Morgunblaðið - 03.11.1989, Side 1
56 SIÐUR B/C
mrgmilitiifrifr
STOFNAÐ 1913
251. tbl. 77. árg.
FOSTUDAGUR 3. NOVEMBER 1989
Prentsmiðja Morgunblaðsins
Kambódía:
Bardagar ógna lífi
tug’þúsunda manna
Bangkok. Reuter.
Tugþúsundir óbreyttra borgara eru í lífshættu vegna bardaga sem
geisað hafa í Norðvestur-Kambódíu frá því framrás skæruliða hófst
þar fyrir fímm vikum, að því er sjónarvottar sögðu í gær.
Reuter
Þessi Austur-Þjóðverji beið í gær fyrir utan vestur-þýska sendiráðið í Prag í Tékkóslóvakíu með börnin
sín tvö en 1.300 landar hans voru þá í húsinu eða á sendiráðslóðinni. Var búist við, að flóttafólkinu ætti
eftir að fjiilga mikið enda liefur bannið við feröum Austur-Þjóðverja til Tékkóslóvakíu verið afnumið.
Hreinsanir samfara aukn-
um kröfum um umbætur
Vesturlandabúar, sem verið hafa
á svæðinu, sögðu að fjölmargir íbúar
þorpa, sem setið er um, hefðu beðið
bana í stórskotaárásum stjórnar-
hersins og skæruliða. Skrifstofa
fylgismanna Norodoms Sihanouks
prins í Bangkok gaf í gær út yfirlýs-
ingu þar sem fordæmdar voru árás-
ir stjórnarhersins á bæinn Thma
Pouk, sem skæruliðar Rauðra
khmera náðu á sitt vald í byijun
Ungverjaland:
Vilja ger-
astjafii-
aðarmenn
Búdapest. Reuter.
Ungverski sósíalistaflokkurinn
(HSP), sem stofnaður var á flokks-
þingi Kommúnistaflokks Ung-
veijalands 7. október síðastliðinn,
um leið og starfsemi kommúnista-
flokksins var lögð niður, hefúr
sótt um aðild að Alþjóðasambandi
jafhaðarmanna.
„Ég á von á því, að HSP fái inn-
an skamms aðild að Alþjóðasam-
bandi jafnaðarmanna," var haft eftir
Rezso Nyers, formanni flokksins,
áður en hann hélt til Danmerkur í
boði danskra jafnaðarmanna; í al-
þjóðasambandinu eru flokkar úr öll-
um heimsálfum, en enginn austur-
evrópskur.
október. Er haft eftir bæjarbúum
að 15 óbreyttir borgarar hefðu látist
í árásunum en þar og víðar hafast
óbreyttir borgarar við í gryfjum, sem
grafnar hafa verið í jörðina.
Þeim óbreyttu borgurum fjölgar
sífellt sem eru fengnir til að gerast
burðarmenn fyrir stjórnarherinn og
skæruliða og þurfa þeir oft að bera
þungar byrðar yfir jarðsprengna-
svæði til vígstöðvanna. Börnin í
þorpunum leika sér að rifflum sem
ekki eru minni en þau sjálf.
Mikil harka hefur færst í bardag-
ana frá því Kínveijar, Sovétmenn,
Víetnamar, Bandaríkjamenn, Tæ-
lendingar og Singapore-búar byij-
uðu að dæla vopnum í stríðsaðiljana
en sókn skæruliða gegn stjórnar-
hernum hófst af fullum þunga fyrir
fimm vikum.
Austur-Þýskaland:
Austur-Berlín, Varsjá, Prag. Reuter.
FJÓRIR háttsettir valdanienn og
skjólstæðingar Erichs Honeck-
ers, fyrrum leiðtoga austur-þýska
kommúnistaflokksins, sögðu af
sér embætti í gær og eiginkonu
Honeckers var vikið frá sem
menntamálaráðherra. Virðast
miklar hreinsanir eiga sér stað í
stjórnkerfinu og er búist við veru-
legum breytingum á sljórnmála-
ráðinu í næstu viku. Egon Krenz,
leiðtogi kommúnistaflokksins, er
nú í opinberri heimsókn í Póll-
andi en á sama tíma flykkjast
landar hans enn á ný í vestur-
þýska sendiráðið í Prag í von um
að fá að flytjast vestur. Þá efridu
tugþúsundir manna til mótmæla
í Austur-Berlín í gærkvöld.
Margot Honecker, eiginkonu
Erichs Honeckers, var í gær vikið
frá sem menntamálaráðherra en í
því embætti hafði hún setið allt frá
árinu 1963. Þá sögðu af sér þeir
Gerald Götting og Heinrich Ho-
mann, formenn Kristilega demó-
krataflokksins og Þjóðlega demó-
kratafiokksins, tveggja fylgiflokka
kommúnista, og Herbert Ziegen-
hahn og Hans Albrecht, formenn
flokksins í Gera og Suhl, tveimur
af 15 héruðum Austur-Þýskalands.
Virðist vefa að því stefnt að víkja
burt sem flestum skjólstæðingum
Honeckers og búist er við, að veru-
leg uppstokkun verði gerð á stjórn-
málaráðinu í næstu viku.
