Morgunblaðið - 28.11.1989, Qupperneq 52
býður góðan dag
NYTTUÞER
ELDHÚSTÆKJA
TILBOÐIÐ FRÁ
damixa
///
ÞRIÐJUDAGUR 28. NOVEMBER 1989
VERÐ I LAUSASOLU 90 KR.
Morgunblaðið/Sigurgeir
Sprengjusérfræðingur Landhelgisgæslunnar
kannar sprengjuna í Vestmannaeyjum. Á inn-
felldu myndinni má sjá hvemig virk sprengjan
lá í fiskikarinu í þrjá daga.
Y estmannaeyjar:
Virk sprengja var á
bryggjunni í 3 daga
Vestmannaeyjum.
Sprengjuhleðsia úr tundurdufli fannst liggjandi í fiskikari á
bryggjukantinum í Friðarhöfh í Vestmannaeyjum í gær.
Sprengjusérfræðingar frá Landhelgisgæslunni vom þegar
kvaddir til og eyddu þeir sprengjunni seinnipart dags.
Vörubílstjóri sem leið átti um
bryggjuna í gærmorgun veitti at-
hygli sprengjunni sem lá í fiski-
kassa á bryggjunni, ásamt ýmsu
öðru drasli. Gerði hann lögreglu
þegar viðvart og var settur vörður
við sprengjuna þar til sprengjusér-
fræðingar Landhelgisgæslunnar
komu til Eyja, seinni part dags í
gær. Sprengjan var virk og eftir
að sprengjusérfræðingamir höfðu
rannsakað hana var hún flutt
austur á nýja hraun, þar sem
henni var eytt.
Sprengjan kom í vörpu Sigur-
borgar VE austur af Eyjum í
síðustu viku og var búin að liggja
á bryggjukantinum í Friðarhöfn í
þrjá daga þegar lögreglunni vyr
tilkynnt um hana.
Lögreglan í Vestmannaeyjum
sagði í samtali við Morgunblaðið
að það væri hrikalegt kæruleysi
að tilkynna ekki þegar komið
væri með svona hluti að landi.
Sagði lögreglan að sjómenn sýndu
oft fullmikið kæruleysi í þessum
efnum og þeir virtust ekki gera
sér grein fyrir hvaða hætta staf-
aði af þessu. Oft á tíðum til-
kynntu þeir ekki til lögreglu þó
þeir kæmu með hluti eins og
sprengju þessa til lands og létu
þá liggja á bryggjukantinum
ásamt öðru drasli sem þeir skildu
þar eftir.
Grímur
Umræðu um EFTA og EB frestað:
Skyndifundur í ut-
anríkismálaneftid
Utanríkisráðherra frestar utanför
UMRÆÐUR um samskipti EFTA og Evrópubandalagsins, sem átti
að ljúka á Alþingi í gærkvöldi, voru rofnar er ákveðið var að halda
skyndifund í utanríkismálanefnd þingsins að kröfu þingflokks sjálf-
stæðismanna og hefiir þeim verið frestað.
Á fundinum var fjallað um máls-
meðferð í viðræðum EB og EFTA.
Mikið var rætt um tillögu sjálfstæð-
ismanna þess efnis að nefndin beini
því til forsætis- og utanríkisráðherra
að undirbúnar verði tvíhliða viðræð-
ur íslands og EB um fríverzlun með
fisk. Áherzla yerði lögð á að heildar-
tollgreiðslur íslendinga til EB-ríkja
verði ekki hærri hlutfallslega en þær
voru áður en fleiri ríki gengu í
bandalagið. Þetta felur í sér að toll-
ar á saltfiski, sem nú eru í gildi,
verði lækkaðir. Samkvæmt heimild-
um Morgunblaðsins er meirihiuti
fyrir þessari tillögu efnislega í nefnd-
inni. Fundi lauk þó án samkomulags
og verður framhaldið á morgun.
Samkvæmt heimildum blaðsins
tilkynntu sjálfstæðismenn á fundin-
um að þeir hygðust stuðla að flutn-
ingi þingsályktunartillögu um fram-
hald viðræðnanna, og buðu öðrum
flokkum að vera með. Sjálfstæðis-
menn vilja að stefna ríkisstjórnarinn-
ar í málinu komi skýrt fram og að
ráðherrar Alþýðubandalagsins
greini sérstaklega frá afstöðu sinni.
Steingrímur Hermannsson forsætis-
ráðherra sagði í umræðunum að það
væri afstaða ríkisstjórnarinnar að
ekki þyrfti að leita til Alþingis um
umboð. Hann sagði utanríkisráð-
herra hafa umboð stjórnarinnar til
að halda viðræðunum áfram.
