Morgunblaðið - 04.01.1990, Blaðsíða 10
10
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 4. JANÚAR 1990
Orðin og1 ópið
Bókmenntir
Jóhann Hjálmarsson
Þuriður Guðmundsdóttir: ORÐIN
VAXA í KRINGUM MIG. Skák-
prent 1989.
Orðin vaxa í kringum mig er sjötta
ljóðabók Þuríðar Guðmundsdóttur.
Hin fyrsta var Aðeins eitt blóm
(1969).
Nýja bókin vitnar um helstu kosti
Þuríðar eins og vandað mál, hnitmið-
un, ljóðræna mýkt. Breytingar eru
aftur á móti litlar frá það sagði mér
haustið (1985). Hún hefur ræktað
sinn ljóðheim vel, fer sparlega með
orð og myndir. Þegar frá henni kem-
ur bók vekur þessi Iágværa rödd
athygli í stundum háværu bjargi
bókamarkaðarins.
Ljóð Þuríðar Guðmundsdóttur eru
þó siður en svo átakalaus. Fágað ijóð-
málið vitnar um baráttu, átök:
Orðin vaxa
í kringum mig
allavega lit
þurr eða safarík
stundum
villist ég í þeim
eða
þau ætla að kæfa mig
oft þyrstir mig i þau
stundum
vaxa þau inni í mér
verða óbærilega stór
án þess að komast út
(Orð)
í Ópinu er ort um óp sem sést
en heyrist ekki og býr í öllum mönn-
um án þess að brjótast út. Orðin og
ópið ná engu að síður fram í ljóðun-
um. Þótt ekki sé öskrað má lesa
margt á milli línanna.
„Oryggisblandinn óttinn“ er meðal
þess sem grillir í í Um daginn og
veginn. Hrun lýsir því að hrynja „yfir
sjálfa þig“. í Þær sér skáldið „sak-
leysi heimsins myrt“ þegar lítil börn
eru svivirt af skyldmennum og vin-
um. Ofbeldi er tileinkað barni og er
ljóðlína um sál sem var myrt endur-
tekin nokkrum sinnum.
Sá tími greinir frá þvi að þegar
við fáum að líta undir yfirborðið og
horfa ofan í hyldýpið óskum við þess
að hugsun okkar hafi fæðst blind.
Heimurinn fírrti með raunveru-
leika sem eins og ormur étur sig
hægt inn i drauminn, samanber I
svefnrofunum, er þó ekki einráður í
Orðin vaxa i kringum mig. En hann
er aðgangsharður. Eitt ljóðanna,
Rökkur, fjallar um að eitthvað sé
gott í rökkrinu. Það eru mörg ár lið-
in síðan það var, gamall afi og olíu-
lampi tilheyra öðrum tíma.
Þuríður Guðmundsdóttir dregur
vissulega upp myndir háskans, sýnir
Þuríður Guðmundsdóttir
okkur inn i veröld eyðingar og geigs.
Hún leggur þó ekki síður áherslu á
helgi lífsins, til dæmis verðmæti hins
smáa í tilverunni, undra náttúrunnar
sem sifellt eru ný.
Ljóð Þurðiðar geta orðið nokkuð
eintóna, oft lík stef við sama yrkis-
efni, en þegar þau takast best höfða
þau beint til lesandans, snerta hann:
Á grasi
strætum og gangstéttum
gróum við sem tré
gleðin og sársaukinn
gera sér hreiður í krónum okkar
ósýnilegar rætur okkar
ósýnilegur skógarhöggsmaðurinn
sem gengur um á meðal okkar
og merkir trén
svo undarlegt val hans
(Tré)
Af merkum manni
Bókmenntir
Sigurjón Björnsson
Steindór Steindórsson frá Hlöð-
um: Páll Jónsson frá Ornólfsdal.
Örn og Örlygur. Reykjavík 1989.
100 bls.
Lítil bók í litlu upplagi um Iát-
lausan og hógværan heiðursmann.
Smekkleg bók um listfengan smekk-
mann. Þannig á það að vera. Ég
hygg að Páli Jónssyni, sem hér er
söguhetja, hefði fallið þessi bók í geð.
Páll Jónsson var fæddur 20. júní
' 1909 og andaðist 27. maí 1985.
Hann var á síðari árum bókavörður
við Borgarbókasafnið í Reykjavík.
Áttu margir ánægjuleg samskipti við
hann þar og minnast hans með hlýju.
