Morgunblaðið - 22.11.1989, Blaðsíða 34
34
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 22. NÓVEMBER 1989
0' W
0"
w
FLUGMÁLASTJÓRN
l'LUGMÁLASTJÖRN
Varaflugvöllur NATO
— ný útflutningshöfh
eftirKristin
Pétursson
Það heyrist lítið af forkönnun
^varaflugvallar frá núverandi
stjórnvöldum. Varaflugvöliur
NATO er eitt mikilvægasta
byggðamálið. Sem þingmaður
Austurlands hef ég persónulega
mestan áhuga á að fá varaflugvölL
inn staðsettan á Austurlandi. í
þessari blaðagrein mun ég færa
rök fyrir mikilvægi þessa máls fyr-
ir landsbyggðina.
Öryggismál
lýðræðisskipulagsins
Fyrst ber að nefna hagsmuni
vegna öryggismála lýðræðisskipu-
lagsins. NATO er lögregla lýðræð-
isskipulagsins. Afvopnunarmálin
<e»ru guði sé lof á réttri leið. En það
þýðir ekki að við eigum að lina á
öryggisgæslu varðandi umferð í
lofti. Afvopnunarviðræður munu
halda áfram og vonandi næst
árangur í fækkun kjarnavopna og
hvers kyns vígatóla. Eftir sem áður
verður öryggisgæslu með hemað-
arumsvifum haldið áfram í þágu
lýðræðisskipulagsins. Einræðis-
skipulaginu verður aldrei treyst-
andi til fulls, og lýðræðisþróun í
austantjaldslöndunum mun taka
langan tíma, við skulum óska þeim
góðs gengis í lýðræðisþróuninni.
Hagsmunir
ferðamannaþj ónustu
Varaflugvöllur NATO gefur
ferðamannaþjónustu sem vaxandi
atvinnugrein • stórbrotna mögu-
leika. Fiugvöliur með svo fullkom-
inn öryggisbúnað hefur alla burði
til þess að stuðla mjög að fjölgun
miliilendinga erlendra flugfélaga
hér á landi. Lítum á legu okkar
(sjá ferilkort). Yfir ísland og rétt
hjá fljúga um 300 flugvélar á sólar-
hring! Eigum við ekki að reyna að
ná einhveiju af þessu niður á jörð-
ina og efla ferðamannaþjónustu?
Við þurfum að fara að hugsa þessi
málefni út frá staðreyndum og
sleppa „hernaðarkjaftæðinu“. Al-
þingi samþykkti fyrir rúmum íjör-
utíu árum varnarsamninginn milli
íslands og Bandaríkjanna með 37
atkvæðum gegn 13 og tveir sátu
hjá. Auðvitað tökum við þátt í ör-
yggisgæslu lýðræðisskipulagsins.
Einn stjórnmálaflokkur eins og
Alþýðubandalagið hefur engan rétt
til þess að krefjast að ekki skuli
farið að vilja meirihluta Alþingis
og þjóðarinnar. Aldeilis fráleitt!
Okkur ber skylda til þess að virða
skoðanir herstöðvarandstæðinga, á
sama hátt og þeim ber skylda til
þess að virða skoðanir meirihluta
þjóðarinnar, og meirihluta Alþing-
is. Hagsmunir ferðamannaþjón-
ustu á landsbyggðinni er eitt af
því sem getur stutt við hinar
dreifðu byggðir þar sem erlendum
ferðamönnum þykir mest um að
skoða dreifbýlið.
Ferðaþjónusta bænda er mjög
gott málefni. Það þekki ég af per-
sónulegri reynslu. Við verðum að
horfa á þessa hluti í heilu lagi.
2.400 og síðar 2.700 metra flug-
braut á Egilsstöðum er gott mál.
En við þurfum fullorðinn varaflug-
völl með slökkviliði og öryggis-
gæslu sem stenst kröfur framtí-
ðarinnar. Þannig treystum við
stöðu landsbyggðarinnar í framtí-
ðinni.
