Morgunblaðið - 13.01.1990, Page 11
MORGUNBLAÐIÐ LMJGAftDAGUR 18: JANÚAR 1990
Þorsteinn Valdimarsson skáld varð fyrstur
til þess að kveðja sér hljóðs undir limrulagi
hér á landi. Meðal bóka hans er Fiðrilda-
dans með 88 „fimmlínum“. Þessa kallar
hann Fiðrildi:
Svo þig langar til fiðrildalands?
- Jæja, lærðu minn vængjaða dans
og flýttu þér;
síðan fylgirðu mér
á flugstigu repbogans!
Um jólin fletti ég Ljóðarabbi Sveins
Skorra Höskuldssonar, sem er að stofni til
erindi, sem hann flutti i Ríkisútvarpið fyrir
þremur árum. Auðvitað er þessi bók kær-
komin hverjum þeim, sem hefur gaman af
ljóðum. Jafn sjálfsagt er, að við skiljum og
skynjum ljóð með jafn mismunandi hætti
og við erum mörg sem njótum þeirra. Eg
nefni stutt ljóð, Haust eftir Snorra Hjartar-
son, sem glöggt dæmi þess, hversu ólíkir
lesendur ljóða við Sveinn Skorri erum.
Sveinn Skorri segir Haust meðal þeirra
kvæða, sem einna helst minni sig á fiðrildi:
„Þau koma fljúgandi og maður getur dáðst
að flugi þeirra og litadýrð, en jafnframt
þorir maður ekki að snerta þau af ótta við
að tortíma þeim, púðurkennt litskrúð fiðr-
ildavængja getur skaddast og horfið við
snertingu eina.“
... í dag er hlíðin hélugrá og rauð
því haustið kom í nótt, ég sá
það koma vestan vatn í gegnum svefninn;
vatnið er hemað þar sem slóð þess lá.
Þegar ég les þessa haustvísu, finnast mér
fiðrildin vera dauð fyrir löngu. í sannleika
sagt væri fiðrildi eitthvað það síðasta, sem
mér kæmi í hug, væri ég spurður, hvaða
lífvera kæmi til mín eins og þetta ljóð.
Ég get á hinn bóginn tekið undir með
Sveini Skorra, þegar hann spyr: Hvi kemur
haustið vestan vatn? Samkvæmt íslenskri
orðsifjabók er upphafleg merking orðsins
vestur líklega „átt sólarlagsins, sólsetur",
og er þá spurningunni svarað. Haustið kem-
ur að vestan eins og vorið að austan. Sam-
kvæmt sömu heimild er austur „uppkomu-
átt sólar og hefur nafn sitt af birtu og
morgunljóma“. Sá maður væri áttavilltur,
sem sneri þessu við. Ég tala nú ekki um,
ef norður yrði tákn fyrir sól og sumar, en
sunnangola ráðandi átt á þorra.
Sveinn Skorri rifjar upp, að ljóðabók
Snorra, A Gnitaheiði, sem út kom 1952,
Jóhannes úr Kötlum
beri glögg merki sósíalískra skoðana skálds-
ins og talar um kalt stríð, eins og vinstri
mönnum er gjamt. Síðan spyr hann: „Tjáir
ljóðið ugg skálds frammi fyrir því frosti,
þeim pólitíska vetri og dauða, sem stundar
að úr vestri?“
Ég geri ráð fyrir, að Sveinn Skorri hafi
skilið þetta litla haustljóð eins og hann gef-
ur í skyn með spurningunni. Þó gefur ljóðið
ekki tilefni til slíkra pólitískra málaleng-
inga, sem óhjákvæmilegt er að kalla of-
stæki. Heimskulegt ofstæki nú, þegar spurn-
ingin er fram borin, eftir að Berlínarmúrnum
hefur verið rutt úr vegi. Og í einni skynd-
ingu hafa gáttimar verið að opnast austur
á bóginn og hlýr andvari frelsisins tekið að
leika um borgir og lönd, þar sem fólkið
hefur svo lengi stunið undan „pólitískum
vetri og dauða“ sósíalismans.
