Morgunblaðið - 13.01.1990, Side 16
1
n
16
4
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 13. JANUAR 1990
Gervitungli bjargað um borð
í geimfeijuna Kólumbíu
Houston. Reuter.
ÁHÖFN bandarísku geimferj-
unnar Kólumbíu tókst í gær að
bjarga hinu svonefiida LDEF-
gervitungli. Hefði það hrapað til
jarðar í næsta mánuði ef það
hefði ekki náðst um borð í ferj-
una. Tunglið er á stærð við stræt-
isvagn og um borð í því höfðu
verið gerðar 57 mismunandi
vísindatilraunir.
Tannburstar geta verið
gróðrarstíur sjúkdóma
Florida. Frá Atla Steinarssyni, fréttaritara Morgunblaðsins.
TANNBURSTAR geta verið mikl-
ar gróðrarstíur fyrir bakteríur
og þeir geta dreift sýklum sem
valda tannskemmdum og tann-
holdssjúkdómum og einnig kvefi,
■ JERÚSALEM - Shimon Peres,
varaforsætisráðherra Israels, hót-
aði í gær stjórnarslitum ef sam-
steypustjórn Verkamannaflokksins
og Likudflokksins tækist ekki að
koma hreyfingu á viðræður um frið
í Miðausturlöndum. Peres sagði að
friðarumleitanir væru komnar í
hnút og ef ekki yrði hoggið á hann
kæmi að því að taka þyrfti ákvörð-
un um framtíð stjórnarsamstarfs-
ins. t
■ WASHINGTON - Verðfall varð
á verðbréfamörkuðum í New York
í gær er bandarísk stjórnvöld
skýrðu frá því að verðlag hefði
hækkað um 0,7% í desember. Verð-
fall á mörkuðum í London og Tókíó'
í gær varð enn til að þrýsta á
Bandaríkjadollar og auka á fallið í
Wall Street.
■ BRUSSEL - Fangi sem dæmd-
ur var til dauða fyrir morð í Belgíu
hefur krafist þess að dómnum verði
fullnægt. Hann hefur hótað beigísk-
um stjórnvöldum málshöfðun ann-
aðhvort fyrir Mannréttindadóm-
stólnum í Strassborg-eða dómstóli
Evrópubandalagsins í Lúxemborg
verði hann ekki tekinn af lífi.
Dauðarefsing var aflögð í Belgíu í
lok fyrri heimsstyijaldarinnar á
þann hátt að konungur landsins
breytir viðstöðulaust dauðadómum
í lífstíðarfangelsi.
inflúensu, bronkítis og maga-
truflunum, samkvæmt niðurstöð-
um nýlegrar rannsóknar.
Dr. Richard Glass við Okla-
homa-háskólann segir að fólk ætti
að skipta um tannbursta á tveggja
vikna frésti en meðan tannbursti
sé í notkun eigi að geyma hann
óvarinn í svefnherberginu því bakt-
eríur þrífist best í hlýju og röku
lofti eins og er oft í baðherbergjum
og tannburstahylkjum.
Dr. Glass segir að til að gæta
ítrasta hreinlætis eigi heilbrigt fólk
að skipta um tannbursta á tveggja
vikna fresti en þrívegis sé það með
kvef—á byijunarstigi sjúkleikans,
þegar fólki fer að líða betur og
þegar það hefur náð fullri heilsu á
ný-
Hann segir að krabbameinssjúkl-
ingar eigi að skipta um tannbursta
á þriggja daga fresti meðan þeir
gangast undir efnalækningar.
Sama gildi um ofnæmissjúklinga.
Sjúklingar sem gangist undir meiri-
háttar skurðaðgerð eigi að skipta
um tannbursta daglega því að eftir
aðgerð er sýkingarhættan mest.
Þessar nýju kenningar dr. Glass
vekja nokkra athygli því tann-
burstaframleiðendur telja að al-
mennt skipti Bandaríkjamenn ekki
um tannbursta nema á níu mánaða
fresti að meðaltali.
Til að finna einhvern milliveg
hafa blöð bent á einnota tannbursta
og einnig þann möguleika að sótt-
hreinsa tannburstana a.m.k. aðra
hvora viku með því að skola þá upp
úr sótthreinsandi vökva.
Til þessa hefur nokkrum gervi-
tunglum verið bjargað um borð í
bandarískar geimferjur. Að þessu
sinni var björgunin flóknari og
vandasamari en áður þar sem
LDEF-tunglið er mun stærra en hin
fyrri. Er það 11 tonn að þyngd, 10
metra langt og fimm metrar í þver-
mál eða á stærð við stóran strætis-
vagn.
