Morgunblaðið - 28.11.1989, Síða 51
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 28. NÓVEMBER 1989
51
Hafliðabúð vígð á Þórshöfii
Morgunblaðið/Líney Sigurðardóttir
Haíliðabúð, hið nýja hús slysavarnadeildarinnar á Þórshðfii.
Þórshöfn.
HÚS björgunarsveitarinnar Haf-
liða á Þórshöln var vígt mánu-
daginn 11. nóvember og tekið
formlega í notkun. Hlaut húsið
nafnið „Hafliðabúð".
Opnunarathöfnin hófst með því
að sr. Gunnar Siguijónsson vígði
húsið og eftir það voi-u flutt ýmis
ávörp; félagar í sveitinni og í
kvennadeildinni tóku til máls, full-
trúar slysavamadeilda í nágranna-
byggðunum auk Hannesar Hafstein
forstjóra Slysavarnafélags íslands.
Hann lýsti ánægju sinni með fram-
tak deildarinnar og kvaðst hann
sjá, að þar væri vel á málum hald-
ið, enda stjórnað frá sama kodda
undir sömu sæng, en formenn deild-
anna, kvennadeildar og björgunar-
sveitar, eru hjón!
Slysavarnadeildin fékk margt
góðra gjafa, allt frá dýrindis tertum
upp í fegurstu blómaskreytingar,
farsíma og stórar peningagjafir.
Mikil undirbúningsvinna hefur
verið hjá kvennadeild og björgunar-
sveit vegna hátíðarinnar. Karlmenn
lögðu síðustu hönd á smíði hússins
að innan og konur bökuðu, því öllum
þorpsbúum og íbúum nágranna-
sveita var boðið upp á kaffi í tilefni
dagsins enda hafa þeir allir stutt
félagið meira og minna við hús-
bygginguna.
Mjög aðkallandi var að koma upp
skýli yfir tækjakost félagsins og
smíði hússins, sem er 150 fm, hófst
árið 1985 og liggur þar mikil vinna
félagsmanna að baki. Ýmislegt hef-
ur verið gert til íjáröflunar, t.d. tók
félagið að sér fyrir nokkrum árum
að hreinsa Heiðarfjallið, en þar voru
gamlar leifar af 'varnarliðseigum,
sem þurfti að fjarlægja.
Hafliðamenn og kvennadeild sjá
nú fram á ánægjustundir í hinni
nýju Hafliðabúð og hyggjast nýta
sér hana bæði til gagns og gamans
í framtíðinni. — L.S.
Suðureyri;
Lítið um rjúpu fyrir vestan
Suðureyri.
Rjúpnaveiðin hefúr verið held-
ur dauf undanfarnar vikur og
muna menn sjaldan eftir svona
IítiIIi veiði.
„Ég hef farið fjórar ferðir og
fengið 15 upp í 18 í ferð sem telst
ekki mjög mikill afli hjá mér, því
ég hef stundað þetta með búskapn-
um undanfarin ár og hef dálitlar
tekjur af þessu. Ég hef verið að
skreppa tvo til þijá tíma í senn og
finnst vera mjög dauft yfir tjúpna-
veiðinni í ár,“ sagði Indriði Aðal-
steinsson bóndi á Skjaldfönn í ísa-
fjarðardjúpi. „Nú menn eru með
ýmsar kenningar varðandi þetta og
ein þeirra er sú að, 50-60% af varp-
lendi rjúpnanna hér fyrir vestan var
undir snjó langt fram yfir varptím-
ann og að hún hafi hreinlega farið
á annað svæði til að koma ungum
upp. Ég hef verið að heyra fréttir
af veiði hér um Vestfirðina og það
er sömu sögu að segja alls staðar,
menn hafa verið að fá mest 8-10
ijúpur eftir daginn, en yfirleitt 1-3
tjúpur sem er slakur afli,“ sagði
Indriði.
