv-
ember. í fréttatilkynningu frá
kaupfélagsstjóra kemur fram að
starfsmannahald Kaupfélags Ey-
firðinga muni leitast við að útvega
þeim atvinnu, sem ekki hljóta end-
urráðningu hjá Vörahúsinu. Stefnt
er að því að fyrir lok nóvember-
mánaðar verði núverandi starfs-
mönnum gerð grein fyrir hveijir
verði endurráðnir. Starfsmönnum
verður fækkað, en það er ein af
forsendunum fyrir hagræðingu í
rekstrinum.
Næstu vikur verður unnið að
frekari útfærslu á tillögum starfs-
hópsins.
Það var mikið um dýrðir á leikskólanum Iðavelli á Akureyri þegar haldið var upp á 30 ára afmæli hans
nýlega. Upphaflega Iét Barnavemdarfélag Akureyrar byggja húsið, en árið 1975 var Akureyrarbæ gefið
húsið og hefur rekið þar barnaheimili síðan. Afmælisveislur voru haldnar bæði fyrir og eftir hádegi og
skemmtu krakkarnir sér hið besta. Foreldrafélag leikskólans hélt aðalfund sinn að kvöldi afmælisdagsins
og síðan var boðið uppá afmæliskaffi.
ÖLLU starfsfólki Vöruhúss Kaupfélags Eyfirðinga var sagt upp
störfúm í gær. Rúmlega 30 manns hafa starfað hjá Vöruhúsinu,
sem er til húsa við Hafnarstræti 91-95. Þama er um að ræða
starfsfólk í sex deildum, járn- og glervörudeild, skódeild, sport-
vöru- og ritfangadeild, hljómdeild, herradeild og vefiiaðarvöru-
deild. Starfshópur hefúr að undaníornu unnið að endurskipulagn-
ingu á rekstri Vöruhúss KEA og helúr hann skilað tillögum sínum.
Iðavöllur 30 ára
Morgunblaðið/Rúnar Þór
Magnús Gauti Gautason kaup-
félagsstjóri hélt fund með starfs-
fólkinu eftir lokun verslananna í
gærkvöld þar sem hann greindi
frá uppsögnunum og tillögum
starfshópsins varðandi endur-
skipulagningu Vörahússins.
í þeim tillögum sem lagðar hafa
verið fram er m.a. gert ráð fyrir
breyttri stjórn á Vörahúsinu, en
liður í því er ráðning nýs Vöruhús-
stjóra, sem ætlað er að hafa með
RJÚPNAVEIÐI
ÁNORÐVRLANDI
VERB KR. 10.050,-
Innifalið m.a.flug,
bíll, gisting með
morgunmat og veiðileyfi
íkjarrivöxnu rjúpnalandi.
Allar upplýsingar: Bflaleiga Akureyri,
Skeifunni 9, Reykjavík, sfmi 686915
*
TÓNLISTARSKÓLINN Á AKUREYRI
Hafnarstræti 81, simi 21460 - 21788.
Söngkennari
Hálft starf söngkennara er laust til umsókn-
ar nú þegar.
Nánari upplýsingar í síma 96-21788.
Skólastjóri.