Morgunblaðið - 28.11.1989, Qupperneq 31
MORGUNBLAÐIÐ VIDSKIPTIAIVINNUIÍF MIDJITDAGUR 28. NÓVEMBER 1989
31 .
PTumui.i.iiiJ'
Fjölmörg tækifæri
fyrir íslensk
fyrirtæki íAlaska
— segir Peter Moore, sem verður aðalræðu-
maður á fundi um sjávarútveg í Alaska
ÚTFLUTNINGSRÁÐ íslands og
Kvikk sf. gangast fyrir fiindi á
morgun, miðvikudag, á Hótel
Sögu um sjávarútvegsmál í Al-
aska og þá möguleika sem íslend-
ingar kynnu að geta nýtt sér við
sölu á vélum og tækjum þar í
landi. Á fúndinum mun Peter J.
Moore verkeínastjóri hjá þróun-
arsjóði á sviði sjávarútvegs í Al-
aska flalla um stöðu mála í veiðum
og vinnsiu og hvernig unnt sé
fyrir íslensk fyrirtæki að selja
þarlendum fyrirtækjum vörur og
þjónustu. Einnig verður stutt
kynning á útgerð íslenska frysti-
togarans Andra sem mun hefja
veiðar við Alaska innan skamms
samkvæmt sérstökum samningi
við Bandaríkjamenn.
Moore hefur unnið fyrir þróunar-
sjóðinn Alaska Fisheries Develop-
ment Foundation frá árinu 1986 sem
verkefnastjóri. Hann hefur einkum
unnið að rannsóknum á bættri nýt-
ingu sjávarafla og m.a. átt samstarf
við útfiutningshóp íslenskra fyrir-
tækja á vesturströnd Bandaríkjanna,
Icepro Group. „Við höfum unnið að
því að kanna möguleika á notkun
Kvikk hausklofningsvélarinnar við
vinnslu á laxahausum og munum
sækja um fjárstyrk vegna þess í
febrúar. Marel vogir eru notaðar um
borð í verksmiðjutogurum og við
höfum reynt að fá fiskvinnslufyrir-
tækin í landi til að koma sér upp
slíkum búnaði. Það eru að mínu áliti
fjölmörg tækifæri fyrir íslensk fyrir-
tæki bæði í Alaska og Seattle," sagði
Moorc í samtali við Morgunblaðið.
„Ég hef mestan áhuga á vinnslu
sjávarafurða vegna þess aflinn er í
flestum tilvikum afar illa nýttur.
Hluti af mínu starfi er að auka nýt-
ingu aflans. Ég held að Kvikk vélin
eigi mikla framtíð fyrir sér. Sá lax
sem kemur á land í Alaska er ýmist
heilfrystur eða niðursoðinn og ég
held að það sé einkum við niðursuðu
sem hægt sé að nota Kvikk vélina
til að auka verðmæti aflans. Hug-
myndin er sú að við myndum að-
stoða Kvikk fjárhagslega við að þróa
vélina fyrir laxahausa. Hún er þróuð
fyrir þorskhausa og því þarf nánast
að endurbyggja hana frá grunni,“
segir Moore.
Peter J. Moore mun á fundinum
á morgun ræða um þær breytingar
sem átt hafa sér stað í fiskveiðum
við Alaska. Lengst af kom megnið
af veiðinni við Alaskastrendur í hlut
útlendinga. Á undanförnum árum
hafa veiðiheimildir hins vegar í æ
ríkari mæli verið veittar vegna sam-
starfsverkefna bandarískra fiski-
manna við aðrar þjóðir sem hafa
sent verksmiðjuskip sín á miðin við
Alaska. Og á næstu árum er búist
við að hlutdeild heimamanna muni
aukast með öflugri starfsemi eigin
fiskvinnslufyrirtækja. Eignaraðild í
fiskvinnslunni í landi er þó að megin-
hluta til í höndum Japana sem kaupa
mikið af sjávarafurðum frá Alaska.
Tölvur
Heimilis-
bókhald
fyrir tölvur
KOMIÐ er á markaðinn heimilis-
bókhald frá liugKORNI, sem nefn-
ist HeimilisKORN og er ætlað fyr-
ir IBM PC/XT/AT/386 tölvur
með lágmark 512 Kb innra minni
og tvö diskadkrif.
Allar valmyndir eru örvastýrðar
og hjálpartexti birtist jafnóðum með
hverri aðgerð, að því er segir í frétt
frá hugKORNI. Notandinn getur
fært inn bókhald, þar sem fylgst er
með eyðslu í mat, bensíni og þeim
reikningum, sem hann kann að búa
til. Einnig getur hann fært bók-
haldið á fullkomnari hátt eins og
upplýsingar um greiðslur af lánum,
hversu mikið hefur verið greitt í
vexti o.fl.
Félaosfundur
Almennur félagsfundur verður haldinn í fé-
lagsheimilinu Víðidal miðvikudaginn 29. nóv.
kl. 20.30.
Dagskrá:
1. Félagsstarfið - Birgir Rafn Gunnarsson.
2. Staða félagsins - Geir Þorsteinsson.
3. Kynnt drög að lagabreytingum -
Sveinbjörn Dagfinnsson.
4. Breytt fyrirkomulag hvítasunnukappreiða -
Viðar Halldórsson.
5. Önnur mál.
Félagar fjölmennið.
Stjórnin.
H
HágœÖa feröatœki
Stereo 80 x 3D
Verð frá: 22.100*
Stereo feröatœki
Með fjörum bylgjum
og segulbandi.
Verð frá: 8.100*
STEREO feröatceki.
Með tónjafnara, tvöföldu
segulbandi - hraðaupptöku og
fjórum bylgjum, einstakt teeki.
Verð frá: 13.400*
Vasadiskó.
JSTEREO, FM, AM og
segulband. Góður
hliómur.
Veröjrá: 5.600*
Hljómtœkjasamstœöa
Midi HIFI 2 x 60 wött með
geislaspilara. Án skáps.
Verð frá: 61.900*
RÖNNING
Ómetanlegt tœkifœri
til aö fjárfesta í
hljómtœkjum á
viöráðanlegu veröi.
Mini samstϚa
2 x 50 wött með geislaspilara.
Verð frá: 51.900*
Við erutn ekki bara hagstceðir.... KRINGLAN
...við erum betri S: 68 58 68
v
Póst- og símamálastofnunin
AUGLYSINGAR í SÍMASKRÁNNI1990
Undirbúningur vegna prentunar á næstu
Símaskrá stendur yfir.
Gögn varðandi pantanir á auglýsingum
hafa verið send flestum fyrirtækjum
landsins. Þau fást einnig á póst- og
símstöðvunum.
Vinsamlega athugið að allar pantanir,
endurpantanir eða afpantanir, eiga að vera
skriflegar og hafa borist í síðasta lagi
um mánaðamótin nóvember -
desember.
■
SÍMASKRÁIN - AUGLÝSINGAR
PÓSTHÓLF 311 -121 REYKJAVÍK
SÍMI 91-29140 - FAX 91-611221