Þess má geta í framhaldi af þessu
samtali að Indriði á líklega lands-
met í tjúpnaveiði. Það var veturinn
1987 þá veiddi hann 201 tjúpu á
fáeinum tímum í nágrenni heima-
lands síns. Indriði veiðir mikið af
ijúpu og á síðasta ári fékk hann
um 600 fugla, en hefur fengið meðst
1.200 fugla á einu tímabili, sem
verður að teljast óvenjulega há tala,
en hann tók það fram að þetta
væri mjög sveiflukennt og færi mik-
ið eftir árferði hveiju sinni.
- R.Schmidt
BÆNDASKÓLINN á Hvanneyri
hefur gefið út Umhverfisfræði
fyrir bændaskóla. Um er að
ræða 80 síðna rit og umsjón með
Morgunblaðið/Róbert Schmidt
Menn verða að gera sig ánægða
með 1-3 ijúpur eftir daginn fyrir
vestan, en þar er lítif rjúpnaveiði
þessa dagana.
ritun verksins hafði Magnús
Óskarsson kennari á Hvanneyri.
Kennsla í umhverfisfræði hófst
i bændaskólum landsins í haust.
Ritinu er skipt í tólf kafla sem
hver um sig fjallar um afmarkað
svið umhverfisfræðslu. Höfundar
verksins eru þrír, Magnús Óskars-
son, Þorsteinn Guðmundsson jarð-
vegsfræðingur og Aðalsteinn
Geirsson örverufræðingur. Bjarni
Stefánsson bútæknir var fenginn
til að skrifa um úrgang frá loðdýr-
um.
í fyrsta kafla ritsins er fjallað
um samspil á milli náttúru og land-
búnaðar. Viðfangsefni bókarinnar
er meðal annars notkun áburðar
og votheys og fiskrækt, svo eitt-
hvað sé nefnt. Lokakafli ritsins
fjallar um umhverfisrétt.
í formála bókarinnar segir að
lítið hafi verið um erlendar fyrir-
myndir að þessari kennslubók en
höfð hafi verið hliðsjón af norskri
kennslubók fyrir bændaskóla.
Þá hefur ný námsskrá verið
samin fyrir Bændaskólann á
Hvanneyri fyrir árin 1989-’91. í
greinargerð með námsskránni seg-
ir meðal annars að áhersla verði
lögð á að nemendur auki hæfni
sína í að beita hagfræði til að
meta fjárfestingu og rekstur búa
eða fyrirtækja. Aukin áhersla verði
lögð á að kynna nemendum nátt-
úruvernd, landnýtingu og um-
hverfismál vegna þeirrar hættu
sem umsvif mannsins skapa í
náttúrunni. Þá er í greinargerðinni
bent á að íslenskur landbúnaður
sé í óbeinni samkeppni við land-
búnað annarra þjóða og að búa
þurfi nemendur undir að takast á
við þá samkeppni.
Höfii:
Á rölti í Þinganeslandi
Höfn.
FÉLAG aldraðra á Höfii starfar
af miklum dugnaði. Meðal annars
koma félagar saman á laugar-
dögum í kirkjunni, þar sem þeir
spila, og spjalla yfir kaffibolla.
Einnig hittast þeir árdegis á
laugardögum og fá sér smá
göngutúr.
Fréttaritari rakst á þennan hóp
fyrir skömmu er hann var að leggja
í klukkustundar rölt í Þinganeslandi
í Nesjum. Það var við hæfi því sund-
lauginni hafði verið lokað deginum
áður, en margir félaganna eru dug-
legir að mæta í sundið.
- JGG
Morgunblaðið/Jón Gunnar Gunnarsson
Ásgeir Gunnarsson, Hannes Erasmusson, Ari Háifdánarson, Guðrún
Hálafdánardóttir, Agústa Vignisdóttir, Regína Stefánsdóttir, Aðal-
heiður Sigurjónsdóttir, Jón Gíslason, Ragna Stefánsdóttir, Signý
Guðmundsdóttir, Álfhildur Magnúsdóttir.
