Morgunblaðið - 22.11.1989, Blaðsíða 1
56 SIÐUR B/C
267. tbl. 77. árg.____________________MIÐVIKUDAGUR 22. NÓVEMBER 1989 Prentsmiðja Morgunblaðsins
Fyrsti fiindur fulltrúa tékkneskra kommúnista og stjórnarandstæðinga:
Ráðamenn sagðir heita
verulegiim tílslökunum
Rúmlega 200.000 manns kreflast afsagnar flokksleiðtogans í miðborg Prag
— Gorbatsjov segir að hraða verði allsherjar umbótum í Austantjaldsríkjunum
Á þriðja hundrað þúsund manns
komu saman á Wenceslas-torgi
í miðborg Prag í gær og kröfð-
ust þess að leiðtogi tékkneska
kommúnistaflokksins, Milos Ja-
kes, legði niður völd. Á mánu-
dag kröfðust um 200.000 Tékk-
ar hins sama í fjölmennustu
mótmælum í Tékkóslóvakíu frá
árinu 1968 er Sovétmenn bundu
enda á umbótastefhu stjórn-
valda þar með hervaldi.
Prag, París. Reuter.
VLADISLAV Adamec, forsætisráðherra Tékkóslóvakíu, hét því á fundi
með talsmönnum „Vettvangs borgaranna", óháðrar tékkneskrar stjórn-
málahreyfingar, og náms- og listamönnum í gær að gerðar yrðu breyt-
ingar á forystuhlutverki tékkneska kommúnistaflokksins. Heimildar-
maður iíeuters-fréttastofúnnar í Prag, blaðamaðurinn Mihal Horacek,
sagði að á fúndinum hefði einnig komið fram að ráðamenn tékkneskir
væru tilbúnir til að hleypa fulltrúum annarra hópa en kommúnista inn
í ríkisstjórn landsins. Á þriðja hundrað þúsund manns tóku þátt í
mótmælum í miðborg Prag í gær, hinum mestu í borginni í 20 ár.
Krafan var líkt og áður sú að kommúnistar legðu niður völd í landinu.
Þetta er í fyrsta skipti sem fulltrú-
ar yfirvalda í Tékkóslóvakíu ræða
við stjórnarandstæðingg. Mihal
Horacek, sem sat fundinn, sagði að
Adamec hefði lýst sig fylgjandi því
að teknar yrðu upp viðræður við
samtök stjómarandstæðinga þ. á m.
fulltrúa mannréttindasamtakanna
„Charta 77“. Hefði hann og sagt að
gera ætti breytingar á ríkisstjórninni
þannig að þar sætu einnig fulltrúar
ungs fólks og þeirra flokka sem ekki
fylgdu kommúnistum að málum.
Hefði hann og heitið því að gerðar
yrðu breytingar á „forystuhlutverki
kommúnistaflokksins" sem jafnan
hefur verið skilgreint í stjórnarskrám
kommúnistaríkjanna. Þá hefði hann
lýst yfir því að framvegis yrði örygg-
issveitum stjórnvalda ekki sigað á
mótmælendur með þessum orðum:
„Það verða enga blóðsúthellingar og
herlög verða ekki sett.“ Adamec
hefði ennfremur lýst yfir því að það
hefði verið í óþökk stjórnvalda er
ráðist var til atlögu við mótmælendur
í miðborg Prag á föstudagskvöld.
Var þessi yfirlýsing hans í algjörri
mótsögn við tilkynningu yfirvalda frá
því á mánudagskvöld en í henni sagði
að ofbeldisverk öryggissveitanna
hefðu verfð réttlætanleg. Tékkneska
fréttastofan CTK skýrði frá því í
gærmorgun að afráðið hefði verið
að hefja opinbera rannsókn vegna
framferðis liðsmanna öryggissveit-
anna á föstudagskvöld.
Skömmu eftir fund Adamecs og
stjórnarandstæðinga gengu á þriðja
hundrað þúsunda manns í fylkingu
um miðborg Prag. Mannfjöldinn
safnaðist saman á Wenceslas-torgi
og krafðist þess að Milos Jakes, leið-
togi tékkneska kommúnistaflokks-
ins, segði af sér.
Jiri Hajek, sem var utanríkisráð-
herra landsins er hersveitir Sovét-
manna og leppríkja þeirra í Varsjár-
bandalaginu brutu á bak aftur um-
bótastefnu valdhafa í Prag árið 1968,
sagði í viðtali við franska útvarps-
menn í Prag i gær að núverandi ráða-
nienn í Tékkóslóvakíu væru þess
ekki umkomnir að koma á umbótum
í landinu jafnvel þótt þeir vildu það.
Skuggi fortíðarinnar myndi ævinlega
hvíla á þeim.
Míkhaíl Gorbatsjov, Sovétleiðtogi,
sagði í gær að hraða þyrfti umbótum
í Austur-Evrópu. Leiðtogar komm-
únistaríkjanna hefðu metið stöðu
mála ranglega fyrir áratug eða svo
og nú yrði að vinna tapaðan tíma
upp. Ummæli hans voru tekin sem
bein áskorun til leiðtoga Austan-
tjaldsríkjanna að aðlagast breyttum
tímum með því að grípa sem hraðast
til allsheijar umbóta.
