Morgunblaðið - 23.12.1989, Síða 23
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 23. DESEMBER 1989
23
Magnús Guðmundsson, kvikmyndagerðarmaður:
Stendur til boða gerð þátta
fyrir 1.100 sjónvarpsstöðvar
Kostnaður við gerð hvers þáttar um þrjár milljónir króna
MAGNÚSI Guðmundssyni, kvikmyndagerðarmanni, hefur boðizt
að framleiða röð sjónvarpsþátta á ensku um liflð á norðurslóðum.
Boðið er þess eðlis að Magnús þarf að kosta gerð þeirra, en útsend-
ing um gervihnetti til um 1.100 sjónvarpsstöðva í fjórum heimsálf-
um kostar ekkert. Áætlaður kostnaður við gerð hvers þáttar er
um þijár milljónir króna og hyggst Magnús leita fjármögnunar
þjá opinberum aðilum og sjóðum hér, á Grænlandi og í Færeyjum
svo og útflytjendum og ferðamannaiðnaði þessara landa. Norskir
aðilar hafa einnig sýnt þessari þáttagerð áhuga.
væri að opinberir aðilar fjármögn-
uðu gerð þessara þátta, því þá
yrði hún óbundnari sérhagsmun-
um ýmissa hagsmunaaðila, en að-
alatriðið er að við glutrum ekki
þessu tækifæri úr höndunum á
okkur,“ sagði Magnús Guðmunds-
son.
Morgunblaðið/Bjarni
Pétur J. Jónasson, framkvæmdastjóri Kópavogshælis og Guðný Jóns-
dóttir, yfirsjúkraþjálfari, í nýju endurhæfingarálmunni við Kópavogs-
hæli.
Magnús segir í samtali við
Morgunblaðið, að ætlunin sé að
fyrsti þátturinn verði sýndur
snemma á næsta ári og verði síðan
gerður nýr þáttur fyrir hvern
mánuð, alls 12. Hver þáttur verði
sendur út þrívegis, ein aðalsýning
verði í hveijum mánuði og tvær
aukasýningar. Hann sé ekki byrj-
aður á gerð þáttanna, því hann
vilji ekki hefjast handa fyrr en
tryggt sé fjárfnagn til gerðar álls
12 þátta svo ekki þurfi að hætta
í miðjum klíðum. Nú sé hann að
kanna viðbrögð hagsmunaaðila og
opinberra sjóða og stofnana. Með
þessu hafi svo merkilegur áfangi
náðst í möguleikum á kynningu
landanna og þjóðanna við Norður-
Atlantshafið, að mikilvægt sé að
nýta hann. Nú hefðu opinberar
■ F/M-salurinn. í sýningarsal
FÍM að Garðastræti 6 stendur nú
yfir jólasýning FÍM-félaga. Á sýn-
ingunni eru olíumálverk, grafík og
skúlptúrverk, og geta væntanlegir
kaupendur tekið verkin með sér
heim. Opið er frá kl. 14-18, nema
á Þorláksmessu, en þá er opið til
kl. 23. Lokað verður milli jóla og
nýárs.
nefndir komist að þeirri niðurstöðu
að nauðsynlegt væri að veija
hundruðum milljóna til landkynn-
ingar erlendis, en með þessum
hætti mætti gera það fyrir brot
af þeirri upphæð.
„Grænlendingar hafa sýnt
þessu máli mikinn áhuga, mun
meiri en aðilar hér á landi og áhugi
er einnig fyrir hendi í Noregi. Með
gerð þessara þátta er alls ekki
verið að tala um beina baráttu
gegn samtökum friðarsinna eins
og Greenpeace, heldur fyrst og
fremst almenna kynningu á þess-
um löndum, þjóðunum sem þau
byggja og menningu þeirra. Þetta
ætti að geta orðið lyftistöng fyrir
ferðamannaiðnaðinn, útflutning
og fleiri þætti auk þess, sem þætt-
ina mætti nota til að bera af sér
áburð af ýmsu tagi, verði þess
þörf. Það má til dæmis leggja
áherzlu á hreinleika lands og sjáv-
ar, hollustu fiskáts og lýsis og
leita skýringa á langlífi íslend-
inga. Það má einnig hugsa sér
kynningu á fjölbreyttri menningu
okkar og menningararfleifð.
