Morgunblaðið - 22.11.1989, Page 46
MORGUNBLAÐIÐ IÞROTTIR MlBVIKlTPAÍGfR’ 22. NÓVEMBER 1989
AUSTUR-ÞYSKALAND
Lakers stend-
urvelað vígi
Detroit hefur ekki tapað á heimavelli
í 26 síðustu leikjum
LOS ANGELES Lakers hefur
unnið flesta leiki allra liða í
NBA-deildinni á þessu keppn-
istímabili. Flest liðin hafa leikið
8 til 10 leiki. Lakers hefur leik-
4ð níu leiki og aðeins tapað ein-
um.
Los Angeles Lakers stendur best
að vfgi í vesturdeildinni og hef-
ur leikið mjög vel það sem af er.
Magic ■ Johnson hefur leikið stór
hlutverk hjá Lakers.
Frá Hann skoraði 25
Gunnari stig á sunnudag er
liðið sigraði Was-
hington Bullets,
120:115. Júgóslavinn Vlade Divac,
sem kom til liðsins fyrir þetta tíma-
bil, hefur einnig komist vel frá leikj-
unum og staðið undir þeim vænting-
um sem við hann vorú bundnar.
I austurdeildinni er það New
IMBA-deildin
Valgeirssyni
i Bandaríkjunum
Föstudagur:
Boston - Minnesota...........
Charlotte - Golden State.....
Philadelphia - San Antonio...
Cleveland - Atlanta Hawks....
Detroit Pistons - Milwaukee..
Dallas - L. A. Clippers......
Utah Jazz - Indiana Pacers...
L.A. Lakers - Denver.........
Portland - Phoenix Suns......
Laugardagur:
Atlanta Hawks - Golden State...
Detroit Pistons - Boston.....
San Antonio - New Jersey Nets.,
Orlando Magic - Philadelphia.
Dallas Mavericks - Miami Heat...
New York Knicks - Minnesota....
Denver - Houston.............
Phoenix Suns - Washington....
Seattle - Chicago Bulls......
Sacramento - Indiana Pacers..
Sunnudagur:
Houston Rockets - Miami Heat...
Portland - Seattle...........
L.A. Lakers - Washington.....
„116: 99
.. 99: 98
„108:101
„131:125
„106: 79
„122:105
„114:100
„119:105
„110:109
„112: 96
....103:86
„110: 95
„116:103
„100: 99
„111: 96
„141:111
.118:107
„119:110
.107:102
.132: 94
„119:109
„120:115
York og Detroit Pistons sem eni í
miklum ham þessa dagana. New
York hefur unnið fimm leiki og tap-
að þremur og er efst í öðrum riðlin-
um, en Detroit hefur forystu í hin-
uum með sex sigra. Detroit tapaði
fyrstu þremur leikjunum, en nú er
allt annað að sjá til liðsins og hefur
það nú unnið fimm leiki í röð.
Joe Dumars, sem valinn var besti
leikmaður úrslitakeppninnar á
síðasta tímabili, hefur verið at-
kvæðamikill fyrir Detroit. Hann
gerði 27 stig gegn Boston á laugar-
daginn og á föstudaginn gerði hann
22 stig gegn Millwaukee Bucks.
Detroit hefur ekki tapað á heima-
velli sínum í síðustu 26 leikjum.
Allt bendir til þess að einn besti
bakvörður NBA-deildarinnar, Ron
Harper, verði seldur frá Cleveland
til Los Angeles Clippers. Samninga-
viðræður eru á lokastigi. Cleveland
fær Reggie Williams í skiptum og
auk þess forkaupsrétt á Danny
Ferry sem leikur nú á Ítalíu. Talið
er líklegt að Ferry snú aftur til
Bandaríkjanna eftir þetta keppnis-
tímabil.
Tarpley í bann?
Roy Tarpley, sem leikið hefur
mjög vel fyrir Dallas og tekið hefur
flest fráköstin í NBA-deildinni það
sem af er, hefur verið grunaður um
neyslu ólöglegra lyfja. Hann var
tekinn á bíl sínum fyrir skömmu
og var talið að hann væri drukkinn
og því tekin af honum blóðprufa.
Hann hefur tvívegis verið dæmdur
fyrir kókaínneyslu og er reiknað
með að hann hafi verið undir þeim
áhrifum er hann var tekinn. Ef
rannsókn blóðprufunnar leiðir í ljós
að hann hafi notað kókaín mun
hann fá ævilangt bann í bandaríska
NBA-körfuboltanum.
Atvinnumennska viðurkennd
íþróttafólki leyft að ganga til liðs við erlend félög eftir áramót
Innan skamms mun allt íþrótta-
fólk í Austur-Þýskalandi gera
sérstakan samning við félög sín og
verður byrjað að semja við lands-
liðsfólk. Atvinnumennska verður
þar með viðurkennd, en hingað til
hefur verið látið í það skína að
áhugamennska væri allsráðandi í
íþróttum.
