Morgunblaðið - 22.11.1989, Síða 27
■MOUGUNBLADH) MjWlKUDAGiL'H 2%., NpVEMBEfi 19S9
<27
Sigurbjörn Bárðarson á hryssunni Hildu á Evrópuniótinu í Svíþjóð
árið 1985.
Hestamannafélagið Fákur:
Fræðslufiindur á Víðivöllum
Fræðsiuneftid hestamannafélagsins Fáks heldur fræðslufund í félags-
heimili Fáks á Víðvöllum næstkomandi fimmtudag og hefst fundur-
inn klukkan 20.30.
Á fundinum flytur Sigurbjörn kell Bjarnason hrossaræktarráðu-
Bárðarson erindi um þjálfun og nautur íjallar um val og dóma kyn-
undirbúning kynbótahrossa og Þor- bótahrossa.
Leiðrétting:
Æðarfuglinn og Ovitar
I frétt Morgunblaðsins þann 18.
nóvember var sagt að Óvitar væru
vinsælasta barnaleikrit sem sýnt
hefði verið _á. ísiandi. Þar vantaði
orð,' því Óvitar eru vinsælasta
íslenska barnaleikritið sem sýnt hef-
ur verið, en erlendu barnaleikritin
Kardimommubærinn, Dýrin í Hálsa-
skógi og Lína Langsokkur eiga enn
vinninginn í aðsókn.
í fréttunvum innflutningsbann á
íslenskum æðardúni í Þýskalandi,
sem birtust á baksíðu og bls. 31 í
blaðinu í gær, er á tveimur stöðum
ranglega farið með ártalið sem æðar-
fugl var alfriðaður hér á landi. Kon-
ungur friðaði æðarfuglinn með til-
skipun árið 1847.
Fiskverð á uppboðsmörkuðum 21. nóvember.
FISKMARKAÐUR hf. í Hafnarfirði
Hæsta Lægsta Meðal- Magn Heildar-
verð verð verð (lestir) verð (kr.)
Þorskur 79,00 63,00 67,93 21,340 1.449.566
Þorskur(ósL) 80,00 46,00 67,06 7,170 480.883
Þorskur(smár) 46,00 46,00 46,00 0,016 736
Ýsa 84,00 40,00 77,26 25,614 1.978.875
Ýsa(ósl.) 79,00 40,00 60,02 7,138 '428.478
Karfi 35,00 25,00 34,61 19,720 682.456
Steinbítur 57,00 49,00 55,01 12,015 660.978
Hlýri 49,00 49,Ö0 49,00 0,380 18.620
Ufsi 39,00 20,00 38,30 35,637 1.364.771
Langa 35,00 30,00 33,07 2,051 67.818
Langa(ósL) 30,00 30,00 30,00 0,226 6.780'
Lúða 440,00 100,00 224,17 1,111 248.996
Koli 35,00 33,00 34,38 0,310 10.640
Keila 14,00 14,00 14,00 1,485 20.784
Keila(ósL) 14,00 14,00 14,00 0,631 8.834
Kinnar 70,00 70,00 70,00 0,060 4.200
Gellur 205,00 205,00 205,00 0,015 3.075
Samtals 55,12 134,969 7.439.270
Selt var meðal annars úr Elínu Þorbjarnardóttur ÍS og Óskari
Halldórssyni RE. 1 dag verður selt óákveðið magn úr bátum.
FAXAMARKAÐUR hf. í Reykjavík
Þorskur 101,00 62,00 71,30 29,160 2.079.069
Ýsa 95,00 40,00 69,61 20,854 1.451.576
Karfi 35,00 25,00 34,12 4,734 161.543
Ufsi 45,00 37,00 43,64 17,880 780.286
Steinbítur 66,00 45,00 64,35 7,342 472.445
Hlýri 20,00 20,00 20,00 0,047 940
Langa 35,00 20,00 32,51 0,466 15.149
Lúða 310,00 100,00 204,32 0,619 126.475
Skarkoli 89,00 71,00 78,85 0,039 3.075
Keila 17,00 17,00 17,00 0,378 6.426
Skötuselur 150,00 150,00 150,00 0,043 6.450
Hrogn 113,00 113,00 133,00 0,021 2.373
Samtals 62,44 81,826 5.109.467
í dag verður selt óákveðið magn úr óátum.
FISKMARKAÐUR SUÐURNESJA hf.
