Morgunblaðið - 27.10.1989, Síða 37

Morgunblaðið - 27.10.1989, Síða 37
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 27. OKTÓBER 1989 37 Þessir hringdu . . Um barnavemdarmál Kona hringdi: „ Það birtist nýlega heil opna í Morgunblaðinu um meðferð málleysingja og hvernig fólk fer illa með dýrin. Þetta virðist vera vinsælt umræðuefni og ekkert nýtt að heyra talað um Dyra- verndunarfélag íslands. Þetta er bara þó nokkuð gamalt félag sem sjálfsagt gerir sitt gagn, enda starfar það sjálfstætt en ekki á vegum ríkisins. Hins vegar hefur það dregist úr hömlum að stofna sjálfstætt félag til verndar börn- um sem mörg hver sæta illri meðferð í þjóðfélaginu einmitt af völdum þess opinbera. Hvernig væri að flalla um meðferð þeirra bama sem lenda í kerfinu sem bitbein foreldra sinna. Hver treystir sér til að opna umræðu um barnavemdarmál á íslandi í Morgunblaðinu og skrifa um það nokkrar opnur. Þorir enginn að opna munninn. Ég skora á blaða- menn að taka þessi mál til með- ferðar. Ný bamaverndarlög eru í deigunni og aldrei meiri þörf fyrir umræðu um þessi mál en einmitt nú. Allir em samála um að börnin séu það dýrmætasta sem þjóðin á en ýmsu varðandi meðferð barnavemdarmála á ís- landi þyrfti að fara betur.“ Kettlingur Stálpaður kettlingur fór að heiman frá sér að Sólheimum 25 fyrir nokkm. Hann er svartur með hvíta bringu og maga, hvítar hosur og svartan depil á hö- kunni. Vinsamlegast hringið í síma 686875 eftir kl. 16 ef sést hefur til kisa. Úlpa 12 ára drengur tapaði rauðri Humelúlpu í Hafnarfirði. Finnandi er vinsamlegast beðinn að hringja í síma 54968. Buxur Ástymingar athugið. Ef þið hafið í fórum ykkar svartar galla- buxur nr. 165 (númerið hefði getað dottið af) þá er þeirra sárt saknað. Vinsamlegast hafíð sam- band í síma 53406. Frakki Svartur rykfrakki er í óskil- um. Hann hékk í fatahengi veit- ingarsalar Hótels Loftleiða að kvöldi 21. október. Lyklakippa er í einum vasanum. Eigandinn er beðinn að hringja í síma 53629. Gullhringur Trúlofunarhringur tapaðist 14. október. Finnandi er vinsam- legast beðinn um að hringja í síma 670882. Fundarlaun. Næla Næla sem er eins og laufblað í laginu tapaðist í Sóknarheimil- inu eða þar fyrir utan. Finnandi er vinsamlegast beðinn að hringja í síma 625886. Ákeyrsla Ekið var á grænan Colt sem lagt var við Digranesveg í Kópa-. vogi sunnudagskvöldið 22. októ- ber milli kl. 20 til 24. Sá sem tjóninu olli eða þeir sem urðu vitni að ákeyrslunni eru beðir um að hringja í Mögnu í síma 43189 eða 37260. Dagbók Svört dagbók merkt Pétur Sigurðsson tapaðist fyrir nokkm. Finnandi er vinsamleg- ast beðinn að hringja í síma 74773. Friðum rjúpuna Til Velvakanda. Á hveiju ári hefst hið árlega ijúpnaveiðitímabil. Veiðimenn æða upp um fjöll og firnindi í leit að ijúpu. Og viti menn. Sama er uppi á teningnum ár eftir ár. Einhver veiðimaðurinn villist og hjálpar- sveitir era kallaðar út í leit. En sportinu skal haldið áfram hvað sem það kostar þjóðfélagið. Um hveija helgi yfir ijúpnaveiðitímabilið eru mörg hundrað ijúpur skotnar - ekki af þörf, nei, aðeins vegna sportsins. Hættum drápinu og veljum ann- að í jólamatinn. Að endingu vil ég hvetja alla þá sem fará með þessi mál til að þeir beiti sér fyrir að þessi fallegi fugl verði friðaður en ekki skotinn. Guðný M. Gunnarsdóttir NÝKOMNAR NYJAR, ODYRAR VEGGFLÍSAR Kéranesbraut 106. Slmi 46044 Veitingahúsið Óðinsvé býður nú upp á gómsæta, rammísienska villibráðarrétti. Á matseðlinum má m.a. finna rjúpu, gæs, skarf, hreindýr, svartfugl og hval. VILLIBRÁÐ VIÐ ÓÐINSTORG Þessa daga býður veit- ingahúsið Óðinsvé við Óðinstorg gestum sínum upp á sérstakan villibráð- armatseðil, eins og er við hæfi á þessum tíma árs. f eldhúsinu í Óðinsvéum er fylgst vel með árstíðun- um og þessa daga er verið að matreiða girnilega rétti úr íslenskri villibráð. Á matseðlinum má m.a. finna gæs, skarf, svart- fugl, hreindýr og hina sívinsælu hvalasteik. Ekki má gleyma rjúpunni, en hún verður matreidd á ýmsan nýstárlegan máta, til dæmis heilsteikt. Villibráðarmatseðillinn stendur til boða fimmtu- dagskvöld til sunnudags- kvölds en hádegisverð- argestir geta einnig valið á milli villibráðarrétta á hagstæðu hádegisverði. Þegar líða fer að jólum munu matreiðslumeistar- ar Óðinsvéa síðan bjóða upp á sitt sígilda danska jólahlaðborð, tíunda árið í röð. Auglýsing ÆTTARMOT Ættarmót niðja Agnars Braga Guðmundssonar og Guð- rúnar Sigurðardóttur frá Fremstagili, Langadal, Austur- Húnavatnssýslu, verður haldið í Borgartúni 18, Reykjavík, sunnudaginn 12. rióvember og hefst kl. 15. Þátttaka tilkynnist fyrir 6. nóvember til eftirfarandi aðila: Agnar Hannesson, sími 75034, íris H. Bragadóttir, sími 73198, Þórdís Sigurgeirsdóttir, sími 25874. ssysiu, verour VETRARHJOLBARÐAR Nýir fólksbílahjólbarðar .HANKOOK frá Kóreu. Mjög lágt verð. STÆRÐIR:, 145R12 155R12 135R13 145R13 155R13 165R13 175X13 STÆRÐIR: 175/70R13 185/70R13 175R14 185R14 185/70R14 195/70R14 165R15 Gerið kjarakaup Sendum um allt land BARÐINN, Skútuvogi 2, Reykjavík. Simar 91-30501 og 84844. FROSTMAR HF. Vegna hlutafjáraukningar er til sölu hlutafé í Frostmar hf., sem er framleið- andi tilbúinna fiskrétta. Upplýsingar eru veittar á skrifstofunni, Fiskislóð 88, Rvík, sími 622560 og hjá Kristjáni E. Guðmundssyni í síma 16926 og Árna Þormóðssyni í síma 622326. Stjórn Frostmar hf. T0PPTILB00 Kuldaskór kr. 2.990.- Stærðir: 36-42 Litur: Svartur Efni: Gori-tex Tegund: 54780 Ath.: Gori-texefnið ervatnsheit, lipurtog sterkt. Einnig komu fleiri gerðir. 5% staðgreiðsluafslóttur Póstsendum somdægurs TÖPF KRINGMN KÖHeNH S.689212 VEUUSUND11 --SE0ETHN á&k --------- 21212

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.