Möguleikarnir eru reyndar nær
ótakmarkaðir, en ég tel íslenzkt
dægurmálaþras og stjórnmál lítið
erindi eiga inn í svona þætti. Bezt
Ég er mikill áhuga-
maður um mannlíf
— segir Ari Gísli Bragason sem send-
ir frá sér ljóðabókina I sljörnumyrkri
ARI Gisli Bragason er ungt
Ijóðskáld sem nýlega sendi frá
sér aðra ljóðabók sína. Bókin
heitir I stjörnumyrkri og í
henni eru 14 ljóð og 14 mynd-
ir eftir Hauk Halldórsson.
Sumarið 1988 sendi Ari Gísli
frá sér bókina Orð þagnarinn-
ar sem nú er uppseld.
Ari Gísli er tuttugu ogtveggja
ára gamall og sagði hann í sam-
tali við Morgunblaðið að hann
hefði byijað að yrkja 14 ára.
„Ég var ótrúlega duglegur að
yrkja á þessum árum, en ljóðin
voru alveg ferleg,“ sagði hann.
Ljóð eftir Ara Gísla birtust í
skólablöðum á menntaskólaár-
unum, en eftir menntaskólann
fór hann að fara yfir Ijóðin og
verða ánægðari með þau.
Hann hefur gefið báðar bæk-
urnar út sjálfur og þegar hann
var spurður að því hvort bækurn-
ar væru að einhveiju leyti ólíkar
og sagði hann svo vera. „Nýja
bókin er mun vandaðri. Hún er
þannig gerð að ljóð og myndir
skiptast á opnur. Myndirnar eru
tengdar ljóðunum en standa
samt sem sjálfstæð heild. I eldri
bókinni voru sex til sjö ára gaml-
ar hugmyndir, en í nýju bókinni
eni ljóð frá síðasta ári.“
Ari Gísli segist hafa spáð mik-
illi grósku í ljóðagerð hjá ungu
fólki fyrir tveimur árum. „Þetta
er tískusveifla, en ég veit ekki
hvort fólk kaupir meira
Ari Gísli Bragason
ljóðabækur nú. Sum ljóðanna
lýsa svolítilli svartsýni og' það
ríkir óvissa hjá ungu fólki sem
það áttar sig ekki á. Ég held að
unga fólkið hafi orðið fyrir von-
brigðum með fullorðna fólkið.
Unglingavandamál er í raun for-
eldravandamál."
Að lokum var Ari Gísli spurð-
ur að því hvert hann sæki efni
i ljóðin.
„Ég sæki það aðallega í
mannlífið. Ég er mikíll áhuga-
maður um mannlíf,“ sagði hann.
Ari Gísli rekur galleríið Lista-
mannahúsið við Hafnarstræti,
en þar eru myndir Hauks Hall-
dórssonar úr ljóðabókinni nú til
sýnis.
Kópavogshæli:
Ný endurhæfingarálma opnuð
NÝ endurhæfingarstöð við Kópavogshæli var opnuð um sl. helgi.
Gamalt húsnæði, þar sem 38 vistmenn bjuggu í fýrir tuttugu árum,
var endurbyggt og breytt fyrir sjúkraþjálfun. Húsið er í tengslum
við sundlaugina. „Þessi stöð gerir okkur klgift að sinna þjónustu
hér enn betur en áður. Aðstaðan er nú í fremstu röð miðað við
stofhemir á þessu sviði. Við getum nú búið betur að færri vistmönn-
um og á sjúkraþjálfunarstöðin eftir að skila sér í betra lífi fyrir
vistmenn og aðra sem fá að njóta aðstöðunnar,“ sagði Pétur J.
Jónasson, framkvæmdasljóri Kópavogshælis, í samtali við Morgun-
blaðið.
„Þessi aðstaða er geysilega vistmenn okkar þurfa á sjúkra-
mikilvæg. Við höfðum enga fram- þjálfun að halda. Hér eru fjörutíu
bærilega aðstöðu áður. Margir vistmenn í hjólastólum eða rúm-
Utanríkisráðherra:
Hernaðaríhlutun
Bandarí kj amanna
í Panama hörmuð
Ástandið í landinu sök Noriegas
JÓN Baldvin Hannibalsson hefur lýst yfir áhyggjum af ófriðarástand-
inu í Panama, en jafnframt látið í ljósi von um að fýðræðislegir
stjórnarhættir nái að festa rætur í landinu. Fyrir hönd íslenzkra
sljórnvalda harmar ráðherra að bandarísk stjórnvöld hafí talið sig
knúin til að beita vopnavaldi í samskiptum sínum við Panama. í til-
kynningu utanríkisráðuneytisins er áréttuð sú stefha stjórnvalda að
leysa beri alþjóðleg deilumál með friðsamlegum hætti í samræmi
við sáttmála Sameinuðu þjóðanna.