Þorskur 89,50 38,00 62,87 22,722 1.428.573
Þorskur(umál) 20,00 20,00 20,00 0,356 7.120
Ýsa 75,00 20,00 65,12 15,255 993.349
Karfi 26,00 15,00 24,79 0,725 17.970
Ufsi 18,00 10,00 15,67 0,293 4.592
Steinbítur 44,00 44,00 44,00 0,350 15.400
Hlýri 44,00 44,00 44,00 0,300 13.200
Langa 35,00 15,00 31,05 3,834 119.029
Lúða 335,00 50,00 174,73 0,735 128.429
Keila 18,50 10,00 16,97 7,483 126.975
Lýsa 23,00 23,00 23,00 0,092 2.116
Samtals 54,69 52,349 2.863.109
Selt var m.a. úr Reyni GK, Ólafi GK, Sandvík GK, Jaspisi KE
og Nirði EA. I dag verða m.a. seld um 30 tonn af þorski og
20 tonn af ýsu úr dagróðrabátum og 10 tonn af karfa úr Þresti.
LANDSFUNDUR ALÞÝÐUBANDALAGSINS
Unnur
Kristjánsdóttir:
Hræðist að
flokkurinn
missi fylgi
til Kvenna-
lista
UNNUR Kristjánsdóttir, sem
kjörin var gjaldkeri Alþýðu-
bandalagsins á landsfundinum
segir að framboð Steingríms J.
Sigfussonar hafí verið mörgnm
konum í flokknum afar stór biti
að kyngja.
„Við höfum barist lengi fyrir
þeirri hefð að koma skipi sæti vara-
formanns, ef ekki formanns. Á
Norðurlandi nýtur Svanfríður Jón-
asdóttir mikils stuðnings og hún
nýtur þess sem forverar hennar í
varaformannsembættinu nutu
ekki, að vera bæði viðurkennd af
formanninum og fjölda mörgum
öðrum sem stjórnmálamaður. Eg
hræðist að sjálfsögðu að í kjölfar
þessa kjörs muni aftur hópur fara
yfir á Kvennalistann,“ sagði Unn-
ur.
Hún sagði síðan að þingið hefði
ýkt málefnaágreining innan
flokksins enda væri það raunar sá
bragur sem margir sósíalistar hafa
tamið sér að vera hæfilega hvatv-
ísi og leggja þungar áherslur, en
þingið logaði ekki af málefnaá-
greiningi.
„Það er viðhorfsmunur í Al-
þýðubandalaginu en hann er mikið
minni milli armanna en menn vilja
vera láta. Hann er verulegur í
ákveðnum málaflokkum milli fólks
af höfuðborgarsvæðinu og lands-
byggðinni. Hann er verulegur í
verkalýðsmálum og þá jafnvel inn-
an þess hóps ssern telst til verka-
lýðsforustunnar. Hins vegar er
gleðilega lítill skoðanamunur milli
ráðherranna þriggja í þeim málum
sem nú er verið að fjalla um í ríkis-
stjórn. Það er til dæmis ekki von
á uppgjöri í stóriðjumálum, að
mínu mati,“ sagði Únnur Kristj-
ánsdóttir.
Anna Kristín
Sigurðardóttir:
Átökin
komu lands-
byggðar-
mönnum
á óvart
ANNA Kristín Sigurðardóttir,
sem kjörin var ritari Alþýðu-
bandalagsins, segir að lands-
byggðarmenn verði ekki mikið
varið við að stríðandi fylkingar
séu i Alþýðubandalaginu.
„Við sem búum úti á landi verð-
um ekki svo mikið vör við þessar
fylkingar fyrr en við komum hingað
suður. Ég hef heyrt í mörgum
landsbyggðarmönnum og þeim kom
þetta flestum mjög á óvart, hér á
fundinum. Þeir eru löngu búnir að
gleyma því hver studdi hvaða form-
attnsefni á Síðasta landsfundi,"
sagði Anna Kristín.
Hún sagði að meginviðfangsefni
Alþýðubandalagsins hlýti að vera
ríkisstjórnarþátttaka og tryggja að
flokkurinn vimii vel þar. Og aðal-
mál flokksins hljóta að vera kjara-
málin.“
—Það virðast vera óiík sjónarmið
um margt innan flokksins. Sýnist
þér að það veðri hægt að sameina
þau?
„Já, ég held að það sé hægt að
sætta þetta.Ég held að sjónarmiðin
séu ekki eins ólík og ijölmiðlar
segja. Menn skiptast auðvitað á
skoðunum og deila á svona fundum
og það sjá fjölmiðlarnir."
Björn Grétar
Sveinsson:
Ekki trúar-
atriðiað
sitja í stjórn
BJÖRN Grétar Sveinsson gaf
ekki kost á sér til endurkjörs í
ritaraembætti Alþýðubanda-
lagsins, eftir að ljóst var að
Steingrímur Sigfússon var kjör-
inn varaformaður.
