Morgunblaðið - 27.10.1989, Page 38
*
38
■MORG:yWSbAfc>IP IÞROI HlRffl()KTÓBKR ip8p:
ÍÞfémR
FOLK
■ TONY Adams, fyrirliði Arse-
nal, skrifaði undir fimm ára samn-
ing við félagið í gær, sem gefur
honum 500 þús. pund í eigin vasa.
hann fær 2000 pund í laun á viku.
■ NOEL Blake, varnarmaður
Leeds, óskaði eftir að vera settur
á sölulista hjá félaginu í gær.
■ BRIAN Clough, framkvæmda-
stjóri Nottingham Forest, skrifaði
undir nýjan tveggja ára samning
■* við félagið í gær. Hann hefur verið
hjá Forest í fimmtán ár, en tuttugu
og eitt ár sem „stjóri" hjá Derby
og Forest.
I PETER Shreeves, John Lyall
og Lawrie McMenemy eru nú orð-
aðir við framkvæmdastjórastöðuna
hjá Reading.
■ SPARTAK frá Moskvu varð
sovéskur meistari í knattspyrnu í
12. sinn. Spartak lék gegn Dyn-
amo Kiev í síðustu umferð á mánu-
daginn og sigraði 2:1 eftir að Ya-
leri Schmarov hafði gert sigur-
markið er tvær mínútur voru komn-
ar fram yfír venjulegan leiktíma.
^ ■ ROBERTO Rojas, markvörður
og fyrirliði landsliðs Chile í knatt-
spyrnu, var dæmdur af FIFA í
lífstíðar knattspyrnubann á mið-
vikudaginn. Auk þess var honum
bannað að koma nálægt knatt-
spymu á einn eða annan hátt í þijá
mánuði og knattspymusamband
Chile var gert að greiða 31.000
dollara (um 1,9 millj. ísl. kr.) í sekt.
Rojas var uppvís að leikaraskap í
; leik Chile og Brasilíu í undan-
keppni HM. Þá fullyrti hann að
hafa orðið fyrir flugeldi og var bor-
inn „meiddur" af velli, en viður-
kenndi hjá FIFA að fiugeldurinn
hefði lent fjarri sér og hann hefði
gert sér upp meiðslin.
■ MEHMED Bazdarevic, lands-
liðsmaður Júgóslavíu í knatt-
spyrnu, var dæmdur í árs bann með
landsliðinu fyrir að hrækja á dómar-
ann í leik Júgóslavíu og Noregs í
HM.
„Erfitt að ganga
fram hjá Gudna
Arsenal leikur gegn Oldham
ENGLANDSMEISTARAR Arse-
nal drógust gegn Oldham í
16-liða úrslitum ensku deildar-
bikarkeppninnar. Leikurinn fer
fram á Boundary Park í Old-
ham.
Tottenham leikur einnig á úti-
velli - gegn Tranmere, sem sló
Millwall út úr keppninni. Dregið var
í gær og varð drátturinn þannig:
Derby County - West Bromwich Albion,
Manchester City - Coventry, Aston Villa
eða West Ham - Middlesbrough eða Wimble-
don, Oldham - Arsenal, Tranmere Rovers
- Tottenham, Swindon eða Bolton - Sout-
hampton, Exeter - Sunderland eða Bour-
nemouth, Crystal Palace eða Nottingham
Forest - Everton.
LÍFIÐ HEFST FTRIR OFAN 90 KM HRABA!
Grínmynd í sérflokki
Sýnd kl. 5-7-9-11
þegar landsliðsþjálfari íslands verður ráðinn," segir Gunnar Sigurðs-
son, stjómarmaður KSÍ og formaður 21 árs landsliðsnefndarinnar
GUÐNI Kjartansson, landsliðs-
þjálfari 21 árs landsíiðsins í
knattspyrnu, er nú sterklega
inni í myndinni sem næsti
landsliðsþjáifari íslands. „Það
verður erfitt að ganga fram hjá
Guðna - eftir þann árangur
sem hann hefur náð með 21
árs landsliðið. Liðið tapaði ekki
nema einum leik í Evrópu-
keppninni. Árangur liðsins er
sá besti sem náðst hefur,“
sagði Gunnar Sigurðsson,
stjórnarmaður Knattspyrnu-
sambands íslands og formaður
21 árs landsliðsnefndarinna.
Strákarnir stóðu sig mjög vel
gegn Vestur-Þjóðveijum. Eins
og gegn Hollendingum léku þeir
eins og þeir sem valdið hafa. Árang-
ur liðsins er glæsilegri þegar að því
er gáð að keppnistímabilinu á ís-
landi lauk fyrir nær tveimur mánuð-
um,“ sagði Gunnar.
Leikmenn íslenska Iiðsins voru
undir smásjánni í Saarbrúcken.
„Það var varla hægt að þverfóta
fyrir „njósnurum" frá Hollandi,
Oft er rætt um dómara og
frammistöðu þeirra á Ieikvell-
inum og hafa menn þá oft mismun-
andi skoðanir. Núna í vetur er ætl-
unin að vera með stuttar greinar.
hér í Morgunblaðinu á þriðjudögum,
þar sem farið verður yfir ýmislegt
varðandi leikreglur og skýrð atriði
sem upp kunna að koma, lesendum
til glöggvunar.
