Morgunblaðið - 13.01.1990, Blaðsíða 2
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 13. JANÚAR 1990
Aðgreining dóms- og umboðsvalds:
Hæstiréttur vísaði öðru
máli heim í hérað í gær
Viðbragða dómsmálaráðuneytisins beðið
EKKI var tekin ákvörðun í dómsmálaráðuneytinu í gær um til hvaða
ráða yrði gripið í framhaldi af dómi Hæstaréttar á þirðjudag, en
líklegt þykir að ákvörðun verði tekin um helgina. Hæstiréttur komst
að þeirri niðurstöðu, að sýslumenn gætu ekki bæði stjórnað lög-
reglurannsókn opinberra mála og dæmt í þeim og er dómurinn í
samræmi við niðurstöðu Mannréttindanefhdar Evrópu um að slík
skipan mála brjóti í bága við ákvæði mannréttindasáttmála Evrópu.
I gær kvað Hæstiréttur upp annan dóm í minniháttar sakamáli, þar
sem maður var ákærður fyrir tvö brot. Hæstiréttur komst að þeirri
niðurstöðu að fulltrúi bæjarfógeta í Keflavík hefði átt að víkja sæti
sem dómari í öðru málinu, þar sem það hefði verið rannsakað hjá
embættinu, þó ekki lægi fyrir að fúlltrúinn hefði haft afskipti af
þeim þætti málsins. Hins vegar var staðfestur dómur fulltrúans fyr-
ir annað brot mannsins, en það var rannsakað af Iögreglu í Reykjavík.
Kíktíhvern
krókogkima
í nýrri skoðunarstöð Bifreiða-
skoðunar íslands hf. í
Reykjavík eru skoðun ársins
þegar hafin. Þessi mynd var
tekin þar í gær, þegar einn
bifreiðaskoðunarmanna skoð-
aði hvern þumlung á undir-
vagni bifreiðar.
í dómi Hæstaréttar, sem kveðinn
var upp í gær, er vísað til niðurstöðu
réttarins á þriðjudag. Um er að
ræða tvö brot manns. Annað var
framið í Reykjavík og rannsakað af
lögreglu þar. Hitt brotið var rann-
sakað af lögreglunni í Keflavík, en
fulltrúi bæjarfógetans þar kvað upp
dóm yfir manninum vegna beggja
brotanna. í dómi Hæstaréttar segir,
að ekkert liggi fyrir um afskipti full-
trúans af lögreglurannsókninni. Með
vísan til dóms Hæstaréttar á þriðju-
dag telur rétturinn engu að síður,
að bæjarfógetanum í Keflavík og
fulltrúa hans hafi borið að 'víkja
sæti við dómsmeðferð þessa sakar-
efnis. Dómurinn var felldur úr gildi
að þessu leyti og málinu vísað heim
í hérað til nýrrar dómsmeðferðar og
dómsálagningar. Maðurinn var hins
vegar dæmdur til 3 mánaða fangels-
isvistar og sviptur ökuréttindum
ævilangt fyrir hitt sakarefnið.
Dóminn kváðu upp hæstaréttar-
dómararnir Guðmundur Jónsson,
Guðrún Erlendsdóttir, Haraldur
Henrysson, Hrafn Bragason og Þór
Vilhjálmsson. Guðmundur skilaði
sératkvæði í málinu og taldi, að þar
sem bæjarfógetanum og fulltrúa
hans hafi borið að víkja sæti, ætti
að fella dóminn í heild úr gildi og
vísa málinu aftur heim í hérað.
Búist var við að dómsmálaráðu-
neytið ákvæði í gær til hvaða ráð-
stafana yrði gripið í framhaldi af
dómi Hæstaréttar á þriðjudag, en
af því varð ekki. í 19 umdæmum
stjórna sýslumenn eða fulltrúar
þeirra rannsókn mála sem yfirmenn
lögreglu og dæma málin einnig.
Rætt hefur verið um að skipa setu-
dómara til að fara með opinber mál
í þessum umdæmum, eða skipa sjálf-
stæða dómara. Þeir þyrftu ekki að
vera 19, því sömu menn gætu dæmt
í málum í fleiri en einu umdæmi.
