Morgunblaðið - 22.11.1989, Blaðsíða 17

Morgunblaðið - 22.11.1989, Blaðsíða 17
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKU DAGUR 22. NÓVEMBER 1989 . ■ ; : i } I . i , I i ' 17 Lög um húsbréfaviðskipti gilda um kaup og sölu notaðra íbúða, sem eiga sér stað eftir 15. nóvember 1989. Hvað eru húsbréf? Húsbréf eru skuldabréf sem seljandi íbúðar getur fengið hjá húsbréfadeild Húsnæðisstofnunar ríkisins, í skiptum fyrir fasteignaveðbréf, sem kaupandi íbúðarinnar gefur út. Húsbréf eru verðtryggð og gefin út með föstum vöxtum til 25 ára. Gengi þeirra er opinberlega skráð daglega. Húsbréf eru með ríkisábyrgð og undanþegin skatti. Hvemig fer sala íbúðar fram? Allir kaupendur í húsbréfakerfinu veröa aö hafa í höndum skriflega umsögn ráðgjafastöðvar Húsnæðisstofnunar um greiðslugetu sína og kaupverð íbúðar, áður en þeir geta gert seljanda kauptilboð. /\ n VSeljandi fær kauptilboð. \ Tilvonandi kaupandi sýnir seljanda umsögn ráðgjafastöðvar og gerir honum kauptilboð með tilliti til greiðslugetu sinnar skv. umsögninni. \ Tilboði tekið með fyrirvara um ° ' skuldabréfaskipti. Þegar samkomulag hefur náðst um kaupverð, samþykkir seljandi kauptilboðið með fyrirvara um skuldabréfaskipti við húsbréfadeild Húsnæðisstofn- unar. Allt að 65% af kaupverði íbúðarinnar getur verið fasteignaveðbréf sem kaupandinn gefur út og seljandinn fær skipt fyrir húsbréf. Fasteignaveðbréfin geta verið tvö, ef seljandi þarf að aflétta skuldum sem kaupandi tekur ekki við, frumbréf og viðauka- bréf. * \ Undirbúningur að skuldabréfa- ' skiptum. Þegar seljandi hefur gengið að tilboði, fer tilvonandi kaupandi fram á skuldabréfaskipti við húsbréfadeildina. JÁs, % \ Afgreiðsla húsbréfadeildar. __\ Húsbréfadeild metur veðhæfni íbúðar og matsverð og athugar greiðslugetu væntanlegs kaupanda. Samþykki hún kaupin, sendir hún væntanlegum kaupanda fasteignaveð- bréfið, útgefið á nafni seljanda. Kaupsamningur undirritaður - n fasteignaveðbréf afhent seljanda. (búðarkaupandi og íbúðarseljandi gera með sér kaupsamning og kaupandi afhendir seljanda fasteignaveðbréfið. -» \ Kaupandi lætur þinglýsa * \ kaupsamningnum. Seljandi lætur þinglýsa i fasteignaveðbréfinu. Fram að 15. maí 1990 eiga þeir einir aðgang að húsbréfakerfinu sem sóttu um húsnæðislán hjá Húsnæðisstofnun ríkisins fyrir 15. mars sl. og hafa lánsrétt. HÚSNÆÐISSTOFNUN RÍKISINS HÚSBRÉFADEILD SUÐURLANDSBRAUT 24-108 REYKJAVÍK SÍMI - 696900 \ Seljandi skiptir á fasteigna- \ veðbréfi fyrir húsbréf. Óski seljandi eftir því að fá húsbréf, fær hann þau afhent hjá húsbréfadeildinni í skiptum fyrir fasteignaveðbréfið. acv\ Húsnæðisstofnun annast inn- heimtu fasteignaveðbréfsins af kaupanda, enda orðinn eigandi þess, þegar hér er komið. -yT\ Seljandi ráðstafar húsbréfunum \_____A að vild. Seljandi getur átt bréfin, notað þau við íbúðarkaup eða leyst þau út. SAMEINAÐA/SÍA

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.