Morgunblaðið - 22.11.1989, Qupperneq 9

Morgunblaðið - 22.11.1989, Qupperneq 9
9 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVÍJÍUDAGUR 22. NÓVEMBER 1989 BRÉFA- BINDIN frá Múlalundi... ... þar eru gögnin á góðum stað. $ Múlalundur co Z UJ co Z> □ 2 i Þrjár verslanir i USA íslendingur, sem á þrjár verslanir í Bandaríkjunum, vill af sérstök- um ástæðum selja verslanirnar, sem allar ganga vel. Þær selja íslenskar ullarvörur o.fl. t Verslanirnar, sem allar eru staðsettar á austurströnd Banda- ríkjana (Mass.-New Hamp.-Maine), skila 80-100 þúsund dollur- um á ári í brúttó hagnað. Verslanirnar verða seldar þannig, að kaupandi greiðir lager á heildsöluverði, innréttingar og tæki á afskrifuðu verði og sann- gjarnan „goodwill". Samanlagt gæti þetta verið á bilinu 6-8 milljónir íslenskar. Núverandi eigandi er fús að starfa með nýjum eiganda í nokkurn tíma. Hugsanlegt er að selja búðirnar sitt í hvoru lagi. Greiðslukjör. Lysthafendur sendi nöfn og símanúmertil Morgunblaðsins merkt: „USA - 1112“ fyrir lok nóvember. Fræðslufundur Hestamannafélagsins Fáks verður haldinn fimmtudaginn 23. nóvember nk. í félagsheimili Fáks kl. 20.30. Þorkell Bjarnason, hrossaræktarráðunautur, kynnir val og dóma á kynbótahrossum. Sigurbjörn Bárðarson kynnir þjálfun og undir- búning kynbótahrossa. Fræðslunefndin. Kauplækkanir til sam- ræmis við veruleikann! „Sjáið hvað er að gerast í Færeyjum þar sem landsstjórnin var að leggja til að kaup yrði lækkað um 20%. Ríkisstjórnin ákvað að láta þjóðina horfast í augu við veruleikann og þess vegna er hún svona óvinsæl í skoðanakönnunum. Áður var boðað til veizlu með erlendum lánum.“ Það er Ólafur Ragnar Grímsson, endur- kjörinn formaður Alþýðubandalagsins, sem þannig talar við námsmenn í Sæ- mundi, málgagni SÍNE. Staksteinar staldra við „erkibiskupsboðskapinn". Alþýðubanda- lagið býður til veizlu! Tímaritið Sæmundur spyr Qármálaráðherra: „Bauð ekki Alþýðu- bandalagið líka til veizlu með því að lýsa því yfir í stjómarandstöðu að staðið yrði við lögin um námslán og skerðing Sverris Hermamissonar og Ragnhildar Helga- dóttur afnumin?“ Ólafur Ragnar svarar: „Við höfum í sjálfu sér ekki breytt þeirri af- stöðu. Hins vegar ennn við raunsæismenn og verðum að horfast í augu við tveimt. í fyrsta skipti siðan 1950 sjáum við fram á að þriðja árið í röð dregst landsfram- leiðsla saman... Þannig að við þessar aðstæður tel ég, að það hafi verið ærið pólitískt verkefiii að ná fram ákveðnum leiðréttingum sem gerðar hafa verið að undaníomu og verja siðan ákveðinn grundvöll sjóðsins. Það má segja þetta með miklu einiald- ari hætti: Það er ekki meiri fiskur í sjónuni"! Reglum sjóðs- ins verður breytt Timaritið segir: „Samkvæmt skilningi skrifetofustjóra Fjárlaga- og hagsýslustofiiunar og stjómarformamis LIN nægir ráðstöfunarfé sjóðsins ekki til þess að halda áorðnum hækkun- um ncma út þetta skóla- ár...“ Fjármálaráðherra: „Það fer nú eftir því hvort reglunum verður breytt"! Blaðið: „Það er sem sagt gengið út frá því að það verði að breyta úthlutun- arreglum til þess að pen- ingamir endist út árið án þess að lánsupphæðm verði skert?‘‘ Ráðherrann: „Já, ég tel að það sé nauðsynlegt að breyta reglunum til lengdar. Mér finnst að reglur um lönd þar sem borga þarf dýr skólagjöld en hægt er að stunda námið heima eigi ekki að vera svona ofarlega á for- gangslistanum... En námsmenn verða náttúrlega að gera sér grein fyrir því eins og aðrir að við núverandi aðstæður em peningar takmarkaðir og það hlýt- ur að koma við náms- meim... Það væri þá t.d. spum- ingin um þaö að hve miklu leyti eigi að veita námslán í nám sem ekki er eiginlegt háskóla- nám...“ Fyrirheitin Svavars og fiskifræðin Blaðið spyr hvort fjár- lagaframlög verði það niðurskorin að Svavar Gestsson memitamála- ráðherra geti ekki staðið við fyrirheit sín til náms- manna. Formaður Alþýðu- bandalagsins svarar: „Svarið við því er skýrsla Hafrannsókna- stofiiunar. Það hefur aldrei þurft að útskýra það fyrir Islendingnm að fiskuriim hefur áhrif, en kannski þarf þess í borg- arsamfélagi nútímans ... Þetta hefúr þau áhrif að heilbrigðisráðherra getur ekki staðið við fyr- irheit um framkvæmdir á ríkisspítölunum og skera verður vegaáætlun sem samþykkt var á Al- þingi niður um 500 m.kr. Bjargráð í Moskvu og Mexíkó! Blaðið spyr ráðherr- ann, hvort hami hafi hert sultarólina og hvað liann segi um gagnrýni á „einkaferðalög til út- landá á kostnað rikisins". „Fiskifræðilegt" svar formanns Alþýðubanda- lagsins var sem hér segir: „Ég hef farið tvær ferðir á þessu ári, til Moskvu og Mexíkó. Ég tel að þær hafi nýtzt vel fyrir Island. I Moskvu- ferðhmi kynntist ég því að perestrojkan hefiir neikvæðar og alvarlegar afleiðingar fyrir mögu- leika íslands að auka út- flutning þangað ...“ Hvem veg nýttist margfræg Moskvuferö fjámiákiráðherrans í saltsíldarsölumii til Sov- étríkjaima? Hý senú'w nf Múmlm úb knlúablússnm Verúírákr. 5.4SB.- mæsilem úival M.a. vMæiúii GEÍsIPf Er húsið þitt of stórt? Margir eiga inikla fjármuni bundna í íbúð eða húsi. Þegar börnin eru farin að heiman verður íbúðin eða húsið stundum allt of stórt. Sumir ‘kjósa þá að minnka við sig og njóta lífsins fyrir mismuninn. Með því að kaupa Sjóðsbréf 2 fást vextirnir greiddir út fjórum sinnum á ári en höfuðstóllinn heldur verðgildi sínu. Þannig fást skattfrjálsar, verðtryggöar tekjur sem geta verið góð viðbót við lífeyrinn. Veriö velkomin í \1B. VIB VERÐBRÉFAMARKAÐUR IÐNAÐARBANKANS HF Ármúla 7, 108 Reykjavík. Sími 68 15 30

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.