Þá verður afreksfólki í íþróttum
leyft að ganga til liðs við erlend
félög þegar í janúar á næsta ári.
Stefna Sovétríkjanna verður höfð
að leiðarljósi og er gert ráð fyrir
að íþróttafólk, sem er orðið 28 ára
og hefur þjónað föðurlandinu vel,
fái að fara.
íþróttafélög mega nú vera með
sérstaka styrktaraðila og hefur
handknattleikssambandið riðið á
vaðið. Landsliðið tekur þátt í risa-
keppninni, sem hófst í Vestur-
Þýskalandi í gærkvöldi, og eru aug-
lýsingar á treyjunum, en gerður var
samningur við vestur-þýska versl-
unarkeðju.
ÍÞRÓMR
FOLK
■ ROY Aitken, fyrirliði skoska
landsliðsins og Celtic, óskaði eftir
að vera settur á sölulista hjá Celtic
í gær. Aitken hefur kvartað yfir
slæmri framkomu
FráBob stuðningsmanna fé-
Hennessy lagsins í sinn garð
/ Englandi 0g einnig hefur
hann kvartað yfir
stjórnarmönnum félagsins. New-
castle hefur sýnt áhuga á að fá
þennan 31 árs varnarleikmann til
sín.
■ JOHN Lyall, fyrrum fram-
kvæmdastjóri West Ham, hefur
gengið til liðs við Tottenham. Hann
verður tæknilegur ráðunautur
Terry Venables, framkvæmda-
stjóra félagsins og mun verða yfir-
maður „njósnaradeildar" Totten-
ham - eða þeirra manna sem hafa
það hlutverk að ferðast um Evrópu
til að hafa auga með efnilegum leik-
mönnum. Lyall hafði áður neitað
mörgum freistandi tilboðum frá
enskum liðum og ýmsum félögum
í Evrópu. „Það er stórkostlegt fyr-
ir okkur að hafa fengið Lyall til
starfa,“ sagði Venables.
■ LYALL mun einnig aðstoða
Bobby Robson, landsliðsþjálfara
Englands, með því að hafa auga
með og taka út mótheija Englend-
inga í heimsmeistarakeppninni.
Morgunblaðið/Einar Falur
Gerald Wilkins og félagar í New York Knicks eru efstir í öðrum riðli austur-
deildarinnar. Wilkins er hér um það bil að troða knettinum í körfu New Jersey
Nets á dögunum.
KORFUBOLTI / NBA-DEILDIN
íném
-FOLK
■ ERLAND Jolmsen, varnar-
maður norska landsliðsins og Bay-
ern Miinchen, hefur skrifað undir
fjögurra ára samning við enska 1.
deildarliðið
Frá Chelsea. Sout-
Bob hampton og QPR
Hennessy höfðu einnig sýnt
i ngan i áhuga á að fá Er-
land, sem er 22 ára gamall og hef-
ur verið hjá Bayern í 18 mánuði.
Chelsea greiddi 306 þúsund pund
fyrir Norðmanninn. Erland skor-
aði jöfnunarmark Norðmanna
gegn Skotum með þrumuskoti af
^ 40 metra færi í undankeppni HM
r síðustu viku. „Ég valdi Chelsea
vegna þess að ég hef mikið álit á
þjálfaranum og eins er liðið í topp-
baráttunni,“ sagði Erland. Reiknað
er með að Erland geti farið að ieika
fljótlega þar sem hann hefur nú
þegar atvinnuleyfi í Þýskalandi.
■ HOWARD KendnII, fyrrum
framkvæmdastjóri Everton sem
rekinn var frá Atletico Bilbao í
síðustu viku, er talinn líklegur til
að taka við 2. deildarliðinu Stoke.
Kendall var aðstoðarþjálfari hjá
Stoke fyrir nokkrum árum. Mick
^Mills var sem kunnugt er rekinn
frá Stoke fyrir skömmu og Alan
Ball tók við framkvæmdastjóra-
stöðunni um stundarsakir.
■ SAMMY Lee, fyrrum leikmað-
ur Liverpool sem leikið hefur með
Osasuna á Spáni, hefur fengið
fijálsa sölu frá spænska Iiðinu og
er á leið til Englands. Lee, sem
'e'r þrítugur, hefur leikið á Spáni í
tvö ár.
HANDKNATTLEIKUR / DOMARAHORNIÐ
Stöðvun tímatöku
Eitt er það sem sífellt veldur
deilum og misskilningi, bæði
meðal leikmanna og áhorfenda.
Er það hvenær dómararnir eiga
að stöðva leiktímann.
Því er rétt að skýra frá því
hvað reglurnar segja um þetta,
en rétt er þó að benda á, að dóm-
arar eiga að stöðva leiktíma eins
sjaldan og kostur er, enda er
það í eðli leiksins, að hann gangi
hratt og vel fyrir sig.
I skýringum með leikreglunum
segir eftirfarandi:
Hvenær á að stöðva tímatöku?