Fyrir þrennt annað var hann þó
kunnastur. Hann var um áratuga-
skeið í forystusveit Ferðafélags ís-
lands, enda mikill útivistarmaður og
göngurgarpur. Þá var hann lands-
kunnur ljósmyndari, einkum af
landslagi. Eru myndir hans mjög víða
í blöðum og bókum, ekki síst í árbók-
um Ferðafélags íslands. Loks var
hann einn af mestu bókasöfnurum
þessa lands. Var til þess tekið hversu
safn hans var fagurt álitum og vel
hirt. Sjálfur var hann listfengur bók-
bindari og batt mikið af bókum sínum
sjálfur.
Páll átti mikinn fjölda vina, sem
virtu hann og eiskuðu vegna mann-
kosta hans. Virðist mér að vinirnir
hafi einkum verið tengdir einhverju
af áðurgreindum hugðarefnum, eins
og eðlilegt er.
Höfundur þessarar bókar, Stein-
dór Steindórsson frá Hlöðum, var
einn af vinum Páls um langt skeið
og-áttu þeir sameiginleg áhugamál:
náttúru landsins og söfnun bóka.
Steindór var því vel fallinn til að rita
þessa bók og hefur enda gert það
af skilningi og hlýleika.
Æviferill Páls er hér rakinn skil-
merkilega. Stuðst er að hluta til við
ritaðár æskuminningar Páls, dag-
bækur og umsagnir vina og sam-
ferðamanna.
Að loknum kafla um æskuár Páls
í Örnólfsdal í Borgarfirði kemur all-
langur þáttur um ferð Páls til Þýska-
lands og Sviss árið 1936. Er sá þátt-
ur að mestu byggður á dagbókum
Páls. Síðan er kafli sem nefnist
„Ferðamaðurinn". Er hann einkum
um ferðir Páls hér innan lands.
„Bókasafnarinn" nefnist enn kafli.
Er það athyglisverð lýsing á bóka-
söfnun Páls og umgengni hans um
bækur. í !ok þessa kafla er safni
hans lýst. Þá eru hér prentaðar þijár
frásagnir af dulrænum fyrirbærum
sem Páll upplifði og skráði hjá sér.
Páll Jónsson
Bókinni lýkur á kaf la sem ber heitið
„Um manninn". Er þar gerði tilraun
til að lýsa manninum Páli Jónssyni.
Þar eru teknir upp hlutar úr skrifum
vina hans að Páli látnum, auk þess
sem bókarhöfundur leggur sitt af
mörkum.
Eg læt mér detta í hug að þessi
bók sé nú gefin út vegna þess að á
þessu ári eru áttatíu ár liðin frá
fæðingu Páls. Það er vissulega hug-
ljúf og vel gerð minningabók. Ef eitt-
hvað vantar, þá er það helst kafli,
sem bera hefði mátt heitið „Ljós-
myndarinn".
skýrt og vel orðað og gáfulega gert
að frábært er.
Höfuðgalli bókarinnar er að vísu
hve stutt hún er. Gott hefði verið
t.a.m. að fá útlistun þessa ágæta
höfundar á því hvernig á að umgang-
ast sannleikann svo að árangur verði
af, þ.e. Ijúga svo sennilega að enginn
taki eftir. Þetta er nefnilega alveg
einstök kúnst sem kostar áralanga
þjálfun ef vel á að vera. Þá hefði
mátt fjalla ítarlegar um klæðaburð
frambjóðandans og stjórnmála-
mannsins, sérstaklega hversu nauð-
synlegt er að klæðaburðurinn endur-
spegli þá virðingu sem hann ber fyr-
ir sjálfum sér. Margir flaska illilega
á þessu á tímum dýrtíðar.
En sem sagt: afar gagnleg bók,
seni æskilegt er að sem flestir fram-
bjóðendur og vaxandi stjórnmála-
menn láti aðstoðarmennina lesa fyrir
sig.
Það er áreiðanlega engin tilviljun
að þessi bók kemur fram núna. Senn
fer að líða að sveitarstjórnarkosning-
um og val frambjóðenda á næsta
leiti. Fiðringurinn er þegar farinn að
gera vart við sig og þá eru menn
móttækilegastir fyrir réttri ráðgjöf.
Því eru allir væntanlegir frambjóð-
endur hvattir til að láta lesa þetta
litla rit fyrir sig.