Morgunblaðið/Ámi Sæberg
Samþykkt ríkisstjórnarinnar vegna kostnaðar við sérfræðiaðstoð:
Samtök um jafiirétti og félags-
hyggju fá 150 þúsund á mánuði
RÍKISSTJÓRNIN samþykkti í desember síðastliðnum að Samtök um
jafnrétti og félagshyggju, sem Stefán Valgeirsson er fulltrúi fyrir á
þingi, skyldu fá greidda mánaðarlega svipaða upphæð og greidd er
þingflokkum á Alþingi vegna sérfræðiaðstoðar sem þeir þurfa á að
halda. Samkvæmt samþykktinni verða greiddir reikningar frá 1. októ-
ber sl. og nemur upphæðin tæpum 150 þúsund krónum á mánuði.
,,. . .. " I I ~ Z ,, , Jón Sveinsson, aðstoðarmaður
Gjaldþrot Fiskvmnslunnar Norðursildar: forsætisráðherra, staðfesti þetta í
samtali við Morgunblaðið í gær. Eins
og skýrt var frá í fréttum sl. haust
var aðstoðarmaður Stefáns Valgeirs-
sonar á síðasta ári á launum sem
deildarstjóri í forsætisráðuneytinu.
Ráðningarsamningur hans rann út
þann 1. október sl. og var ekki end-
urnýjaður:
Jon Sveinsson sagði, að ríkis-
stjórnin hefði ákveðið í desember að
Samtök jafnréttis og félagshyggju
skyldu fá greitt fyrir sérfræðiaðstoð
sem næmi þingfararkaupi á mánuði.
Þingflokkar þiggja slíkar greiðslur
frá Alþingi, en þar sem Stefán Val-
geirsson er eini fulltrúi samtakanna
Akveðið að selja
eignir firjálsri sölu
Framhaldsskiptafúndur í þrota-
búi Fiskvinnslunnar-Norðursíldar
hf var haldin i gær. Samþykkti
fundurinn að fela skiptaráðanda
að leita tilboða í allar eignir þrota-
búsins sameiginlega og leggja þau
síðan fyrir skiptafúnd.
Jónas Hallgrímsson, forseti bæjar-
stjórnar Seyðisfjarðar og formaður
sérstakrar vinnunefndar um endur-
reisn fiskvinnslu á Seyðisfirði, óskaði
eftir því við skiptaráðanda fyrir hönd
óstofnaðs almenningshlutafélags að
fá að fylgjast með framvindu máia
ef farið yrði að leita tilboða um fijálsa
sölu eigna þrotabúsins.
á þingi telst hann ekki þingf lokkur.
„Það hafa borist þrír reikningar,
stílaðir á ríkisstjórnina, frá Stefáni
Valgeirssyni fyrir hönd Samtaka um
jafnrétti og félagshyggju," sagði Jón
Sveinsson. „Þessir reikningar eru
því ekki til eins ákveðins einstakl-
ings, heldur samtakanna sem slíkra,
en það er svo þeirra mál hvernig
farið er með þessa peninga. Reikn-
ingarnir ná til október, nóvember
og desember og falla undir ríkis-
stjórnarlið. Reikningarnir bárust í
lok desember og það hefur ekki ver-
ið gengið frá greiðslu, en miðað við
samþykkt ríkisstjórnarinnar á ég
von á að svo verði."
Jón sagði aðspurður, að reikning-
arnir væru ekki sundurliðaðir. Þeim
fylgdi lýsing þar sem segði að þeir
væru vegna sérfræðiaðstoðar og
nauðsynlegrar ráðgjafar og upplýs-
ingaöflunar vegna lagafrumvarpa
og annarra þingmála ríkisstjórnar-
innar. Þá sagði Jón, að áður en að-
stoðarmaður Stefáns fór á launaskrá
hjá forsætisráðuneytinu hefði Stefán
lagt inn reikninga hjá ráðuneytinu
vegna kostnaðar við sérfræðiaðstoð,
sem hann hefði talið sér nauðsyn-
lega, fyrst og fremst vegna þátttöku
í ríkisstjórninni á þeim tíma. Þeir
reikningar hefðu hins vegar numið
mun lægri upphæðum.
Vinnsluheimildir á físki undan ströndum Alaska:
Nefiid fer mögnleg'a utan til að
ræða um þorskvinnsluheimildir
Meðmæli með Islensk alþjóðlega togarafélaginu dregin til baka
í ATHUGUN er að íslensk sendinefiid fari til Washington í næstu
viku til viðræðna við bandaríska embættismenn um þorskvinnslu-
heimildir fyrir íslenska úthafsveiðifélagið undan ströndum Alaska.
