Morgunblaðið - 16.11.1989, Qupperneq 17
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 16. NÓVEMBER 1989
G 17-
VELUKANDI
SVAR/R í SÍMA
691282KL. 10-12
FRÁ MÁNUDEGI
TIL FCSTUDAGS
UUÉOUUUitíUUk
Rjúpan ekki friðhelg
Til Velvakanda.
Það hefur sjaldan brugðist frá
því að ég fór að lesa blöð að um
leið og ijúpnaveiðitíminn fer í hönd
taka að birtast greinar í blöðum
eftir hina og þessa sem mótmæla
rjúpnaveiðum. Þessu fólki er það
sameiginlegt að geta engin rök
fært fyrir sínu máli. Hvers vegna
ætti ijúpan að vera friðhelg frekar
en aðrir fuglar eða dýr sem við
höfum til matar? Enginn taiar um
friðun kjúklinga eða fjargviðrast
yfir að þeim skuli slátrað. Þessir
svokölluðu dýravinir snæða.þá sjálf-
sagt með bestu lyst. Þetta er tvöfalt
siðgæði og ekkert annað.
I Biblíunni segir að maðurinn sé
herra dýranna og honum er gefið
allt vald á þeim. Það er ekki annað
en vitleya að íjúpan þjáist þegar
hún verður fyrir skoti. Hún stein-
drepst og finnur ekkert til. Ég tel
veiðar heilsusamlegt sport og ættu
veiðimenn ekki að láta einhveija
nöldrara eyðileggja fyrir sér
ánægjuna.
Veiðimaður
Málfar fj ölmiðlamanna
Til Velvakanda.
Nú um stundir virðast menn
gera sér grein fyrir að átak þurfi
til varðveislu íslenskrar tungu.
Málfar fjölmiðlamanna hefur mikil
áhrif á daglegt mál hinna, sem
hlusta eða lesa. Þar álít ég að
þurfi heldur betur að taka til hend-
inni, svo oft er þar pottur brotinn.
Ég ætla hér að minnast á ýmsa
málgalla sem eru daglegt brauð í
fjölmiðlum. Ein er málfátæktin.
Menn staglast sífellt á sömu orð-
unum eins og önnur séu ekki til.
Hætta er á að þannig verði orðum
útrýmt úr málinu. Sífellt er sagt
„að mínu mati“. Orð eins og álit
og skoðun heyrast ekki. Mér varð
nóg boðið, þegar þingmaður sagði
þrisvar sinnum „að mínu mati“ á
fimm mínútum.
Sú íslenska málvenja, að hafa
fornöfn eftirsett, virðist flestum
gleymd. Ég legg til að menn setja
„matið“ í frysti og fari aftur að
segja „álit mitt“ og „skoðun mín“
og láti bakið og stakkinn fara
sömu leið, og tjalda aftur einföld-
um orðum eins og að hjálpa, styðja
og aðstoða, vera fær um, geta,
hafa tök á. Myndmál er ágæt til-
breyting, en þegar það er ofnotað
og látið útrýma algengum orðum
er of langt gengið. Þannig er með
„græna ljósið“ og „myndina“, sem
nýlega kom hingað frá Danmörku
þar sem allt er „inde í billedet"
Þetta hvort tveggja má nota sem
tilbreytingu en ofnotkun þykir mér
hvimleið. Ég segði heldur að eitt-
hvað sé samfara öðru, að þetta
sé einnig til umræðu o.s.frv.
Mjög hefur færst í vöxt að nota
viðskeytin ,,-lega“ og ,,-legur“ í
öllum mögulegum samböndum. í
sjónvarpsumræðum um samskipti
Vestur- og Austur-Þjóðveija var
sagt: „Þetta reyndi mikið á Aust-
ur-Þjóðveija tilfinningalega séð“.
Þetta þykir mér ömurlegt mál.
Eitthvað reyndi mikið á tilfinning-
ar þeirra.
Sagt var: „Þetta er fjárhagslegt'
og atvinnulegt vandamál." Eg
segði: „Þetta stefnir atvinnu og
fjárhag í vanda.“ Talið var um
„kirkjuleg málefni“. Ég segði:
„Málefni kirkjunnar." í dagblaði
var rætt um „athugun á fylgni við
skattalega aðstöðu“. Ég skil þetta
sem „athugun á áhrifum mismun-
andi skatta“. Þannig mætti lengi
telja.
Nú tala menn s’ífellt um síðustu
viku og síðasta ár. Mér skilst að
síðastur í röð merki, að enginn
komi á eftir. „Þetta voru síðustu
orð hans“. „Síðasti dagur mánað:
arins.“ Á íslensku heitir þetta: „í
viþunni sem leið“ eða „fyrir viku“.
„Árið sem leið“ eða „í fyrra“. Ég
heyri iðulega talað um „stóra“
málara og „stóra" rithöfunda. Ég
vil aðeins nefna við þá sem eru
færari í ensku en íslensku að sami
munur er á „stór“ og „mikill“ eins
og „big“ og „great“. Mikill maður
getur verið lítill en lítill maður
getur aldrei verið stór.
íþróttir ganga yfirleitt í „hrin-
um“. Talað er um jarðskjálftahrin-
ur. Þótt mikið gangi stundum á í
sumum íþróttum, þætti mér
skemmtilegra að tala um „lotur“.
Nota reyndar sumir það orðalag.
í alvarlegri umræðu um málefni
barna þætti mér eiga betur við
að tala um „börn, drengi og stúlk-
ur“ en „krakka, stráka og stelp-
ur“. Það þykir mér ósmekklegt,
og hin orðin virðast verið að týn-
ast úr máli manna. Ég skora á
fjölmiðlamenn að lesa þessar línur
og taka þær til athugunar.
Þórunn Guðmundsdóttir
TONLEIKAR
í ÍSLENSKU ÓPERUNNI
laugardaginn 18. nóvemberkl. 16.00
Elsa Waage
Elsa Waage, kontralt söngkona,
syngur verk eftir: Bach, Brahms, Strauss,
Bowles, Bizet, Sibelius og Grieg
ásamt þekktum íslenskum lögum
við undirleik John Walter, píanó, og
Malgorzata Kiziemska Slawek, selló.
Miðasala í íslensku óperunni milli
kl. 16.00 og 19.00 og við innganginn.
Viðtalstími borgarfulltrúa
Sjálfstæðisflokksins i Reykjavík
Borgarfulltrúar Sjálfstæðisf lokksins
verða til viðtals í Valhöll, Háaleitisbraut 1,
á laugardögum í vetur frá kl. 10-12.
Er þá tekið á móti hvers kyns fyrirspurnum
ogábendingum.
Allir borgarbúar velkomnir.
Laugardaginn 18. nóvember verða til viðtals Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson, í borgarráði,
formaður skipulagsnefndar, varaformaður stjórnar sjúkrastofnana í Reykjavík og í hafn-
arstjórn, og Haraldur Blöndal, formaður umferðarnefndar.
HmiG VE6GSKÍP
riitu iá? vn tim msim
mesti úmlii.
Jerni: Sívm
kr. 98.410,-
Viúartegund: MflGHOHY.
Breidd: 305 cm hæð 218 cm.
Kv
ÍV
Húsgagna*höllin
REYKJAVÍK