Önnur útflutningshöfn
Ekki megum við gleyma hags-
munum atvinnulífsins. Forsenda
bættra lífskjara er bætt staða at-
vinnulífsins. Bættar samgöngur
eru Iykilatriði í sambandi við bætta
stöðu atvinnulífsins á landsbyggð-
'inni. í framtíðinni fara flutningar
í lofti stórvaxandi. Varaflugvöllur
Keflavikur í dag er í Skotlandi.
Boeing 747 þarf að hafa 20 tonn
af eldsneyti aukalega vegna þess
að næsti varaflugvöllur er í Skot-
landi. Væri varaflugvöllurinn t.d.
einhverstaðar á Héraði þyrfti
aukaeldsneyti að vera u.þ.b,. 3
tonn. Mismunur er 17 tonn, sem
jafngildir 170 farþegum í þunga.
Sjá menn ekki hversu stórkostlega
möguleika við eigum til þess að
gera ísland að millilendingarmið-
stöð milli Evrópu og Ameríku!
Lítum upp í loftið. Hvað sjáum
við? Jú, 300 flugvélar á sólarhring
sem hafa ekki hag af því að lenda
hér vegna þess að næsti varaflug-
völlur er í Skotlandi! Ekki myndu
þær allar koma niður. En varaflug-
völlur NATO er forsenda þess að
þeir skoði málið í alvöru sem þurfa
3.000 m braut og gera háar örygg-
iskröfur.
Þetta er einungis hægt með
tveimur fullkomnum flugvöllum,
með öryggisbúnaði sem stenst
ýtrustu kröfur í framtíðinni. Bætt-
ir möguleikar atvinnulífsins til þess
að senda vörur á markað, bæði til
Ameríku, Evrópu og líka Asíu,
Kristinn Pétursson
„Þetta snýst ekki um
hernað. Þetta snýst um
samkeppnisstöðu lands-
byggðarinnar gagnvart
höfuðborgarsvæðinu.
Þegar samkeppnis-
staða landsbyggðarinn-
ar batnar með stór-
brotnum samgöngubót-
um eins og fullkomnum
varaflugvelli, sem
stenst kröfiir framtíðar-
innar í öryggismálum,
þá er fiindin raunhæf
lausn á mörgum vanda-
málum landsbyggðar-
innar.“
sbr. Flying Tigers, væru stórkost-
legir. Hagsmunir fiskeldis, sjávar-
útvegs og ýmissa annarra atvinnu-
greina varðandi markaðssetningu
ferskra matvæla felast einmitt í
slíkum varaflugvelli. Sá flugvöllur
verður að vera a.m.k. 3.000 m
langur með tilheyrandi öryggis-
svæðum og oöryggisbúnaði. 2.700
m völlur nægir ekki. Við megum
ekki hugsa á hjólabörustiginu til
Unglingavanda-
mál pabbans
Kvikmyndir
Amaldur Indriðason
Ein geggjuð („She’s Out of
Control"). Sýnd í Stjörnubíói.
Leikstjóri: Stan Dragoti. Aðal-
hlutverk: Tony Danza.
Sjónvarpsstjarnan Tony Danza
(Hver á að ráða) leikur föður í
gaman-unglingamyndinni Ein
geggjuð, sem lendir í hreinustu
martröð þegar hann uppgötvar að
litla, saklausa dóttir hans er ekki
lengur lítli tíkarspeni pabba síns
heldur hið mesta þrumuskuð og
eftirsótt af hveiju einasta ungl-
ingavandamáli í hverfinu.