Félagið hefúr fengið heimildir til vinnslu á öðrum fisktegundum, en
skip þess hefur ekki þann búnað sem til þarf. íslensk alþjóðlega
togarafélagið sótti einnig um vinnsluheimildir hjá Norður-Kyrrahafs-
fiskveiðiráðinu, en fékk ekki þar sem sjávarútvegsráðuneytið dró
meðmæli með félaginu til baka.
Að sögn Hermanns Sveinbjöms-
sonar, 'aðstoðarmanns sjávarút-
vegsráðherra, voru meðmælin gefin
í fljótræði og ákveðið að draga þau
til baka af tækniiegum og pólitísk-
um ástæðum. Hermann segir að
íslensk alþjóðlega togarafélagið sé
ekki skráð á íslandi og skipið ekki
heldur, en þetta séu forsendur þess
að meðmæli sé unnt að veita.
Hann segir að ráðuneytið hafi
fengið upplýsingar um að úthlutun
veiði- og vinnsluheimildanna sé afar
viðkvæmt mál vestanhafs. Stefnan
sé sú að Bandaríkjamenn taki veið-
ar og vinnslti yfir og því þrengist
um úthlutanir. Talið hafi verið að
það skapaði ókyrrð ef tvær umsókn-
ir bærust héðan á sama tíma, niður-
staðan gæti orðið sú að hvorugt
félagið fengi heimildir til vinnslu.
Þá segir Hermann að stjórnvöld
hafi litið til þess að íslenska úthafs-
veiðifélagið ætti skip, en íslensk
alþjóðlega togarafélagið hefði að-
eins pappíra.
Jón Steinar Árnason, fram-
kvæmdastjóri íslensk alþjóðlega
togarafélagsins, segist lítið botna í
hvernig íslenskt stjórnkerfi vinni.
Sótt hafi verið um leyfi út á ákveð-
ið skip, sem bráðabirgðakallmerki
hafi fengist fyrir hjá siglingamála-
stjóra. Félagið hafi ekki viljað
leggja út í kaup á skipinu, nema
að hafa héimildirnar sem sótt var
um, enda bágt að sitja uppi með
600 milljóna skip til þess eins að
horfa á það.
Jón Steinar bendir á að þegar
íslenska úthafsveiðifélagið fékk
fyrst meðmæli stjórnvalda hér, hafi
skip þess ekki verið skráð eins og
nú sé krafist af íslensk alþjóðlega
togarafélaginu.
Hermann Sveinbjörnsson stað-
festir þetta en vísar til þess að
fleira, sem hann hafi rakið, hafi
orðið til þess að meðmæli með tog-
arafélaginu hafi verið dregin til
baka.
Ekki í kjöri
í flokksráð
„ÉG var ekki í kjöri í flokksráð á
aðalfundi fúlltrúaráðs Sjálfstæðis-
félaganna í Reykjavík, og það er
því bæði rangt og villandi sem
fram kom í Morgunblaðinu þar
sem sagt var að ég hafi ekki náð
kjöri í flokksráðið," sagði Júlíus
Hafstein í samtali við Morgun-
blaðið í gær.
Júlíus sagði að sér hafi-verið til-
kynnt um tilnefningu stjórnar full-
trúaráðsins um átta manna fram-
boðslista, þar sem Margrét S. Einars-
dóttir kom í stað Júlíusar. Þar sem
hann hafi ekki séð neitt athugavert
við tilnefninguna hafi hann stutt
hana á aðalfundinum.
„Ef ég hefði haft eitthvað við til-
nefningu stjórnarinnar að athuga þá
hefði ég að sjálfsögðu farið í kosn-
ingu á fundinum. Stjórn fulltrúaráðs-
ins gerir oft breytingar á mönnum
milli ára, og ég hef oft setið fyrir
utan flokksráð, og það er ekkert við
það að athuga,“ sagði Júlíus.
Dæmdur til
öryggisgæslu
ÞRÍTUGUR maður heíúr ver-
ið dæmdur til öryggisgæslu á
viðeigandi stofnun fyrir til-
raun til manndráps með því
að veita móður sinni lífshættu-
legan áverka með hnífi. Mað-
urinn var talinn ósakhæfur
vegna geðveiki. Atburðurinn
varð á heimili mæðginanna í
Reykjavík í september sl.