Þá verða einnig kynntar þær
skýringar við leikreglurnar sem tek-
ið hafa gildi síðan í fyrra, en sjálfar
leikreglurnar eru óbreyttar. Mönn-
um til glöggvunar, þá er rétt að
skýra frá því, að leikreglum í hand-
knattleik má aðeins breyta á íjög-
urra ára fresti, þ.e. á árinu eftir
Ólympíuleika, sem sagt næsta
breyting er ekki leyfð fyrr en árið
1993 og tækju þær breytingar þá
gildi 1. ágúst það ár.
Áður en farið verður í skýringar
og leikreglur, er rétt að skýra ör-
stutt frá því hvernig dómaramálum
er háttað hér á landi.
Dómaranefnd HSÍ, sem skipuð
er 3 mönnum, er æðsti aðili innan-
lands um túlkun leikreglna. Hún
hefur einnigyfirumsjón með mennt-
un dómara, bæði nýliða sem og
þeirra sem eru starfandi. Þá hefur
nefndin einnig öll erlend samskipti
á sinni könnu.
Handknattleiksdómarasamband
íslands (HDSÍ), sem er samtök allra
dómara í handknattleik, vinnur með
dómaranefnd HSI við námskeiða-
hald og endurmenntun dómara,
enda skipar hún einn nefndarmanna
í dómaranefnd. HDSÍ hefur einnig
á sinni könnu skráningu á dómurum
og sér um málefni dómara og gæt-
ir að réttindum dómarar.
Dómaranefndir HSÍ og HDSÍ
tilnefna hvor um sig einn mann og
sjá þeir um að raða dómurum á
leiki. Þeir leggja til grundvallar það
álit sem eftirlitsdómarar gefa á
dómurum og hvernig dómarar hafa
staðið sig í bæði skriflegum og
líkamlegum prófum. Dómaranefnd
sér annars um að skipuleggja starf
eftirlitsmanna og fær sendar skýrsl-
ur frá þeim um frammistöðu dómar-
anna. Flestir eftirlitsmannanna eru
fyrrverandi milliríkja- eða fyrstu-
deildardómarar eða menn sem hafa
verið innan handknattleiksins í
fjölda ára, bæði sem leikmenn
og/eða þjálfarar.
Það er von okkar að þessar grein-
ar geti skýrt ýmislegt, sem vefst
fyrir mönnum í sambandi við leik-
reglur og dómgæslu, og ef ein-
hveijir hafa áhuga, þá er þeim vel-
komið að senda inn fyrirspumir til
Morgunblaðsins merktar „Morgun-
blaðið, íþróttir — Dómarahornið"
og mun ég þá koma með skýringar
svo fljótt sem auðið er.
Með kveðju.
Dómaranefnd HSÍ
Kjartan K. Steinbach formaður
Guðni Kjartansson.
Melody anderson
Peter Boyle
DONNA DIXON
JOHN CANDY
JOE FLAHERTY
Eugene LEVY
tim matheson
Brooke Shields
as Brooke Shields
IHX
Belgíu, Noregi og V-Þýskalandi.
Ég ræddi við Hannes Löhr, fyrrum
leikmann með Köln og þjálfara
v-þýska ólympíulandsliðsins, eftir
leikinn og lýsti hann hrifningu á
leikmönnum íslenska liðsins,“ sagði
Gunnar.
„Ég sé ekki annað en Guðna
verði boðið landsliðsþjálfarastarf-
ið,“ sagði Gunnar. Guðni er ekki
ókunnugur íslenska landsliðinu.
Hann var fyrirliði íslands á árum
áður og þá hefur hann náð bestum
árangri sem landsliðsþjálfari. ís-
lenska landsliðið lék fimmtán leiki
undir hans stjórn 1980 og 1981.
Fimm unnust, fjórum sinnum varð
jafntefli og sex leikir töpuðust.
Árangur er 46,6%. Landsliðið skor-
aði 22 mörk, en fékk á sig 31. '•
Guðni tók við landsliðinu í sumar
þegar Siegfried Held hætti og
stjórnaði liðinu til sigurs, 2:1, gegn
Tyrkjum.
Leikreglum
má aðeins
breytaá
fjögurra
ára f resti
Rúnar Kristinsson.
Rúnar á
OldTrafford
Rúnar Kristinsson, sem hefur
verið hjá enska liðinu Liverþool
undanfarnar tvær vikur, gerir ráð
fyrir að leika tvo leiki með varaliði
ensku bikarmeistaranna á næst-
unni. „Ef allt gengur að óskum
verð ég með gegn Manchester
United á Old Trafford 4. nóvember
og síðan á Anfield 7. nóvember
gegn Notts County,“ sagði Rúnar
við Morgunblaðið. Rúnar lék með
íslenska 21 árs landsliðinu í Saar-
briicken og hélt þaðan aftur til Li-
verpool í gær.
HANDBOLTI
IMorrænn þjálfaraskóli?
Stefnt er að því að koma á norrænum þjáifaraskóla í hand-
knattleik. Fulitrúar Norðurlandaþjóðanna ræddu það á fundi
Evrópuþjóða á Kýpur um helgina, og er stefnt að því að fyrstu
„kennslustundirnar“ fari fram í Danmörku á vori komanda, nánar
tiltekið í maí. Rætt var um að hver Norðurlandaþjóð sendi 10 þjálf-
ara; frá 1. deildarfélögum og landsliðsþjálfara. í framhaldi af þessu
er stefnt að því að halda slíkt námskeið annað hvert ár, í viku til
tíu daga í senn. __________________
KNATTSPYRNA / LANDSLIÐIÐ
KNATTSPYRNA / ENGLAND
DOMARAHORNIÐ
ENGLAND