„Þegar það kom upp hér að það
átti að fella Svanfríði, þá tók ég
strax þá .ákvörðun, með tilliti til
reynslu minnar af samstarfi við
hana, að ef Svanfríði yrði sparkað
út á mjög óverðskuldaðan hátt, þá
gæfi ég ekki kost á mér áfram,“
sagði Björn Grétar við Morgun-
blaðið.
„Það sjá það einnig allir sem
vilja, að þegar búið er að búið er
að kjósa tvo karlmenn í embættin
tvö, er það sjálfsögð tilltissemi við
kvenfólk að eftirláta því hin stjórn-
arsætin tvö. Það hefur aldrei verið
trúaratriði hjá mér að sitja í stjórn
Alþýðubandalagsins heldur hef ég
tekið að mér þær skyldur sem
flokkurinn hefur falið mér frá þ»í
að ég var 16 ára gamall. En nú
kom að því að ég sagði stopp,“
sagði Björn Grétar.
Hann sagði það sitt mat, að ef
menn í stjórnmálaflokki ætluðu að
takast á um forustuna, þá ætti að
takast á um það sem mestu máli
skipti, þ.e. formennskuna.
„Ég hef ekki hingað til viljað
taka landsfund Sjálfstæðisflokks-
ins mér til fyrirmyndar og ég ætla
að ekki að gera það í framtíðinni,
en hér var sömu aðferðum beitt
og þar,“ sagði Björn Grétar.
■ KRAFA um að virðisauka-
skattur verði ekki lagður á íslenskt
prentmál var samþykkt í mennta:
málaályktun landsfundarins. í
stjórnmálaályktuninni er ítrekuð sú
stefna flokksins að virðisaukaskatt-
ur á brýnustu matvæli og menningu
verði lægri en almennt er ákveðið
og að virðisaukaskatturinn verði í
tveimur þrepum.
Morgunblaðið/Bjarni
Anna Kristín Sigurðardóttir, ritari Alþýðubandalagsins, og Unnur
Kristjánsdóttir, gjaldkeri.
Jón Baldvin Hannibalsson, formaður Alþýðuflokksins:
„Stöðugur ágreining’ur milli
fylkinga í Alþýðubandalaginu ‘ ‘
mál að gera það upp og ég á
ekki von á neinum skyndiákvörð-
unum í þeim efnum," sagði Jón
Baldvin.
„Ég trúi því nú ekki, að þetta
sé einhver hótun um stjómarslit
vegna þess að ef rökstuðningurinn
á að vera sá, að það sé brot á
stjórnarsáttmála að heimila könn-
un á varaflugvelli, þá er það al-
gjörlega á misskilningi byggt,“
sagði utanríkisráðherra um þá-;
ályktun að forkönnun á varaflug-
velli væri stjórnarslitaatriði.
„Satt að segja spyr ég sjálfan
mig: Var landsfundurinn upplýst-
ur um málið þannig að hann væri
ályktunarhæfur á grunni stað-
reynda?“, sagði Jón Baldivn.
Hannibalsson.
„MÉR sýnist þetta flokksþing Alþýðubandalagsins íyrst og fremst
staðfesta óbreytt ástand. Það er stöðugur ágreiningur milli fylk-
inga í Alþýðubandalaginu, um flesta hluti á hinu pólitíska lit-
rófi,“ sagði Jón Baldvin Hannibalsson, formaður Alþýðuflokks-
ins, í samtali við Morgunblaðið um landsfund Alþýðubandalags-
ins og niðurstöður hans, eða niðurstöðuleysi.
Jón Baldvin sagði að ágreining-
urinn væri um fortíðina, um þann
hugmyndagrundvöll sem flokkur-
inn hafi upphaflega verið byggður
á, um framtíðina, um það hvort
0g þá hvernig flokkurinn ætlaði
að gera upp þá fortíð sem nú
væri sýnilega í öskunni.
Formaður Alþýðuflokksins var
spurður hvort hann teldi að ákveð-
inn hópur alþýðubandalags-
manna, og þá einkum félags-
manna í Birtingu, myndu í kjölfar
þessarar niðurstöðu landsfundar-
ins segja sig úr Alþýðubandalag-
inu og ganga til liðs við Alþýðu-
flokkinn: „Eg ætla ekkert að sitja
í dómarasæti urn það hvernig þeir
sem urðu undir í varaformanns-
kjörinu munu bregðast við. Ég sá
og heyrði fyrstu viðbrögð þeirra,
m.a. í sjónvarpi á laugardags-
kvöld, og skildi vel afstöðu þeirra
sem virtist vera á þá leið að þau
teldu það nú vera umhugsunarefni
hvort þau ættu samleið með þess-
um flokki. Það er auðvitað þeirra