Myndin snýst um breytinga-
skeiðið sem pabbinn gengur í gegn-
um þegar hann verður vitni að vin-
sældum og útstáelsi dótturinnar
með hinum og þessum gaurnum
og er nokkuð snjöll á köflum í
martraðarlegri útlistun á kvíða föð-
urins, sem Danza leikur með varan-
iegum áhyggjusvip. Einnig er
Wailace Shawn einstaklega góður
sáli, sem þykist hafa öll svör á
reiðum höndum þegar kemur að
pörun unglinga.
En efnið er bara svo hræðilega
ómerkilegt á farsaplani myndarinn-
ar, meðhöndlunin svo sæt og áferð-
arfalleg, væmnin svo bleik og takt-
arnir svo kunnuglegir úr þúsund
öðrum unglingamyndum að þessi
hverfur í hópinn eins og selur í
hvalskjaft og gleymist áður en hún
endar. Sjónvarpsstjaman Danza
minnir mann sífellt á að þessi mynd
hentar best sjónvarpsglápi.
framtíðarinnar. Landsbyggðin á
nú í vök að veijast. Ég fullyrði að
ekkert byggðamál er eins mikil-
vægt og þetta mál ef við lítum til
framtíðarinnar. Jafnframt verðum
við að gera stórátak í bættum veg-
samgöngum með bundnu slitlagi
og jarðgöngum. Við erum jú að
tala um nýja útflutningshöfn í
lofti. Stórbrotnir möguleikar sem
við verðum að sameinast um. Þetta
snýst ekki um hernað. Þetta snýst
um samkeppnisstöðu landsbyggð-
arinnar gagnvart höfuðborgar-
svæðinu. Þegar samkeppnisstaða
landsbyggðarinnar batnar með
stórbrotnum samgöngubótum eins
og fullkomnum varaflugvelli, sem
stenst kröfur framtíðarinnar í ör-
yggismálum, þá er fundin raunhæf
lausn á mörgum vandamálum
landsbyggðarinnar. Það þýðir ekk-
ert að kjafta um „byggðastefnu“
og hafna svo svona tækifærum.
Svoleiðis fólk er ekki marktækt.
Sameinaðir kostir
Kjarni þessa máls er þessi: Ég
segi alltaf að góð viðskipti séu það
þegar báðir aðilar hafa ávinning
af viðskiptunum. Sameiginlegir
hagsmunir NATO og okkar sem
hluti af NATO er öryggisgæsla
með flugumferð í lofti. Lýðræðis-
þjóðunum ber skylda til þess að
sinna slíku öi’yggiseftirliti og það
er vilji meirihluta allra lýðræðis-
þjóðanna.
Sérstakir hagsmunir okkar af
því að hafa afnot af jafn stórkost-
legu mannvirki og fullkomnum
3.000 m varaflugvelli, sem yrði
hlekkur í bættú samgöngukerfi
landsins, eru þessir:
1. Öryggismál lýðræðisskipulags-
ins.
2. Stórefling ferðamannaþjónustu
og tengdrar starfsemi.
3. Ný útflutningshöfn á ferskum
flökum, eldisfiski o.fl.
4. Ný atvinnutækifæri og efling
atvinnulífs.
5. Bætt samkeppnisstaða lands-
byggðarinnar.
Fleira má jákvætt tína til en
þetta læt ég nægja. Ég vil að lok-
um leggja áherslu á það að það
væri ófyrirgefanlegt slys ef flokkar
þeir sem nú fara með völd í landinu
klúðra þessu máli. Þeir flokkar sem
á annað borð kenna sig við lýð-
ræði verða að framkvæma vilja
þjóðarmeirihluta og meirihluta Al-
þingis, sem hefur markað stefnu í
öryggis- og varnarmálum. Ekki
hefði Olafur heitinn Jóhannesson
Iátið neyða sig til þess að taka upp
ranga stefnu í þessum málum,
andstætt vilja meirihluta þings og
þjóðar. Er það ekki umhugsunar-
efni fyrir einhvern?
Lýðræðið lengi lifi!
Ilöfundur er þingmaður
Sjálfstseðisflokksins á
Austtjörðum.