Morgunblaðið - 28.11.1989, Síða 5
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 28. NOVEMBER 1989
5
Bæjarstjórn Sel-
Ijarnarness:
Guðmar
gefur ekki
kost á sér
GUÐMAR Magriússon, forseti
bæjarstjórnar Seltjarnarness,
tilkynnti á aðalfúndi Sjálfstæðis-
félags Seltjarnarness síðastlið-
inn fimmtudag að hann hygðist
ekki gefa kost á sér að nýju við
bæjarstjómarkosningarnar á
næsta ári. Guðmar hefur verið
aðalfulltrúi í bæjarstjórn frá
1978, og var áður varamaður
frá 1974.
Guðmar sagði í samtali við
Morgunblaðið að persónulegar
ástæður réðu þvi að hann ætlaði
ekki að gefa kost á séiv aftur.
Hann væri líka búinn að sitja mjög
lengi í bæjarstjórninni. Hann hefur
gegnt ýmsum trúnaðarstörfum
fyrir bæjarfélagið og Sjálfstæðis-
flokkinn. Forseti bæjarstjórnar
hefur hann verið frá 1986, og hef-
ur einnig verið formaður skóla-
nefndar, formaður fræðsluráðs
Reykjanesumdæmis, í flárhags- og
launanefnd, félagsmálaráði og
Grundarfi ör ður:
Kaupfélagið
gjaldþrota
Grundarfirði.
STJÓRNENDUR Kaupfélags
Grundarfjarðar hafa ákveðið að
óska gjaldþrotaskipta, þar sem
nauðarsamningar náðust ekki
við stærsta kröfúhafann, Sam-
band íslenskra samvinnufélaga.
Kaupfélagið fékk greiðslustöðv-
un í sumar sem var framlengd og
er sú framlenging runnin út.
Að sögn Aðalsteins Friðfinns-
sonar, kaupfélagsstjóra, hefur hár
fjármagnskostnaður verulega
íþyngt kaupfélaginu síðustu árin
og ekki tekist að selja fasteignir
til að grynnka á skuldum.
Fyrir nokkrum árum hætti
kaupfélagið þátttöku í sláturhús-
rekstri og hefur síðan einungis
rekið verslun. Hjá kaupfélaginu
störfuðu 6 manns og hefur þeim
öllum verið sagt upp, en starfsfólki
hafði verið verulega fækkað vegna
hagræðingar í rekstri og minni
umsvifa. Kaupfélag Grundarfjarð-
ar var síðasta starfandi kaupfélag-
ið á Snæfellsnesi.
,, - Ragnheiður
Yaxmynda-
sýning í
Hollywood
Stuðmenn leika
fyrir dansi
STUÐMENN munu
skemmta í veitingahúsinu
Hollywood um helgar í des-
ember og munu þeir koma
fram í fyrsta skipti nk. laug-
ardagskvöld 2. desember.
Stuðmenn hafa fengið tii
liðs við sig brass- og blástur-
sveitina Eldorado og að auki
slagverksmann. Þá hefur
frönsk listakona, Dominique
Poulin, verið fengin til þess að
gera vaxmyndir af nokkrum
þekktustu popplistamönnum
þjóðarinnar. Verða myndirnar
til sýnis í Hollywood. Þá verð-
ur sýnd vaxmynd af Gunnari
Þórðarsyni, sem Stuðmenn af-
hentu íbúum Hólmavíkur að
gjöf að lokinni Gunnarsvöku í
fæðingabæ hans 1986.
Svíar færa Færeyingum fornrit:
Ólíklegt að íslendingar fái
forn handrit frá Svíþjóð
Nokkur merk og gömul íslensk handrit er þar að fínna
„ÞAÐ er ekkert útlit fyrir að Svíar færi okkur einhver þeirra íslensku
handrita sem er að finna í landi þeirra, en ég myndi svo sannarlega
ekki slá hendinni á móti þeim,“ sagði Jónas Kristjánsson, forstöðu-
maður Arnastoftiunar. Svíar hafa ákveðið að skila Færeyingum fornu
handriti með færeyskum texta, þar sem er að finna lagaákvæði um
sauðaeign í Færeyjum.
Guðmar Magnússon
stjórn Sjúkrasamlags Seltjarnar-
ness. Þá hefur hann verið formað-
ur Sjálfstæðisfélags Seltirninga.
Sjálfstæðisflokkurinn hefur nú
fjóra menn af sjö í bæjarstjórn
Seltjarnarness.
Að sögn Jónasar hafa Danir nú
þegar afhent íslendingum 14-1500
handrit, en alls verða afhent milli
1700 og 1800. Hann sagði að hann
saknaði ekki þeirra handrita, sem
væri að finna í. Svíþjóð. Þó væru
þar nokkur merkileg íslensk hand-
rit, þar á meðal elsta, heillega, stóra
handritið sem varðveist hefur. Það
er Hómilíubók, sem er frá um 1200.
Hómilíubók er predikanasafn, en
ekki er vitað um uppruna þess.
Bókin er með mörgum rithöndum
og Jónas sagði sennilegast að hún
hefði verið rituð af munkum. Þá
er að finna í Svíþjóð konungssagna-
handrit og elsta handrit Snorra-
Eddu, svokölluð Uppsala-Edda.
„Konungsbók , Eddu-kvæða, sem
Danir færðu okkur 1971, er hins
vegar mun merkara rit, þó hitt sé
eldra, því textinn í henni er betri,"
sagði Jónas.
Jónas sagði að hann hefði ekki
trú á að íslendingar færu í hándrita-
mál við Svía. „Það eru til Svíar, sem
vilja gjarnan láta okkur fá þessi
handrit. Ég held að það verði þó
varla, nema ef síðar skyldi verða
sú þróun í heiminum að slíkum hlut-
um skuli skilað til síns heima-
lands,“ sagði Jónas Kristjánsson,
forstöðumaður Árnastofnunar.
S8 Ármúla 29 simar 38640 - 686100
P. ÞORGRÍMSSON & C0
Armstrong LDFTAPLCfTUR
KORKQPIA5T GÓLFFLÍSAR
Warmaplast einangrun
GLERULL STEINULL
Starfsemi og orka húðarinnar gengur í
sveiflum allan sólarhringinn. Þessar
sveiflur eru einstaklingsbundnar og
mynda svokallaðan bioryþma húðarinn-
ar. Á daginn fer húðin ekki varhluta af
því álagi, sem á okkur hvílir, auk þess
sem hún þarf að verjast ýmsum skað-
völdum í umhverfinu. Það er á nóttunni,
á meðan við erum í hvíld, sem húðin vinn-
ur að því að byggja sig upp; að end-
urnýja sig.
Hæfileiki húðarinnar til endurnýjunar fer
hins vegar eftir því, hvernig hún er á sig
komin. Ung og heilbrigð húð endurnýjar
sig auðveldlega. En við vitum að með
aldrinum hægist á endurnýjunarstarf-
seminni og þá fer húðin gjarnan að láta
á sjá.
NOCTOSÖME er fyrsta nætur-
kremíð á markaðinum, sem vinnur í takt
víð bioryþma húðarinnar. Það er afar
mikilvægur kostur. Auk þess sem það
í sjálfu sér stuðlar að hraðri ®
og öruggri endurnýjun, inniheldur
kremið styrkjandi efni fyrir
frumustarfsemina, sem byggir upp
að nýju þann kraft, sem húðin
\ í' ; í
ANCOME
PARIS
NOCTOSOME
SYSTEME RENOVATEUR de NUIT
/