Framboðsfiðringur
Bókmenntir
Sigurjón Björnsson
Vetus Caper: Handbók frambjóð-
andans. Reykjavík. 1989. 67 bls.
Vetus Caper, sá gamli hafur, er
bersýnilega spekingur að viti og gjör-
hugull. Hann hefur nú sett saman
leiðbeiningakver handa væntanleg-
um frambjóðendum og öllum þeim
sem hyggja á frama í stjórnmálum
og raunar hvers kyns félagsmálum
öðrum en líknarmálum. Það var svo
sannarlega tími til kominn, því að
satt að segja hafa menn sem komnir
eru með framboðsfiðringinn — og
þeim fer fjölgandi — verið illa settir
sakir vitneskjuskorts. Maður skilur
hreint ekki hvernig menn hafa hing-
að til komist af. T.a.m. er alveg aug-
Ijóst hversu það hefur stórlega háð
mörgum frambjóðandanum að vita
ekkí af hinni gullvægu lykilsetningu
hafursins „að hann [þ.e. frambjóð-
andinn] þjónar eingöngu sínum eigin
hagsmunum“. Margt hefði betur far-
ið ef menn hefðu gert sér grein fyr-
ir þessu fyrr, margar sálarkvalir
hefðu menn getað forðast og marga
nauðlygina. Þá rennur manni til rifja
að frambjóðendur skuli ekki fyrr
hafa átt aðgang að hinum snilldar-
legu útlistunum höfundar á því
hvernig nota má eðlisgróna hneigð
frambjóðandans fyrir exhibitionis-
mus, sem ég vil kalla sýndar-
mennsku. Það má komast langt
áleiðis ef þessi mikilvæga hneigð er
réttilega notuð.
Annars er tilgangslaust að vera
að tína til dæmi úr þessari ágætu
Ieiðbeiningabók, því að þar rekur
hvert gullkornið annað. Hun tekur á
málunum allt frá grundvallaratriðum
svo sem atvinnuöryggi, vinnufriði og
hiunnindum (hvað þarf tii þess að
komast í bankaráð, sendiherrastöðu
eða fá góða fjárveitingu í fyrirtæk-
ið?) til sérhæfðari atriða svo sem
líkamssérkenna, ræðulistar, notkun-
ar fornra og nýrra bókmennta í ræðu
o.s.frv. Þá er ekki minnst vert um
orðabók stjórnmálamannsins sem er
aftarlega í ritinu og allir ættu að
kynna sér vandlega. Allt er þetta svo
GIMLIGIMLI
Þorsgata 26 2 hæö Simi 25099 ^ Þprsgata 26 2 hæö Simi 25099
MIKIL SALA - VANTAR EIGNIR
'S' 25099
Einbýli og raðhús
GRAFARV. - PARH.
Vorum að fá í einkasölu glæsil. ca
200 fm parh. á tvaimur hæðum á
glæsil. útsýnisstað. Innb. bilsk. 4
svefnherb. Mögul. á anji. Sérstakl.
skemmtil. eign. Ákv. sala.
LANGAFIT - GBÆ
Ca 160 fm einb. ásamt 35 fm bílsk. Séríb.
í kj. Góður garður. Mikið endurn. Áhv. ca
5,0 millj.
HÓFGERÐI
Fallegt ca 195 fm parh. á tveimur hæðum
m/innb. bílsk. Arinn. Skipti mögul. Verð
10,5 millj.
MOS. - ENDARAÐH.
Fallegt 160 fm endaraðh. m/góðum innb.
bílsk. Húsið er í grónu hverfi. Hagst. lán.
Verð 9,5 millj.
BUGÐUTANGl - RAÐH.
- MIKIÐ ÁHV.
Ca 155 fm raðhús á tveimur hæðum
ásamt 35 fm bílsk. Góður garður. Skipti
mögul. á ódýrari eign. Áhv. ca 4,2 millj.
LYNGHEIÐI - EINB.
Ca 140 fm einb. á einni hæð ásamt ca
30 fm bílsk. Suðurgarður. 4 svefnherb.
Skuldlaust. Verð 10 millj.
VESTURVANGUR - HF.
Glæsil. rúml. 400 fm einb. á tveimur
hæðum ásamt tvöf. bílsk. Glæsil. innr.
Arinn í stofu. Séríb. á neðri hæð. Fráb.
staðsetn. Skipti mögul. á ódýrari eign.
