Morgunblaðið - 28.11.1989, Side 30
( ^ókgúK'bíáðíí) VH^SMPn/iBVDIfíOlÍF^íPi^JSSS^ft^g. nóvember T989
■ 30
Frábœr eldavél!
HL 66120
• 5 ólíkar hitunaraðferðin
venjuleg hitun, hitun
með blæstri, glóðar-
steiking m. blæstri,
venjuleg glóðarsteiking
og sjálfvirk steiking.
• Keramíkhelluborð.
SMrTH&
NORLAND
II
Nóatúni 4 - Sími 28300
SKOR
ENGIN
SPURNING!
LAUGAVEGI41 SÍM113570
VIÐURKENNING —- Jón Óttar Ragnarsson sjónvarpsstjóri Stöðvar 2 var sl. laugardag útnefndur
Markaðsmaður ársins af norrænum samtökum um markaðsmál. Það var Hákan Branders sendiherra Finn-
lands á íslandi, sem afhenti verðlaunin við athöfn í Þjóðleikhúsinu. Friðþjófur Johnson formaður ímarks,
íslenska markaðsklúbbsins, segir að verðlaununum fylgi mikil virðing á Norðurlöndum. Þetta er í fyrsta
skipti sem íslendingur hlýtur þessa viðurkenningu. Meðal þeirra sem hafa hlotið verðlaunin eru Per Skár
forstjóri Norsk Data, Per Gyllenhammer forstjóri Volvo og Jan Carlzon forstjóri SAS.
A MARKAÐI
Bjarni Sigtryggsson
Eru leigubílstjórar fijálsir
verktakar eða fjötraðir?
Athugasemd
GísliB.
ekki hættur
íauglýs-
ingunum
GÍSLI B. Bjömsson hefur óskað
eftir að koma því á framfæri vegna
fréttar í viðskiptablaði sl. fimmtu-
dag um að hann hefði selt hlut
sinni í GBB - Auglýsingaþjón-
ustunni, að hann sé á engan hátt
þar með að segja skilið við auglýs-
ingahönnun og ætli að helga sig
Gallerí Borg, eins og mátt hafi
skilja á fréttinni. Þvert á móti seg-
ir Gísli B. Björnsson að hann hafi
nú selt hlut sinni í Gallerí Borg
og muni hætta þar um áramót til
að snúa sér aftur að auglýsinga-
teiknun.
Gísli segir að hafi verið sameig-
inleg niðurstaða hans og fyrrum
félaga hans innan GBB að það
hentaði báðum aðilum best að hann
seldi þeim hlut sinn í GBB, enda
hafi hann þar ekki haft meirihluta
og því ekki getað ráðið því sem
hann vildi ráða. Jafnframt hafi
hann sett það skilyrði að nafni
auglýsingastofunnar yrði breytt
þar sem GBB væri jafnan tengt
nafni hans, og þar af leiðandi hefðu
getað orðið árekstrar er hann tæki
að starfa við auglýsingateiknun
undir eigin nafni. Gísli segir, að
enda þótt hann hafi aðallega starf-
að við Gallerí Borg sl. tvö og hálft
ár, þá hafi hann jafnan haldið sér
við í faginu, m.a. með kennslu við
Myndlistar- og handíðaskólann.
Undanfama 1-2 mánuði segist
Gísli hafa notað til að fríska sig
enn frekar í fræðunum, og hann
starfar þessa dagana á þýskri aug-
lýsingastofu í V-Berlin til að kynn-
ast nýjastu straumum í evrópskri
auglýsingagerð. Gísli segir ekki
endanlega afráðið hvað takið við
þegar heim kemur — en honum
hafi boðist þar að koma inn í starf-
andi auglýsingastofu sem eignaj
raðili en einnig telji hann koma til
greina að hefja störf sem sjálfstæð-
ur auglýsingateiknari og ráðgjafi.
Leigubílstjórar og sendibílstjór-
ar eru jafnan reiðubúnir að standa
á áheyrendapöllum borgarstjómar
eða leggja bílum sínum umferðinni
til óþurftar ef þeir telja það hags-
munum sínum til framdráttar.
Slíkt er nokkuð skiljanlegt, því
ekki fara þessar stéttir í verkfall
og sameiningarmáttur margra
sjálfstæðra verktaka getur verið
jafn áhrifamikill og þegar stéttar-
félag beitir verkfallsvopni.