Tunglið hafði verið á lofti frá því
í apríl 1984. Er það í raun fljúg-
andi rannsóknarstofa. Um borð
hafa verið gerð'ar ýmsar vísindatil-
raunir þar sem könnuð hafa verið
áhrif langvarandi geislunar utan
gufuhvolfsins á margs konar hluti.
Er gert ráð fyrir að upplýsingar sem
úr þeim fást rriúni hafa mikla þýð-
ingu við hönnun geimfara, gervi-
tungla, og ekki síst geimstöðvarinn-
ar Frelsis (Freedom) sem í bígerð
er að smíða.
Kólumbíu var skotið á loft sl.
þriðjudag og er ráðgert að hún lendi
19. janúar eftir 10 daga för. Hefur
ferðin gengið að óskum hingað til.
Á miðvikudag kom áhö|n Kólumbíu
fjarskiptahnetti fyrir ’ bandaríska
sjóherinn á braut. Smávægis vatn-
sleka varð vart í fyrradag um borð
í geimfeijunni en áhöfninni tókst
að gera við hann og hefur hann
engin áhrif á leiðangurinn.
Gervitunglinu bjargaö
Bandarísku geimferjunni Kólumbfu var skotið á loft á þriðjudag. Helsta
markmið feröarinnar er að bjarga stóru rannsóknartungli, sem falliö
hefur af braut sinni vegna bilunar. ;;
Aðdragandinn: Gervitunglíð:
■ Gervitunglinu var skotið á loft f apríl 1984. Farmur: Ýmis varningur
■ Áformað var að ná þvf til jarðar ári sföar. til að kanna áhrif
: Þvf var frestað til haustsins 1986. langvarandi geislunar
i Geimferjan Challenger sprakk í loft upp f Lengd: Tæpir 10 m
janúar 1986 og öll geimferðaáætlun Breidd: 4,3 m
Bandarlkjamanna fór úr skorðum. Þyngd: 11 tonn
■ Verði gervitunglinu ekki bjargað hrapar það
til jarðar I febrúar
Tölvustýröur
krani nær
gervitúnglinu
Gervitunglinu kom-
iö fyrir (farm-
rými ferjunnar
Gervitungliö miöað
viö flutningabíi
Gervitungl
hJíimSd1 NA3A
KNTN
Austur-Þýskaland:
Endurreisn öryggis-
lögreglunnar frestað
- „Stasi“ njósnar enn um óbreytta borgara
Austur-Berlín, Bonn. Reuter.
HANS Modrow, forsætisráð-
herra Austur-Þýskalands, lét í
gær undan kröfúm
flokka kommúnista
samstarfs-
stjórn og
Fall Nicolae Ceausesciís:
Vildi flýja og bauð lögreglu-
manni fímm milliónir dala
Búkarest. Reuter.
NICOLAE Ceausescu, fyrrum einvaldur Rúmeníu, bauð ungum
lögreglumanni sem gætti hans fimm milljónir dala (310 milljónir
ísl. kr.) í mútur fyrir að leyfa sér að flýja. Þetta hafði rúmenskt
dagblað eftir Jean Moldoveanu, yfírmanni rúmensku lögreglunn-
ar, á fímmtudag. Þá hefúr verið skýrt frá því að veijendur Ce-
ausescu-hjónanna hafí reynt að telja þau á að bera við geðveiki
í réttarhöldunum yfír þeim, en þau hafí ekki tekið slíkt í mál.
Ceausescu og kona hans,
Elena, voru handtekin 22. desem-
ber á flótta eftir að þyrla hafði
flutt þau frá miðborg Búkarest.
Þau voru tekin af lífi eftir tveggja
til þriggja stunda réttarhöld þrem-
ur dögum síðar.
Rúmenskt dagblað hefur skýrt
frá því að tveir lögreglumenn
hafi handtekið hjónin í kornturni,
sem hópur reiðra Rúmena hafi
umkringt um 150 km norðvestur
af Búkarest. Hjónin hafi verið
falin í skógi og flutt í skjóli næt-
ur í herbúðir í Tirgoviste, sem er
um 35 km frá skóginum. Þar
hafi þau dvalið um nóttina í her-
bergi með þremur rúmum.
