Morgunblaðið - 22.11.1989, Síða 21

Morgunblaðið - 22.11.1989, Síða 21
M0RG,UNBX4PIfi MIBVIKUDAOUK 22, NÓVEIVtBER 1989 2* I sundur gliðna meginlönd Islensk þáttaröð um eldvirkni og1 jarðskjálfta í Sjónvarpinu í Sjónvarpinu hefst á fimmtudag íslensk þáttaröð um eldvirkni og jarðskjálfta á hnettinum okkar. Er þetta metnaðarfull þáttaröð og jafnframt dýrasta myndaröðin, sem Islendingar hafa lagt út í til þessa. Þetta er fræðslumynd af því tagi sem á ensku er kölluð „pop- ular science“ eða alþýðuvísindi. Að myndaröðinni standa þeir dr. Guðmundur E. Sigvaldason, jarð- eðlisfræðingur, höfundur efnis og þulur í þáttaröðinni, og Jón Her- mannsson, kvikmyndagerðarmaður og framleiðandi hennar. Hafa þeir unnið við myndina í þrjú og hálft ár, ferðast vítt og breitt um jarð- kringluna, á alla þá staði sem Guð- mundur taldi styrkja myndina til að koma meginhugsuninni til skila, að sýna þau innri og ytri öfl, sem móta jörðina, svo og náttúruham- farir og háska mannfólksins í hinum ýmsu löndum jarðar. En jafnframt að fræða um að maðurinn þurfi ekki endilega að líta á þessar nátt- úrhamfarir sem óhjákvæmileg ör- lög, sem ekkert sé hægt að gera við, eins og Guðmundur E. Sig- valdason sagði við fréttamann blaðsins, sem horfði með aðstand- endum myndarinnar á tvo þessara þátta. — Jón og Guðmundur kváðust hafa bundist samtökum um gerð þessara þátta af tveimur ástæðum, Jón var að hugsa um að ýta undir íslenska kvikmyndagerð og Guðmundur að koma upplýsingum á framfæri. Þeir kváðust hafa gert þættina á þann hátt að ná_ til stærri áhorf- endahóps en er á Íslandi, enda varla grundvöllur til annars, þegar gera á mynd af þessari stærðargráðu. Kostnaður er nú kominn upp í 25 Mál og menning: Söngrar Satans gefhir út á íslensku MÁL og menning hefúr gefið út bókina Söngvar Satans eftir Salman Rushdie, í íslenskri þýðingu Sverris Hólmarssonar og Árna Óskars- sonar. Bókin vakti mikia athygli erlendis í febrúar á þessu ári, þeg- ar Khomeini, erkiklerkur í íran, lýsti höfúndinn réttdræpan, þar sem hann hæddist að trú múslima og Múhammeð spámanni. Á bókarkápu segir svo um sög- una: Farþegaþotu er rænt og hún springur í loft upp yfir Ermar- sundi. Eins og fyrir kraftaverk bjargast tveir farþeganna lifandi, annar þeirra ástsæll indverskur kvikmyndaleikari, hinn ákafur aðdáandi alls þess sem enskt er. Þeim skolar á land á Englands- ströndu, en brátt kemur í ljós að þeir eru ekki samir og áður. Annar virðist hafa fengið geislabaug, hin- um vaxa klaufir og horn. Í frétt frá Máli og menningu kemur fram, að í frásögn bókarinn- ar af draumum annarrar aðalsögu- hetjunnar sé dregin háðuleg mynd af Magún spámanni, en fyrirmynd hans sé Múhammeð spámaður. Þá sé lýst trúarleiðtoga, sem búi í út- legð í London, en bíði heiftúðugur þeirrar stundar er hann getur snúið aftur til ættjarðar sinnar og komið skikk á þjóðina. Hafi menn í þeirri lýsingu þóst sjá Khomeini erkiklerk Þá segir í fréttinni að útgáfa bókarinnar sé nú orðin liður í bar- áttu fyrir prentfrelsi. Bókin kon fyrst út í Bretlandi um mitt. síðaste ár, en hefur nú verið gefin út í Frakklandi, á Ítalíu, Spáni, Noregi, Danmörku og í Þýskalandi. Söngvar Satans eru prentaðir í prentsmiðjunni Odda og eru 522 blaðsíður. Aftast í bókinni er orða- listi með helstu erlendu orðum, sem fyrir koma í henni. 