Hvað sem líður stjómmálaskoðunum
Snorra Hjartarsonar, þarf ljóðið Haust ekki
á þeim að halda og má undir engum kring-
umstæðum gjalda þeirra. Ljóðið er of gott
til þess.
Olafur Ragnar Grímsson hefur átt sæti í
sjálfskipuðu „heimsfriðarráði", þar sem fé-
lagsskapurinn hefur ekki verið upp á það
allra besta. Eftir að Ceausescu hafði verið
velt úr sessi, var haft sjónvarpsviðtal við
Ólaf Ragnar, þar sem í ljós kom, að hann
hafði verið leiddur um glerhús hins só-
síalíska leiðtoga. Af því tilefni orti Móri sér
til gamans:
Upp á mína æm og trú *
Ólafur Ragnar gleðst með vinum.
Sýpur te með Ceausescú
og síðan líka öllum hinum.
Fyrir jól kom til snarpra orðaskipta milli
Stefáns Valgeirssonar og Steingríms Her-
mannssonar. Þá kom í ljós, að haustið 1988
hafði Steingrímur gefið Stefáni fyrirheit um,
að hann héldi sæti sínu í bankaráði Búnaðar-
bankans, ef hann gengi til liðs við sig. Þá
þurfti Steingrímur á Stefáni að halda, sem
auðvitað breyttist, eftir að Borgaraflokkur-
inn gekk inn í ríkisstjórnina sl. haust. Þess
vegna orti Mori, meðan það var að gerast:
Bráðum stjómin birtist ný,
blendnu mjög af kyni.
Og strax er farið að styttast í
Stefáni Valgeirssyni.
Á sínum tíma orti Jóhannes úr Kötlum í
gamansömum tón til Kristmanns Guð-
mundssonar:
Lít ég einn er list ann
löngum hafa þær kysst ’ann
Kristmann.
Og Kristmann svaraði:
Allir þó við ötlum
að þær fari úr pjötlum
í Kötlum.
Móri hefur spreytt sig á þessum bragar-
hætti og kallar Martröð kratans:
Að þafa þennan Hattman!
- Ég hugga mig'við Batman
og Skattman!!!
Ekki verður meira kveðið að sinni.
Halldór Blöndal
Limran
Er á SÍS bregður frostköldum fólva
og með framsóknarvírus er tölva
og stjórnin að tapa,
hans stjama er að hrapa
hrópar Steingrímur: „Hvar er mín völva?"
0)11
Úr söng- og danssýningunni
„Rokkóperur" á Hótel íslandi.
■ „ROKKÓPERUR", söng- og
danssýningin, sem sýnd hefurverið
við miklar vinsældir, verður sýnd
áfram á Hótel íslandi í vetur og
fram á sumar. Sýningin hefur nú
þegar verið sýnd í 25 skipti og
hafa færri komist að en vilja. Á
þessum kvöldum er framreiddur
kvöldverður en gestir geta einnig
komið eftir matinn og séð sýning-
una. Þess má geta að matseðillinn
samanstendur af tveimur forrétt-
um, tveimur aðalréttum og tveimur
eftirréttum og geta gestir valið á
milli. í sýningunni koma fram fjöl-
margir íslenskir listamenn, bæði
söngvarar og dansarar, og f lytja lög
úr ýmsum heimsfrægum söngleikj-
um svo sem Jesus Christ Superst-
ar, Cats, Grease o.fl. Kynnir er
Rósa Ingólfsdóttir, hljómsveitar-
stjóri er Jón Ólafsson en leikstjórn
er í höndum Maríönnu Friðjóns-
dóttur.