Jean Moldoveanu sagði að ung-
ur lögreglumaður hefði verið í
herberginu með Ceausescu-hjón-
unum alla nóttina. Hann hefði
boðið þeim mat, dökkt brauð og
kjötbollur sem hjónin hefðu fúlsað
við með fyrirlitningu og kallað
„gijót“. Hjónin hefðu heyrt skot-
hvelli fyrir utan, tekið að skjálfa
af hræðslu og falið sig undir borði
og einu rúmanna. „Reynið að
bjarga eigin skinni. Þið væruð
ekki hér ef þið hefðuð leyft fólk-
inu að fá mat,“ hefði þá lögreglu-
maðurinn sagt við hjónin.
Moldoveanu sagði að daginn
eftir hefðu hjónin verið flutt í
aðrar herbúðir. Þar hefði ein-
valdurinn fyrrverandi boðið lög-
reglumanninum fimm milljönir
dala í mútur og sagt að hann vissi
um öruggan felustað í Pítesti, um
70 km vestur af Tirgoviste. Ce-
ausescu hefði síðan bætt við að
kæmist hann ekki þangað vildi
hann fara til Voineasa, fjallaþorps
sem reist var árið 1980. Skammt
frá þorpinu er gríðarstórt neðan-
jarðarorkuver og leynileg úraní-
um-verksmiðja. Moidoveanu sagði
að lögreglumaðurinn hefði ekki
svarað tilboðinu en kvartað yfir
Nicolae og Elena Ceausescu skömmu áður en þau voru tekin af
lífí fyrir þjóðarmorð og önnur grimmdarverk.
því hversu erfitt sér hefði þótt
að halda lítilli íbúð sinni við vegna
skorts á peningum og byggingar-
vörum á valdatíma Ceausescus.
Nicolae Federescu, veijandi
hjónanna, sagði í viðtali við
franskan sjónvarpsmann á mið-
vikudag að sér hefði reynst
ómögulegt að verja þau sem skyldi
vegna þess hve ósamvinnuþýð þau
hefðu verið. „Við veijendurnir
vildum að þau bæru við geðveiki,
því það var eina vörnin sem kom
til greina, en þau neituðu að vinna
með okkur," bætti hann við. Hann
sagði að hjónin hefðu neitað að
standa upp þegar dómurinn var
kveðinn upp og ekki sýnt nein
viðbrögð þegar þau voru dæmd
til dauða.
Nýju valdhafarnir í landinu
halda því nú fram að 50.000
manns hafi verið tekin af lífi á
valdatíma Ceausescus, eða um 40
á viku hverri. 10.000 manns hafi-
fallið í byltingunni í lok desem-
ber. Alls hafi því 60.000 manns
látið lífið vegna harðstjórnar Ce-
ausescu-hjónanna, ekki aðeins í
byltingunni í desember eins og
talið var í fyrstu.
sljórnarandstöðunnar og hætti
við áætlanir um að endurreisa
öryggislögregluna fyrir kosn-
ingarnar í maí nk. Fram kemur
í skoðanakönnun, að langflestir
Vestur-Þjóðverjar telja, að
Modrow sigli undir fólsku flaggi
og sé ekki sá umbótasinni, sem
hann þykist vera.
Samstarfsflokkar kommúnista
hótuðu að segja sig úr stjórninni
ef Modrow og kommúnistaflokk-
urinn hættu ekki við að endurreisa
öryggislögregluna, sem stóð dygg-
an-vörð um stalínismann í 40 ár.
Átti að skipta um nafn á henni
og kalla „Stofnun til verndar
stjórnarskránni" og tilgangurinn
sagður vera sá að beijast gegn
nýnasisma og eiturlyfjasmyglur-
um. Talsmenn þriggja af fjórum
samstarfsfiokkum kommúnista
segja hins vegar, að nýnasisminn
í AuStur-Þýskalandi sé uppfinning
kommúnistaflokksins.
„Þetta mál sýnir vel hvernig
kommúnistaflokkurinn reynir að
seðja sitt gamla valdahungur,"
sagði Hans-Dieter Raspe, vara-
formaður Fijálslynda demókrata-
flokksins.
Modrow tilkynnti á þingi í gær,
að frestað hefði verið fram yfir
kosningar að koma á fót nýrri
öryggislögreglu og viðurkenndi
jafnframt, að gamla öryggislög-
reglan, hin hataða „Stasi“, njósn-
aði enn um óbreytta borgara. Hét
hann að binda enda á það.
í skoðanakönnun Wickert-
stofnunarinnar vestur-þýsku kem-
ur fram, að 84% Vestur-Þjóðveija
telja umbótatalið í Modrow aðeins
vera kænskubragð til að reyna að
tryggja áframhaldandi völd
kommúnista í Austur-Þýskalandi.