Önnur tíðindi frá Austur-Þýska-
landi benda til, að kröfunni um lýð-
ræðislegar umbætur vaxi ásmegin
dag frá degi. Markus Wolf, fyrrum
yfirmaður leyniþjónustunnar, krafð-
ist þess í gær, að þingið hefði beint
eftirlit með stofnuninni og í vikurit-
inu Wochenpost var 21 árs gömul
þögn rofin með lofgrein um „Vorið
í Prag“. Þá sagði öll stjórnin í tón-
skáldafélaginu af sér vegna kröfu
almennra félagsmanna og er búist
við svipuðum atburdum í félögum
annarra lista- og menntamanna.
Egon Krenz, leiðtogi austur-
þýska kommúnistaflokksins, kom í-
gær í tveggja daga heimsókn til.
Póllands og sagði að loknum viðræð-
um við Tadeusz Mazowiecki forsæt-
isráðherra, að hann gæti margt
lært af þeim breytingum, sem nú
ættu sér stað í Póllandi.
Ríkisvaldið býður kennurum að
mánaðarlaun allra verði 17.200
sænskar krónur (162.000 ísl.kr.)
en þau eru nú 14.500 s.kr. Kennslu-
skylda verði 26 stundir á viku og
viðveruskyldan verði notuð til und-
irbúnings og viðræðna við nemend-
ur.
Háskólamenntaðir kennarar hafa
mótmælt þessum tillögum af mik-
illi heift en þeir hafa haft lægri
Um 1.300 Austur-Þjóðveijar
höfðu um miðjan dag í gær leitað
hælis í vestur-þýska sendiráðinu í
Prag og fjölgaði stöðugt. Banni við
ferðum þeirra til Tékkóslóvakíu var
aflétt á miðnætti aðfaranótt mið-
vikudagsins og fyrsta sólarhringinn
fóru 8.000 manns yfir landamærin.
Samtímis þessu efndu um 50.000
manns til mótmæla í Austur-Berlín
þar sem krafist var hreinskilinna
viðræðna um kreppuna í austur-
þýsku samfélagi.
kennsluskyldu en aðrir kennarar og
hærri laun eftir ákveðinn starfsald-
ur. Tillögur ríkisins eru í andstöðu
við þróun á vinnumarkaði í Svíþjóð
að undanförnu sem hefur verið í
þá átt að auka launamun og bjóða
ólík atvinnuskilyrði á ýmsum svið-
um. Háskólamenntaðir kennarar
segjast hafa efni á að vera í verk-
falli þar til kröfur þeirra um sérstök
kjör verða samþykktar.
Nýja Sjáland:
Sir Muldoon í
nýju hlutverki
Wejlington. Reuter.
SIR Robert Muldoon, fyrrverandi forsætisráðherra á Nýja Sjá-
landi, er kunnur fyrir að binda ekki bagga sína sömu hnútum
og samferðamennirnir en nú hefur hann þó brugðið sér í gervi,
sem flestum stjórnmálamönnum fyndist líklega best að sneiða
hjá. Sem „Robula greifí", kríthvítur í framan, með svart slá og
allur hinn blóðsugulegasti, ætlar hann að taka að sér að kynna
sígildar hryllingsmyndir í sjónvarpinu.
Muldoon,
sem er 68 ára
gamall, varð að
sjá á bak for-
sætisráðherra-
embættinu eft-
ir kosningaó-
sigur árið 1984
en síðan hefur
hann gert hos- Sir Muldoon
ur sínar grænar fyrir leiklistar-
gyðjunni og með ágætum árangri
að sögn. Hann hefur komið fram
í hryllingsmynd og í nýsjálenska
sjónvaipsþættinum „Terry og
vopnasmyglararnir“ fór hann
með hlutverk leyniþjónustufor-
ingja. Þar að auki hefur hann
sést í sjónvarpsauglýsingum og
einkum þar sem kynnt eru garð-
verkfæri hvers konar en ofan á
allt annað er Muldoon heims-
kunnur sérfræðingur í liljurækt.
Svo má ekki gleyma því, að
Muldoon situr enn á þingi fyrir
Þjóðarflokkinn.
„Ég er kominn á þann aldur,
að ég leyfi mér að gera það, sem
ég hef gaman af,“ segir Muldoon,
„og ég held, að flestum líki það
bara vel, sérstaklega þó barna-
börnunum mínum.“
Sænskir kennar-
ar boða verkfall
Slokkliólmi. Frá Erik Lidcn, fréttaritara Morgunblaðsins.
ALLT bendir nú til þessa að 250 þúsund sænskir nemendur verði
af kennslu á miðvikudag í næstu viku. Háskólamenntaðir kennarar
hafa ákveðið að hefja þá verkfall til að mótmæla tilboði ríkisins um
nýjan samning þar sem kveðið er á um sömu laun til handa öllum
kennurum, háskólamenntuðum sem öðrum. Einnig vill ríkið að við-
veruskylda verði samanlagt átta stundir á viku í skólunum, auk
kennslunnar sjálfrar.