„Bandarísk stjórnvöld hafa skýrt
hernaðaraðgerðir í Panama á þann
veg, að tilgangur þeirra hafi verið
að tryggja öryggi bandarískra ríkis-
borgara, koma á lýðræðislegum
stjórnarháttum á ný í landinu,
hindra að samningi ríkjanna um
Panamaskurðinn yrði stofnað í
hættu og handtaka Manuel Noriega
hershöfðingja. Þrátt fyrir að fregn-
ir frá Panama séu óljósar, virðist
sem markmið hernaðaríhlutunar
Bandaríkjanna hafi enn sem komið
er einungis náðst að hluta. Ófriður
geisar enn í landinu og ekki hefur
tekizt að hafa hendur í hári Norieg-
as,“ segir í tilkynningu utanríkis-
ráðherra.
1 tilkynningu ráðherra segir að
Aímæliskveði a:
*
Arþóra Bæringsdóttir
85 ára afmæli á í dag, 23. desem-
ber, frú Arþóra Bæringsdóttir áður
húsfreyja í Bjarnarhöfn. Hún fædd-
ist á Rauðhálsi í Mýrdal og áttu
foreldrar hennar 17 börn saman.
Árþóra giftist Bæring Elíssyni
dugnaðar- og atorkumanni frá Kol-
gröfum í Eyrarsveit. ■ Hann átti 90
ára afmæli á þessu ári. Þau byijuðu
búskap í Reykjavík en bjuggu síðan
19 ár á stórbýlinu Bjarnarhöfn í
Helgafellssveit en fluttu þá til
Stykkishólms að Borg og áttu þar
heimili þar til þau fyrir skömmu
fluttu á Dvalarheimili aldraðra í
Stykkishólmi^ og þar verða þau á
heiðursdegi Árþóru.
það ástand, sem nú ríki í Panama,
verði að skrifast að stórum hluta á
ábyrgð Noriegas. „Hershöfðinginn
hafði að engu lýðræðislegar kósn-
ingar í landinu í maí sl., eftir að
nefnd hlutlausra aðila, sem skipuð
hafði verið til að fylgjast með kosn-
ingunum, hafði úrskurðáð andstæð-
ingum hans sigurinn í skjóli sjötíu
prósent greiddra atkvæða. Stjórn
valdaræningjans Noriegas gat því
ekki talizt lögmæt," segir ráðherra.
Tilkynningu Jóns Baldvins lýkur
með áskorun til deiluaðila að ráða
ráðum sínum með friðsamlegum
hætti, þannig að bandarískt herlið
verði kvatt á brott frá Panama hið
fyrsta.
liggjandi. Þá eru margir aðrir
hrjáðir að öðrum líkamlegum kvill-
um. Þar sem sundlaugin og sjúkra-
þjálfunarálman eru samtengdar
gerir það fólki auðveldara með að
stunda sjúkraþjálfun bæði í tækj-
un og vatni,“ sagði Pétur.
Þrír sjúkraþjálfarar og tveir
aðstoðarmenn hafa verið ráðnir til
starfa í nýju endurhæfingar-
álmunni, sem er í um 500 fer-
metra húsnæði. Endurbygging
húsnæðisins var að mestu kostuð
af Framkvæmdasjóði fatlaðra,
sem lagði tuttugu milljón króna'
framlag til framkvæmda við end-
urhæfingarálmunnar.
AHA! Ekki
er allt sem sýnist
eftir Martin Gardner
Prófessor Broddi hefur fariö 30 ár inn í
framtíöina. Hann er aö skera nafniö sitt í
eikartré fyrir utan tilraunastofuna sína.
Prófessorinn snéri aftur til nútíðarinnar.
Nokkrumárum seinnafelldi hann eikartréö.
Þá varö hann mjög ruglaöur.
Broddi: Hmmm. Fyrir þremur árum fór ég
30 ár inn í framtíöina og skar nafnið mitt í
þetta tré. Hvaö gerist núna eftir 27 ár þegar
ég kem frá fortíöinni? Þá finn ég ekkert tré.
HvaÖan kom tréÖ sem ég skar nafn mitt út í?
Loksins bók í máli og myndum
fyrir hugsandi fólk. Bókin scm
hcfur lcitt til rökræöna á Lækjar-
lorgi á miönætli. Lcysir AHA!
ofbeldisvandann? Skcmmtileg
bók um þrautir, þverstæöur,
rökfræöi og rökleysur.
Fæst í bókabúðum.
Útgefandi:
Talnakönnun hf,
Síðumúla 1.