í smíðum
BAUGHÚS— PARHÚS
- GLÆSIL. ÚTSÝNI
187 fm parhús á tveimur hæöum með
innb. bílsk. á fallegum útsýnisstað. Skilast
frág. að utan, fokh. að innan. Teikn. á
skrifst.
VEGHÚS - 5 HERB.
- AFH. FLJÓTLEGA
Höfum til sölu glæsil. 5 herb. íb. á tveim-
ur hæðum í nýju fjölbhúsi sem nú er
upprisið. Afh. tilb. u. trév. að innan. Teikn.
á skrifst. Verð 6,4 millj.
DALHÚS - PARH.
Glæsil. 162 fm parh. ásamt 35 fm bílsk.
Mögul. að fá húsið afh. á ýmsu bygg-
stigi. Hagst. verð.
5-7 herb. íbúðir
SMYRLAHRAUN - HF.
GLÆSIL. SÉRHÆÐ
Glæsil. 6 herb. efri sérhæð í fallegu
tvíbhúsi ca 160 fm ásamt góðum bílsk. 4
svefnherb., stórar stofur með arni.
Glæsil. og vonduð eign. Skipti mögul. á
3ja herb. íb. Verð 11,0 millj.
BUGÐULÆKUR
Góð 5 herb. íb. á 2. hæð í fallegu fjórb-
húsi. Tvöf. verksmiðjugler. 3 herb., 2 stof-
ur. Skuldlaus. Verð 7,0 millj.
TJARNARST. - SELTJ.
Falleg 5 herb. neðri sérhæð ásamt 30 fm
bílsk. 3 svefnherb., 2 stofur. Rólegur stað-
ur. Stutt í alla þjónustu. Verð 8 millj.
ÁLFHÓLSVEGUR
Falleg 5 herb. hæð í þríbhúsi. Sérþvottah.
Glæsil. útsýni. Bílsksökklar. Verð 7,8 millj.
KARLAGATA - SÉRH.
MIKIÐ ÁHV.
Góð 5 herb. íb. á tveimur hæðum í góðu
parh. Allt sér. Nýtt gler og þak. Áhv. ca
3,3 millj. langtlán. Verð: Tilboð.
4ra herb. íbúðir
BRÆÐRABORGARST.
- MIKIÐ ÁHV.
Mjög falleg 4ra herb. risíb. í þríb. 3 svefn-
herb. Parket. Glæsil. útsýni. Áhv. ca 3
millj. langtímalán. Verð 5,1 mlllj.
FÍFUSEL - 4RA
Glæsil. 4ra herb. íb. ó 3. hæð.
Góðar innr. Suöursvalir. Eign í
beinni ákv. sölu.
HRAFNHÓLAR - BÍLSK.
- MIKIÐ ÁHVÍLANDI
Falleg 5 herb. óvenju rúmg. 4ra herb. íb.
á 2. hæð. Góður bílsk. Hagst. áhv. lán
allt að 3,8 millj. Afh. fljótl.
SUNDLAUGAVEGUR
Falleg 4ra herb. rúmg. risíb. í góðu steinh.
Gláesil. útsýni. Verð 5,6 millj.
KJARTANSGATA - LAUS
Falleg 4ra herb. íb. í kj. Nýl. gler. Endurn.
bað og teppi. Verð 4,8 millj.
RAUÐALÆKUR
Falleg 4ra herb. íb. á jarðh. m/sérinng. Góð-
ur garður. Góð staðsetn. Verð 4,6-4,7 millj.
KAPLASKJÓLSVEGUR
KR-BLOKKIN - LAUS
Glæsil. 4ra-5 herb. íb. á 3. hæð.
Beiki-parket. Gufubað í sameign.
Hagst. áhv. lán allt að 1,8 millj.
Laus fljótl.
FURUGRUND - KÓP.
Glæsil. 4ra herb. íb. ásamt stæði í bílskýli.
Parket. Suðursv. Verð 6,5 millj.
VESTURBERG
Falleg 4ra herb. íb. á 3. hæð. 3 svefn-
herb. Glæsil. útsýni. Lítið áhv. V. 5,3 m.
3ja herb. íbúðir
FLYÐRUGRANDI
Glæsil. 3ja herb. íb. í einu vandaðasta
fjölbhúsi í Vesturbæ. Skemmtil. skipul.
Sauna í sameign. Lítið áhv. Verð 6,2 millj.
MÍMISVEGUR
Mjög skemmtil. 3ja-4ra herb. íb. lítið u.
súð. Fallegt steinh. Góðar sv. Glæsil. út-
sýni. Endurn. rafm. og pípulagnir. Skuld-
laus. Laus fljótl.