(Fréttatilkynning)
■ / ANDDYRI NORRÆNA
HÚSSINS verður opnuð ljósmynda-
sýning í dag. Hér er um að ræða
myndir sem sænski ljósmyndarinn
Bruno Ehrs hefur tekið af högg-
myndum eftir fimm af þekktustu
myndhöggvurum Norðurlanda.
Ritstjórn listatímaritsins SIKSI,
~ sem gef ið er út af norrænu listamið-
stöðinni í Sveaborg, sem ákvað að
helga eitt tölublað þemanu helstu
myndhöggvarar Norðurlanda. Vald-
ir voru myndhöggvararnir Einar
Jónsson, íslandi, Rudolph Tegn-
er, Danmörku, Gustav Vigeland,
Noregi, Walno Aaltonen, Finn-
landi, og Carl Milles, Svíþjóð.
Bruno Ehrs var valinn til þessa
verkefnis og ferðaðist hann um
Norðurlönd og tók ljósmyndir af
höggmyndum meistaranna. Mynd-
irnar er 25, allar svarthvítar. Sýn-
ingin var fyrst sett upp í Milles-
safninu í Stokkhólmi og síðan
hafa myndirnar verið sýndar í Dan-
mörku, Rudolph Tegner-safninu
og Gammel Holtegaard-safninu.
Sýningin er opin daglega frá kl.
9-19, nema sunnudaga frá kl.
12-19.
Borgarstjórnarframboð Sjálfstæðisflokksins:
Eínmítt nú tækifæri
til að hvíla prófkjör
- segir Baldur Guðlaugsson - Mikil
tímaskekkja, segir Arni Sigurðsson
BALDUR Guðlaugsson formað-
ur stjórnar fúlltrúaráðs Sjálf-
stæðisfélaganna í Reykjavík
segir að kjörnefnd, sem velur
frambjóðendur á lista Sjálf-
stæðisflokksins í komandi
borgarstjórnarkosningum í
vor, séu ekki sett tímamörk, en
hann telur ekki ólíklegt að hún
skili af sér í næsta mánuði.
Aðalfúndur fulltrúaráðsins
felldi tillögu um prófkjör á mið-
vikudagskvöld, eftir að Baldur
hafði gert grein fyrir því áliti
meirihluta stjórnarinnar, að
fela bæri kjörnefnd uppstillingu
á listann. „Hafí einhvern tíma
verið tækifæri til að hvíla próf-
kjör, þá er það nú,“ sagði hann
á fúndinum. Morgunblaðið
ræddi við Baldur og Arna Sig-
urðsson, flutningsmann tillög-
unnar um prófkjör.
Baldur segir kjörnefnd munu
ganga frá tillögum um lista og
verður hann lagður fyrir fund í
fulltrúaráðinu sem tekur endan-
lega ákvörðun um listann. Kosið
var í nefndina í fulltrúaráðinu í
haust og er hún að því leyti tilbú-
in.
Baldur segir að samkvæmt
skipulagsreglum Sjálfstæðis-
flokksins skuli tilhögun framboðs
vera þannig, að kjörnefnd raði á
framboðslista, nema því aðeins
að fulltrúaráðið ákveði annað. Á
aðalfundi ráðsins gerði hann grein
fyrir helstu rökum með og á móti
prófkjöri, sem í undanförnum
kosningum hefur verið viðhaft á
vegum Sjálfstæðisflokksins í
Reykjavík. Hann vitnaði meðal
annars í álit stjórna tveggja Sjálf-
stæðisfélaga, Óðins og Heimdall-
ar, sem voru á öndverðum meiði.
Síðan gerði hann grein fyrir því
áliti meirihluta stjórnarinnar, að
kjörnefnd ætti að raða á listann.
Baldur var spurður hver væru
helstu rökin fyrir þeirri ákvörðun.
