Morgunblaðið - 13.01.1990, Side 4
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 13. JANÚAR 1990
Yfír 200 milljóna tjón af stormflóðum:
Vilji hjá ríkissljórn til að
aðstoða við uppbyggingu
Tillögur þriggja ráðherra ræddar í næstu viku
TJÓN af völdum stormflóða sem
gengu yfir suðvesturströndina í
vikunni er metið rúmar 200 millj-
ónir króna. Á fundi ríkisstjómar-
innar í gærmorgun var þremur
ráðhermm falið að gera tillögur
um hvernig standa skuli að því
að bæta tjónið. Ráðherrarnir
munu í næstu viku leggja fyrir
stjómina hugmyndir um hvaða
tjón verði bætt og hvernig fá
megi fé til þess.
Jóhanna Sigurðardóttir félags-
málaráðherra tók málið upp í ríkis-
stjóminni í gær og lagði meðal ann-
ars fram hjálparbeiðni hreppsnefnd-
arinnar á Stokkseyri. Þar er óskað
peningaaðstoðar vegna uppbygging-
VEÐUR
ar sjóvarnargarða og vegna vega-
skemmda. Jafnframt fer hrepps-
nefndin þess á leit við ríkisstjórnina
að hún beiti sér fyrir því við Byggða-
stofnun að eigendur fyrirtækja sem
fóru illa í óveðrinu fái styrk til að
byggja þau upp.
Að sögn Jóhönnu Sigurðardóttur
er fullur vilji til þess í ríkisstjórninni
að veita alla þá aðstoð sem unnt
reynist. Auk Jóhönnu var Ólafi
Ragnari Grímssyni fjármálaráðherra
og Steingrími J. Sigfússyni sam-
gönguráðherra falið að gera tillögur
þar að lútandi.
Jóhanna Sigurðardóttir segir ekki
ljóst ennþá hvort unnt verði að
greiða yfir 200 milljónir úr ríkissjóði
til uppbyggingarstarfsins. Aðspurð
um forgangsröð kveðst hún telja
afar brýnt að byggja upp sjóvarnar-
garða, sem fóru mjög illa við Stokks-
eyri og Grindavík, og styrkja þá frá
því sem var áður en stormflóðin
gengu yfir. Jóhanna segir sama
gilda um hafnarmannvirki, sem
skemmdust við Grindavík og Sand-
gerði.
Samkvæmt- útreikningum Vita-
og hafnamálastjórnar er áætlaður
kostnaður við uppbyggingu nýrra
sjóvarnargarða við Eyrarbakka,
Stokkseyri og Grindavík, sem
skemmdust mikið í stormflóðinu
aðfararnótt þriðjudags, 115 milljónir
króna. í þeim útreikningum eru ekki
sjóvarnargarðar á milli Stokkseyrar
og Eyrarbakka og í Selvogi, né garð-
/ DAG kl. 12.00:
Heimild: Veðurstofa íslands
(Byggt á veðurspá kl. 16.15 I gær) -
VEÐURHORFUR I DAG, 13. JANUAR.
YFIRLIT í GÆR: Um 400 km austur af Langanesi er 963 mb lægð
á hreyfingu noröaustur en yfir Grænlandi er 1015 mb hæð. Um
600 km suðsuðaustur af Hvarfi er 968 mb lægð á leið norðaustur
oá síðar austnorðaustur. Veður er lítið eitt kólnandi.
SPÁ: IMorðaustangola vestanlands og skýjað en úrkomulaust. Aust-
ankaldi og lítilsháttar snjókoma við suðurströndina, annars staðar
hægviðri en skýjað.
VEÐURHORFUR NÆSTU DAGA:
HORFUR Á SUNNUDAG: Breytileg átt, 2 til 3 vindstig. Skýjað, en
líklega úrkomulítið. Hiti um frostmark.