Leiðtogar tékkneska kommúnista-
flokksins hótuðu í gær að „koma á
röð og reglu“ í landinu. Litið var á
það sem hótun um að stöðva frekari
mótmælagöngur með hervaldi.
Laxárnar í Noregi að
„deyja“ ein af annarri
Ósló. Frá Kune Timberlid, fréttaritara Morgunblaósins.
Margvíslegir
sjúkdómar
ógna nú laxin-
um í norskum
ám og þar sem
ástandið er al-
varlegast er
hann að verða
aldauða. Að
minnsta kosti
tveir sjúkdó-
manna hafa borist í villta laxinn
með laxi og silungi, sem sloppið
hefúr úr eldiskvíum.
Sníkjudýrið eða agðan
gyrodacylus salaris hefur fundist í
laxi í meira en 30 ám og í mörgum
ám á Vesturlandinu og í Norður-
Noregi er laxinn horfinn eða er að
hverfa af þessum sökum. Leggst
hún fyrst á seiðin og drepur þau
og er svo bráðsmitandi, að einn
sýktur fiskur í ánni smitar allan
stofninn. Agðan, sem þrífst ein-
göngu í fersku vatni, er landlæg í
Svíþjóð en þar drepur hún ekki fisk-
inn.
Kýlapestin (furunkulose) hefur
einnig borist í árnar frá eldisfiski
en talið er, að allt að milljón fiskar
sleppi úr eldisstöðvunum í Noregi
á ári hverju. Er þessi sjúkdómur
orðinn að miklu vandamáli í mörg-
um ám en hann veldur stórum sár-
um á fiskinum, sem síðan drepst.
Nú að undanförnu hefur svo orðið
vart annars sjúkdóms í ám á Vest-
urlandinu, sem líkist kýlapest en
er þó ekki fullgreindur enn.
Reuter
E1 Salvador:
Skæruliðar halda 20
gíslum í lúxushóteli
San Salvador. Reuter.
SKÆRULIÐAR vinstrimanna í E1 Salvador réðust í gærmorgun á
stórt hótel í höfúðborginni, San Salvador, og náðu hluta þess og 20
gíslum á sitt vald. Meðal þeirrá eru fjórir starfsmenn bandaríska
sendiráðsins. Stjórnarherinn umkringdi hótelið strax og fram eftir
degi var ákaft barist við bygginguna.
Um 80 gestir voru í hótelinu, sem
áður tilheyrði Sheraton-hótel-
hringnum, þegar skæruliðarnir réð-
ust inn í það og þar á meðal Joao
Baena, framkvæmdastjóri Samtaka
Ameríkuríkja. Hann er þó ekki
meðal gíslanna 20. Talsmaður hers-
ins í E1 Salvador sagði, að Banda-
ríkjamennirnir væru hugsanlega í
hópi 55 hernaðarráðgjafa, sem
Bandaríkjastjórn hefur sent til
landsins, en talið er, að tveir útlend-
ingar aðrir séu á valdi skærulið-
anna, frá Chile og Guatemala.
Framkvæmdastjóri hótelsins
sagði, að skæruliðarnir væru reiðu-
búnir til samninga við stjórnvöld
en talsmaður hersins tilkynnti, að
unnið væri að björgun gíslanna.
Sagði hann, að herinn réði efri
hæðum byggingarinnar en að það
torveldaði björgunina, að skærulið-
ar hefðu komið fyrir sprengjum í
stigum og lyftum.
Stórsókn skæruliða gegn stjórn-
arhernum í sjálfri höfuðborginni og
víðar í landinu hófst 11. nóvember
sl. og er talið, að síðan hafi að
minnsta kosti 1.300 manns fallið
af liði beggja og enn fleiri særst. Á
mánudag sagði talsmaður stjórnar-
hersins, að sóknin hefði verið brotin
á bak aftur en svo er augljóslega
ekki.
Moskva:
Zajkov settur af
Moskvu. Reuter.
LEV Zajkov var settur af sem formaður Moskvudeildar sovéska
kommúnistaflokksins í gær, að sögn talsmanns fiokksins. í stað Zaj-
kovs, sem þykir harðlinumaður, var Júri Prokofjev skipaður flokks-
leiðtogi í Moskvu.
Prokofjev er talinn úmbótasinni
og líklegri til að falla Moskvubúum
í geð, en þeir höfðu andúð á Zajkov
vegna harðlínustefnu hans. Talið
er að mannaskiptin tengist þeirri
fyrirætlan Gorbatsjovs að leiðtogar
hinna ýmsu flokksdeilda verði í
framboði við bæjar- og sveitar-
stjórnakosningar í mars nk.
Zajkov var skipaður flokksleið-
togi í Moskvu fyrir tveimur árum
í stað Borís Jeltsíns, sem hafði í
frammi harða gagnrýni þar eð hon-
um þóttu umbætur, sem boðaðar
voru með perestrojku Míkhaíls Gor-
batsjovs, Sovétleiðtoga, ganga of
hægt fyrir sig. Zajkov tók sæti í
stjórnmálaráði sovéska kommún-
istaflokksins í mars 1986. Talið er
að hann vermi það sæti ekki öllu
lengur.