NJÁLSGATA - 3JA
Góð 3ja herb. 85 fm nettó íb. á jarðh. í
steinh. Ákv. sala. Verð 4,2 millj.
HLÍÐARVEGUR - KÓP.
Góð ca 70 fm 3ja herb. íb. á 2. hæð.
Glæsil. útsýni. Parket. Stórar suðursv.
Verð 4,5 millj.
KLEPPSVEGUR
Falleg 3ja herb. íb. á 1. hæð í góðu lyftu-
húsi. íb. er skuldlaus. Stigahús nýmálað
og sprunguviðgert. Skuldlaus. Verð 5 m.
BORGARHOLTS-
BRAUT - KÓP. -
MIKIÐ ÁHV.
Glæsil. 2ja-3ja herb. ca 70 fm íb.
á 2. hæð í ca 11 ára gömlu vönd-
uðu steinh. Góðar innr. Glæsil. út-
sýni. Áhv. ca 2,3 millj. veðdeild.
GRETTISG. - NÝTT
Til sölu ný 3ja herb. íb. á 3. hæð*í nýju 5
íb. steinhúsi. íb. er ekki fullb. en íbhæf
m.a. komið parket, baðtæki, bráðab. eld-
hús. Húsið skilast málað að utan, frág.
sameign. Verð 5,4 millj.
FRAMNESV. - BÍLSK.
Falleg 3ja herb. íb. á 1. hæð í nýl. fjórb-
húsi. Innb. bílsk. Parket. Ákv. sala. Verð
6,2 millj.
VINDÁS - BÍLSK.
Glæsil. 85 fm nettó á 1. hæð. Parket.
Bílskýli. Áhv. 2,9 millj. Verð 5,7 millj.
HRAUNBÆR - AUKAH.
Falleg 3ja herb. íb. á 3. hæð ásamt 12
fm aukaherb. í kj. Ákv. sala.
VESTURBERG
Glæsil. 3ja herb. íb. í lyftuh. Nýtt parket
og eldh. Verð 4,6 millj.
ÆSUFELL
Góð ca 87 fm nettó íb. á 7. hæð í lyftuh.
Fallegt útsýni. Verð 4,7 millj.
2ja herb. íbúðir
AUSTURBERG
Falleg rúmg. 2ja herb. íb. á 4. hæð í vönd-
uðu fjölbhúsi. Lítið áhv. Verð 4,1 millj.
JÖKLAFOLD - BÍLSK.
Falleg 2ja-3ja herb, endaíb. á 3. hæö í
nýju húsi ásamt uppsteyptum bílsk. Áhv.
ca 2,2 millj. við veðdeild. Ákv. sala.
VÍKURÁS - 2JA
Glæsil. 60 fm íb. á jarðh. með sérgarði.
Parket. Áhv. 1800 þús. Verð 4,3 millj.
BRAGAGATA
Falleg 2ja herb. íb. á 3. hæð í steyptu
þríbhúsi. Lítið áhv. Verð 3 millj.
KÁRASTÍGUR - 2JA
- GLÆSIL. ÍBÚÐ
Glæsil. 3ja herb. íb. í kj. Lítiö niðurgr. í
einu fallegasta timburhúsinu í Þingholtun-
um. íb. er endurn. í hólf og gólf sem og
hús að utan, Eign í sérfl.
ÞVERBREKKA
Falleg 63 fm nettó íb. á 1. hæð með sér-
inng. í 2ja hæða fjölbhúsi. Suðurgarður.
SPÓAHÓLAR
Falleg, rúmg. 2ja herb. íb. á 1. hæð m/suð-
urgarði. Parket. Verð 4350 þús.
ÓÐINSGATA
Góð 50 fm íb. 2ja herb. á 1. hæð. Góður
garður. Ákv. sala. Verð 3,1 millj.
ÁSBRAUT
Falleg 47 fm íb. á 3. hæð. Verð 3,1 millj.
STANG^lRHOLT
Glæsil. 2ja herb. íb. á 3. hæð í nýju fjölb-
húsi. Áhv. hagst. lán. Verð 5,2 millj.
NÝBÝLAVEGUR
Góð 2ja-3ja 75 fm íb. á jarðh. Áhv. 2,2
millj. Verð 4,5 millj.
Árni Stefánsson, viðskiptafr.