2.1. Alltaf í eftirfarandi til-
fellum:
a) vegna utanaðkomandi
áhrifa, (t.d. ef áhorfendur koma
inn á völlinn, ef óviðkomandi hlut-
ir eru á vellinum, ef skemmdir
verða á marki eða knetti, ef knött-
urinn fer undir áhorfendabekki,
ef bleyta er á vellinum, ef raf-
magn fer af o.s.frv.).
b) þegar beitt er útilokun eða
brottvikningu.
c) þegar dómarar þurfa að
ræða saman eða ræða við ritara
og tímavörð.
d) ef álitið ei' að um meiðsl sé
að ræða, t.d. skot í höfuð.
2.2. Ef ástæða þykir til í
eftirfarandi tilfellum:
e) tafir við töku kasta.
f) þegar beitt er áminningu eða
brottvísun.
g) rangar skiptingar eða of
margir á leikvelii.
h) bolta kastað burt eða ekki
látinn af hendi.
Eins og sjá má á þessari upp-
talningu, þá eiga dómarar ekki
að stöðva leiktíma, ef leikurinn
gengur eðlilega fyrir sig, þó að
aðeins nokkrar mínútur séu til
leiksloka og lítill munur sé á
markatölu liðanna, en þá heyrast
oft raddir úr áhorfendapöllum og
frá leikmönnum um það, að dóm-
arar eigi að stöðva tímann.
Eins sést að ekki er alltaf rétt
að stöðva tímann í markvarðar-
skiptum eins og margir telja.
Þessi ákvörðun dómara um
stöðvun leiktíma byggist því bæði
á skýrum reglum í ákveðnum til-
vikum, og hins vegar á mati þeirra
á stöðunni eins og svo margt ann-
að í dómgæslunni.
Kveðja,
Kjartan K. Steinbach
formaður dómaranefndar
KORFUBOLTI
UÍAmeðlOstig
Urslit og staðan í 1. deild karla
á íslandsmótinu í körfuknatt-
leik, sem birtist í blaðinu í gær,
vom ekki rétt. Þar var sagt að
Bolungarvík hefði unnið báða leiki
sína gegn UÍA um helgina sem var
ekki rétt því UÍA vann báða leik-
ina. Staðan, eins og hún á að vera,
er hér að neðan. Þá var Sigurður
Bjarnason sagður Gunnarsson í
myndatexta. Beðist er velvirðingar
á þessum mistökum.
Fj. leikja u J T Mörk Stig
SNÆFELL 8 8 0 0 666: 568 16
UÍA 8 5 0 3 561: 515 10
VÍKVERJI 7 5 0 2 498: 461 10
ÍS 7 5 0 2 533: 466 10
AKRANES 7 4 0 3 545: 514 8
UMFL 6 4 0 2 462: 391 8
BOLUNGARV. 9 2 0 7 552: 655 4
BREIÐABUK 8 2 ó 6 527: 631 4
UMSB 7 2 0 5 500: 520 4
LÉTTIR 7 0 0 7 424: 547 0
KSI
K
Punktamót í innanhússknattspyrnu
Stjórn KSÍ hefui' ákveðið að
efna til punktamóta í knatt-
spyrnu innanhúss, í samvinnu við
samtök 1. deildarfélaga.' Mótin
verða að öllum líkindum þijú á vetri
— í nóvember, desember og febrú-
ar, en þó aðeins tvö nú fyrsta vetur-
inn.
Sextán lið keppa í fjórum riðlum.
Að lokinni riðlakeppni fara tvö éfstu
liðin í hveijum riðli í átta liða út-
sláttarkeppni. Þau lið fá punkta
sem sigra í riðlum, og að auki eru
gefin stig fyrir fjögur efstu sæti á
mótinu. Fyrsta mótið verður nk.
laugardag á Akranesi og hið síðara
á höfuðborgarsvæðinu um miðjan
febrúar.
Félögin tíu sem léku í 1. deild
karla á yfirstöðnu keppnistímabili
og félögin tvö sem unnu sér rétt
til að leika í 1. deild næsta sumar
hafa þátttökurétt í öllum mótunum.
Til að ná sextán liðum verður fjór-
um boðið að vera með, en boðslið
taka aðeins þátt í einu punktamóti
á vetri.
Liðin sem keppa nú eru (fasta-
lið): KA, FH, Fram, KR, Valur, ÍA,
Þór, Víkingur, Fylkir, ÍBK og
Stjarnan; og að auki (gestalið)
Víðir, Selfoss, Tindastóll, Leiftur
og ÍK. Þess má geta að IBV vildi
ekki vera með að þessu sinni, og
því eru boðsliðin fimm.
Mótið hefst kl. 10 á laugardags-
morgun, og verður leikið í báðum
íþróttahúsunum á Akranesi.
í A-riðli verða KR, ÍA, ÍBK og
Selfoss. í B-riðli Stjarnan, KA, Þór
og ÍK. í C-riðli Fram, Valur, Leift-
ur og Víðir, og í D-riðli FH, Viking-
ur, Tindastóll og Fylkir.