Bændaskólinn á Hvanneyri:
Kennslubók í um-
hverfisfræði komin út
H MEGAS heldur tónleika í Stúd-
entakjallaranum við Hringbraut
fimmtudaginn 30. nóvember. Tón-
leikarnir eru upphafið að 1. des.
fagnaði stúdenta í ár, og mun Meg-
as flytja bæði nýtt og gamalt efni
í bland. Aðgangseyrir er 500 krón-
ur, og eru allir velkomnir á meðan
húsrúm Ieyfir.
UBIRGIR Björnsson heldur mál-
verkasýningu í Unge Kunstneres
Samfund, Ósló. Á sýningunni eru
12 málverk unnin í olíu á léreft.
Sýningin stendur til 3. desember.
Þetta er fyrsta einkasýning Birgis.
Áður hefur hann tekið þátt í sam-
sýningu í Riise-kunstgallerí í
Bergen. Birgir stundaði nám í
málun við Vestlandets kunstaka-
demi í Bergen 1986-’88.
Birgir Björnsson.
■ FIMMTU háskólatónleikar
verða á morgun, miðvikudaginn 29.
nóvember, klukkan 12.30 í Norr-
æna húsinu. Flytjendur verða Ólöf
Kolbrún Harðardóttir, sópran,
Sigurður I. Snorrason, klarínetta,
Óskar Ingólfsson, bassethorn og
Kjarta Oskarsson, bassaklarí-
netta. Á efnisskránni verður bar-
okktónlist. svíta fyrir þijú chalume-
au eftir Jóhann Christian Graupn-
er og sálmaforleikir eftir J. S. Bach
útsettir af Harrison Birtwistle.
■ KARL G. Kristinsson læknir,
sérfræðingur í sýklafræði á Sýkla-
deild Landspítajans, heldur fyrir-
lestur á vegum Örverulræðifélags
íslands miðvikudaginn 29. nóvem-
ber kl. 17.15 í húsi Verkfræði og
raunvísideilda við Hjarðarhaga,
stofu V-157. Fyrirlesturinn nefnist
„Meingerð klasakokkasýkinga við
gerviliði og önnur framandi efni í
mannslíkamanum."
■ STYKKISHÓLMI.
Slátrað var í Stykkishólmi í haust
eftir miklar vangaveltur þeirra sem
þar ráða um framtíðina en eins og
vitað er, er nú hugmyndin að fækka
sláturhúsum um allt land og úrelda
þau sem ekki eru talin heyra betri i.
nýtingu til. Þetta er eini staðurinn
á Snæfellsnesi þar sem slátrun fór
fram og mega menn í því muna
tvenna tímana. Hólmkjör hf., sem
er hér mesta þjónustumiðstöð og
þó víðar væri leitað, hefir haft slátr-
un og sláturhús með höndum í
mörg ár. Þar var í haust slátrað
átta þúsundum fjár, auk þess að
þar hefír farið fram slátrun naut-
gripa og Qr það mikill liður í rekstri
sláturhússins. Þetta mun nú vera í
síðasta sinn sem sláturhúsið verður
notað í þessu skyni nema eitthvað
sérstakt komi til og því ekki vitað
hver framvinda mála verður, en það
er ákveðið að sláturhúsið fari í úr-
eldingu. Er víst að mörgum bregður
við, og heyrst hefir að bændur séu
nú að hugsa sig um og reyna að
vita hvort ekki sé hægt að halda
áfram slátrun næsta haust. Hin
hliðin sem snýr að bæjarbúum er,
ef þeir þurfa nú að fara langar leið-
ir til að ná sér í sláturafurðjr.
- Árni
■ STYKKISHÓLMI.
