Morgunblaðið - 28.11.1989, Qupperneq 50
50
MQRGUNBLAÐIÐ l»RID,)UPAGUR 28. NÓVEMBER 1989
Þjónustukjarni opnaður í Sunnuhlíð
Sunnuhlíðarsamtökin í Kópavogi hafa opnað
fyrri áfanga í þjónustukjarna og aðstöðu íyrir
aldraða. Um er að ræða verslun, hársnyrtingu,
fótsnyrtingu, sjúkraþjálfun og matsal sem rúmar
um 70 til 80 manns auk dagdvalar fyrir 18 til
20 manns. í siðari áfanga er gert ráð fyrir sjú-
kraböðum, heitum þottum og þvottahúsi með
þvottavélum.
„Dásamlegur
dugnaðarforkur! “
SIEMENS MK 4450 hrærivélin er engin venjuleg „hrærivél".
Hún hrærir, hnoðar, þeytir, blandar, brytjar, rífur, hakkar og
sker - bæði fljótt og vel.
Að hætti vestur-þýskra framleiðenda er hún einkar vel
hönnuð. Létt, lipur, hljóðlát og kröftug. Jafnauðveldlega og
að skipta um gír á vestur-þýskum sportbíl, skiptir þú henni úr
hakkavél í hrærivél og í grænmetiskvörn upp í blandara.
Hún^r draumaverkfæri í eldhúsinu. Fáðu þér (-eða
gefðu Tyy ) fjölhæfan dugnaðarfork í eldhúsið.
12.950,- krónur er heldur ekki mikið verð fyrir þennan líka
bráðlaglega dugnaðarfork. (tarlegur leiðarvísir og uppskrifta-
hefti á íslensku fylgja með.
SMITH&NORLAND
NÓATÚNI 4 • Sfmi 28300
Bréf Sadruddins Aga Khans til forsætisráðherra:
Háhyrningaveiðum ís-
lensks fyrirtækis mótmælt
SADRUDDIN Aga Khan, fyrrum yfirmaður flóttamannahjálpar
Sameinuðu þjóðanna sem jafnframt er forseti umhverfisverndar-
samtakanna Bellerive í Sviss, hefur ritað Steingrími Hermanns-
syni forsætisráðherra bréf þar sem hann mótmælir veiðum á há-
hyrningum hér við land í ábataskyni. Fjallað var um bréf Sadrudd-
ins Aga Khans á ríkissfjórnarfundi á fostudag og sagði Halldór
Asgrímsson sjávarútvegsráðherra að bréfí hans yrði svarað.
Aga Khan segir meðal annars
að það sé íslensku ríkisstjóminni
til mikils vansa að hún skuli með
afskiptaleysi leggja blessun sína
yfir háhyrningaveiðar fyrirtækis-
ins Faunu í Hafnarfirði, sem hafi
sætt ámæli á alþjóðavettvangi fyr-
ir gróðahyggju og illa meðferð á
háhymingum. í bréfinu segir Aga
Khan að fyrirtækið Fauna hafi
staðið fyrir veiðum á að minnsta
kosti 43 háhyrningum frá árinu
1974 undir því yfirskini að um
vísindaveiðar væri að ræða. Dýrin
hefðu verið seld til sædýrasafna í
Japan.
Aga Khan segir í bréfinu að
ævi háhyrninga sé um 80 ár en
hins vegar iifi þeir sjaldnast lengur
en í 10 ár í sædýrasöfnum. Á al-
þjóðamörkuðum fáist um 250.000
dalir fyrir einn háhyrning og að
stutt æviskeið og hátt verð leiði
til þess að bæði eftirspurn og
framboð sé mikið. Hann segir allar
aðstæður fyrir háhyrningana í
keijum Fauna í Hafnarfirði afleit-
ar og bendir á að árið 1980 hafi
fimm dýr drepist úr kulda vegna
þess að ker stöðvarinnar hafi ver-
ið of grann.
Aga Khan lýkur bréfi sínu með
því að hvetja til alþjóðlegs banns
við veíði á háhyrningum og segir
að íslendingar, sem nú séu síðasta
þjóðin sem veiði háhyrninga í ein-
hveijum mæli, séu í ákjósanlegri
stöðu til að lögleiða slíkt bann.
Helgi Jónasson, framkvæmda-
stjóri Faunu, sagðist ekkert hafa
heyrt um þetta bréf og gæti þar
af leiðandi ekki tjáð sig um þær
ásakanir sem þar kæmu fram.
NU GETUR ÞU BORGRD
RAFMAGNS- OG
HITAVEITUREIKNINGINN
SAMKORTS
Stílhrein og vönduð hlaðrúm
úr furu sem börnunum líkar.
Henta vel í barnaherbergið
og sumarbústaðinn. Þú færð
ekki betri og ódýrari lausn.
Vönduð íslensk framleiðsla
með góða reynslu
FURU
HÚSID
Grensásvegi 16
108 Reykjavlk
Slmi 687080
ÞETTA ER HÚN...
Hafðu samband við skrifstofur Rafmagnsveitu Reykjavíkur
og Hitaveitu Reykjavíkur.
RAFAAAGNSVEITA
REYKJAVÍKUR
SUÐURLANDSBRAUT 34 SÍMI 68 62 22
HITAVEITA REYKJAVÍKUR
GRENSÁSVEGI 1, SÍMI 600100