1,5% hækkun byggingar- vísitölu VÍSITALA byggingarkostnaðar, reiknuð eftir verðlagi um miðjan nóvember 1989, reyndist vera 157,9 stig, samkvæmt reikning- um Hagstofúnnar, og heíúr því hækkað um 1,5% frá október- mánuði. Þessi vísitala gildir fyrir desembermánuð. Þessi breyting samsvarar 20,1% hækkun, um- reiknuð til árshækkunar. Síðastliðna 12 mánuði hefur vísitala byggingarkostnaðar hækk- að um 26,4%. Síðustu þijá mánuði hefur vísitalan hækkað um 7,2% og samsvarar það 32,1% árshækk- un. Af hækkun vísitölunnar frá októ- ber til nóvember má rekja tæplega 0,4% til flölgunar mælieininga í húsasmíði undanfarna mánuði, sem fram hefur komið við endurskoðun. Þá hækkar vísitalan um 0,3% vegna hækkunar á útseldri vinnu verkamanna. Raflagnaefni hækk- aði í verði um 3,8% og olli um 0,2% hækkun vísitölunnar. Verðhækkun ýmissa annarra efnisliða hafði í för með sér alls 0,6% hækkun vísitölu byggingarkostnaðar. 1,08% hækkun lánskj ara ví sitölu SEÐLABANKINN hefúr reiknað út lánskjaravísitölu fyrir desem- ber 1989. Lánskjaravísitala 2722 gildir | fyrir desember 1989 og varð hækk- unin frá mánuðinum á undan 1,08%. Umreiknuð til árshækkunar hefur breytingin verið sem hér seg- ir samkvæmt fréttatilkynningu Seðlabanka íslands: síðastamánuð 13,7% síðustu 3 mánuði 23,1 % síðustu 6 mánuði 21,0% og síðustu 12 mánuði 19,7% Launavísitala hækkar um 0,2% HAGSTOFAN hefur reiknað launavísitölu fyrir nóvember- mánuð 1989, miðað við meðal- laun í október. Er vísitalan 110,3 stig, eða 0,2% hærri en vísitala fyrri mánaðar. Samsvarandi launavisitala til greiðslujöfnunar fasteignaveðlána tekur sömu hækkun og erþví 2,414 stig í desembermánuði. Sigurður Sverrir við myndatöku milljónir króna. Og hefur jafnframt verið gerð ensk útgáfa af henni. Þeir félagar fóru ásamt mynda- tökumanni kvikmyndarinnar, Sig- urði Sverri Pálssyni, og hljóðmann- inum, Þórarni Guðnasyni, víða um iönd, til Austurlanda ijær, Sov- étríkjanna, Mexíkó, Himalajafjalla, Frönsku Vestur-Indía og víðar. M.a. tóku þeir mynd af eldgosi á Hawaii. „Okkur tókst að halda kostnaði innan við 25 milljónir króna með því að fara allt á apex-fargjöldum og skipta á okkur að bera 100 kg. Einnig voru gerðar áætlanir upp á dag, við gátum hvergi beðið fram yfir það og vorum alls staðar ljón- heppnir," sögðu þeir. Línurit og teikningar gera sitt til að gera þessa þáttaröð aðgengi- lega og auðskilda hveiju barni, en teiknari er Jón Axel Egilsson. Tón- listina, sem fellur mjög vel að mynd- inni, samdi Jón Ásgeirsson. í raun- inni