HORFUR Á MÁNUDAG: Norðan- og norðvestanátt, víða él eða
slydduél norðan- og vestanlands en úrkomuminna eða úrkomu-
laust annars staðar. Frost 1-4 stig.
x Norftan, 4 vindstig:
v Vindörin sýnir vind-
stefnu og fjaðrimar
vindstyrk, heil fjöður
er 2 vindstig.
r r r
r r r r Rigning
r r r
* r *
r * r * Slydda
r * r
* * *
* * * * Snjókoma
* * *
10 Hitastig:
10 gráöur á Celsius
ý Skúrir
*
V El
— Þoka
= Þokumóða
’ , ’ Súld
OO Mistur
—Skafrenningur
[~<^ Þrumuveður
m VEÐUR VÍÐA UM HEIM kl. 12:00 í gær að ísl. tíma hitl veður Akureyri 0 snjókoma Reykjavík +1 hálfskýjað
Bergen 8 súld
Helsinki +17 skýjað
Kaupmannah. 7 þokumó&a
Narssarssuaq +16 léttskýjað
Nuuk +12 skýjað
Osló 2 þoka í grennd
Stokkhólmur 0 slydda
Þórshöfn 5 rigning
Algarve 14 skýjað
Amsterdam 3 þoka á s.klst.
Barcelona 14 rykmistur
Berlín 8 þokumóða
Chicago +4 snjóél á s.klst.
Feneyjar 5 þokumóða
Frankfurt 0 þokumóða
Glasgow 7 léttskýjað
Hamborg Las Palmas 7 léttskýjað vantar
London 8 mistur
Los Angeles 12 skýjað
Lúxemborg +3 hrímþoka
Madrfd 8 léttskýjað
Malaga 14 léttskýjað
Mallorca 13 skýjað
Montreal 0 snjókoma
New York 4 hálfskýjað
Orlando 11 þoka
París 0 þoka
Róm 10 þokumóða
Vín +5 hrimþoka
Washingtoir 5 snjóél
Winnipeg +18 heiðskírt
ar utan þéttbýlis, á Reykjanesi og
við Hafnir.
Jón Leví Hilmarsson, verkfræð-
ingur hjá Vita- og hafnamálastjórn,
sagði að kostnaður við endurbætur
á hafnarmannvirkjum í Grindavík
væri metinn á 60-70 milljónir króna,
en þar vegur þyngst Kvíabryggja,
sem gereyðilagðist, en Svírabryggja
og Eyjabakki skemmdust mikið. Auk
þess kom rof í hafnargarðinn. Kostn-
aður við lagfæringar á höfninni og
sjóvarnargörðum í Sandgerði er
metinn á fjórar milljónir króna.
Lítilsháttar tjón varð einnig á hafn-
armannvirkjum Norðanlands, á
Svalbarðseyri. Alls er kostnaður við
endurbætur á hafnarmannvirkjum
því metinn á um 75 milljónir króna.
Kostnaður við lagfæringar á sjó-
varnargörðum við byggð er metinn
á 115 milljónir króna, en þá er ekki
reiknað með endurbótum á görðum
utan þéttbýlis, eins og við Selvog, á
Reykjanesi og Höfnum.
' Kostnaður við lagfæringar á sjó-
varnargörðum við strendur Selvogs
er talinn nema tugmilljónum króna.
Jón Leví sagði að byrjað hefði
verið að byggja sjóvarnargarða við
Stokkseyri og Eyrarbakka strax á
18. öld og hefði hluti þeirra rofnað
nú í stormflóðinu. Einnig voru
nokkrir garðar handhlaðnir á þess-
um stöðum í byijun þessarar aldar.
„Þessir garðar sem við byggjum upp
núna eru úr mismunandi efnisflokk-
um og efnisstærðum. Við hlöðum
garð úr smáu gijóti sem kjarna og
hlöðum æ stærra gijóti utan á sem
varnarkápu. Með þessu lagi eiga sjó-
varnargarðar að þola mun meira
álag en gömlu garðarnir," sagði Jón
Leví.
Svonefndir dólossar, steinsteypt
varnargijót, hefur ekki verið notað
í sjóvarnargarða nema í Þorláks-
höfn, en það þykir of dýr kostur.
„Rúmmetrinn af steypu kostar um
15.000 krónur meðan rúmmetrinn )
af gijóti kostar ekki nema 1.500
krónur," sagði Jón Leví.