Það voru góðir gestir sem heim-
sóttu Stykkishólm 8. nóvember
síðastliðinn og héldu hér tónleika í
félagsheimili Stykkishólms, en það
voru Viðar Gunnarsson, bassa-
söngvari, sem söng hér við undir-
leik Selmu Guðmundsdóttur. Mik-
ið af efni söngskrárinnar var til-
einkað íslenskum höfundum og
vakti meðferð Viðars á þeim sér-
staka athygli. Þá voru á söng-
Milutin Kojic, ræðismaður Júgóslavíu (t.h.) tekur við Þjóðarorðunni.
■ RÆÐISMAÐURJúgósla.\íu á
íslandi, Milutin Kojic, hefur verið
sæmdur Þjóðarorðu Júgóslava með
gullstjörnu í viðurkenningarskyni
fyrir mjög árangursrík störf í þágu
aukinna og góðra samskipta milli
íslendinga og Júgóslava, en hann
hefur verið ræðismaður Júgóslava
á íslandi síðan 1967. Zlatan Kikic,
sendiherra Júgóslava á íslandi með
aðsetur í Stokkhólmi, afhenti Milut-
in Kojic orðuna fyrir hönd Forseta-
embættis Júgóslavíu í síðustu heim-
spkn sinni til Islands.
■ LOKIÐ er söfnun álloka af jóg-
úrt og sýrðum ijóma frá Baulu hf.
sem stóð yfir í rúmlega einn og
hálfan mánuð. Alls bárust fyrirtæk-
inu 2530 umslög með um það bil
76.000 dósalokum. Baula hf. býður
14 þátttakendum úr lokasöfnuninni
með Plugleiðum til Luxemborgar
þar sem þeir aðstoða m.a. við val
á nýrri tegund af jógúrt sem sett
verður á markað eftir áramótin.
Dregin voru út 7 nöfn og fær hver
hinna heppnu sem taldir eru upp
hér að neðan farmiða fyrir tvo
ásamt hótelgistingu. Lagt verður
af stað í ferðina 1. desember og
komið aftur 4. desember. Fanney
Gísladóttir, Hafnarfirði, Ómar
Garðarsson, Mosfellsbæ, Herdís
Gunnarsdóttir, Keflavík, Guðrún
Kjartansdóttir, Reykjavík, Katrín
G. Hilinarsdóttir, Vestmannaeyj-
um, Ófeigur Jóhann Guðjónsson,
Reykjavík, Árný Erla Svein-
björnsdóttir, Reykjavík.
skránni lög erlendra höfunda og
ekki færst lítið í fang með að túlka
meistarana svo sem Mozart o.fl.
Þeir sem voru á söngleikunum fóru
allir ánægðir heim og kváðust ekki
viljað hafa misst af þessum ágæta
viðburði, því túlkun Viðars á verk-
efnunum var með afbrigðum góð
og er ekki að efa að hann á góða
framtíð fyrir sér ef áfram heldur
sem nú horfir og undirleikur Selmu
var bæði nákvæmur og fínn. Það
sýnir að hún kann vel að fara með
hljóðfæri og ná þeim tilþrifum sem
þurfa þykir.
- Árni
■ VERKAL ÝÐSFÉLAGIÐ
VAKA lýsti áhyggjum sínum, á
fúndi sem haldinn var 17. nóvem-
ber síðastliðinn, yfir því sem nú
er að gerast í atvinnumálum
bæjarins. I yfirlýsingu Vöku seg-
ir að með stöðvun rækjuverksmiðj-
unnar sem Siglunes hf. hafði á
leigu vegna gjaldþrots Sigló hf. séu
nú um þijátíu manns atvinnulausir.
„Stjóm Verkalýðsfélagsins skorar
á fj ármálaráðuneytið að bregðast
nú fljótt við og sjá svo til að rekst-
ur verksmiðjunnar geti hafist aftur
hið fyrsta og þetta sérhæfða fólk
geti fengið atvinnu sína að nýju.“
Fróóleikur og
skemmtun
fyrirháa semlága!