Hann sagði prófkjör hafa sætt
vaxandi gagnrýni á undanförnum
árum. Meðal helstu gagnrýnisat-
riða sé mikil og óeðlileg smölun,
innbyrðis átök sem meðal annars
valdi því að fólk fáist ekki til þátt-
töku, prófkjör þyki skila of ein-
hæfum lista, þátttakendur leiðist
út í peningaaustur og auglýs-
ingastríð. „En ég býst við að hjá
flestum hafi ráðið mestu, að þeir
hafi talið rétt að staldra aðeins
við, fá betra tækifæri til að vera
með hreint borð til að vega og
jneta einstakar aðferðir. Ég held
að menn hafi þurft að brjóta af
sér vanann. Kannski verður niður-
staðan sú, að menn verði óhrædd-
ari við að breyta til í framtíðinni."
Þá nefndi Baldur að prófkjör
sem slík séu af ólíkum toga og
menn ekki á eitt sáttir um hvern-
ig beri að haga þeim, enda kvaðst
hann telja að fleiri hafi stutt til-
lögu um prófkjör, heldur en hefðu
verið reiðubúnir til að styðja til-
lögu um ákveðið form prófkjörs.
„Ég held að flestir séu farnir
að viðurkenna að kostir og gallar
eru á öllum aðferðum og ábyggi-
lega hafa margir átt erfitt með
að gera upp við sig hvort þeir
vildu prófkjör eða kjörnefnd,“
sagði Baldur. Hann nefndi til
marks um það, að á áðalfundinum
urðu litlar umræður um val á list-
ann og þurfti fundarstjóri að
margítreka hvatningu til manha
að tjá hug sinn og ennfremur að
hann þurfti að minna á, að án
tillögu um prófkjör, væri sjálfgef-
ið að kjörnefnd stillti upp. Baldur
sagði það hafa komið sér á óvart,
að ganga þurfti eftir tillögu um
prófkjör, þar sem hann kvaðst
hafa átt von á að hún kæmi strax
fram. „Hún kom %fram og ekki
verður deilt um niðurstöðu at-
kvæðagreiðslunnar, munurinn var
afgerandi."
90 greiddu prófkjöri atkvæði,
136 höfnuðu því og fjórir seðlar
voru auðir. Baldur kvaðst að lok-
um vilja taka það skýrt fram, að
þessi ákvörðun gilti einungis um
komandi borgarstjórnarkosningar
og væri því að öðru leyti á engan
hátt bindandi fyrir framtíðina.
Ámi Sigurðsson sagði að hann
hafi ekki komið á fundinn í þeim
tilgangi að leggja fram tillögu um
prófkjör. Hann hafi búist við að
tillaga þar að lútandi kæmi frá
stjóm Heimdallar, þar sem stjórn-
in hafði samþykkt stuðning við
prófkjör og sent stjórn fulltrúar-
áðsins ítarlegt bréf með röksemd-
um fyrir prófkjöri. „Undir lokin,
þegar ljóst var að Birgir Ár-
mannsson, formaður Heimdallar,
ætlaði ekki að leggja fram tillögu
um prófkjör, sá ég mig til knúinn
að leggja það til, þar sem fundar-
stjóri hafði ítrekeð að ef ekki
kæmi tillaga um prófkjör yrði
stillt ugp á listann af kjörnefnd,"
sagði Árni. „Ég hafði orðið var
við mikið fylgi við prófkjör í röðum
. sjálfstæðismanna og því þótti mér
rétt að á það reyndi í atkvæða-
greiðslu á þessum aðalfundi full-
trúaráðsins hver vilji þess væri.
Atkvæðagreiðslan fór svona og
við þau úrslit sættir maður sig.
Mér finnst það hins vegar vera
mikil tímaskekkja að hafna próf-
kjöri og ekki vera í samræmi við
kröfur fólks um lýðræðislega
stjórnmálastarfsemi. Ég óttast að
vegna þessarár niðurstöðu verði
höggvin skörð í fylgi Sjálfstæðis-
flokksins í Reykjavík. Á hinn bóg-
inn vona ég að þetta verði ekki
til þess að prófkjör leggist af í
framtíðinni,“ sagði Árni.