er myndaröðin svo aðgengileg og lifandi að þarna ættu fullorðnir og börn að geta áttað sig fyrir- hafnarlítið á þessari jörð, sem við búum á, með eðliseinkennum henn- ar og hreyfingum, flekareki og meðfylgjandi náttúruhamförum og hvernig náttúrufarsógnir hafa áhrif á líf manna og störf. Enda höfðu á Hawaii. bæði Sjónvarpið og Námsgagna- stofnun keypt sýningarrétt fyrir- fram, sem gerði þeim félögum fært að leggja í ævintýrið. En til að hafa upp í myndina þurfa þeir að selja þáttaröðina til 10-15 sjón- varpstöðva erlendis. Þótt yfir myndaröðinni sé al- þjóðlegur blær og hún berist um víða veröld, þá er í henni mikið efni af íslandi, eldgosum og jarð- myndunum, enda eru aðeins tveir staðir á jörðinni þar sem jarðplötu- hryggina má sjá á þurru landi, í Eþíópíu og á íslandi. Kvaðst Guð- mundur hafa átt mikið eldgosaefni sjálfur, enda hefur hann upplifað og unnið við jarðelda á íslandi í áratugi. En undirtitlar þáttanna sex gefa innsýn í efni þeirra. Þeir eru teknir úr texta sem birtist fremst í hveijum þætti á eftir aðalheitinu: Hin rámu reginöfl. Er í hveijum þætti lýst upp það vísuorð, sem við á hvetju sinni: Um sól og jörð, um sjó og strönd í sundur gliðna meginlönd. Um kraft sem skelfir drótt og dýr í dróma glóðin undir býr Ef notum vit sem Guð oss gaf vér getum kannski lifað af. E.Pá. Mengunar- varnir við ál- verið ræddar FULLTRÚAR ÍSAL og £úll- trúar frá heilbrigðis- og iðn- aðarráðuneytinu, Hafnar- fjarðarbæ og Holiustuvernd eiga um þessar mundir form- legar viðræður um aðgerðir til mengunarvarna og meng- unarmörk við álverið í Straumsvík. Þessar viðræður eiga sér stað í framhaldi af árlegri skýrslu Flúornefndar þar sem kemur fram að flúor- mengun frá álverinu var óvenju mikil í fyrra og með því mesta sem mælst hefúr. Á fundi Jóns Sigurðssonar, iðnaðarráðherra, og Edward Notter, aðalforstjóra Alusuisse, fyrir skömmu voru þessi mál rædd og sérstaklega mengun fyrrihluta síðasta árs. Notter ítrekaði á þeim fundi að áætlun fyrirtækisins um mengunar- varnir yrði fylgt eftir. Mengunin var mest fyrri- hluta ársins í fyrra og talið er að slæm rafskaut hafi verið átæðan fyrir óvenju mikilli mengun. Einnig er talið að gerð og gæsla á keijalokum hafi verið ábótavant og rekstur hreinsitækja gengið illa. ISAL hefur á þessu ári varið töluverðum Ijármunum til mengunarvarna og m.a. sett um vélknúinn lokunarbúnað á hluta keijanna en til stendur að slíkur búnaður komi á öll kerin í Straumsvík. Þ.ÞDBBRllKISSQN &C0 ABETE*™* HARÐPLAST Á BORÐ ÁRMÚLA29, SÍMI 38640 NOKIA Myndbanastœki HQ Meö fiarstvrinu u,39stöðva minni Verð frá: 48.900* Sjonvarp 21“ með fjarstýringu og flatskjá Verð frá: 62.600* W i. RÖNNING Stereo sjonvarp 25“ með fjarstýringu Stereo sjonvarp 28“ með farstýringu ^102.100* Miðað við staogreiðslu Við erum ekki bara hagstœðir... KRINGLAN ...við erum betri S: 68 58 68

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.