Jón Leví sagði að Stokkseyri og
Eyrarbakki væru núna óvarin fyrir
hafi og gæti mikill vandi steðjað að
þorpunum ef eitthvað væri að yeðri. )
Því væri mjög brýnt að hefjast þeg-
ar handa við lagfæringar á sjóvarn-
argörðum þar.
Tveir háhyrn-
ingar seldir
til Frakklands
TVEIR af þeim fjórum háhyrn-
ingum, sem hafa verið í Sædýra-
safninu í Hafnarfirði, eru farnir
til Nice í Frakklandi. Þeir voru
fluttir þangað í gær. Enn er ekki
ljóst hvert hinir tveir háhyrning-
arnir verða seldir.
Högni Torfason látínn
HÖGNI Torfason, fyrrverandi
fréttamaður Ríkisútvarpsins og
fréttaritari Morgunblaðsins á
ísafirði, lést á Borgarspítalanum
á föstudagsmorgun. Högni fædd-
ist 5. mars 1924 á ísafirði. For-
eldrar hans voru Torfi Halldór
Halldórsson skipstjóri þar og
síðar í Reykjavík, og kona hans,
• Björg Elín Finnsdóttir. Högni
kvæntist Guðbjörgu Halldóru
Guðbjartsdóttur 13. febrúar 1949
og lifir hún mann sinn. Börn
þeirra eru Hildigunnur, fædd 17.
nóvember 1949, Yngvi, fæddur
23. september 1953, og Aðal-
heiður, fædd 18. október 1958.
Högni Torfason útskrifaðist sem
gangfræðingur frá Menntaskólan-
um á Akureyri árið 1941. Högni
var þýðandi við skeytaskoðun
Bandaríkjaflota 1942-1944, starfs-
maður við sendiráð Bandaríkjanna
í Reykjavík 1945-1948, fréttamað-
ur við Ríkisútvarpið 1. apríl 1948
til 30. júní 1962 og fréttaritstjóri
dagblaðsins Myndar sumarið 1962.
Hann var ráðinn erindreki Sjálf-
stæðisflokksins á Vestfjörðum, með
búsetu á ísafirði, haustið 1962 og
ritstjóri blaðsins Vesturland frá vori
1963 og gegndi báðum störfum til
1969.
Leiðrétting
í frétt Morgunblaðsins í gær af
kjöri manna í flokksráð Sjálf-
stæðisflokksins kemur fram, að
Júlíus Hafstein hafi ekki náð
kjöri í ráðið „á aðalfundi fulltrú-
aráðs sjálfstæðisfélaganna." Hið
rétta er, að Júlíus náði ekki kjöri
á fundi í stjórn fulltrúaráðsins.
Þar hlaut hann 7 atkvæði af 18
og var Margrét S. Einarsdóttir
kjörin í hans stað.
Beðizt er velvirðingar á þess-
um mistökum.
Högni var starfsmaður dóms-
málaráðuneytisins við útgáfu Lög-
birtingarblaðsins og Stjórnartíðinda
1970-1975 og varð skrifstofustjóri
verksmiðjunnar Vilko árið 1976.
Hann var í stjóm Blaðamannafé-
lags íslands 1950-1951 og 1960-
1961, framkvæmdastjóri Norræna
blaðamannamótsins í Reykjavík
1953 og 1958, formaður starfs-
mannafélags Ríkisútvarpsins
1953-1956, í stjórn ÍR 1959, rit-
stjóri blaðsins Vogar í Kópavogi
1960-1962, varabæjarfulltrúi í
Kópavogi 1961 og í vatnsveitu- og
bókasafnsnefnd bæjarstjórnar.
Högni var formaður Bridgefélags
ísafjarðar 1963-’69 og Bridgesam-
bands Vestfjarða 1964-’69, í stjórn
Skáksambands íslands 1976:’80 og
varaforseti þess 1976-’79.
Högni Torfason var fréttaritari
Morgunblaðsins á ísafirði um ára-
bil. Morgunblaðið sendir ástvinum