Jón Baldvin Hannibalsson ut-
anríkisráðherra hefur frestað utan-
ferð sinni, sem átti að verða í dag,
fram á fimmtudag vegna ósam-
komulags um virðisaukaskatt í ríkis-
stjórninni. Þorsteinn Pálsson for-
maður Sjálfstæðisflokksins sagði að
fráleitt væri að ráðherra færi úr
landi fyrr en umræðan væri til lykta
leidd og þingmeirihluti kominn fyrir
afstöðunni til viðræðnanna.
Morgunblaðið/Ámi Sæberg
Sóleyjar springa
út í hlýindunum
í hlýindunum að undanförnu
hafa sóleyjar tekið upp á því
að springa út eins og myndin
að ofan ber með sér en hún var
tekin í gær skammt frá staðar-
haldarahúsinu í Viðey.
Ágreiningur í stjórnarliðinu:
Alþýðuflokkur vill fresta gild-
istöku virðisaukaskattsins
ÁGREININGUR er kominn upp í ríkisstjórninni um gildistöku og
tilhögun virðisaukaskattsins. Jón Baldvin Hannibalsson, formaður
Alþýðuflokksins, segir að það samkomulag, sem stjórnarflokkarn-
ir hafi gert, hafi ekki þingmeirihluta lengur og vill hann fresta
gildistökunni um nokkra mánuði á meðan tillögur um tvö skatt-
þrep verði skoðaðar. Ólafúr Ragnar Grímsson fjármálaráðherra
og Steingrímur Hermannsson forsætisráðherra vilja að virðisauka-
skattur í einu þrepi taki gildi um áramótin, en síðan verði skoðað-
ar leiðir til að taka upp tveggja þrepa kerfi og því komið á þegar
líða fer á næsta ár, eða í síðasta lagi um Önnur áramót. Þorsteinn
Pálsson formaður Sjálfstæðisflokksins tók málið upp utan dag-
skrár á Alþingi í gær. Hann sagði að ríkisstjórnin væri ófær um
að framkvæma lögin, sem Alþingi hefði samþykkt, og það væru
þjóðarhagsmunir að hún færi firá.
Forsætisráðherra sagðist í gæri
ekki sjá neina alvarlega erfiðleika
í því að fresta gildistöku virðisauka-
skatts um þrjá til fjóra mánuði, á
meðan málið verði skoðað. Ef Al-
þýðuflokksmenn hafa sitt fram mun
söluskattskerfið gilda eitthvað fram
á næsta ár.
Stjórnarandstaðan gerði harða
hríð að ríkisstjórninni í snarpri ut-
andagskrárumræðu á Alþingi í gær
og var stjórnin krafin um stjórnar-
stefnuna í virðisaukaskattsmálinu.
Júlíus Sólnes formaður Borgara-
flokksins sagðist í raun hafa efa-
semdir um virðisaukaskattinn, en
ekki væri ástæða til að ganga gegn
vilja atvinnulífsins um upptöku
hans. Stefán Valgeirsson sagðist
telja að annaðhvort ætti að fresta
gildistöku skattsins eða að láta
samkomulag stjórnarinnar taka
gildi um áramót.
Enn hillir ekki undir samkomulag
í stjórnarliðinu um framhald máls-
ins. Þorsteinn Pálsson, formaður
Sjálfstæðisflokksins, kallaði með-
ferð stjórnarinnar á málinu „sápu-
óperu“.
Sjá viðtöl við formenn stjórn-
arflokkanna á miðopnu og frá-
sögn af umræðum á þingsíðu
bls. 33.
Að sögn Guðmundar Hafsteins-
sonar veðurfræðings stafa hlýind-
in af hæð sem legið hefur yfir
landinu að undanfömu. Sagði
Guðmundur að hæðin væri að eyð-
ast og byggist hann við að lægðir
færu að leggja leið sína yfir landið
og mætti þá búast við suð- og
suðvestlægum áttum um miðja
vikuna. Á veðurfarsdeild Veður-
stofunnar fengust þær upplýsing-
ar að nóvembermánuður hefði ekki
verið neitt tiltakanlega hlýr en
hins vegar hefði komið veralegur
hlýindakafli dagana 13.-16. nóv-
ember og svo aftur nú síðustu
daga.
Stal af presti
MAÐUR, sem leitaði sálusorgunar hjá presti í Reykjavík um
helgina, þakkaði fyrir sig með því að stela seðlaveski prestsins.
Maðurinn kom til viðtals við Síðar um daginn handtók iög-
prestinn, sóttist eftir og fékk leið- regla mann þennan. Þá hafði hann
sögn og fyrirbænir. Þegar maður- meðal annars notað feng sinn til
inn hafði kvatt saknaði presturinn að kaupa sér mat og drykk á
úr jakka sínum seðlaveskis með veitingahúsi.
greiðslukorti og ávísanahefti.