Hins vegar hafa þessar ágætu
stéttir, og þá einkanlega leigubíl-
stjórar, misskilið eðli samstarfs-
vettvangs síns, stéttarfélagsins
Frama, þegar þeir beita samtaka-
mætti til þess að hindra viðskipta-
vini í því að leita þjónustusamninga
með útboði. Þá gildir ein verðskrá
og stéttarfélagið hefur afskipti af
viðskiptaviðræðum um breytt fyr-
irkomulag.
Flugleiðir lentu í þessu á dögun-
um þegar félagið hugðist bjóða út
flugvallarakstur fyrir forgangsfar-
þega, þá sem kaupa hagræðis-
pakkann Saga Class. Engin stóru
leigubílastöðvanna tók þátt í út-
boðinu, enda hafði Frami afskipti
af því, eins og oft hefur gerst áð-
ur. Framkvæmdastjóri félagsins
hefur jafnvel mætt sjálfur á fundi
þar sem rætt hefur verið við full-
trúa stöðvanna til að sjá til þess
að enginn hlypist undan merkjum.
Þjónusta er margskonar
Misskilningur leigubílstjóra og
forsvarsmanna þeirra á eðli þjón-
ustustarfsins er einkum sá, að þeir
telja akstur farþega vera „einskon-
ar“ (homogena) þjónustu. Svo er
ekki, amk. ekki lengur. Fólksflutn-
ingar eru mjög margháttuð þjón-
usta, sem gerir mismiklar kröfur,
en alltaf lágmarkskröfur. Maður
sem kýs að leggja til stóra glæsibif-
reið og talar auk þess nokkur
tungumál og hefur jafnvel sótt
fararstjóranámskeið getur verð-
lagt þjónustu sína langtum hærra
en óhijálegur og mállaus Lada-
bílstjóri. Matið á gæðum þjón-
ustunnar snýst líka um kröfur og
óskir viðskiptavinarins í hveiju til-
viki. Margir myndu kjósa Lada-
manninn til að komast leiðar sinnar
á ódýran hátt, til dæmis með vara-
hlut á verkstæði. I dag gildir sama
verðskrá fyrir báða þessa bílstjóra.
Ef leyfi til aksturs með fólk og
varning yrðu gefin fijáls og verð-
lag einnig myndi fljótt skapast
markaðsverð á leiguakstri. Hið
opinbera hefði þá aðeins eftirlit
með því að lágmarkskröfum og
reglum yrði fullnægt og að staðið
væri við auglýstar verðskrár. Það
gæti haft í för með sér að dýrara
yrði að valsa milli skemmtistaða á
nótunni, en stórir samningar við
kaupendur eins og Flugleiðir gætu
orðið hagkvæm viðskipti á lægra
verði — eða með betri þjónustu.
Frelsi stöðvanna til að gera eig-
in samninga myndi fljótt leiða til
nokkurrar samkeppni, sem aftur
yrði hvati nýjunga og nýbreytni.
Afleiðingin yrði bætt nýting leigu-
„Frami er stétt-
arfélag frjálsra
verktaka, sem
hefur samt
beint afskipti
af viðskitpa-
viðræðum...“
bifreiðanna og auknir möguleikar
neytenda.
Múrarnir munu falla
Beijist leigubílstjórar gegn
auknu frjálsræði en ríghaldi í mið-
stýringu eins konar stéttarfélags
fijálsra verktaka, þá munu mark-
aðsöflin samt finna leiðir.
Skemmtistaðir gætu boðið gestum
sínum upp á sætaferðir heim, flug-
félög gætu boðið forgangsfar-
þegum upp á leiðsögumenn, sem
leggja til eigin einkabifreið og þar
fram eftir götunum.
Til lengri tíma litið verður það
bæði bílstjórum og neytendum fyr-
ir bestu að þarna ríki fijálsræði.
Stjórnmálamenn munu innan tíðar
komast að raun um það sama og
þá falla þessir einokunarmúrar líkt
og aðrir berlínarmúrar einræðis og
miðstýringar.
ÞEMAKVOLD URKI
EFNI:
ENDURVINNSLA
- staðan í dag, framtíðarhorfur
Davíð Egilsson, jarðverkfræðingur og
Birgir Þórðarson, umhverfisskipulags-
fræðingur, flytja erindi.
★ Sýning á endurunnum vörum.
★ Fyrirspurnirog umræður.
Staður: Rauðarárstígur 18
(Hótel Lind)
Tími: Þriðjudag 28. nóvember
kl. 20.30-22.30.
Allir hjartanlega velkomnir!
UNGMENNAHREYFING RKÍ